Morgunblaðið - 16.12.1994, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 16.12.1994, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 691100, SÍMBRÉE 691181, PÓSTIIÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Skagstrending- ur hf. sækir um fulla aðild að SH SKAGSTRENDINGUR hf. á Skaga- strönd hefur sótt um fulla aðild að Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Fjallað hefur verið um málið hjá SH og er gert ráð fyrir að félagið taki við sölunni fyrir Skagstrending hf. á næstu vikum. Skagstrendingur hf. gerir út tvo frystitogara, Arnar HU-1 og Örvar HU-21, auk frystitogarans Arnars II, sem er skráður hérlendis en stund- ar veiðar utan landhelginnar. Fyrir- tækið hefur yfir að ráða kvóta sem nemur um 6.000 þorskígildis tonn- ’um. Fyrirtæki með milljarð í veltu Velta Skagstrendings hf. er um einn milljarður króna á ári. Fyrirtæk- ið hefur um nokkurra ára skeið selt afurðir frystitogara sinna í gegnum eigið sölufyrirtæki, Fiskileiðir hf., en þar áður sá Asiaoo hf. um söluna. „SH er sterkt fyrirtæki á EES- markaði og við sjáum möguleika á að koma fleiri afurðum að eins og karfa með því að hefja samstarf við SH. Við teljum okkur vera að fara í samstarf við mjög trausta og sterka aðila. Það er fyrirsjáanlegt að það á eftir að verða mikil þróun á frekari fullvinnslu til sjós og nauðsynlegt fyrir okkur að vera þá í samstarfi við traust sölufyrirtæki," sagði Gylfi Sigurðsson, stjórnarformaður Skag- strendings hf. Gylfi sagði ljóst að á næstunni þyrfti að leggja meiri vinnu og ijár- muni í vöruþróun og markaðsmál á sjófrystum afurðum heldur en eitt framleiðslufyrirtæki gæti staðið und- ir. Það væri því æskilegt að standa í slíku starfi í samvinnu við aðra sem hefðu svipaða hagsmuni. Gylfi sagði að afurðir Skagstrend- ings hf. yrðu áfram seldar undir vörumerki fyrirtækisins í Bretlandi þó að SH sæi um söluna. Hugað að markaði ytra fyrir frysta kjötrétti SAMHLIÐA úreldingu Mjólkurbús- ins í Borgarnesi verður nýrri starf- semi komið fyrir í húsnæði þess. Þórir Páll Guðjónsson, kaupfélags- stjóri, segir að horft sé til matvæla- iðnaðar. Þegar er farið að huga að markaði fyrir frysta kjötrétti ytra. Þórir staðfesti að kaupfélagið fengi 250 milljónir úr úreldingar- sjóði við úreldingu mjólkurbúsins. Því til viðbótar rynni fé sem sparist vegna úreldingar til kaupfélagsins og væri miðað við 75 milljón króna grunnupphæð. Guðlaugur Björg- vinsson, forstjóri MS, sagði að kannanir gerðu ráð fyrir að 75 til 95 milljónir myndu sparast árlega vegna úreldingarinnar. ■ Úrelding eða nýsköpun/36 Flækingsfuglinn krossnéfur hefur orpið í Fljótshlíð Morgunblaðið/Sig. Jóns. ÞRIR ófleygir ungar eru í hreiðri krossnefsins í þriggja metra- hæð í grenitré á Tumastöðum í Fljótshlíð. Ungar í hreiðri á jólaföstu Selfossi, Morgunblaðið. KROSSNEFSHREIÐUR fannst fyrir skömmu í greni- lundi á Tumastöðum í Fljóts- hlíð. Hreiðrið er vel varið, í um fjögurra metra hæð og í því eru þrír ungar. Hrafn Osk- arsson garðyrkjumaður á Tumastöðum fann hreiðrið af hreinni tilviljun. Sérhæfður í að tína fræ af sitkagreni Hann sagði starfsmenn á Tumastöðum hafa orðið vara við krossnefi í júlí, einn karl- fugl og sjö kvenfugla. Hrafn sagði krossnefinn duglegan að fæða ungana á fræjum af sitka- greninu enda nef hans sérhæft í að ná fræinu úr könglunum. Krossnefur heitir loxia corv- irostra á latínu og kemur stundum hingað til lands í smá hópum sem flækingsfugl. Fuglinn