Morgunblaðið - 16.12.1994, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
H
Mótettukórinn
Aðventu-
tónleikar
endur-
teknir
MOTETTUKOR Hallgrímskirkju
hélt aðventutónleika sína sunnu-
daginn 4. desember sl. undir stjórn
Harðar Áskelssonar. Tónleikarnir
hafa hlotið einróma lof gagnrýn-
enda og áheyrenda og hefur nú
verið ákveðið að þeir verði endur-
teknir næstkomandi sunnudags-
kvöld vegna fjölda áskörana.
Á efnisskránni eru verk frá 16.
og 17. öid. Aðalverkið á tónleikun-
um er Missa Papae Marcelli, sex
radda kórverk í sex þáttum eftir
Giovanni Pierluigi da Palestrina.
Auk þess verða fluttar tvær mót-
ettur eftir Palestrina, Canite tuba
fyrir 5 raddir og 0 magnum myst-
erium fyrir 6 radda kór. Þá verða
flutt þijú verk eftir Samuel
Scheidt, Canzon fyrir þrjá tromp-
ettá og móttetturnar Nun komm,
der Heiden Heiland og In dulce
jubilo. Einnig fljAur kórinn Jubil-
ate Deo, átta radda mótettu og
Hodie Christus natus est, 10 radda
mótettu fyrir einsöngvara, kór og
málmblásara eftir Giovanni Gabri-
eli.
Tónleikamir verða sem fyrr
segir í Hallgrímskirkju á sunnu-
dagskvöldið 18. desember og hefj-
ast kl. 21.00. Aðgöngumiðar verða
seldir í kirkjunni og kosta 1.000
krónur.
KÓR Langholtskirkju mun syngja jólasöngva á þrennum tónleikum um helgina.
KÓR Langholtskirkju hefur und-
anfarin ár sungið jólasöngva í
kirkjunni á miðnætti síðasta föstu-
dags fyrir jól. Fólki hefur verið
boðið að leggja leið sína í kirkjuna
og hlýða á jólalög, gæða sér á pip-
arkökum og sötra heitt kakó eftir
búðaráp kvöldsins. Sextán ár eru
liðin frá því að siður þessi var tek-
inn upp og hafa vinsældir jóla-
söngvanna vaxið ár frá ári. Nú er
svo komið að halda verður þrenna
tónleika enda var uppselt á föstu-
dagstónleikana áður en forsala
hófst. Tónleikarnir í kvöld hefjást
klukkan 23 og verður föstudags-
stemmningin endurtekin á sama
tíma annað kvöld. Loks munu jóla-
söngyar óma í Langholtskirkju á
íjölskyldutónleikum klukkan 17 á
sunnudag.
Að sögn Jóns Stefánssonar
stjórnanda kórsins verða tónleik-
arnir í ár með hefðbundnu sniði.
Jólasöngvar
í Lang-
holtskirkju
Kórstarf í Langholtskirkju er í miklum blóma
um þessar mundir. Kór kirkjunnar mun halda
þrenna tónleika um helgina þar sem sungnir
verða jólasöngvar og í dag kemur út geisla-
plata með söng Gradualekórs Langholtskirkju.
Sérstaklega mun seinni hluti þeirra
verða eins og fólk vill hafa tónleik-
ana, eins og Jón kemst að orði;
flutt verða jólalög í léttari kantin-
um í útsetningum Svíans Anders
Öhrwalls. Barokkverk munu ráða
ríkjum framan af tónleikunum og
verður meðal annars bryddað upp
á þeirri nýjung að skipta kórnum
í tvennt og flytja
verk fyrir tvo kóra
sem verða hvor á
sínum staðnum;
annar í kirkjunni
sjálfri en hinn í
safnaðarheimil-
inu. Kórarnir
munu ekki heyra
hvor í öðrum og
bíður Jón spennt-
ur eftir útkom-
unni. Einsöngvar-
ar á tónleikunum
verða Eiríkur
Hreinn Helgason,
Halldór Torfason,
Árný Ingvarsdótt-
ir og Ólöf Kolbrún
Harðardóttir en
hljóðfæraleikarar
Bernard S. Wilk-
inson flauta, Hall-
fríður Ólafsdóttir
flauta, Monika
ÉG BIÐ að heilsa nefnist
geislaplata með Graduale-
kór Langholtskirkju.
