Morgunblaðið - 16.12.1994, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 45
AÐSENDAR GREIIMAR
„Forrest Gump“ krafðist fyrir
þroskaheftan son sinn í samnefndri
kvikmynd sem nú er verið að sýna
í Reykjavík.
Aðalpersónan í þessari þjóðfé-
lagsádeilu er þroskaheftur drengur
sem sýnir áhorfendum heiminn með
sínum augum, heim sem menn með
eðlilega greindarvísitölu stjórna,
þar sem ekki er hikað við að senda
unga menn í tilgangslaust stríð.
Ef b'orgarbúar horfa á reykvískt
samfélag með barnaaugum geta
þeir alveg eins viðhaft sömu orð
og þroskahefti drengurinn í fyrr-
nefndri kvikmynd þegar hann var
spurður hvort hann væri heimskur.
Island sem á dætur fagrar og bjart-
ar yfírlitum sem sumarnætur og
vörpulega syni með augu sem minna
á hafíð er svo gæfusamt að vera
laust við hörmungar vopnastríðs,
hryðjuverka og hungurs.
Samt kvarta landsmenn látlaust
yfír því sem þeir geta sjálfír breytt,
og kenna stjórnmálamönnunum um
ófarirnar. En í tengslaskertu samfé-
lagi er varla hægt að búast við því
að stjóm landsins sé í nánum tengsl-
um við þjóðina, og þótt henni sé
kennt um ófarimar er staðreyndin
sú að þjóðin er öll ábyrg gjörða
sinna.
Sortering
íslensk börn eiga skilyrðislaust
að fá að kynnast fjölbreytileika lífs-
ins, en það geta þau einungis ef
þeim er gefínn kostur á heilbrigðum
tengslum við alla aldurs- og þjóðfé-
lagshópa. Kærleiksverk Clöru í
„Húsi andanna“ gengu í arf frá
móður til dóttur og síðan dóttur-
dóttur enda kynslóðatengsl þeirra
órofin alla tíð. Sorterað samfélag,
þar sem mannfólkið er básað niður,
bömin svipt reynslu elstu kynslóð-
arinnar og staðreyndum lífsins
haldið leyndum er ekki vörðuð leið
til lífshamingju.
í hnotskurn
Verslunarstéttin notfærir sér til
hins ítrasta að höfða til kaupæðisins
sem ríkir í borginni og ýta undir
veikleikann og græðgina sem virð-
ist hafa slegið rótum í hjörtum
borgarbúa. Sorgleg uppákoma þeg-
ar haft er í huga að enginn getur
keypt eða etið burt innri vanlíðan.
Hið erfiða ástand í afkomumálum
sumra borgarbúa bitnar mest og
verst á börnunum og líkt og í öðrum
stríðum fylgir því blóð, sviti og tár.
Vafalaust væri margt öðru vísi ef
efnafólkið í borginni væri eins
þenkjandi og Clara í bók Isabel
Allende, „Húsi andanna", sem leit
á það sem sjálfsagða skyldu sína
að fara reglulega í fátækrahverfin
í borginni og „láta kærleikann koma
í stað réttlætisiris“. í öllum hraðan-
um hefur gleymst að börn verða
spegilmyndir umhverfís síns og
uppalenda, og að það sem við gefum
börnum okkar í veganesti í dag er
það sem mótar heiminn á morgun
og í nánustu framtíð. Það væri jafn
heimskulegt að halda áfram að reka
tengslarofið og fjölskyldufirrt borg-
arsamfélag og að sætta sig við að
það væri gert. Það er orðið tíma-
bært að foreldrar setji fram sömu
kröfu og móðir Forrest Gump. Áður
en heimsmynd barnanna sem nú
eru að slíta barnsskónum í Reykja-
vík tekur á sig endanlegt skipulag
Sorpu - tímabil borgarmannlífsins,
Sorputímabilið eða sorteringartíma-
bilið; þegar öllum hefur verið fund-
inn sinn ákveðni staður eftir aldri,
andlegu og líkamlegu atgervi og
úrgangur heimila jafnt sem stofn-
ana vandlega sorteraður eftir inni-
haldi. Elskum og virðum börnin
okkar í dag - á morgun gæti það
verið orðið of seint.
Höfundur er arkitekt, tveggja
barna faðir og ættaður úr
Hafnarfirði.
Góð úlpa
er hlýjólagjöf
Mikið úrval af úlpum
með og án hettu. Stærðir 34-50
Póstsendum
\<#HI45ID
Laugavegi 21, s. 25580
10% jölaafsláttur!
BORGARKRINGLUNNI
Einstakt úrval af töskum, höttum
slæðum, treflum og vettlingum.
KOKKTEILL - allt öðruvísi!
NÓÍAITIUIN
\.ondon
599•
Hatttón®*
Þegar allt er gott
er vandi að veija!
ÓDÝRA HANGIKJÖTÍÐ:
Læri 1/1 Frampartar 1/1
695: 495:
Taðreykt og þurrsaltað
TAKMARKAÐ MAGN
Húsavíkur
Hangikjöt
- það gerist ekki betra
á markaðinum!
Ilmurinn gefur hátíð í bæ!
Lambahryggir
499
pr.kg.
Svínahryggur
m/puru
EKTA
Nóatúns
Bayonne
skinka
998
Nýreyktur NÓATÚNS
Hamborgarhryggur
1.195r
bragðmikil
og safarík
B.C.epli
- Rauð
pr.kg.
Daglega úr reyk
ViUibráð:
Hteinövt - *^ur
PeKingendut
- Migaes’ir -
Reyktur
Danskur áll
Opið Laugardag
til kl. 22.00
Opið Sunnudag
f öllum verslunum
Ferskur
MUI tZ“'
TILBOÐ
Kryddsíidar flök
Saltsfldar flök
Ediksöltuð flök
89
A
4°0 grm
399..
ó
pr.kg.
198
Ný síldarflök
148
ICEFOOD
pr.kg
■
Uppskriftir fylgja
ISLENSK MATVÆLI
Reyktur lax > Graf lax
1.398
NOATUN
Nóatún 17 - S. 617000, Rofabæ 39 - S. 671200, Laugavegi 1,16 - S. 23456
Hamraborg 14, Kóp. - 43888, Furugrund 3, Kóp. - S.42062
Þverholti 6, Mos. - S 666656, JL-húsinu vestur í bæ - S. 28511
Kleifarseli 18 - S. 670900