Morgunblaðið - 02.12.1994, Síða 1
96 SÍÐUR B/C/D
276. TBL. 82. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Kozyrev kemur utanríkisráðherrum NATO á óvart
Frestar undirritun
samstarfssanmings
Brussel. Reuter.
UTANRIKISRAÐHERRAR Atl-
antshafsbandalagsins, NATO,
ákváðu á fundi sínum í Brussel í gær
að láta kanna í eitt ár hvernig best
yrði staðið að stækkun bandalagsins
til austurs. Andrej Kozyrev, utanrík-
isráðherra Rússlands, frestaði að
undirrita samning Rússa og NATO
um samstarf í þágu friðar og sagði
að áform bandalagsins um stækkun
þess til austurs þörfnuðust frekari
skýringa.
Ráðgert hafði verið að Kozyrev
undirritaði samninginn á sérstökum
fundi með ráðherrum NATO og
ákvörðun hans kom þeim mjög á
óvart. Hann tilkynnti ákvörðunina
eftir að hafa rætt við Borís Jeltsín,
forseta Rússlands, og sagði að áform
NATO þörfnuðust skýringa þar sem
svo virtist sem samstarfssamningur-
inn væri nú aðeins orðinn að „auka-
atriði í ákvörðun sem þegar hefur
verið tekin um stækkun bandalags-
ins“.
Harðar deilur innan bandalagsins
milli Vestur- Evrópuríkja og Banda-
ríkjanna vegna stefnunnar í málefn-
um Bosníu hvíla eins og skuggi yfir
fundi NATO en Warren Christopher,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
lagði áherslu á traustan stuðning
stjórnar sinnar við samstarfið.
Ekki stofnað vegna Bosníu
„Bandalagið verður sem fyrr
grundvöllur afskipta okkar af mál-
efnum Evrópu, undirstaða öryggis-
mála beggja vegna hafsins," sagði
Christopher. Hann sagði að Bosníu-
deilan drægi á engan hátt úr mikil-
vægi NATO og tóku aðrir ráðherrar
undir orð hans.
„NATO .var ekki stofnað til að
leysa Bosníudeiluna," var haft eftir
Douglas Hurd, utanríkisráðherra
Breta í gær. Heimildarmenn segja
að eining sé um að bandalagið sé
of mikilvægt til að láta Bosníudeil-
una kollvarpa því og síðustu daga
hafa fulltrúar stjórnvalda í Washing-
ton reynt að laga sjónarmið sín að
stefnu Breta og Frakka með því að
leggja áherslu á nauðsyn friðarvið-
ræðna í Bosníu.
Willy Claes, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins, sagði
menn sammála um að ekki væri
hægt að leysa deilurnar í gömlu
Júgóslavíu með vopnavaldi.
Utanríkisráðherra Þýskalands,
Klaus Kinkel, sagði í gær að ekki
væri hægt að útiloka að Þýskaland
yrði við ósk NATO um að leggja
fram herþotur til loftárása á Serba.
Það yrði þó aðeins gert eftir vand-
lega íhugun, að sögn Kinkels.
■ Ráðherrafundur NATO/18
Alnæmis-
ráðstefnu
mótmælt
UMDEILD alnæmisráðstefna var
sett í París í gær og Boutros
Boutros-Ghali, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna,
hvatti þar til alþjóðlegrar her-
ferðar gegn alnæmisveirunni í
fátækum ríkjum heims. „Ég gef
út almennt herútboð," sagði hann
við fulltrúa 42 ríkja sem sækja
ráðstefnuna. Þjóðhöfðingjum
allra ríkjanna var boðið á ráð-
stefnuna en enginn þeirra þáði
það. Á hinn bóginn sitja hana
margir ráðherrar, þeirra á meðal
13 forsætisráðherrar. Á mynd-
inni mótmælir hópur Frakka ráð-
stefnunni við Sigurbogann í Par-
ís, en þeir telja að ráðstefnan
hafi aðeins táknrænt gildi, engar
ákvarðanir verði teknar um
raunhæfar aðgerðir gegn út-
breiðslu alnæmis.
Reuter
Silvio Berlusconi nær að styrkja stöðu sína á ný
Lífeyrisstríðið búið
Segist munu fara frá Ítalíu verði hann ákærður um spillingu
Róm. Reuter.
