Morgunblaðið - 02.12.1994, Qupperneq 36
36 FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Gilsfjarðarbrú
Hvað er nú það?
ÉG VAR staddur á
fundi í Dalabúð í Búð-
ardal mánudagskvöldið
28. nóv. sl. þar sem
mættir voru flestir
þingmenn VestQarða-
og Vesturlandskjör-
dæma í tilefni þess, að
Gilsfjarðarnefnd boð-
aði íbúa í Dölum og
Reykhólahreppi til
fundar, þar sem fund-
arefni var, hvort rétt
væri að seinka ætti
framkvæmdum við
þverun Gilsfjarðar.
Gilsfjarðamefnd er
samstarfsnefnd Dala-
og Reykhólahrepps um
gerð brúar yfir fjörðinn.
Fmmmælandi á fundinum var
einn af nefndarmönnum, Sigurbjörn
Sveinsson, læknir, sem var um ára-
bil læknir í Búðardal og þjónaði
þaðan Reykhólum og þurfti því oft
að fara um Gilsfjörð á ferðum sínum
þangað. Sigurbjörn flutti greinar-
góða og skilmerkilega ræðu um
nauðsyn þess að brúa Gilsfjörð hið
allra fyrsta. Hann taldi einskis fær-
is skyldi látið ófreistað til þess að
framkvæma hið fyrsta þverun fjarð-
arins. Einnig tók til máls á fund-
inum Jón Helgason verkfræðingur
vegagerðarinnar og skýrði fyrir
fundarmönnum stöðu verkefnisins,
en hann hefur haft með það að
gera allt frá því að farið var að
Bragi
Benediktsson
Hlúum að
börnum heims
- framtíðin
er þeirra
FRAMLAG ÞITT
ER MIKILS VIRÐI
hjálparstofnun
KIRKJUNNAR
- meö þinni hjálp
Fyrir eitt
starf í
iandbúnaði
skapast tvö
störfí
úrvinnslu
og þjónustu.
ræða um brú yfir Gils-
fjörð árið 1983.
Bjarni P. Magnús-
son, sveitarstjóri á
Reykhólum, flutti
ræðu, þar sem hann
skýrði gang mála og
hvatti til frekari dáða
í málinu hið fyrsta.
Hann er einn nefndar-
manna í Gilsfjarðar-
nefnd.
Á fundinum tóku
fjölmargir aðrir til
máls svo sem alþingis-
menn og sveitarstjórn-
armenn og voru þeir
allir á einu máli um
nauðsyn þess, að brúa
Gilsfjörð svo fljótt sem við verður
komið. Hald manna var að mættir
væru í Dalabúð 220 manns, sem
fýlltu fundarsalinn og fengu ekki
allir sæti.
Ég vil alveg sérstaklega minna
þjóðina á þau hörmulegu slys, sem
orðið hafa í Gilsfirði að undanförnu
og er þar skammt stórra högga á
milli. í bytjun ágústmánaðar andað-
ist ítölsk kona, þegar bifreið sem
hún var farþegi í, valt á malarvegi
Garpsdals og Gróustaða í Gilsfirði.
0g núna um miðjan nóvember
verður annað banaslys í Gilsfirði
þegar ungur maður í blóma lífsins
missir bifreið sína út af veginum
við Mávadalsá í Gilsfirði með þeim
afleiðingum að hann deyr af völdum
slyssins. Tvær útafkeyrslur urðu
líka á umræddu tímabili hvort við
sína ána í Gilsfirði, Mávadalsá og
Gijótá, og var mikil mildi að ekki
urðu banaslys af. Síðastliðið sumar
lenti bíll út af í brekkunni ofan við
Gijótána með þeim afleiðingum að
tvennt sem í bílnum var flaug tugi
metra fram af snarbrattri brekku
og niður að sjó. Mildi var að ekki
skyldi þar verða banaslys og raunar
með ólíkindum, hvað menn sleppa
stundum í skelfilegum bílslysum.
Byggð í Dölum og
Reykhólahreppi stendur
höllum fæti. Bragi
Benediktsson telur brú
yfir Gilsfjörð styrkja
stöðu byggðarinnar.
Rútubílstjóri var á ferð síðastlið-
inn vetur í miklum leysingum og
féll þá stórt bjarg úr fjallshlíðinni
ofan við veginn og flaug niður í sjó
rétt fyrir framan rútuna. Þyrfti
ekki að sökum að spyija, ef bjargið
hefði lent á bílnum.
