Morgunblaðið - 16.12.1994, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
MINIMINGAR
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 47
GEORG FELIX
GÍSLASON
-I- Georg Felix
* Gíslason var
fæddur í Englandi
29. september
1921. Hann lést á
hjúkrunarheimil-
inu Eir hinn 8. des-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Frank Gaze-
ley, lögreglufor-
ingi hjá Scotland
Yard í Lundúnum,
og kona hans,
Leontine Ann
Marie, ættuð frá
Frakklandi. Hann
var elstur fjögurra systkina,
en þau eru Jackelin, Neville
og Monica og lifa þau öll bróð-
ur sinn. Georg kvæntist eftir-
lifandi konu sinni Ingibjörgu
Eiríksdóttur 3. nóvember
1945, en hún er
dóttir hjónanna Ei-
ríks K. Jónssonar
málarameistara í
Reykjavík og
Jennýjar Friðriks-
dóttur sem bæði
eru látin. Georg og
Ingibjörg eignuð-
ust þijú börn. Þau
eru: Anna María f.
13.3.47, gift Óla
Pétri Olsen; Ingi-
bergur Jón, f.
18.4.54, kvæntur
Sigríði Gunnars-
dóttur, og Eiríkur
Oddur, f. 22.9.56, giftur Ragn-
hildi Sveinsdóttur. Einnig ólu
þau upp son Onnu Maríu, Ge-
org, f. 24.2.65. Útför Georgs
fer fram frá Langholtskirkju
í dag.
ELSKU pabbi minn. Loksins hefur
þú fengið hvíldina langþráðu eftir
áralöng -og ströng veikindi og
sjúkrahúsvistir.
Pabbi fæddist í Englandi og
ólst upp þar og í Frakklandi þaðan
sem móðir hans var ættuð. Ungl-
ingsár hans voru sveipuð skugga
stríðs seinni heimsstyijaldarinnar
og átján ára gamall var hann kall-
aður í herinn, ungur og óreyndur,
úr ormum fjölskyldunnar þar sem
blákaldur veruleikinn blasti við
honum, breskur heragi í öllu sínu
veldi.
Sjóherinn varð hans hlutskipti
og árið 1942 var skipi hans stefnt
í norður og til íslands. Til Reykja-
víkur var komið þar sem dvalið
skyldi næStu tólf mánuði. Þar vann
pabbi á pósthúsi hersins í Hafnar-
stræti ásamt fleiri störfum. Á
löngum dögum fjarri sínum nán-
ustu eru dagarnir lengi að líða og
á einum slíkum sá pabbi unga ljós-
hærða stúlku sem vann við fram-
reiðslu á matstað í Hafnarstræt-
inu. Hún varð sólargeislinn hans
í skammdeginu og þau unnust
hugarástum. En brátt rann tíminn
sem íslandsdvölin átti að standa
út og haldið skyidi á ný út í óviss-
una, sem reyndist vera dvöl á
tundurspili í Kyrrahafínu það sem
eftir lifði stríðsins.
En öll él birtir upp um síðir og
í október 1945 kom pabbi til ís-
lands aftur til að giftast mömmu
sem hafði beðið eftir honum,
stundum án þess að heyra frá
honum mánuðum saman vegna
stríðsins. Þau giftu sig og fimm
dögum síðar fengu þau far með
íslenskum ísfisktogara sem var
fara í söluferð til Englands og
brúðkaupsdagamir liðu í vonsku-
veðri alla leið til Englands.
Á þessum tíma var erfitt fyrir
stúlku frá íslandi að aðlaga sig
landi sem stríðið hafði leikið grátt
og mikil heimþrá gerði vart við
sig, sem endaði með því að þau
fluttust til íslands ári seinna og
hófu búskap á Laugavegi 43.
Seinna byggðu þau hús í Gnoðar-
vogi 52 ásamt foreldrum mömmu
og bræðrum.
Pabbi hóf störf í versluninni hjá
Agli Vilhjálmssyni strax eftir kom-
una til Islands og vann þar til
heilsan brást honum, aðeins 57
ára_ gömlum.
Árin hjá Agli Vilhjálmssyni urðu
33 og það eru ábyggilega margir
sem muna eftir Gogga í búðinni.