JÓLAGLADNINGUR HJÁ McDonald's
A PLANINU HJA McDonald’s AÐ SUÐUR-
LANDSBRAUT 56 GETUR ÞÚ FENGIÐ KEYPT
ÍSLENSKT RAUÐGRENI OG FYRSTA FLOKKS
NORÐMANNSÞIN. SÖLUMENN KENNA ÞÉR
AÐ MEÐHÖNDLA RAUÐGRENIÐ ÞANNIG AÐ
ÞAÐ ENDIST OG FELLI SÍÐUR BARR OG EF ÞÚ
KAUPIR McSTJÖRNUMÁLTÍÐ, SEM ER
AFSLÁTTARMÁLTÍÐ, FÆRÐ ÞÚ STÓRAN
AFSLÁTT TIL VIÐBÓTAR Á NORÐMANNSÞIN.
VERÐDÆMI: 1,90 M FYRSTA FLOKKS
NORÐMANNSÞINUR: VENJULEGT VERÐ KR.
4.650,- McDonald’s VERÐ: KR. 3.999,-
Abendroth harpa, Jón Sigurðsson
kontrabassi og Gústaf Jóhannes-
son orgel. Gradualekór Langholts-
kirkju mun syngja með kórnum.
Gradualekórinn
á geislaplötu
Miðar á tónleikana eru til sölu
í Langholtskirkju og í bókaverslun-
um Eymundsson. Miðaverð er kr.
1.000 fyrir fullorðna en börn undir
fermingu þurfa ekki að greiða að-
gangseyri. Jólasöngvar Kórs Lang-
holtskirkju eru fáanlegir á geisla-
plötum og snældum sem heita
Barn er oss fætt og fást í Lang-
holtskirkju og í hljómplötuverslun-
um._
Ég bið að heilsa er yfirskrift
geislaplötu með söng Gradualekórs
Langholtskirkju sem kemur út í
dag. Platan hefur að geyma ætt-
jarðarsöngva, sálma og kirkjuleg
verk. Kór þessi starfar í tengslum
við Kórskóla Langholtskirkju sem
tók til starfa haustið 1991. Mark-
mið skólans er að veita börnum
og unglingum staðgóða tónlistar-
menntun með markvissri þjálfun
raddar og heyrnar sem miðar að
þátttöku í kórstarfi. Kennarar við
skólann eru Signý Sæmundsdóttir
óperusöngkona, Helga Björg
Svansdóttir tónmenntakennari og
Jón Sfefánsson kórstjóri. Kennslu-
greinar eru tónfræði, tónheyrn,
nótnalestur, raddþjálfun og sam-
söngur. Miklar kröfur eru gerðar
til þeirra sem fá inngöngu í kórinn.
Miklir grallarar
Gradualekór Langholtskirkju
tók til starfa eftir áramót 1992.
Nafn kórsins er fengið frá messu-
bók Guðbrands biskups Þorláks-
sonar sem gengið hefur undir nafn-
inu Grallarinn.
Það vísar til þess
að Langholts-
kirkja er helguð
Guðbrandi en á
þessu ári eru liðin
Qögur hundruð
ár frá útgáfu
Grallarans. Fé-
lagar í kórnum
eru ungir að
árum, eða frá tíu
til sautján ára og
geta þess vegna,
að sögn Jóns,
verið miklir grall-
arar.
Fyrsta verk-
efni kórsins var
þátttaka í flutn-
ingi Kórs Lang-
holtskirkju á
Mattheusarpass-
íunni árið 1993.
Kórinn tekur þátt
í jólasöngvunum auk þess sem
hann syngur í messu sjötta hvern
sunnudag í Langholtskirkju. Þá
söng kórinn ásamt Skólakór Kárs-
ness tónleika í nóvember á síðasta
ári þar sem sungin var heil bók
með 40 jólalögum. Stærsta verk-
efni Gradualekórsins til þessa var
flutningur á Gloríu eftir Vivaldi
ásamt Unglingakór Selfosskirkju
og Kammersveit Langholtskirkju í
fyrra vetur.
PlnrgniiiWaltili
- kjarni málsins!
€
1
>
Cí
i
€
i
t
s
AA AAA AAA