Morgunblaðið - 16.12.1994, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.12.1994, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ MATVINNSLUVÉLAR I Ein gób og önnur betri AEG Hrærir, hakkar, rifur, þeytir og margtfleira. 1,25 lítra skál. Impúlstakki og stiglaus hra&i. 1 Fjölhæf við bakstur og matargerð. Rífur, þeytir, hnoðar - hrærir 600 gr af deigi. 0,8 lítra skál og 320 W mótor. Einn hraði og impúlstakki. Mjög hagstætt verð. BRÆÐURNIR DIQRMSSONHF Lágmúla 8. Sími 38820 Wóri fer á kostum og frændfólk hans er ekki aö skafa utan af þuí frekar en fyrri daginn. Bókaútgéfan f Bankabókinni fer lesandinn á bak við tjöldin í peníngastofnunum landsins í fylgd með Nóra, sögu- manninum úr „Kolkrabbanum", og faer m.a. að gaegjast inn þar sem útvalin stórmenni á þreföldum ráðherralaunum sitja í góðu yfirlaeti við að ákveða vexti, verðbætur og þjónustugjöld handa þér að borga. Vissir þú að útlánatöp síðustu þriggja ára jafngilda verðmaeti allrar byggðar í Breiðholti? Vissir þú að Seðlabankakóngurinn var sömuleiðis stjórnarformaður þeás fyrirtaakis sem sló metið i taprekstri á íslandi 1 303 og skuldar meira en allur íslenski sjávarútvegurinn samanlagt? FRÉTTIR: EVRÓPA Tollabreytingar vegna stækkunar ESB Bandaríkjamenn krefjast samkomu- lags fyrir áramót Brussel. Reuter. RON Brown, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að Bandaríkjamenn myndu ' grípa til „annarra aðgerða“ ef ekki næðist samkomulag við Evrópusambandið fyrir áramót um bætur af einhverju tagi sem kæmu á móti hækkun tolla vegna inngöngu Austurríkis, Sví- þjóðar og Finnlands í sambandið. Bandarískir embættismenn meta það svo að hækkanir tolla á mörk- uðum EFTA-ríkjanna þriggja vegna inngöngu þeirra í ESB myndu kosta útflytjendur í Bandaríkjunum hundruð milljónr dala. Óviðunandi tilboð Brown sagði á blaðamannafundi að Bandaríkjamenn væru ekki ánægðir með tilboð Evrópusam- bandsins og sagði það „í besta falli óviðunandi“. Þeir byggjust því við „tilboði sem kæmi meira til móts við þá“. „Eg lít svo á að það sé mjög mikil- vægt að við náum bráðabirgðasam- komulagi fyrir áramót,“ sagði hann. Aðspurður hvað Bandaríkjastjóm myndi gera ef slíkt samkomulag næðist ekki, sagði hann að hún yrði að íhuga aðrar aðgerðir, „en ég vona að til þess komi ekki,“ sagði Brown. Látið hefur verið í veðri vaka að Bandaríkjamenn myndu jafnvel grípa til viðskiptaþvingana gegn ESB, eða þá að vísa málinu til GATT í Genf. Samkvæmt GATT- reglum ber ríkjum, sem ganga í við- skiptabandalög, að ræða við við- skiptalönd sín um samkomulag, sem feli í sér að viðskiptakjör þeirra versni ekki. ísland og Noregur í svipuðum viðræðum íslendingar og Norðmenn eiga nú í svipuðum viðræðum við Evrópu- sambandið og sagði Þorsteinn Páls- son sjávarútvegsráðherra í síðustu viku að Leon Brittan, sem fer með utanríkisviðskiptamál í fram- kvæmdastjóm ESB, hefði sagt að ESB myndi standa við GATT-skuld- bindingar að þessu leyti. Aðsetur framkvæmda- stjórnarinnar FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópusambandsins í Brussel hefur löngum verið til húsa í Berlaymont-byggingunni í Brussel, húsinu sem er i lag- inu eins og krossfískur og hefur orðið nokkurs konar tákn fyrir Evrópu- sambandið. Berlaymont þótti hins vegar orðið heiisuspillandi og fer nú fram gagnger viðgerð á húsinu. Á meðan heldur framkvæmdasljómin til í Breydel-byggingunni, sem hér sést. Sænska þingið staðfestir ESB-aðild • SÆNSKA þingið staðfesti í gær með miklum meirihluta aðildar- samning Svíþjóðar við Evrópusam- bandið og þær breytingar á sænsku stjórnarskránni, sem hann felur í sér. Atkvæðagreiðslan átti að fara fram í fyrradag, en henni varð að fresta þar sem 40 þingmenn kvöddu sér hljóðs um málið. • TANSU Ciller, forsætisráðherra Tyrklands, átti á miðvikudag fund með sendiherrum ESB-landa í Ank- ara til þess að reyna að greiða fyrir samþykkt tollabandalags ESB og Tyrklands. ESB hefur ekki viljað ljúka samningum um tollabandalag vegna mannréttindabrota í Tyrk- landi. Daginn áður hafði Ciller hringt í Leon Brittan, varaforseta framkvæmdastjórnar ESB, og Helmut Kohl Þýzkalandskanzlara til að liðka fyrir framgangi málsins. „Efnahagsleg tengsl við ESB munu styrkja vestræn gildi í Tyrklandi,“ sagði Ciller. Auk mannréttindabrota stendur vera tyrkneskra hermanna á Kýpur í vegi fyrir gildistöku tolla- bandalags, þar sem Grikkir krefjast þess að þeir verði á brott. •RÁÐHERRAR landbúnaðarmála í ESB hafa samþykkt að afnema hið dýra verðjöfnunarkerfi svokallaðra „grænna gjaldmiðla", sem þjónaði þeim tilgangi að verja bændur fyrir verðsveiflum vegna gengisbreyt- inga. í staðinn fá bændurnir byggðaaðstoð og beingreiðslur. William Waldegrave, landbúnað- arráðherra Breta, sagði að of skammt væri gengið, og lögðust bæði Bretland og Danmörk gegn jafnháum bótum til bænda og sam- þykktar voru. • FRAMKVÆMDASTJÓRN ESB hefur gefið út leiðbeiningar tii þeirra, sem verzla í öðru ESB-ríki en heimalandi sínu. Samkvæmt ESB-regium má taka talsvert mikið áfengi og tóbak með sér yfir landa- mæri, svo framarlega sem það er til einkaneyzlu. Wall Street Journal segir að framkvæmdastjórnin ráð- lcggi þeim, sem stöðvaðir séu af tollvörðum, að svara því til að áfeng- ið sé ætlað „fyrir brúðkaupsveizlu dóttur þeirra.“ • HELMUT Kohl, kanzlari Þýzka- lands, sagði í ræðu á þýzka þinginu í gær að önnur ESB-lönd ættu að greiða^meira til fjárlaga sambands- ins. „Eg vil ekki að Þjóðveijar borgi minna, en mér finnst að aðrir ættu að borga meira, til þess að þeir, sern þurfa aðstoðar með, geti fengið hana,“ sagði kanzlarinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.