Morgunblaðið - 18.11.1994, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
lilTt
Vinningstölur
16.11.1994
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
El 6afe 2 23.480.000
CT| 5 af 6 EH+bónus 1 2.862.855
5 af 6 2 126.147
□ 4af6 223 1.799
3 af 6 Cfi+bónus 807 213
Aöaitöiur:
;i-hfl5)(23
31) (32) (37
BÓNUSTÖLUR
©(10)0
Heildarupphæd þessa viku:
50.648.217
áísi.: 3.688.217
H............ ■■■■■■ ■1 .....
I vinninBur: lór til Danmerkur og Noregs
UPPLÝSINGAH, SfMSVARI 91- 68 15 11
LUKKULÍNA 9910 00 - TEfCTAVARP 451
B»RT MED FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Innritab verbnr á vorönn 1995
mánudaginn 21. og þriðjudaginn 22. nóvember
kl. 13.00-18.00.
ítarleg auglýsing birtist í blabinu á sunnudag
8
Hraðbankar
lokaðir
föstudaginn
18. nóvember
klukkan 19:30 - 23:00
Vegna viðhalds tölvukerfa hjá Reiknistofu
bankanna, verða allir hraðbankar lokaðir
á ofangreindum tíma.
Við biðjum viðskiptavini okkar velvirðingar
vegna þeirra óþæginda sem þetta kann
að hafa í for með sér.
Bankar og Sparisjóðir
Brjóstahaldarar með og án spanga, B, C og
D skálar, samfella með spöngum og teygjubuxur.
Söluaðilar:
Olympía Laugavegi • Olympía Kringlunni • Embla Hafnarfirði
H búðin Garðabæ • Perla Akranesi • Krisma ísafirði • Kaupfélag
Vestur-Húnvetninga Hvammstanga • ísold Sauðárkróki • Valberg
Ólafsfirði • Amaro Akureyri • Hin búðin Fáskrúðsfirði • KASK
Höfn Hornafirði • Kf. Rangæinga Hvolsvelli • Vöruhús K.Á. Selfossi
Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum • Ceres Nýbýlavegi Kópavogi
Heildsölubirgðir: Davíð S. Jónsson 8 Co. hf. sími 91- 24333
í DAG
BRIDS
llmsjón Guóm. I’ á I 1
Arnarson
HELEN Sobel (1910-
1969) er þekkt nafn í brids-
sögunni. Hún spilaði í sveit
með Culbertson um tíma
og var eftirlætismakker
Gorens. Hér er spil með
Sobel frá árinu 1948.
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ 85
Y 10742
♦ Á963
♦ K54
Vestur Austur
4 10942 ♦ ÁK
Y 3 11 Y KG986
4 D854 ♦ 102
♦ 10872 ♦ G963
Suður ♦ DG763 f ÁD5 ♦ KG7 ♦ ÁD
Vestur Norður Austur Suður
- 1 hjarta Dobl
Pass 2 tíglar Pass 2 grönd
Pass Pass 3 grönd Pass Pass
ÚtspQ: lauftvistur. (F^óröa hæsta.)
Þetta var í tvímennings-
keppni og Sobel hélt á spil-
um suðurs. Samgangurinn
við blindan er þungur, en
Sobel hafði engar áhyggjur
af því. Hún spilaði einfald-
lega smáum spaða að heim-
an í öðrum slag. Austur
drap á kónginn og spilaði
laufi. Sobel spilaði þá aftur
smáum spaða. Þar með
hafði hún tryggt sér þrjá
slagi á spaða og tíu í allt.
Segja má að spilið sé
sjálfspilandi, en það gefur
spilamennsku Sobel aukið
gildi að hún vissi upp á hár
að austur átti AK blanka í
spaða! Útspil vesturs var
vísbendingin. Hann vildi
ekki spila út í lit makkers
og átti því sennilega einspil
þar (austur lofaði aðeins
fjórlit í hjarta). Og úr því
vestur valdi að koma út frá
lélegum fjórlit (lauftvistur-
inn), var líklegt að hann
ætti hvergi fimmlit og þar
með skiptinguna 4-1-4-4.