SILVIO Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, náði í gær samkomu-
lagi við verkalýðsfélögin í landinu
um að draga úr skerðingu lífeyris-
réttinda og hafa þau aflýst fyrir-
huguðu allsherjarverkfalli í dag.
Skýrði hann frá þessu á frétta-
mannafundi í gær og lýsti þá einn-
ig yfir, að yrði hann ákærður um
spillingu, gæti hann ekki búið leng-
ur á Italíu.
Samningaviðræðurnar við
verkalýðsfélögin stóðu næstum því
í sólarhring samfleytt og þykir
samkomulagið hafa styrkt ríkis-
stjórnina og Berlusconi sjálfan.
Hefur hann átt í vök að veijast
síðustu vikuna, einkum vegna
rannsóknar á meintum mútu-
greiðslum fyrirtækis hans, Finin-
vest. „Lífeyrissjóðastríðinu er lok-
ið, fjárlagafrumvarpinu hefur verið
bjargað,“ sagði Berlusconi og
brosti út að eyrum.
Með fjárlagafrumvarpinu var
stefnt að því að lækka ríkissjóðs-
hallann um rúmlega 2.000 millj-
arða króna og voru breytingar á
lífeyrissjóðakerfinu, einu því
rausnarlegasta í heimi, stór þáttur
í því. Eftir sem áður verður skerð-
ingin nokkur en þó 170 milljörðum
kr. minni en fyrirhugað var. Er
stefnt að því að ná því með öðrum
niðurskurði.
Ólíft á Ítaiíu
Á blaðamannafundinum var
Berlusconi spurður um spillingar-
rannsóknina, sem nú fer fram, og
svaraði þá, að yrði hann formlega
ákærður, gæti hann ekki lengur
búið í landinu. „Raunar held ég,
að enginn dómstóll í þessu landi
geti dæmt mig, einfaldlega vegna
þess, að ég heiti Silvio Berlusconi.
Ella yrði um að ræða pólitískan
dóm,“ sagði forsætisráðherrann.
Farþeg-
arnir
hólpnir
NÆR þúsund farþegar og skip-
verjar, er björguðust þegar eidur
blossaði upp í farþegaskipinu
Achille Lauro við strönd Sóinalíu
á miðvikudag, voru í gær fluttir
á björgunarbátum úr skipum,
sem björguðu þeim, um borð í
bandarísk herskip. Fólkið var
sólbrunnið og örmagna eftir
volkið og sumir tárfelldu af geðs-
hræringu. Fólkið verður flutt til
Djibouti og Kenýu. Eldar loguðu
enn í skipinu í gær, eins og sjá
má á myndinni, en ítalskir emb-
ættismenn sögðu að ef til vill
yrði hægt að bjarga skipinu þar
sem ekki væri víst að það sykki.
Bandaríkin
Þingið
samþykk-
ir GATT
Washington. Reuter.
ÖLDUNGADEILD Bandarikjaþings
samþykkti í gærkvöldi GATT-samn-
inginn um aukin heímsviðskipti.
Þingið hefur þar með staðfest
samninginn endanlega, þar sem full-
trúadeildin hafði áður samþykkt
hann með miklum meirihluta at-
kvæða.
Samningurinn var samþykktur í
öldungadeildinni með 76 atkvæðum
gegn 24. Fyrst þurfti deildin að sam-
þykkja sérstakt frumvarp í tengslum
við fjárlögin með a.m.k. 60 atkvæð-
um og það var samþykkt með 68
atkvæðum gegn 32.
Handrit
selt fyrir
metverð
Lundúnum. Reuter.
HANDRIT að annarri sinfóníu
Schumanns var selt fyrir met-
verð, 1,49 milijónir punda, jafn-
virði 160 milljóna króna, á upp-
boði í Lundúnum í gær.
Tónskáldið samdi sinfóníuna
á árunum 1846-47 og margir
töldu að handritið hefði glatast
þegar húsnæði eiganda þess í
Leipzig eyðilagðist í loftárásum
bandamanna í heimsstyijöldinni
síðari. Svo var þó ekki og eig-
andinn seldi það óþekktum
safnara árið 1950.
Nýju eigendurnir eru þekktir
safnarar í New York, Robin
Lehman og kona hans.