Morgunblaðið - 02.12.1994, Síða 30

Morgunblaðið - 02.12.1994, Síða 30
30 FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. FESTA I STJÓRNSÝSLU TRAUST OG skilvirk stjórnsýsla er mikilvægur þáttur í stjórnun og rekstri þjóðfélagsins. Grundvallaratriði er, að hún hafi tiltrú borgaranna og þeir hafi sannfæringu fyrir því, að jafnræðis sé gætt í samskiptum við þá. Skatt- greiðendur, sem bera kostnaðinn, krefjast að sjálfsögðu aðhalds og sparnaðar í meðferð fjármuna. Undanfarin misseri hefur borið æ meira á ábendingum og athugasemdum Ríkisendurskoðunar við störf stjórn- sýslunnar • og verður svo væntanlega í náinni framtíð. Hlutverk Ríkisendurskoðunar er að veita aðhald og leið- beiningar um meðferð opinbers fjár, auk hefðbundinnar endurskoðunar, og starfar hún undir stjórn fjárveitinga- valdsins, Alþingis. í viðtali Morgunblaðsins fyrir skömmú við ríkisendurskoðanda, Sigurð Þórðarson, segir hann m.a., að slaknað hafi á aðhaldi embættismanna frá því hann hóf störf í ríkiskerfinu fyrir aldarfjórðungi. Hann telur m.a. skorta skriflegar reglur um bókhald og með- ferð á fjárreiðum, svo og leiðbeiningum til starfsfólks. Embættismönnum verði að vera ljóst, hvaða skilyrði þurfi að vera fyrir hendi, þegar stofnað er til útgjalda á vegum ríkisins. Meiri formfestu skorti. Ríkisendurskoðandi segir, að ein ástæðan fyrir slakara aðhaldi í ríkisrekstrinum sé, hversu umfangsmikill hann sé orðinn og flókinn. Hraðinn verði sífellt meiri og komi það niður á formfestunni, sem sé eitt einnkenna góðrar stjórnsýslu. Áður fyrr hafi líklega ríkt meiri virðing milli embættismanna og stjórnmálamanna. Kominn sé tími til að skilgreina hlutverk embættiskerfisins. Hann segir m.a.: „Það er orðið vert umhugsunar, hvort embættismenn séu að kasta ábyrgðinni, sem þeir sjálfir bera, á stjórn- málamennina. Ég tel að ekkert siður sé áhugavert að skoða hlut embættismanna í þessu kerfi öllu en stjórnmála- mannanna. Embættismenn geta ekkert lifað í lokuðum heimi og vernduðum. Ég tel ekki þýðingarminna að emb- ættismönnum sé ljóst, hverjar skyldur þeirra og ábyrgð séu.“ Ríkisendurskoðandi segir, að hann sé að vísa til þessa þegar hann segi, að áður fyrr hafi embættismennirn- ir verið langtum fastari fyrir og meðvitaðri um skyldur sínar en nú. í kjölfar viðtalsins við ríkisendurskoðanda ræddi Morg- unblaðið við þrjá núverandi og fyrrverandi ráðuneytis- stjóra. Baldur Möller, fv. ráðuneytisstjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, segist ekki frá þvi, að minni festa sé í stjórnsýslunni en fyrrum, en bendir á, að samfélagið hafi breytzt mikið og fjölmiðlar orðið ágengari. Við stækk- un kerfisins verði yfirsýn erfiðari og festan trúlega minni. Erfiðara verði að festa hönd á hlutunum þar sem fleiri stjórna og vita kannski ekki alltaf hvað hinir eru að gera. Baldur bendir á til marks um breytingarnar, að fyrstu ár hans í ráðuneytinu hafi heilbrigðis- og menntamálaráðu- neytin verið deildir þar. Nú séu þetta stærstu og dýrustu ráðuneytin. Ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins, Magnús Péturs- son, tekur undir, að samræma megi reglur betur en nú og gera þær skýrari, t.d. um meðferð fjármuna. En hann leggur jafnframt megináherzlu á samræmdar reglur er tryggi jafnræði borgaranna, upplýsingaskyldu stjórnvalda og rétt almennings gagnvart því opinbera. Um stjórnsýsl- una almennt segir Magnús: „Ég lít á hana sem veiga- mikla kjölfestu í samfélaginu. Ríkisstjórnir og ráðherrar koma og fara. Eitt meginhlutverk stjórnsýslunnar er að standa slíkt rót af sér.“ Ráðuneytisstjóri sjávarútvegsráðuneytisins, Árni Kol- beins, tekur undir með Magnúsi að öðru leyti en því, að hann telur að stjórnsýslan lúti tvímælalaust traustari regl- um og eftirliti en áður. Hins vegar setja þeir báðir fyrir- vara um hlutverk Ríkisendurskoðunar. Þeir telja tilhneig- ingu til að fela henni verkefni, sem hún hafi ekki aðstöðu til að leysa. Báðir nefna í því sambandi álit á sölu ríkis- eigna, sem stofnunin sé ekki þess umkomin að veita, og hvorugur telur Ríkisendurskoðun hafa úrskurðarvald eða vera dómara í málum stjórnsýslunnar. Taka verður undir það, að stjórnsýslan eigi að vera kjölfesta í, samfélaginu. Þar þurfa að veljast til forustu og starfa hæfustu menn. Helztu menningarríki veraldar hafa ætíð lagt sérstaka áherzlu á þjálfun þeirra, allt frá mandarínum Kínverja til embættismanna nútímans. Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn opnað við h MIKIÐ fjölmenni var viðstatt opnun Þjóðarbókhlöðu skömmu eftir hádegi í gær, og er áætlað að allt að J „Ný aflstöð íslenskra vísinda ogfræða“ Landsbókasafn íslands — Háskólabókasafn við Birkimel var opnað í gær á fullveldisdag- inn, við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðu sem tekin var í notkun við sama tækifærí, að við- stöddum forseta íslands, ráðherrum, þing- mönnum og fiölda gesta annarra, innlendra sem erlendra, Talið er að ríflega eitt þúsund manns hafi sótt athöfnina. Safninu bárust veglegar gjafír víða að í tilefni dagsins. Jóhannes Nordal, formaður safnstjórnar, bauð gesti vel- komna og sagði einkar ánægjulegt að hafa við- stadda marga fulltrúa er- lendra þjóðríkja og stofnana. „í dag fögnum við langþráðum áfanga í menningarsögu aldarinnar, fyrsta starfsdegi hins sameinaða bókasafns, Landsbókasafns íslands - Háskóla- bókasafns, nýrri aflstöð íslenskra vis- inda og fræða,“ sagði Jóhannes. Þakklæti efst í huga Finnbogi Guðmundsson, fyrrver- andi landsbókavörður og formaður byggingarnefndar Þjóðarbókhlöðu frá upphafi, hóf dagskrá opnunarhátíðar með ávarpi. Finnbogi rifjaði lauslega upp sögu Landsbókasafns frá upp- hafsárum þess á lofti Dómkirkjunnar í Reykjavík. Hann kvað efst í huga sér þakklæti til þeirra mörgu sem unnið hafa eða stuðlað að sameiningu safnanna og byggingu Þjóðarbók- hlöðu frá öndverðu. Stuðningur Al- þingis, þótt „með semingi yrði á stundum, hefur auðvitað ráðið úrslit- um fyrir framgang málsins, ekki síst hin síðustu ár fyrir forgöngu og at- beina Ólafs G. Einarssonar, mennta- málaráðherra," sagði Finnbogi. Hann þakkaði samstarfsmönnum sínum í byggingamefnd og öðrum þeim sem komið hafa að hönnun og framkvæmd byggingarinnar, sérstaklega Einari Sigurðssyni, landsbókaverði, sem „gerðist þegar fram í sótti, mikill grjótpáll fyrir því mikla verki, enda seinustu árin leystur frá bókavarðar- erli sínum til þess að geta einbeitt sér að þessu verkefni“. Finnbogi þakkaði ennfremur arkitektum húss- ips, þeim Manfreð Vilhjálmssyni og Þorvaldi S. Þorvaldssyni, helstu hönn- uðum öðrum, menntamálaráðherra á byggingartíma, verktökum og sér- staklega aðaltengilið við þá, Braga Sigurþórssyni, verkfræðingi „sem hefur verið vakinn og sofinn á vinnu- staðnum og átt dijúgan þátt í því farsæla samstarfi öllu saman. Á sama hátt vil ég sérstaklega nefna Egil Skúla Ingibergsson, verkfræðing, er skipaður var í byggingarnefndina sumarið 1990 og þá jafnframt fram- kvæmdastjóri hennar og formaður nefndar við vinnu að sameiningu safnanna og tillögum að rekstrarfyr- irkomulagi hins nýja safns.“ Finnbogi greindi frá nefndarmönn- um og þeirra þætti á hveijum tíma í sögu byggingarinnar, átaki starfs- manna safnanna tveggja við samein- ingu og flutning þeirra í Þjóðarbók- hlöðu og árnaði þeim og þjóðinni heilla á þessum merkisdegi. Finnbogi afhenti Ólafi G. Einarssyni, mennta- málaráðherra, að lokum fyrsta að- gangskortið að Þjóðarbókhlöðu sem „tákn um þann áfanga sem hér hefur náðst“. Langþráður dagur Ólafur fagnaði sameiningu safn- anna og nýju aðsetri þeirra í Þjóðar- bókhlöðu. „Þjóðarbókhlaða er meðal mestu og vönduðustu bygginga, sem reistar hafa verið á íslandi. Aðdrag- andinn og byggingartíminn er orðinn langur," sagði menntamálaráðherra og minnti á að byltingarkennd þróun hefur orðið í upplýsingatækni á þeim tíma. „Þeir sem að verkinu stóðu hafa þurft að bregðast við þeim vanda, að tilhögun þeirrar starfsemi sem húsið átti að rýma hefur tekið stakkaskiptum á byggingartímanum. Þennan vanda hefur tekist vel að leysa, húsakynnin falla vel að þörfum þeirrar nútímalegu starfsemi sem hér á að rækja.“ Ólafur rakti að Alþingi ályktaði á

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.