Þar með lá ljóst fyrir að
austur átti tvílit í spaða.
Og hvar var opnun austurs
ef hann átti ekki ÁK í
spaða!
VELVAKANDI
Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Kannast einhver
við piltinn?
MÉR var send þessi mynd
fyrir nokkru og veit ekki
af hveiju mér var send
hún né af hveijum myndin
er. Geti einhver gefið upp-
lýsingar eða ef einhver
þekkir piltinn á myndinni
er hann vinsamlega beð-
inn að hringja í síma
93-11952.
Jenný Franklínsdóttir
Góð þjónusta
ÍIKEA
UM DAGINN keypti ég
sófasett í IKEA við Holta-
garða og var þjónustan
þar mjög lipur og góð. Ég
var mjög ánægður með
vöruna og fékk hana
senda heim samdægurs.
Þegar ég fór að skrúfa
saman einn stólinn rugg-
aði hann töluvert og var
greinilega einhver galli í
framleiðslunni.
Ég hringdi í IKEA og
talaði við konu, Huldu að
nafni, sem var mjög við-
mótsþýð og almennileg.
Ég bjóst við að reynt yrði
að laga þetta en hún sendi
mér nýjan sófa með sendi-
ferðabíl innan tveggja
stunda eftir samtal okkar
og tók gölluðu vöruna til
baka.
Ég vil þakka fýrir þessa
góðu þjónustu.
Ingvar Ragnarsson,
Veghúsum 31, Reyiqavík
Tapað/fundið
Eyrnalokkur
tapaðist
SPORÖSKJULAGAÐUR
eyrnalokkur með perlu og
demöntum tapaðist sl.
þriðjudag, en ekki er vitað
hvar. Skilvís fmnandi vin-
samlega hafi samband í
síma 687752 og er fundar-
launum heitið.
Lyklar töpuðust
LÍTIL rauð peningabudda
með lyklum í tapaðist við
verslunarsamstæðuna á
horni Safamýrar og Háa-
leitisbrautar sl. þriðjudag.
Hafi einhver fundið hana
er hann vinsamlega beð-
inn að koma henni í tísku-
verslunina Önnu eða
hringja í síma 38050.
Fjallahjól fannst
FJALLAHJÓL fannst í
Breiðholti fyrir síðustu
helgi. Upplýsingar í síma
78445 eða 71153.
Giftingarhringur
fannst
GIFTINGARHRINGUR,
karlmanns, fannst í
miðbæ Reykjavíkur að-
faranótt sl. sunnudags.
Upplýsingar í síma
651125.
Úr tapaðist
GYLLT armbandsúr með
brúnni leðuról tapaðist við
Glæsibæ sl. föstudags-
kvöld. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma 611865
eftir kl. 17.
LEIÐRÉTT
Tveggja milljarða
skuldir
HÆGT var að misskilja
skammstöfun á blaðsíðu 4
í Morgunblaðinu í gær
þannig að Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri
hefði í bókun á borgarráðs-
fundi sagt Sjálfstæðisflokk-
inn hafa arfleitt R-listann
að tveggja milljóna króna
nýrri lántöku. Borgarstjóri
átti við tvo milljarða, eins
og glöggir lesendur munu
hafa áttað sig á.
Jólakort
Umsjónarfélags
einhverfra
í fréttatilkynningu frá
Umsjónarfélagi einhverfra
um sölu á jóla-
kortum var rangt
símanúmer hjá
einum aðilanum
er annast sölu
kortanna en það
var Guðrún í síma
43849.
KIRKE
BLADET
GLOSLUNDE
GRÆSHAVE
DANNEMARE
OKTOMN 1*71
Som græs og blomsfer
Grein Péturs
Péturssonar -
forsíða
Kirkebladet
Með grein Pét-
urs Péturssonar
þular, „Bókvitið í
askana“, sem birt
var á bls. 40 í biaðinu í gær
(fimmtudag), átti að birtast
mynd af forsíðu „Kirke-
bladet" Gloslunde frá í
október 1976. Þau mistök
urðu að birt var mynd af
annarri síðu sama eintaks
Kirkebladet. Hér kemur hin
rétta mynd. Velvirðingar
beðizt á myndruglingnum.