verpir oft á veturna í kringum jól. í sumar voru eða héldu til á Tumastöðum, barrfinkur (carduelis spinus), sem eru evr- ópskir flækingsfuglar, skyldir auðnutittling. Seinnipart sum- arsins fundust svo litlir ungar þessarar tegundar á Tuma- stöðum. Þá sannaðist í fyrsta sinn að barrfinka hefði orpið hér á landi Borað á heiðinni STARFSMENN Jarðborana hf. og Hitaveitu Reykjavíkur starfa nú við að bora rannsóknarholu á 01- kelduhálsi, háhitasvæði austan við Hengil, en áætlað er að bora allt að 2.000 metra djúpa holu þar í vetur. A svæðinu er mikill jarðhiti og þykir brýnt að fá úr því skorið hvort svæðið sé fýsilegt til virkj- unar en hins vegar er ekki talin þörf á virkjunarframkvæmdum á þar næstu 15-16 ár miðað við óbreytta heitavatnsnotkun, að sögn Einars Gunnlaugssonar, jarðfræðings hjá Hitaveitunni. 125.000 tonna sinkverksmiðja á Grundartanga besti kosturinn 3-400 gætu unnið við sinkframleiðslu 1998 Eignaraðild og 10 milljarða króna fjármögnun óljós AÐ LOKINNI forathugun Zink Corporation of America, um hag- kvæmni þess að reisa sinkverksmiðju hér á landi, er besti kosturinn talinn sá að reisa 100 þúsund tonna rafhitunarverksmiðju og um 25 þúsund tonna sinkoxíðverksmiðju á Grundartanga, við hlið verksmiðju Islenska járnblendifélagsins. Þá yrði reist forvinnsluverksmiðja á lóð Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi. Búist er við að kostnaður við mannvirki og tæki nemi rúmum 10 milljörðum króna og er gert ráð fyrir að 300-400 manns fái starf við sinkframleiðslu, sem gæti hafist árið 1998. Að sögn Hákons Björns- sonar, framkvæmdastjóra Áburðar- verksmiðjunnar, á enn eftir að hnýta marga lausa enda varðandi fjármögnum, raforkuverð og fleira. Fulltrúar ZCA eru nú staddir hér á landi, þar á meðal yfirmenn innan ZCA, Bob Sunderman og Jim Derby, en þeir hafa stjórnað forat- huguninni. Þeir áttu í gær fundi með íslenskum samstarfsaðilum sínum, sem og fulltrúum Lands- virkjunar og Járnblendifélagsins. Að sögn Halldórs Jónatanssonar, forstjóra Landsvirkjunar, var skiptst á skoðunum um hugsanlegt Morgunbiaðið/RAX orkuverð og skilmála. Halldór segir að engar endanlegar tölur liggi fyr- ir og muni ekki gera í þessari heim- sókn Bandaríkjamannanna. íslendingar ættu lítinn hlut Hákon Björnsson, framkvæmda- stjóri Áburðarverksmiðjunnar, sem er einn íslenskra samstarfsaðila ZCA, sagði í samtali við Morgun- blaðið að nú lægi fyrir að hag- kvæmt væri að reisa verksmiðju hér og því þyrfti að huga að næsta skrefí. „Það á enn eftir að hnýta marga lausa enda, en nú er ein hugmyndin sú að stofna undirbún- ingsfélag til að gera nákvæmari athuganir," sagði Hákon. Hann sagði að enn væri allt óráð- ið með hugsanlega fjármögnun hér á landi. „Hugmyndir þar að lútandi breytast daglega, enda málið ekki komið svo langt. Það er þó ljóst, að ef Islendingar koma inn sem eigendur þá verður það aðeins að litlum hluta. Fjármögnun og skipt- ing eignaraðildar er að öðru leyti ekkert farin að mótast enn.“ ■ Starfsemi gæti/lC Flugleiðir Milljónasti farþeginn MILLJÓNASTi farþeginn með Flugleiðum á þessu ári fer væntanlega með áætlun- arvél félagsins til Kaup- mannahafnar upp úr hádeg- inu í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem farþegafjöldinn með Flugleið- um fer yfir milljón á ári, en fjöldi farþega í millilandaflugi hefur aukist um 18% frá því sem var í fyrra. POTTASLEI KIR DAGAR TIL JÓLA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.