Morgunblaðið - 16.12.1994, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 16.12.1994, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Alþýðubandalagið í Reykjavík Tillaga um uppstillingu samþvkkt 41-22 Á FUNDI kjörnefndar fulltrúaráðs Alþýðubandalagsfélaganna í Reykjavík í gærkvöldi var sam- þykkt með 41 atkvæði gegn 22 að veita kjörnefndinni umboð til að vinna áfram að framboðsmálum flokksins á þeim grundvelli að stillt verði upp á listann án prófkjörs. Svavar Gestsson hvatti menn til samstöðu og lagði til að tillagan yrðj samþykkt. Árni Þór Sigurðsson, formaður kjörnefndar, sagði á fundinum að kjörnefnd hefði í störfum sínum leitast við að skapa sem mesta sam- stöðu um framboð Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík. Hann sagði ljóst að algjör eining næðist ekki. Árni sagðist telja að góð sátt ætti að geta tekist um að Svavar Gestsson skipaði fyrsta sætið og að Ögmunur Jónasson skipaði þriðja sætið. Það væri hins vegar ekki eins góð sátt um að Bryndís Hlöðversdóttir skip- aði annað sætið. Ágreiningur um skilyrði Ogmundar Ámi Þór sagði að Ögmundur hefði í viðræðum við kjömefnd lagt áherslu á að ekki yrði efnt til átaka um framboðið. Garðar Mýrdal, for- maður Alþýðubandalagsfélags Reykjavíkur, fullyrti hins vegar á fundinum að það væri ekki skilyrði af hálfu Ögmundar fyrir því að taka sæti á listanum, að ekki yrði efnt til. prófkjörs. Garðar og fleiri af forystumönnum ABR lögðust hart gegn tillögu kjörnefndar. Tillaga kjörnefndar var svohljóð- andi: „KjördæmisráðAlþýðubanda- lagsfélaganna í Reykjavík sam- þykkir að fela kjörnefnd þeirri er kosin var á fundi ráðsins 12. nóvem- ber að undirbúa tillögu um skipan G-listans í Reykjavík vorið 1995 og leggja tillöguna fyrir fund í kjör- dæmisráði í næsta mánuði. í störf- um sínum skal kjörnefndin hafa samráð við stjóm kjördæmisfáðs- ins.“ Á fundinum vakti talsverða at- hygli sú yfirlýsing formanns kjör- nefndar að ein af þeim sem kjör- nefnd hefði rætt um að stilla upp í efstu sæti Alþýðubandalagsins í Reykjavík hefði verið Ásta Ragn- heiður Jóhannesdóttir, varaþing- maður Framsóknarflokksins. FRÉTTIR Útreikningar hagfræðings VSÍ á breytingum ráðstöfunartekna 1988-1994 Láglaunafólk hefur meira en hærra launaðir minna Ráðstöfunartekjur mismunandi tekjuhópa sem hlutfall af manaðarlaunum 1988 og 1994 Dæmi um hjón með tvö börn, annaö yngra en sjö ára Tekjrn: 120.000 Tekjur: 200.000 Tekjur: 300.000 Tekjur: 450.000 TeklOer lillit til tekjuskatts, hátekjuskatts, barnabóla, barnabótaauka, greiðslna í lífeyrissjóð og til stétarfélaga, húsnæðisbóta 1988 og vaxtabóta at meðalskuld 1994. HJÓN með samtals 450 þúsund króna mánaðarlaun höfðu árið 1988 73% af tekjum sínum til ráð- stöfunar, en í dag hafa þau 64% teknanna til ráðstöfunar. Ráðstöf- unartekjur þeirra hafa þannig lækkað um 9% á þessu tímabili. Ráðstöfunartekjur hjóna með sam- tals 120 þúsund króna mánaðar- laun hafa hins vegar aukist um 3%, en þau eru í dag með um 140 þús- und króna ráðstpfunartekjur að teknu tilliti