Fyrir nokkrum árum andaðist
maður þegar bifreið hans fauk út
af yegi í Gilsfirði.
í snjóþyngslum er mikil snjó-
flóðahætta í Gilsfirði og í rigning-
artíð er þar mikil skriðuhætta.
Viðhald á vegi í Gilsfirði hlýtur
að vera verulegt og með tímanum
að vega nokkuð þungt upp í þann
kostnað, sem af brúnni hlýst.
Brú yfir Gilsfjörð styttir leið
Vestfirðinga um tæpa 20 kílómetra
auk þess að ryðja úr vegi stórhættu-
legri hindrun á leið þeirra suður til
Reykjavíkur, höfuðstaðar landsins,
sem þeir hljóta að hafa siðferðilegan
rétt til að nálgast einstaka sinnum
á ævinni.
Byggð í Dölum og Reykhóla-
hreppi stendur nú höllum fæti og
myndi brú yfir Gilsfjörð geta bætt
hana á ýmsan hátt.
Ég skora því á ráðamenn þjóðar-
innar að gera allt, sem í þeirra
valdi stendur til að gera brú yfir
Gilsfjörð að veruleika.
Slík aðgerð orkar ekki tvímælis
þegar til lengri tíma er litið.
Höfundur er prófastur á
Reykhólum.
BRIDS
Umsj6n Arnór G.
Kagnarsson
Bridsfélag
Reykjavíkur
SL. MIÐVIKUDAG 30. nóvember
voru spilaðar 10 umferðir í Butler-
tvímenningnum og er staðan eftir
39 umferðir af 59 þannig:
Matthías Þorvaldsson - Jakob Kristinsson 225
JónBaldursson-SævarÞorbjömsson 210
Sigurður Sverrisson - Hrólfur Hjaltason 210
Sverrir Ármannsson - Þoriákur Jónsson 204
Helgi Sigurðsson - ísak Öm Sigurðsson 171
EinarJónsson-RagnarHermannsson 149
Hjalti Elíasson - Páll Hjaltason 145
Hæstu skor kvöldsins fengu:
V algarð J akobsson - Aron Þorfmsson 101
Einar Jónsson - Ragnar Hermannsson 79
HelgiSigurðsson-IsakÖmSigurðsson 63
Ólafur Lámsson - Hermann Lárusson 61
Jón Baldursson - Sævar Þorbjömsson 55
SigurðurSverrisson-HróIfurHjaltason 55
Bridsfélag kvenna
Nú er fjórum umf. lokið í sveita-
keppninni og er staða efstu sveita
þannig:
Sv. Ólínu Kjartansdóttur 87
Sv. Dúu Ólafsdóttur 78
Sv. Ólafar Ólafsdóttur 72
Sv. Lilju Halldórsdóttur 70
Sv. Höllu Ólafsdóttur 66
Nk. mánudag verður ekki spilað
í sveitakeppninni, þess í stað verða
Hafnfirðingar heimsóttir og spiluð
árleg keppni við þá, mánudaginn 12.
des. Síðan á að reyna að hafa hið
árlega jólaglögg en vegna samninga
í Þönglabakkanum eru einhver vand-
kvæði á því, en ef úr rætist verður
það auglýst síðar. Sveitakeppninni
verður síðan framhaldið á nýju ári.
Happamót til styrktar
húsbyggingu
Helgina 3.-4. des. verður haldið
opið mót hjá Bridssambandi íslands
í Þönglabakka 1. Vegleg verðlaun
eru í boði auk fjölda smávinninga
sem dregnir verða út á meðan á
spilamennsku stendur.
Mótsfyrirkomulagið er einnig
mjög fijálst þannig að spilarar geta
ákveðið hve mikið þeir spila. Byijað
verður að spila tvær 24 spila Mitch-
ell-lotur kl. 11.00 á laugardag, 16
efstu pörin þar spila til úrslita á
sunnudeginum kl. 11.00. Á sunnu-
deginum verður spiluð 24 spila
Mitchell-lota kl. 13.00 og hún er
öllum opin, einnig þeim sem ekki
spiluðu á laugardeginum. Fjöldi
vinninga er í verðlaun auk ferðavinn-
ings og happdrættisvinninga í hverri
lotu. Meðal vinninga eru bækur,
snyrtivörur, sælgæti, vídeóspólur,
matvörur, bíómiðar, keilumiðar og
fleira og fleira.