Þó pabbi hafí flust til Islands skildi
hann ekki ensku hefðimar eftir
heima. Enska nákvæmnin og
snyrtimennskan var höfð í háveg-
um og man ég alltaf eftir skóburst-
un hans og öllum glansandi skón-
um. Hann hafði afar gaman af
stangveiði í ám og vötnum og var
farið mjúkum höndum um náttúr-
una og bráðina. Veiðiferðirnar í
Miðjarðarána í góðum félagsskap
vom eftirminnilegastar og sá stóri,
stóri, stóri sem þar veiddist var
sennilega toppurinn.
Alltaf voru tengslin við gamla
England sterk og oft var útvarp
BBC hátt stillt en sennilega aldrei
eins hátt og þegar England varð
heimsmeistari í knattspymu sum-
arið 1966. Þá ætlaði þakið að rifna
af húsinu og tár sáust renna smá
stund. Þegar pabbi var 57 ára
gamall fékk hann blóðtappa við
heilann og lamaðist. Maður eins
og hann sem alltáf hafði verið í
fullu fjöri átti afar erfítt með að
sætta sig við orðinn hlut og urðu
árin sem eftir komu afar erfíð
honum og mömmu, sem hlúði að
honum eins og hún gat.
Margar urðu sjúkrahúslegur
hans og vil ég þakka öllum sem
hjálpað hafa honum gegnum árin,
nú síðast starfsfólkinu á 3. hæð
hjúkrunarheimilisins Eirar í Graf-
arvogi, þar sem hann dvaldi síð-
asta árið.
Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og besta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótt þér aðrir bregðist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar
Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
(Sig. Kr. Pétursson)
Elsku pabbi. Nú ert þú laus við
fjötrana og frjáls á ný.
Megi Guð vera með þér.
Þín dóttir,
Anný.
Georg Felix Gíslason var fædd-
ur í Englandi. Hann átti franska
móður og enskan föður. Þijú
systkini átti hann, tvær systur og
einn bróður, sem öll em búsett í
Englandi. Georg giftist systur
minni, Ingibjörgu Eiríksdóttur, og
eignuðust þau þijú börn og einn
fósturson sem reyndist þeim sem
besti sonur.
Á unglingsárunum lék Georg
knattspyrnu og var mikill Crystal
Palace-maður. Fljótlega eftir að
hann fluttist til íslands hóf han
störf hjá Agli Vilhjálmssyni. í 15
ár átti hann við veikindi að stríða.
Hann var mikill íslendingur en
hafði sterkar taugar til Englands.
Nú kveð ég góðan vin og bið
Guð að blessa eiginkonu hans,
böm og fjölskyldur þeirra.
Helga Eiríksdóttir.
CHATEAU D'AX
TEG.87I
3ja sæta sófi og tveir
stólar í leðri
Verð kr. 239.800 stgr.
Síðumúla 20, sfmi 688799.
'fgjufú'
Honse
bouilkm
Piske
bouillon ^
Svine
kodkraft
0kse
kodkraft
* ^
sovs
Alt-i-én teming
-med smag, kulor og jævning
Gronsags
bouillon
Lamh
STOCK CUBES
Klar bouillon
SKIÐATILBOÐ ALITAðTo%
ELDRI ARGERÐIR AF SKIÐUM OG
SKÍÐAVÖRUM Á FRÁBÆRU VERÐI
Ódýrir skíöapakkar, barna,
unglinga og fulloröinna
Skíði barna verð frá kr. 4.900
Skíði unglinga verð frá kr. 6.900
Skíði fullorðinna verð frá kr. 8.900
Skíðaskór barna verð frá kr. 3.300
Skíðaskópokar verð frá kr. 1.190
Leðurskíðahanskar verð kr. 970
Skíðagleraugu verð frá kr. 890
Skíðapokar verð frá kr. 2.300
Skíðasokkar verð frá kr. 690
Bakpokar verð frá kr. 1.290
7~n:
'-^,,.; 4yiittistöskur verð frá kr. 590
Skíðalúffur verð kr. 490
Og aö sjálf-
sögöu margt
fleira.
Ódýrir, vandaðir DYNASTAR skíðagallar:
Barnastærðir 6—16 ára, litir; blátt, lilla og svartur.
Verö kr. 5.200.
Dömustærðir, litir; grænn, burgundy og blár. Verð kr. 7.300.
Herrastærðir, litir; dökkblár, svartur og burgundy. zzVerö 7
Símar: 35320,
688860.
Ármúla 40.
Sveppa-
kraftur
Alltaf uppi á
kraftmikið
og gott
bragð! ,
YOOA F14.17rSlA