Morgunblaðið - 16.12.1994, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
stundunum fækkaði, eftir að Hörð-
ur bróðir minn lést. Alla tíð hafði
Ella samband og áhuga á því
hvernig bömunum okkar vegnaði.
Nokkrum vikum áður en hún lést
heimsótti ég hana á Landspítalann.
Bað hún mig þá um að sýna sér
myndir af sonardætrunum okkar,
sem búa í Svíþjóð, næst þegar ég
kæmi í heimsókn, sem ég og gerði
og var hún mjög ánægð.
Þess má geta, að handbragð
Ellu bar -ávallt vitni vandaðra
vinnubragða í hverju sem var.
Það er með þakklæti og virðingu
í huga sem þessi hugljúfa mágkona
er kvödd. Minning hennar rís hæst
í manngildi, trúmennsku, vináttu
og kærleika til annarra. Það er trú
mín og vissa að hún muni nú hitta
eiginmann sinn, svo og aðra ætt-
ingja, sem farnir eru á undan
henni, yfir móðuna miklu. Það
verða sælufundir og ást og kær-
leikur munu ríkja.
Börnum, tengdabörnum, barna-
börnum, svo og öðrum ástvinum,
vottum við samúð og biðjum Guð,
að styrkja ykkur í sorginni.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfír minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Bára Jónsdóttir.
Okkur langar að minnast Elínar
nágrannakonu okkar. Það var fyr-
ir rúmlega fimm árum áð við flutt-
um á Suðurvanginn, ásamt öðru
ungu barnafólki. Við fréttum að í
næstu íbúð við okkur ætluðu hjón
á miðjum aldri að flytja inn. Við
höfðum áhyggjur- af því, að þau
yrðu ekki hrifin af þeim hávaða
og ijöri sem fylgt getur börnum
og að þau myndu ekki falla inn í
þann unga foreldrahóp sem ný-
fluttur var í húsið. En annað kom
á daginn. Bæði Elín og Hörður
voru ung í anda og tóku börnunum
okkar einsog þeirra eigin bama-
börnum. Börnin litu á þau sem
ömmu og afa í næstu íbúð og ófá-
ar stundirnar léku börnin okkar
við barnabörn þeirra, sem komu
mjög oft í heimsókn.
Elín var einstaklega góð og
hreinskilin kona. Hún sagði sína
meiningu á sinn skemmtilega og
opinskáa hátt og var alltaf tilbúin
að aðstoða okkur eins og hún gat.
Þrátt fyrir langa sjúkdómslegu og
mikil veikindi upp á síðkastið, von-
uðum við alltaf að hún myndi
hressast og koma heim.
Við fjölskyldan þökkum fyrir að
hafa fengið að kynnast Elínu og
munum við sakna hennar mikið.
Minningin uni hana mun alltaf lifa
hjá okkur. Ástvinum hennar og
ættingjum vottum við okkar
dýpstu samúð.
Margrét og Torfi.
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 51
Geisladríf
Stwnd-BlasterPRo
+ 2hatalarar
saman í hörðum
iofapakka
§ound
Meinháttar
hljoðkerfi fyrir alla
tölvunotendur
creativ
....
Geis'adrifið Mitsumi
CD-ROM (2 spin) r
+ CREATIVE C
Sound-Blaster PRo
+ Iveir hátalarar.
Saman I Pakka á kr.
Mikið úrval glæsilegra jólagjafa
sem finna má á óskalista tölvu
áhugamannsins um þessi jól
Tæknival
Skeifunni 17 - Sími (91) 681665 - Fax (91) 680664
Opiðtilkl. 16.00
á laugardaginn.
Verið velkomin.