Spilarar takið nú höndum saman
og mætið og styrkið um Ieið hús-
bygginguna ykkar. Keppnisgjald er
2.000 kr. á lotu og skráning er á
skrifstofunni í síma 91-879360.
Bridsdeild Barö-
strendingafélagsins
FRÁ OG með 5. des. nk. verður
deildin með starfsemi sína í húsi
Bridssambandsins í Þönglabakka 1.
Þar er aðstaða öll hin besta, góð
bílastæði, lyfta í húsinu og aðgengi
allt eins og best verður á kosið.
Keppni hefst mánudaginn 5. des.
nk. kl. 19.30. Spilaður verður eins
kvölds tvímenningur. Allir þeir sem
áhuga hafa eru vclkmnnir. Spila-
stjóri verður sem fyrr ísak Örn Sig-
urðsson, sem gefur Isak Örn í síma
632820 og Ólafur í síma 71374.
Er Jóhanna Sig-
urðardóttir trú-
verðugur leiðtogi?
ÉG GET ekki lengur
orða bundist eftir að
ég sá í sjónvarpi Jó-
hönnu Sigurðardóttur
halda ræðu á stofn-
fundi nýrra stjóm-
málasamtaka í
Reykjavík. Það var
ótrúlegt að hlusta á
hana lesa upp stefnu-
mál Alþýðuflokksins
og tala um leið um
stöðnun og spillingu
fjórflokkanna.
Þegar ég gekk til
liðs við Alþýðuflokkinn
- Jafnaðarmanna-
flokk íslands fyrir
rúmum fjórum árum
var Jóhanna að sjálfsögðu ein
meginstoð flokksins. Hún átti þar
marga trygga stuðningsmenn og
aðdáendur að mér meðtalinni. Ég
taldi þá eins og svo margir í flokkn-
um að hinn ólíki stíll og persónu-
leiki formanns og varaformanns
væri styrkur fyrir okkur og gæfi
flokknum meiri breidd í skírskotun
og baráttuaðferðum. Það varð ekki
séð að á milli Jóns og Jóhönnu
væri neinn raunverulegur pólitísk-
ur ágreiningur, heldur virtist bilið
breikka vegna mismunandi
áherslna og persónulegrar
óanægju Jóhönnu með samstarfið.
Það var ákaflega erfitt fyrir al-
mennan flokksmann að skilja þessa
deilu og þá afstöðu sem Jóhanna
tók er hún steig hið örlagaríka
skref sumarið 1993 og sagði af sér
varaformennsku í flokknum fyrir-
varalaust. Hún sagði þá að það
væri fyrst og fremst vegna þess
að Rannveig Guðmundsdóttir sam-
starfsmaður hennar og samheiji
var ekki kjörin ráðherra nokkrum
vikum fyrr.
Eftir brotthvarf Jóhönnu úr
varaformannsembættinu blasti við
að til Rannveigar yrði leitað með
að taka við. En þá brá svo við að
Jóhanna lagðist gegn því af alefli
að Rannveig yrði varaformaður.
Hún sagði það reyndar aldrei
hreint út, heldur þrýsti hún mjög
á konur í flokknum að sitja hjá
við kjör varaformanns, bjóða ekki
fram konu til embættisins en sýna
körlunum álit sitt á ráðherraskipt-
unum með því að styðja karl í
embætti varaformanns.
Við konurnar í flokknum, sem
höfðum verið fram að þessu eitt
sterkasta bakland Jóhönnu í
flokknum, höfnuðum þessu á
átakafundi í Hafnarfirði. Við álit-
um, öfugt við jafnréttisráðherrann,
að við værum í pólitík til að hafa
áhrif en ekki til að sitja hjá. Okkur
fundust einnig fráleit rök að segja
að staða kvenna í flokknum styrkt-
ist við að kjósa karl í varafor-
mennskuna en ekki konu. Tæpu
ári eftir þennan fund bauð Jóhanna
sig fram til formennsku í flokknum
á móti Jóni Baldvin. í mínum huga
er enginn vafi að tengsl voru milli
þessara tveggja atburða og að Jó-
hanna lagði jafnréttismálin og
samstarfsmann sinn undir. Fyrir
flokksþingið í júní sl. vildi Jóhanna
ekki gefa upp hvort hún hygðist
una niðurstöðum flokksþings í for-
mannskjörinu. Það var ekki fyrr
en á síðustu dögunum fyrir þingið
að hún, vegna eindregins þrýstings
frá flokksfólki, gaf út þá yfirlýs-
ingu að hún myndi taka úrslitunum
og ekki segja af sér hvernig sem
færi. Það var einnig skilningur
flokksmanna að Jóhanna myndi
aldrei kljúfa Alþýðuflokkinn.
