Morgunblaðið - 23.11.1994, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1994 11
LANDIÐ
Tilboði í björgunar-
þyrlu ekki tekið
Egilsstaðabær fékk ekki fjárstuðning
Kaupfélag Rangæinga heldur upp 75 ára afmæli
Morgunblaðið/Steinunn
GESTIR gæða sér á afmæliskaffi Kaupfélags Rangæinga.
Erfiðleikar hjá RARIK á Snæfellsnesi
Rafmagnstruflanir
í hvassviðrinu
Egilsstöðum - Grænlandsflug hefur
dregið tilboð sitt til baka, sem það
gerði bæjarstjóm Egilsstaðabæjar
um leigu á Bell-björgunarþyrlu. Þyrl-
an átti að hafa aðstöðu á Egilsstaða-
flugvelli frá 15. janúar til 15. apríl
1995. Umboðsmaður Bell á íslandi
tilkynnti bæjarstjórninni það að fyrir-
vari væri orðinn of skammur, og því
væri tilboðið dregið til baka.
Laugarhóli - Á fimmtudag í síðustu
viku var opnaður vegurinn norður í
Árneshrepp, en hann hafði lokast í
haust, norðan Bjarnafjarðar. Gafst
þá tækifæri til að komast suður eft-
ir og versla, meðal annars. Þessi
dýrð stóð þó ekki lengi, því um
helgina gerði svo hressilegt áhlaup,
að allt lokaðist aftur, í bili að
minnsta kosti, auk þess sem Stein-
Egilsstaðabær leitaði fjárstuðnings
til fjölmargra aðila til að tryggja komu
vélar og áhafnar til Egilsstaða 15.
janúar, en það dæmi gekk ekki upp.
Helgi Halldórsson bæjarstjóri sagði
það ljóst að allir þeir sem haft var
samband við væru jákvæðir gagnvart
verkefninu, þó formleg staðfesting á
fjárstuðningi þeirra hefði ekki borist
nema í fáum tilvikum.
grímsfjarðarheiðin lokaðist einnig.
Verið er að dýpka bátahöfnina í
Norðurfirði og er því unnið þar að
sprengingum og grjótupptekt.
Við Finnbogastaðaskóla eru nú
tveir afleysingakennarar um sex
mánaða skeið. Eru þau að leysa af
bæði skólastjórann og kennara við
skólann, en þær eru báðar í barns-
burðarleyfi.
Stykkishólmi - Mikið hvassviðri
geysaði á norðanverðu Snæfellsnesi
á mánudag, eins og víðar á land-
inu. Miklar rokur komu.
Að sögn Erlings Garðars Jónas-
sonar umdæmisstjóra RARIK var
nóg að gera hjá starfsmönnum
RARIK. Þrumur og eldingar voru
í Fróðárhreppi og eyðilögðust þrír
spennar þar. Því voru rafmagns-
truflanir í Ólafsvík og á Hellis-
sandi. Einnig voru truflanir á Helln-
um og Stapa. Þá slitnaði rafmagns-
lína yfir Hraunfjörð og urðu bæirn-
ir Berserkseyri og Kolgrafir raf-
magnslausir um tíma en starfs-
mönnum RARIK tókst að laga lín-
una til bráðabirgða og bæirnir
fengu því rafmagn aftur. Samslátt-
ur varð á línunni til Grundarfjarðar
vegna hvassviðris og því rafmagns-
truflanir þar.
Þriðjungur
íbúanna
mætir í af-
mæliskaffi
Hvolsvelli -1.100 manns eða tæp-
lega þriðjungur íbúa í Rangár-
vallasýslu komu í afmæliskaffi
hjá Kaupfélagi Rangæinga á
Hvolsvelli og í Rauðalæk sl.
föstudag. Kaupfélagið, sem er
75 ára um þessar mundir, heldur
með ýmsum hætti upp á afmæli
sitt. Næstu tvær vikurnar verður
ýmislegt skemmtilegt í gangi í
verslunum félagsins, svo sem
fjölbreytt vörutilboð og vöru-
kynningar.
Kaupfélag Rangæinga, sem
upphaflega var Kaupfélag Hall-
geirseyjar, var stofnað í Miðey í
Austur-Landeyjum 20. nóvem-
ber 1919 og hófst verslun í Haíl-
géirsey vorið 1920. Eftir að sam-
göngur breyttust flutti félagið
starfsemi sína smám saman á
Hvolsvöll, en fyrst var stofnað
þar útibú árið 1930. Varð það
grundvöllurinn að myndun þétt-
býlis á Hvolsvelli.
Samdráttur í landbúnaði hefur
áhrif á reksturinn
Rekstur kaupfélagsins hefur
dregist saman hin síðari ár en
það eru óhjákvæmilegar afleið-
ingar samdráttar í landbúnaði.
Að sögn Ágústar Inga Olafssonar
kaupfélagsstjóra gengur rekst-
urinn þó nokkuð vel i dag og
ekki annað að sjá en að félagið
haldi velli um ókomin ár.
Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson.
SNJÓBÍLAR og vélsleðar verða oft helstu farartæki manna í
vetrarveðrunum á Ströndum.
Opnað í Arneshrepp
AUKABUNADUk A MYND: ALFELGUR.
I 20 AR HEFUR VOLKSWAGEN GOLF NOTIÐ FADÆMA VINSÆLDA VIÐA UM HEIM. HANN HEFUR
MARGA HEILLANDI KOSTI, SVO SEM FALLEGT ÚTLIT, EINSTAKT ÖRYGGI, GÓÐA AKSTURSEIGINLEIKA,
RÍKULEGAN STAÐALBÚNAÐ, GOTT FARÞEGA- OG FARANGURSRÝMI. ÞETTA ALLT ÁSAMT LÁGUM
VIÐHALDS- OG REKSTRARKOSTNAÐI ER ÁSTÆÐA ÞESS AÐ HANN ER í HÁVEGUM HAFÐUR...
...SAMT ER VERÐIÐ NIÐRI A JORÐINNI •
HEKLA
-S///te///cr Ac'rS'//
Volkswagen
Oruggur á olla vegu!
Laugavegi 170-174, sími 69 55 00
•2 DYRA FRA KR. 1.133.000.- *4 DYRA FRÁ KR. 1.237.000.- *LANGBAKUR FRÁ KR. 1.288.000.-