til skatta og bóta. Þetta kemur fram í útreikningum Guðna Níelsar Aðalsteinssonar, hagfræð- ings Vinnuveitendasambands ís- lands, sem nýlega voru kynntir á fundi framkvæmdastjórnar VSÍ, Skattheimtan færst milli hópa í útreikningum Guðna er miðað við ráðstöfunartekjur að teknu til- liti til skatta og bótagreiðslna, og eru tekin dæmi af fjórum tekjuhóp- um þar sem miðað er við hjón með tvö böm þar sem annað þeirra er yngra en sjö ára. Tekið er tillit til tekjuskatts, hátekjuskatts, barna- bóta, bamabótaauka, greiðslu í líf- eyris- og stéttarfélög, og fyrir árið 1988 eru innifaldar húsnæðisbætur og vaxtabætur fyrir meðalskuld árið 1994. Guðni sagði í samtali við Morg- unblaðið að ljóst væri að á þeim tíma sem liðinn er frá því stað- greiðsla skatta var tekin upp árið 1988 hefði skattheimtan að veru- legu leyti færst frá tekjulægstu hópum þjóðfélagsins yfir á þá hópa sem eru með meðaltekjur eða hærri. Samanburður á þeim hópi sem er með 120 þúsund króna mánaðarlaun og þeim sem er með 300 þúsund króna mánaðarlaun sýndi að þrátt fyrir að munurinn á tekjunum væri 180 þúsund krón- ur væri munurinn á ráðstöfunar- tekjunum aðeins 80 þúsund krón- ur. Gæti þýtt tekjutap „Það hefur komið mönnum veru- lega á óvart hvað tekjutilfærslurnar eru miklar í þjóðfélaginu, en það er sífellt verið að auka tekjuteng- ingu allra bóta. Það er miskunnar- laust skorið af þeim sem eitthvað hafa af tekjum, og skattheimtan héfur þar af leiðandi færst mjög mikið yfir á þá sem hafa meðaltekj- ur eða þar yfir. Tekjutengingin er reyndar orðin svo mikil að ef annað hjónanna er að afla meirihluta teknanna, þá borgar það sig kannski ekki fyrir hitt að fara út á vinnumarkaðinn þegar tekið er tillit til kostnaðar við dagvistun o.fl., en það gæti hreinlega haft í för með sér tekjutap fyrir fjölskyld- una,“ sagði Guðni. Féll í Esjunni PILTUR um tvítugt ökklabrotnaði við ísklifur í Bleiksárdal í Esjunni í gær. Félagi hans gekk 8 km leið til að komast í síma og ná í hjálp. Pilturinn var kominn í sjúkrahús um klukkan hálfátta um kvöldið en vegna veðurs gat þyrla Land- helgisgæslunnar ekki sótt hann. Piltarnir eru þaulvanir fjallamenn og félagar í Flugbjörgunarsveit- inni. Þeir voru við æfingar í Esj- unni þegar annar féll. Félagi hans hélt að sækja hjálp og kom í söhi- skála á Kjalarnesi eftir u.þ.b. 2 stunda göngu. Menn frá flugbjörg- unarsveitinni fylgdu sérbúnum bíl slökkviliðsins í Reykjavík að slys- • staðnum en bílar komust ekki síð- ustu 2 km að slysstaðnum. Þangað var gengið og hlúð að piltinum en hann síðan fluttur á vélsleða í sjúkrabílinn sem færði hann á slysadeild Borgarspítalans til skoðunar og aðhlynningar. Kostnaður Reykjavíkurborgar vegna atvinnuskapandi verkefna hátt í 700 millj. á árinu Konur 28% af 1.294 í átaksverkefnum ALLS hlutu 1.294 tímabundna ráðningu í átaksverkefni á vegum Reykjavíkurborgar eða tengd verkefni á árinu, þar af 366 kon- ur. Karlmenn voru 928 og er kynjaskipting starfsmanna átaks- ins því 28% konur á móti 72% körlum þegar á heildina er