í dag, rúmum 5 mánuðum síð-
ar, er hún bæði gengin úr ríkis-
stjórn og úr Alþýðuflokknum.
Nú segist hún vera
boðberi nýrra tíma í
íslenskri pólitík. En ég
velti þeirri spurningu
fýrir mér hvað sé eig-
inlega nýtt, hvað hafi
breyst með framboði
Jóhönnu? í gær var
Jóhanna forystumað-
ur í Jafnaðarmanna-
flokki íslands, barðist
fyrir stefnu flokksins
og naut þar víðtækari
stuðnings en nokkur
annar forystumaður
hefur haft. í dag er
hún orðin forystumað-
ur nýs stjórnmálaafls
jafnaðarmanna og vill
beijast af alefli fyrir stefnumálum
Jafnaðarmannaflokks íslands með
stuðningi síns fólks. Ég sé enga
breytingu nema á nöfnum stuðn-
ingsmannanna. Hvað gerist svo ef
Það var skilningur
flokksmanna, segir Val-
gerður Gunnarsdóttir,
að Jóhanna myndi aldrei
kljúfa Alþýðuflokkinn.
Jóhanna verður leið á þeim? Fara
þeir þá sömu leið og gamli flokkur-
inn hennar?
Jóhanna, þegar þú sem ráðherra
í ríkisstjórn sl. 7 ár vildir koma
málum í gegn á Alþingi eða í ríkis-
stjórn voru það samflokksmenn
þínir og samráðherrar sem studdu
þig, unnu fyrir þig og stóðu við
bakið á þér. En ég minnist þess
ekki að nokkur geisli af ljómanum
fyrir vel unnin verk hafi nokkurn
tíma fallið á þá, aðeins á þig. Það
er í þessum dýrðarljóma sem þú
stígur nú fram fyrir alþjóð, telur
fólk á að fylgja þér og réttir að
því stefnumál jafnaðarmanna. Þú
hefur auðvitað fullan rétt á að
skipta um stjórnmálaflokk, stofna
þinn eiginn eða hvað nú hentar
þér best. En ef þú vilt vera trúverð-
ug máttu ekki villa á þér heimild-
ir. Þú varst einn af máttarstólpum
fjórflokkanna í hartnær áratug og
þú berð ábyrgð á stjórn landsins
sl. 7 ár. Til að njóta virðingar og
trausts sem stjórnmálamaður verð-
ur þú, Jóhanna Sigurðardóttir, að
gangast við verkum þínum, viður-
kenna ábyrgð þína á fortíðinni en
ekki skjóta þér að bak við einhvern
geislabaug sakleysis og ábyrgðar-
leysis. Þú er nefnilega ekki engill,
Jóhanna, heldur stjórnmálamaður
með fortíð og þú skuldar því fólki
sem nú fylgir þér af einlægni að
þú segir því satt.
Höfundur er varaþingmaöur
Alþýðuflokksins, Jafnaðar-
mannaflokks íslands.
--------» ♦ ♦--------
■ STJÓRNARFUNDUR í Fé-
lagi aldraðra á Höfn haldinn 22.
nóvember sl. skorar á ríkisstjórn
og alþingismenn „að afnema nú
þegar það hróplega ranglæti sem
felst í tvísköttun á greiðslum úr
lífeyrissjóðum“. Ennfremur að sjá
til þess að eingreiðslur samkvæmt
samningum aðila vinnumarkaðar-
ins skili sér að fullu til lífeyrisþega.
■ Á FUNDI Félags dagvöru-
kaupmanna nýlega var ítrekuð
ályktun um að dagvöruverslanir
fái heimild til þess að selja bjór
og léttvín sem aðrar neysluvörur.
Valgerður
Gunnarsdóttir