Morgunblaðið - 02.12.1994, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
■ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1994 17
ÚRVERINU
Skýrsla Hafrannsóknastofnunar um eiturþörunga
Ekkí eitrun í kúfiski af
völdum PSP og DSP
31. MYND. Fjöldi fruma af Alcxandrium spp. og Dinophysis spp
í Aðalvík 28. mars til 21. september 1994.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir hér 7. kafla úr
skýrslu Hafrannsókna-
stofnunar Þættir úr
vistfræði sjávar 1994
sem nefnist Eitraðir
þörungar.
VEGNA fyrirhugaðs útflutnings á
kúfiski til Bandaríkjanna, hafa
bandarísk yfirvöld gert kröfur um
viðamiklar rannsóknir á veiðisvæð-
um kúfisks. Meðai annars er farið
fram á að athugað verði hvort eitrað-
ir þörungar finnist á veiðisvæðunum
og hvort þörungaeitur sé í kúfiskin-
um.
Safnað hefur verið vikulega frá
28. mars 1994 og er áætlað að halda
því áfram út október 1994. Sýnum
hefur verið safnað á kúfiskmiðum í
Önundarfirði, Aðalvík og Fljótavík.
Háfsýni og talningarsýni voru tekin
úr yfirborði. Einnig var mæld blað-
græna, selta, næringarefni og hiti í
yfirborði. Mánaðarlega voru mæld
þörungaeitrin PSP, DSP og ASP í
kúfiskinum. ASP (Amnesic shellfish
poison) er eitur sem m.a. veldur
minnisleysi, og hefur fundist hjá kís-
ilþörungategdununum Pseudonitzsc-
hia pseudodelicatissima og P. pung-
ens f. multiseris.
Helstu niðurstöður, hvað varðar
eiturþörunga, eru þær að lítið bar á
tegundum sem valdið geta PSP og
DSP eitrun á rannsóknarsvæðunum
(31. mynd). Hins vegar var kísilþör-
ungur P. pseudodelicatissima í miklu
magni á öllum svæðum í ágústmán-
uði, en hann getur valdið ASP eitrun.
Mælingar á DSP og PSP sýndu
að ekki var um eitrun í kúfíski að
ræða af völdum þessara eiturefna.
Mælingar á kísilþörungaeitrinu ASP
hafa enn ekki verið gerðar.
Rannsóknirnar hafa einnig gefið
áhugaverðar niðurstöður um árstíða-
breytingar á þörungasvifi við Vest-
firði. Vorhámark kísilþörunga varð í
Önundarfirði upp úr miðjum apríl og
lauk um miðjan maí, en í Aðalvík og
Fljótavík varð vorhámark um þremur
vikum seinna (29. mynd). Sömu teg-
undir voru ríkjandi í vorhámarki á
öllum svæðunum. Mest bar á Tha-
lassiosira spp. en Phaeocystis pouc-
hetii fjölgaði þegar leið á hámarkið.
Eftir lægð í fjölda þörunga í júnímán-
uði varð mikil aukning um mánðar-
mótin júní-júlí í Önundarfirði og viku
seinna í Aðalvík og Fljótavík. Eins
og áður var þörungasamfélagið
áþekkt á öllum svæðum. Fjölmargar
tegundir var að fínna í svifinu í byij-
un júlí og sumar þeirra í töluverðu
magni. Langmest var þó af smáum
kísjlþörungi Leptocylindra minimus.
í lok júlí varð svo Skeletonema
costatum ríkjandi tegund og var í
mestum fjölda inni á Önundarfirði.
Hámark í fjölda þessarar tegundar
stóð stutt, því að í fyrstu viku ágúst-
mánaðar fór að bera á P. pseudod-
elicatissima og fjölgaði henni ört í
svifinu á næstu vikum. Hámarki
náði tegundin á öllum svæðunum
upp úr miðjum ágústmánuði. Fjöldi
fruma á lítra fór þó fljótlega minnk-
andi í Önundarfirði og á Fljótavík,
en hélst lengur á Aðalvík.
Lítið var um skoruþörunga á þess-
um svæðum í samanburði við kísil-
þörunga. Mestur fjöldi skoruþörunga
var í júlí og fram í ágúst á öllum
svæðum (30. mynd). Þær tegundir
sem mest var af voru Heterocapsa
triquetra og Scrippsiella trochoidea.
