Morgunblaðið - 18.11.1994, Side 52
52 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ GÆTI HENT ÞIG
16500
ii ym y yyy ***** •*** Ifjt y*i yy
JL,Jhrf***MM%f-M^t*M-*í M~*>* M-jL^t M-JC **»
A merrity Ubtdhunts comedy, uHth sex on ihe braitt* *'*
t
thrre
ohc X*rl. two gttyí, ihn c pofsihilitirs.
ImB ■* ^S«?^tSr55Þ%tP« ■
EIN STELPA, TVEIR STRÁKAR
ÞRÍR MÖGULEIKAR
Stórskemmtileg gamanmynd með
vafasömu ívafi með LARA FLYNN
BOYLE, STEPHEN BALDWIN og
JOSH CHARLES í aðalhlutverkum.
Stuart er hrifinn af Alex,
Alex þráir Eddy og Eddy
..er ekki með kynhvatir sínar á
alveg á hreinu.
"Galsafengin og lostafull, með
kynlífá heilanum. Aldrew Fleming
lætur allar óskir unga fólksins um
kynlíf rætast á hvíta tjaldinu og
hrífur okkur með sér. Samleikur
. þríeykisins er frábær"
David Ansen, NEWSWEEK
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 12 ára.
STJÖRNUBÍÓLÍNAN SÍMI 991065
Taktu þátt í spennandi kvikmyndagetraun.
Verðlaun: Boðsmiðar á myndir í Stjörnubíói
Verð kr. 39,90 mínútan.
Framlag Islands til
Óskarsverðlauna
1994.
Kr. 800 f. fullorðna.
Kr. 500 fyrir börn yngri
en 12 ára. Sýnd kl. 5.
ÚLFUR
Sýnd kl. 6.45.
Diamond í skilnað-
armálum
Söngvarinn Neil Diamond og eiginkona
hans Marcia eru að skilja eftir 24 ára
samband. Þau eiga tvo syni; Jesse tuttugU
og tveggja ára og Micha fimmtán ára.
Eignir söngvarans eru metnar á 200 millj-
ónir dala eðá fjórtán milljarða króna. Tals-
maður söngvarans segir: „Þau skilja í
fullri sátt og fjölskyldu sinnar vegna munu Diamond getur nú ein-
þau halda skilnaðinum út af fyrir sig“. beitt sér að tónlistinni.
FOLK
iykjavík
.. 'Wik - '»l
XIV/BIOVM .VAMBIOIM SAM\
Eigum við að hittast í kvöld?
Fyrirtaks frumraun
Morgunblaðið/Kristinn
BONG flokkurinn margefldur.
TONUST
G e i s I a d i s k u r
RELEASE MEÐ DANS-
SVEITINNI BONG
Release, fyrsta breiðskífa Bong
flokksins, sem er skipaður Eyþóri
Arnalds og Móeiði Júníusdóttur. Á
plötunni leggur fjöldi tónlistarmanna
þeim Iið, þar á meðal Guðmundur
Jónsson, Jakob Magnússon, Eiður
Amarson, Szymon Kuran, Sigtrygg-
ur Baldursson, Bryndís Halla Gylfa-
dóttir, Andrzej Kleina og Gunnlaug-
ur Briem. Upptökumenn voru Eyþór
Amalds og Páll Borg. Spor gefur
út. 52,30 min. 2.199 kr.
BONG FLOKKURINN, sem er
tveggja manna hljómsveit alla jafna,
þó um þessar mundir séu hljómsveit-
armeðlimir fimm, spratt út úr
Todmobile að hálfu, því Eyþór Arn-
alds var þriðjungur þeirrar sveitar,
en Móeiður hafði áður sungið víða.
Aðdragandi að þessar breiðskífu er
nokkur, því þau Móeiður og Eyþór
höfðu samið allmikið saman áður en
að þvi kom að Bong kom upp á yfir-
borðið, og það heyrist vel á plötunni
að Bong er fullmótuð hljómsveit með
þróað tónmál þrátt fyrir að Release
sé fyrsta breiðskífa sveitarinnar.
Upphafslag plötunnar, Still so Far
Away, er gott dæmi um það, því það
er nánast skothelt popplag og útsetn-
ing eftirminnilega góð. Næsta lag,
Stream, er sannkölluð poppperla og
engin furða að það hafi orðið vin-
sælt. Fleiri slík lög eru á plötunni, til
að mynda er titillagið sérdeilis vel
heppnað, Jazz me Up hefur afskap-
lega skemmtilegan taktgrunn og gott
„groove", og TV Child er fyrirtaks lag
með aðlaðandi bandarískum soul-
áhrifum. „Gömlu lögin“ á plötunni,
þ.e. lög sem sveitin hefur áður sent
frá sér á safnplötum, eru skemmtilega
endurgerð og hljóma sem ný, sérstak-
lega hefur vel tekist til með Live in
a Life og Furious en Do You Rem-
ember er nánast endurhljóðblöndun,
þar sem nýir fletir eru speglaðir á
laginu.
Framan af var tóniist Bong mjög
dansleg, en með tímanum og eftir þvi
sem sveitinni hefur miðað áfram hef-
ur hún mótað sérstakan stíl; dægilega
danspoppblöndu. Þannig er Iokalag
plötunnar, Keep Me Away from the
Dark, líklega danslegasta lagið, sem
stendur þó á traustum poppgrunni.
Textar Bong eru allir á ensku og
sem slíkir prýðilegir, til að mynda
Stream, Release og Jass Me Up, en
aðrir þynnri eins og gengur.
Hljóðfæraleikur á plötunni er allur
til fyrirmyndar, en geta má sérstak-
lega bassaleiknum, til að mynda í
laginu Stream, og strengjaleik í lög-
unum Still Far Away og Be My Visi-
on.
Umslag plötunnar, sem Kjól og
Anderson hannaði, er frábærlega vel
heppnað hið ytra, en líkt og með fleiri
umslög sem sú samsteypa hefur sett
saman er frágangur texta einkenni-
lega klúðurslegur. Galli er og á eins
vandaðri útgáfu að lagalisti sé ekki
réttur á umslagi _eða disk.
Árni Matthíasson
Nýtt í kvikmyndahúsunum
Gamanmynd frumsýnd
í Stjörnubíói
STJÖRNUBÍÓ hefur hafið sýningar
á gamanmynd með vafasömu ívafi,
„Threesome", með Lara Flynn
Boyle, Stephen Baldwin og Josh
Charles í aðalhlutverkum.
Þegar Alex (Boyle) skráir sig í
háskólann grunar hana ekki að
nafn hennar eigi eftir að koma
henni í óendanlegt klandur. Þótt
heimavistin sé blönduð er ekki gert
ráð fyrir að bæði kynin sofi í sömu
íbúðinni. Alex bregður illilega þegar
hún sér sambýlismenn sína, þá
Eddy og Stuart. Þótt Eddy og Stu-
art séu ótrúlega ólíkir hefur tekist
með þeim góð vinátta og nærvera
AÍex kemur róti á huga þeirra
beggja. Ekki líður á löngu þar til
þau eru orðin óaðskiljanleg og sam-
band þeirra vekur ómælda forvitni
skólafélaganna sem njósna um þau
daga og nætur, enda engin furða
AÐALLEIKARAR í „Three-
some“ sem Stjörnubíó hefur
hafið sýningar á.
því Stuart þráir Alex, Alex þráir
Eddy og Eddy — hann er ekki al-
veg með kynhvatir sínar á hreinu.
Leikstjóri er Andrew Flemning
en framleiðandi er Brad Krevoy.