Morgunblaðið - 16.12.1994, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 16.12.1994, Blaðsíða 60
60 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FAVfe. /2-g Tommi og Jenni Ferdinand THI5 F00TBALL L00K5 LIKE A THANK5GIVIN6 TURKEV lOITHOUT THE DRUM5TICK5.. CATCH THE TURKEV, 5IR! UJHITE MEATOK DARK MEAT7SAVE ME THEU)I5HB0NE!__ II-zs 0^ THE TURKEV FELL OFF THE TABLE, 5IR..^ 993 Unlted Feature Syndicate, Inc. I HATE PLAVIN5 LUITH VOU,M ARCIE! tsjrv ^ / V*-' jQlM • Þessi fótbolti lítur út eins og leggjalaus þakkar- gjörðarkalkúni Gríptu kalkúnann, herra! Hvítt kjöt eða dökkt kjöt? Geymdu óskabeinið handa mér! Kalkúninn féll Mér ieiðist að ofan af borðinu, leika við þig, herra. Magga! BREF ITL BLAllSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329 Að vera eða vera ekki - af réttu kyni? Frá Ragnheiði H. Þórarinsdóttur: EKKI ætti það að hafa farið fram hjá neinum síðustu daga, að það er búið að ráða í stöðu umboðsmanns barna hér á landi. 24 sóttu um starf- ið, 15 konur og 9 karlmenn, flest allir eflaust með menntun og starfs- reynslu við hæfi. Eins og gefur að skilja gat einungis einn hreppt hnossið, og hefur kvenlögfræðingur hlotið starfann. Réttum mánuði eftir að málið er frá gengið, birtist opið bréf í Mogg- anum til Davíðs Oddssonar, þar sem hann er krafinn skýringa vegna þessa, þar sem viðkomandi umsækj- andi geti ekki með nokkru móti tal- ist standa öðrum umsækjendum framar. Bréfritarar eru tveir um- sækjendur, karlkyns. í 2. grein laga um umboðsmann barna stendur: „Umboðsmaður barna skal hafa lok- ið háskólaprófi. Hafí umboðsmaður barna ekki lokið embættisprófí í lög- fræði skal lögfræðingur starfa við embættið." í greinargerð með þess- ari grein frumvarpsins stendur, að umfjöllun um ýmis lagaleg atriði varðandi börn verði án efa eitt meg- inverkefni umboðsmanns barna, a.m.k. á fyrstu árum embættisins. Hæfur starfskraftur ráðinn Með hliðsjón af lögunum og þeim skilyrðum, sem umsækjendur þurftu að uppfylla, get ég því með góðri samvisku tekið hattinn ofan fyrir stjórnvöldum, sem svo sannarlega hafa slegið margar flugur í einu höggi með þessari stöðuveitingu. Þau mega teljast stálheppin að hafa fengið umsækjanda, sem bæði upp- fyllir starfsskilyrðin með sóma og þess utan er Kona, með stórum staf. í fyrsta lagi finnst mér, sem skatt- borgara, hið besta mál, að nú þarf hvorki að ráða lögfræðing til að halda í höndina á ólöglærðum um- boðsmanni né kaupa rándýra lög- fræðiþjónustu fyrir þetta nýja emb- ætti. Stjórnvöld sýna, að mínum dómi, óvenjulega mikla framsýni, því gera má ráð fyrir, að það séu ein- mitt lög og reglugerðir varðandi börn og unglinga, sem helst þarf að hafa auga með og breyta fyrst í stað, svo lögfræðiþekking þarf ör- ugglega að vera til staðar. Að veita lögfræðingi stöðuna minnir því einna helst á vinnubrögð hinnar margum- töluðu hagsýnu húsmóður, því auð- vitað er miklu betra að hafa þetta allt á einni hendi. Með stöðuveiting- unni er því verið að spara skattborg- urunum stórfé. í öðru lagi hefur stjórnvöldum með þessari veitingu loksins tekist að koma landanum ofarlega í „stati- stikkinni", hvað varðar konur í ábyrgðar- og stjórnunarstöðum. Samanborið #við hin Norðurlöndin erum við nefnilega hrikalega aftar- lega á merinni hvað raunverulegt jafnrétti varðar, og margir íslenskir karlmenn eru alveg einstakir aftur- haldsseggir í jafnréttismálum. Bréfritarar gera lítið úr menntun og starfsreynslu umboðsmannsins og benda sérstaklega á, að hann hafi starfað m.a. við skipulagsmál hjá félagsmálaráðuneytinu og kynn- ingarstörf hjá forsætisráðuneytinu, og það geti varla talist til tekna, þegar meta á starsreynsluna. Ég fæ ekki betur séð, en að það sé sérstak- lega tekið fram í lögunum og grein- argerðinni með þeim, að þau fjalli um velferð barna á öllum sviðum, og að afskipti umboðsmanns barna séu ekki einskorðuð við barnaréttar- eða barnaverndarmál heldur falli t.d. skipulags- og umhverfísmál einnig undir verksvið hans. Og skyldu þeir ekki hafa vitað, að „kynningarstarf- ið“ hjá forsætisráðuneytinu fólst m.a. í því að skipuleggja og halda námskeið fyrir ólöglærða starfs- menn í opinberri stjórnsýslu um nýju stjórnsýslulögin? Fáir þekkja því þau lög betur en nýi umboðsmaðurinn. Mig langar nú til að snúa spurn- ingunni við, og spyija hvað bréfrit- ararnir hafa fram yfir lögfræðing- inn, sem gerir þá hæfari til starf- ans, skv. lögum um umboðsmann barna? Er svona miklu betra að vera geðlæknir eða uppeldisfræðingur en lögfræðingur, þegar starfssviðið er jafn víðtækt og það er? Ég fæ nú ekki skilið það, en hitt veit ég að bréfritararnir eru náttúrlega með eitt framyfir þann, sem embættið fékk, þó ég sjái ekki, að það skipti máli, hvað varðar hæfni til þessa starfs. Undarlegur fréttaflutningur Fréttaflutningur Morgunpóstsins í morgun er kapítuli út af fyrir sig, en því blaði má einna helst líkja við „Bild Zeitung" í Þýskalandi, sem ekki þykir nú par góður fjölmiðill meðal sæmilega þenkjandi manna. Þó hugsa ég að þeir hjá Bild hefðu nú brugðist skjótar við, ef stöðuveit- ingin ber svona mikilli spillingu vott. Það þykja nú ekki skjót viðbrögð eða snöfurmannleg fréttamennska að mega vart vatni halda af vandlæt- ingu rúmum mánuði eftir' að allt er afstaðið. Það er nokkuð dæmigert, að blaðamaður Morgunpóstsins talar við 4 af 9 karlkyns umsækjendum og nefnir sérstaklega tvo aðra karla, sem gengið var framhjá við veiting- una. Af kvenkyns umsækjendunum 15 er einungis minnst á tvo, fyrir utan þann, sem stöðuna fékk. Af hverju eru það bara karlarnir, sem eru svona svekktir? Hvar eru kon- urnar 14? Var þá ekkert hneyksli að „sniðganga" þær? Nei, bréf þeirra félaga og umfjöll- un Morgunpóstsins um málið, fínnst mér vera sláandi dæmi um smásál- arskap og öfundsýki, sem því miður ér allt of ríkjandi í íslensku þjóðfé- lagi. Og það virðist hafa farið mikið fyrir brjóstið á nokkrum umsækjend- anna og sært þeirra karimannsstolt, að þeir skyldu hafa orðið að láta í minni pokann fyrir konu. í minni sveit var þetta kallað að vera taps- ár, og þeir krakkar sem ekki þoldu að tapa voru hundleiðinlegir að leika við. Skyldu strákarnir hafa æst sig svona upp í réttláta reiði og heilaga vandlætingu, ef lögfræðingurinn, sem ráðinn var, hefði verið af réttu kyni? Spyr sá sem ekki veit. RAGNHEIÐUR H. MRARINSDÓITIR, Akureyri. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.