Morgunblaðið - 18.11.1994, Síða 45

Morgunblaðið - 18.11.1994, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 45 Frá Höskuldi Jónssyni: Nýverið birti Morgunblaðið frétt um ferðakostnað maka ráðherra ríkisstjórnarinnar á síðasta ári. í fréttinni var kostnaður skattgreið- enda vegna ferðalaga makanna tilgreindur og sérstakt yfírlit birt um fjölda ferða hvers ráðherra og maka hans, svo og fargjöld og dagpeninga. í lok fréttarinnar var greint frá því að gagnrýni hefði komið fram í breska þinginu á utanlandsferðir maka ráðherra þar í landi á kostnað skattgreiðenda. Ég hef orðið var við að frétt Morgunblaðsins hefur í huga margra þótt vera enn ein staðfest- ingin á spillingu í þjóðfélaginu. Ég kom til starfa í fjármálaráðu- neytinu 1965 og var þar í rúma tvo áratugi. Þá sem nú kom það fyrir að makar ráðherra fóru með Hugleið- ingar Frá Sigdóri Ó. Sigmarssyni: HVAÐ er Jafnréttisráð? Er það bara fyrir kvenfólk sem sækir um stöðu hjá sveitarfélagi eða ríkinu eða beitt er misrétti? Eða er það bara fyrir karla og konur sem beijast um stöð- ur hjá ríki eða bæ? Hvað um verkamenn eða sjómenn sem sagt er upp starfi? Maður heyr- ir aldrei minnst á að Jafnréttisráð fjalli um þær stéttir. Eru þær kannski réttminni eða hógværari? Eða er það kannski ekki fréttnæmt? Maður heyrir aldrei minnst á að sjómönnum eða verkamönnum hafí verið veittar eða dæmdar bætur hafi þeir verið beittir misrétti. Er Jafnréttisráð einungis til að útvega lögfræðingum atvinnu? Það er ekki ósennilegt því ísland er eitt mesta lögfræðingaríki veraldar. Nú orðið er ekki hægt að leita réttar síns nema fara með það til lögfræð- inga, enda lifa þeir góðu lífí hér á landi. Á Alþingi eru lögin samin og margir alþingismenn eru lögfræð- ingar. Eru lgin svona götótt, eða hvað? SIGDÓR Ó. SIGMARSSON, Skipasundi 79, Reykjavík. ♦ ♦ » Leiðrétting Frá Sveini Ólafssyni: í GREIN minni í blaðinu 12. þ.m., „Prófkjörsdraugurinn afturgeng- inn“, voru misritanir á tölum í lok 4. dálks og upphafi 5. dálks greinar- innar. Vegna samhengisins er sá hluti sem um er að ræða því endur- tekinn hér, en leiðréttingarnar koma fram með leturbreytingu: Frakklandsforseti er kjörinn til 7 ára, og hann skipar ríkisstjórnina. Hér eru menn kjörnir til 4 ára. Svo fer fyrsta 1 til \'h (eitt til eitt og hálfa) árið í undirbúning og að koma hlutunum í gang, og þar sem nýliðar eru að læra á hlutina (sem er mjög oft). Svo eru Vh til 2 (eitt og hálft til tvö) ár til að gera eitthvað, því á kosningaári þorir svo enginn að gera neitt og orka og hugsun stjórnmála- manna fer í að tryggja endurkjör og undirbúa framhaldið með bram- bolti „prófkjöranna". En í þeim umbyltingum hverfa margir með reynslu út í buskann og/eða er hent fyrir róða. — Og svo koma nýliðar aftur og aftur sem þurfa að fara í gegnum sama ferilinn. - Sem sé, nánast 2-2'/2 (tvö til tvö og hálft) ár af 4 fara í hvert sinn í vafstur og meira og minna af framkvæmda- tíma fer í súginn, sem annars gæti notast betur með lengri kjörtíma. Það, bara að lengja tímann, sem stjórnir sætu, gæti stórlega bætt ástandið og skapað stöðugleika og festu, sem erfitt er að ná með öðrum hætti. Og ekki veitir af - eða hvað? Lesendur eru beðnir velvirðingar á þessu brengli á tölunum í greininni. SVEINN ÓLAFSSON, Furugrund 70, Kópavogi. BRÉF TIL BLAÐSINS Um ferðakostnað maka ráðherra þeim úr landi og fengu greidda dagpeninga vegna ferða sinna. Ég efast um að það hafí hvarflað að nokkrum að orða þessa tilhögun við spillingu. Starfsmönnum ráðu- neytisins var ljóst að makar ráð- herranna sinntu fjölmörgum störf- um og báru kvaðir sem þýðingar- mikið var að einhver axlaði fyrir íslenska ríkið. Þannig má nefna dæmi um maka ráðherra sem jafn- víg var sem bílstjóri ráðherra og aðstoðarmaður. Mörg dæmi voru um að makar ráðherra tækju að sér leiðsögn fyrir maka erlendra ráðherra er sóttu hér fundi og ráð- stefnur svo og sinntu kvöðum um að vera til staðar við ótal tækifæri ásamt ráðherra. Hér var ekki að- eins fórnað tíma heldur og mörgu til kostað úr eigin vasa. Nú er það svo að margar utan- ferða ráðherra ásamt maka verða að teljast kvaðir fyrir makann. Ég minnist þess ekki að íslenskur ráð- herra hefði ritara sinn með sér utan en ég man ýmsa ráðherra sem höfðu ritara með sér til íslands. Það þarf reyndar ekki til þess að vitna. Hafi störfum eða kvöðum eigi verið sinnt í utanlandsferðum þá voru ferðir þessar eina endur- gjald ríkisins fyrir þau mörgu og þýðingarmiklu störf sem makar ráðherranna unnu sem sjálfboðal- iðar. Samanburður við Breta þjón- ar engum tilgangi nema upplýst sé hvaða skyldur eru í raun lagðar á maka ráðherra þar í landi. Víst eru til reglur um utanferðir maka ráðherra á kostnað ríkis- sjóðs. Þeim reglum verður þó aldr- ei beitt eftir talnaformúlu ein- göngu því sá sem heimsóttur er erlendis hefur alltaf áhrif á hveijir verða gestir hans. Vera má að reikningshaldarar vilji fá hveija stund maka ráðherranna talda og hvert skref þeirra mælt til mótbók- unar ferðakostnaði erlendis. Með- an það er ekki gert bið ég menn að halda ferðakostnaði maka ráð- herranna utan við umræðu um spillinguna. Okkur er sæmara að þakka þeim mikil og góð störf fyrir þjóðfélagið. HÖSKULDURJÓNSSON, forstjóri ÁTVR. Vesti kr. 2.995,« Skyrta kr. 3.495 Pils kr. 2.995,- Skór kr. 3.995.- Jakki kr. 5.995 Skyrta kr. 3.495 Buxur kr.2.495 Skór kr. 3.995 Jakkapeysa tweed kr. 4.995 Prjónapils tweed kr. 3.495,- Skór kr. 4.595,- Jakki kr. 3.995. 'oppur m/perlum kr. 1.995, Pils kr. 2.995 k SKór kr. 2.995 Jakkapeysa kr. 3.495, Prjónapils kr. 2.995,- Skyrta kr. 2.695,- Skór kr. 3.595,- ■ : 1 $ ? . ■■m 4 I » I i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.