Víkverji skrifar...
EGAR Víkveiji var á ferð í
útlöndum á dögunum lagði
hann leið sína í nokkrar plötubúðir.
í þeim öllum átti Björk Guðmunds-
dóttir sinn bás með plötuna Debut.
Það var ekki ónýtt að sjá Björk við
hliðina á Michael Bolton og öðrum
stórstjörnum poppsins. Sömu helg-
ina var svo langur þáttur með Björk
á tónlistarrásinni MTV. Það er eng-
in vafi á því að Björk er komin í
hóp með helstu stjörnum dægur-
lagatónlistarinnar.
XXX
ARNOR Guðjónsen var um síð-
ustu helgi valinn knattspyrnu-
maður ársins í Svíþjóð. Hann hafði
umtalsverða yfirburði í kosningum
leikmanna deildarinnar. Þetta er
frábær árangur hjá Arnóri, því hann
var að keppa um tignina við leik-
menn úr silfurliði Svía í heimsmeist-
arakeppninni í sumar. Það má rifja
það upp hér að í ár eru 10 ár síðan
Ásgeir Sigurvinsson vann í sam-
bærilegri kosningu í Þýzkalandi.
Fyrir aðdáendur Asgeirs var gaman
að sjá ummæli Jurgen Klinsman í
viðtali á íþróttasíðunni fyrir
skömmu, en hann telur Ásgeir bezta
knattspyrnumann sem hann hafi
leikið með.
Ásgeir og Arnór eru tvímæla-
laust beztu knattspyrnumenn okkar
íslendinga á seinni árum. Ferill
Arnórs er brátt á enda og því gam-
an að hann skuli hljóta þennan
heiður í Svíþjóð nú. Sonur hans
Eiður hefur sem kunnugt er skrifað
undir atvinnusamning við hollenska
liðið PSV Eidhoven. Víkveiji er
ekki í nokkrum vafa um að Eiður
verði næsta stórstjarna okkar ís-
lendinga í knattspyrnu. Til þess
hefur hann alla burði.
xxx
AÐ HEFUR vakið gremju
knattspyrnuunnenda að lands-
leikur Sviss og íslands í fyrrakvöld
skyldi ekki sýndur beint í Ríkissjón-
varpinu. Forstöðumaður íþrótta-
deildarinnar hefur upplýst að sýn-
ingarréttur fyrir leikinn hafi kostað
eina milljón og það sé einfaldlega
of dýrt.
Víkveija þykir ein milljón ekki
há upphæð fyrir svona vinsælt efni.
Á móti gæti RUV selt auglýsingar
og fengið tekjur upp í kostnaðinn.
Hins vegar munu þær reglur gilda
innan RUV að auglýsingar sem
seldar eru í tengslum við íþróttavið-
burði koma íþróttadeildinni ekki til
tekna. Hún þarf eftir sem áður að
borga fyrir sýningarréttinn af sinni
fjárveitingu. Þessu kerfi þarf aug-
ljóslega að breyta.
XXX
ENN EINU sinní verðum við
íslendingar að þola tap í lands-
leik í knattspyrnu. Eftir góðan
árangur í undankeppni heimsmeist-
arakeppninnar voru miklar vonir
bundnar við Evrópukeppnina en
þær hafa brugðist gjörsamlega. Lið-
ið hefur ekki skorað eitt einasta
mark í fyrstu þremur leikjunum.
Fróðlegt verður að fylgjast með
viðbrögðum knattspyrnuforystunn-
ar við þessu slaka gengi.
XXX
AÐ LOKUM er stutt saga úr
tjóðleikhúsinu. Ungt par kom
10 mínútum of seint á leiksýningu
og var tjáð að ekki væri hægt að
hleypa fólki inn í salinn eftir að
leiksýning hæfist. „Er ekki enn
verið að sýna úr næstu Ieikritum,"
spurði parið þá undrandi!