Af öðrum þörungum í svifinu var
Phaeocystis mest áberandi, en fjöld-
inn varð aldrei mikill, mest tæplega
300 þúsund frumur á lítra.
Eins og fram kemur á 29. mynd
var frumufjöldinn mun minni í vor-
hámarkinu þegar Thalassiosira teg-
undir voru ríkjandi, en um miðojan
ágúst þegar mest var af Pseudon-
itzschia pseudodelicatissima. En það
verður að hafa í huga að rúmmál
Thalassiosira tegunda er um 80 sinn-
um meira en P. pseudodelicatissima.
Þrjú skip í Smugunni
AÐEINS þijú skip í eigu íslendinga eru nú við veiðar í Smugunni, en
það eru Hágangur I og Hágangur II ásamt Sigli. Fá skip hafa verið
við veiðar í Smugunni upp á síðkastið enda veiði þar verið dræm.
Snorri Sturluson er nú á leiðinni til lands eftir tveggja mánaða túr
og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er aflaverðmætið aðeins um
28 milljónir króna. Að sögn Þórhalls Helgasonar rekstrarstjóra hjá
Granda eru ekki áform um að halda veiðum áfram í Smugunni í vetur.
Þörungarannsóknir
á skelfiskmiðum
ÞÓRUNN Þórðardóttir þörunga-
fræðingur hjá Hafrannsóknastofnun
segir að kísilþörungurinn Pseudon-
itzschia pseudodelicatissima, sem
getur valdið ASP eitrun, sé að finna
í mismiklum mæli umhverfis allt
land. ASP eitrun af völdum kísilþör-
unga kom fyrst fram 1987 í Kanada.
Hins vegar sé of snemmt að draga
þá ályktun að þörungurinn, sem
fannst í talsverðu magni á kúfiskmið-
um, valdi eitrun í skelfiski. Mælingar
á kísilþörungaeitrinu ASP hafa enn
ekki verið gerðar, en fengnar niður-
stöður bendi til að ekki sé um eitrun
að ræða.
Þórunn segir það m.a. tilgang
rannsóknanna að vara við ef hætta
er á ferðum vegna hugsanlegrar eitr-
unar í skeifiski. í skýrslu Hafrann-
sóknastofnunar um vistfræði sjávar
1994 segir að bandarísk yfirvöld
hafi farið fram á viðamiklar rann-
sóknir á veiðisvæðum kúfisks vegna
fyrirhugaðs útflutnings þangað og
m.a. farið fram á að athugað verði
hvort eitraðir þörungar fínnist á
veiðisvæðunum og.hvort þörungaeit-
ur sé í kúfiskinum. Þórunn segir að
þörungar sem geta valdið PSP og
DSP eitrun hafi ekki fundist við
Vestfirði í það miklu magni að þeir
geti valdið eitrun í skelfiski. Fjöldi
þeirra var ámóta og fundist hefur
umhverfis landioð á Undanförnum
árum.
STEINAR WAAGE _
SKÓVERSLUN
Barnakuldaskór
í miklu úrvali
Tegund: SABU 4709
Verð: 2.995,-
Litir: Brúnn, grænn og gulur
Stærðir: 25-30
Tegund: 9118-02
Verð: 2.495,-
Iitir: Grænn, blár og rauður
Staerðir: 20-26
Tegund: SABU 4720
Verð: 3.995,-
Iitir: Grænn og vínrauður
Staerðir: 25-35
Tegund: 1181
Verð: 3.995,-
Litur: Brúnn
Stærðir: 28-35
Tegund: MELANIA 4710
Verð: 2.995,-
Litír: Brúnn, grænn og blár
Stærðir: 23-30
Tegund: MELANIA 4711
Verð: 2.995,-
Iitír: Brúnn, grænn og blár
Stærðir: 23-30
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR
STEINAR WAAGE J?
SKÓVERSLUN
SÍMI 18519
&
Ioppskórinn
VELTUSUHDI • SlMI: 21212
VIÐ INGÓLFSTORG
STEINAR WAAGE >
SKÓVERSLUN
SÍMI689212
xÖ-
J