Iitið, en 19% ef tekið er tillit til verk- efnaskrár vegna átaksins sem borgaryfirvöld samþykktu 12. apríl síðastliðinn. Þetta kemur fram í skýrslu nefndar um átaksverkefni sem kynnt var á fundi borgarstjórnar í gærkvöldi. Hulda Ólafsdóttir varaborgarfulltrúi R-listans, sem jafnframt er formaður nefndarinn- ar, kynnti niðurstöður ogtíu tillög- ur um úrbætur fyrir næsta ár. Launakostnaður mismunandi Fram kom á fundinum að kostn- aður vegna átaksverkefna borgar- innar yrði að líkindum 670 milljón- ir en gert hafði verið ráð fyrir 430 milljónum upphaflega. Hlutfall launakostnaðar þeirra vegna var mismunandi og sem dæmi má nefna 26% hjá Reykjavíkurhöfn, 33% hjá Gatnamálastjóra og 38% hjá Hitaveitunni eins og fram kem- ur í skýrslunni. Þar er lagt til að 400-600 manns verði veitt tímabundin at- vinna á næsta ári og að Reykja- víkurborg hafi yfirstjórn átaks- verkefna á einum stað. Einnig kemur fram að borgin greiði mun meira í Atvinnuleysistrygginga- sjóð en hún fái til baka vegna bótaréttar, illa hafi gengið að inn- heimta greiðsluhlutdeild hans og að veruleg vinna fari í að halda utan um „hringferð peninga um hendur sjóðsins". 218 án vinnu í ár eða meira 2.829 Reykvíkingar eru nú án atvinnu. Samkvæmt upplýs- ingum Vinnumiðlunar Reykjavíkurborgar voru 218 á atvinnuleysisskrá 30. nóv- ember, eða 8%, sem verið hafa án atvinnu í ár eða lengur. Einnig eru 643 á aldrinum 16-25 ára atvinnulausir, eða 24% og 529 börn í Reykjavík eiga mæður sem eru einstæð- ar og án atvinnu samkvæmt upplýsingum Vinnumiðlunar. Margir fjalla um umsóknir í skýrslunni er lýsing í 24 liðum og 33 undirliðum á ferli umsókna um styrki úr sjóðnum vegna greiðslu á launakostnaði en um þær er fjallað hjá Atvinnuleysis- tryggingasjóði, atvinnumálanefnd, Skrifstofu borgarhagfræðings, fé- lagsmálaráðherra, Ráðningarstofu Reykjavíkurborgar, Starfsmanna- haldi Reykjavíkurborgar og borg- aryfirvöldum. Samþykkt var á fundi borgar- ráðs í mars að tryggja jafnræði kynjanna í átaksverkefnum en um 1.000 manns voru ráðnir sam- kvæmt verkefnaskrá. Var starfs- tími átaksfólks breytilegur en flestir fengu vinnu í 2-4 mánuði samkvæmt skýrslunni. Nokkrir tugir hafi jafnframt hlotið fast- ráðningu hjá borginni í kjölfar átaksráðningar og fólk getað hætt störfum fyrirvaralítið hafi önnur vinna boðist. Vinnumiðlun Reykja- víkur hafði einnig haft milligöngu um ráðningar í 279 störf hjá einka- aðilum, sem fengið höfðu heimild til þess að ráða fólk tímabundið af atvinnuleysisskrá til ákveðinna verkefna. 19% starfsmanna konur „Ef einungis eru skoðuð átaks- verkefni af verkefnaskrá kemur í Ijós að 19% þeirra sem fengu störf voru konur. En þegar önnur átaks- verkefni eru skoðuð, til dæmis í skólum og hjá Granda, er hægt að hifa hlutfallið upp í 28% og ég tel að það vegi þungt hverjir mót- uðu tillögu að verkefnunum, það er forstöðumenn stofnana borgar- innar. I þeim hópi voru 12 karl- menn og engin kona,“ sagði Hulda Olafsdóttir varaborgarfulltrúi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.