Morgunblaðið - 16.12.1994, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Stefnt að
lögum um
bókhald
fyrir jól
EFNAHAGS- og viðskiptanefnd
Alþingis stefnir að því að af-
greiða frumvörp um bókhald og
ársreikninga og hlutafélög eftir
helgina svo þau geti orðið að
lögum fyrir jól. Efnahags- og
viðskiptanefnd fékk bókhalds-
og hlutafélagafrumvörgin til
meðferðar fyrir nokkru. í frum-
varpið um bókhald og ársreikn-
inga vantaði þó kafla um viður-
lög sem sérstök nefnd hefur
unnið að. Sú nefnd hefur nú
skilað tillögum og jafnframt
samið frumvarp um breytingar
á hegningarlögum og frumvarp
um viðurlög vegna skattsvika
sem tengjast innbyrðis.
Ekki pólitískar deilur
Jóhannes Geir Sigurgeirsson
formaður efnahags- og við-
skiptanefndar sagði fullan vilja
hjá nefndinni til að afgreiða
þessi mál fyrir áramót enda
væru ekki fiokkspólitískar deil-
ur um þau; menn væru sam-
mála um, að á eftir yrði löggjöf
um atvinnulífið miklu gegn-
særri, auk þess sem skýr
ákvæði yrðu um viðurlög. „Eins
og þetta er nú eru til dæmis
engin viðurlög við því að henda
bókhaldi. Því hefur alltaf legið
fyrir að mjög æskilegt sé að
afgreiða þetta fyrir áramótin
því annars frestast allt málið
um heilt ár,“ sagði Jóhannes.
Jóhannes sagði að viðurlaga-
þátturinn stæði og félli með
frumvarpi um breytingar á
hegningarlögum um viðurlög
vegna bókhalds- og skattsvika,
sem er í umfjöllun hjá stjórnar-
flokkum.
Hann sagði að hægt væri
hugsa sér að afgreiða bókhalds-
lögin án viðurlagakafla, en
nefndarmenn væru sammála
um að slíkt væri neyðarúrræði.
„Það myndi samt tryggja að
hægt yrði að vinna eftir nýjum
bókhaldslögum strax á næsta
ári,“ sagði Jóhannes.
*
Okeypis
GSM-símtöl
PÓSTUR og sími býður eigend-
um GSM-farsíma ókeypis símt-
öl innanlands frá kl. 20 á föstu-
dagskvöldum til kl. 8 á mánu-
dagsmorgnum í desember og
janúar. Að sögn Hrefnu Ingólfs-
dóttur, upplýsingafulltrúa Pósts
og síma, er þetta gert bæði til
að hvetja til frekari notkunar
og eins til að prófa kerfíð undir
álagi.
Hrefna sagði að með því að
bjóða GSM farsímaeigendum,
sem nú eru rúmlega 1.800 tals-
ins, ókeypis símtöl væri verið
að hvetja þá til að nota símana
meira, og því væri þetta fyrst
og fremst gert í kynningarskyni.
Söluhvetjandi
„Þetta er söluhvetjandi að-
gerð sem söluaðilar farsímanna
hafa óskað eftir til þess að fá
fólk til að drífa sig yfir í þetta
kerfi. Þá viljum við líka fá fólk
til að vera ekki hrætt við að
nota símann og nota þetta tæki-
færi til að finna hvað þeir eru
þægilegir í notkun," sagði hún.
Hrefna sagði jafnframt að
fylgst yrði með notkun símanna
um helgar og þaæ sæist hvern-
ig fasímakerfíð bregst við undir
álagi.
FRÉTTIR
Davíð Oddsson skrifar í And-
vara um Geir Hallgrímsson
Ablaðamannafundi,
sem haldinn var í gær í
tilefni af útkomu And-
vara, kom fram að rit-
stjóri tímaritsins hefði leitað til
Davíðs fyrir tveimur árum um að
skrifa um Geir Hallgrímsson. For-
sætisráðherra sagði að flóknasta
vandamálið við samningu ritgerðar-
innar hefði verið það hversu nálægt
hann stæði sjálfur ýmsum atburð-
um, sem hann fjallaði um. „Ég taldi
að mér myndi ganga verst að setja
mig í næga fjarlægð frá þessum
atburðum, sem ég kynntist. Eins
taldi ég að erfitt myndi verða fyrir
mig að taka sanngjarna afstöðu,
því að ég tók auðvitað afstöðu í
hita leiksins þegar deilur, sem fjall-
að er um, voru uppi,“ sagði Davíð.
Gunnar Stefánsson, ritstjóri
Andvara, sagðist þó telja að forsæt-
isráðherra hefði farizt verkið vel
úr hendi og fullrar sanngimi væri
gætt í umfjöllun um viðkvæm mál.
Ritstjórn Andvara hefði tekið þá
stefnu á undanförnum árum að fá
menn, sem þekkt hefðu til ýmissa
áhrifamanna í íslenzku samfélagi
að skrifa um þá, og hefði það jafn-
an gefizt vel. Ekki hefðu verið gerð-
ar kröfur um algert hlutleysi.
Davíð sagðist hafa notað margar
heimildir við samningu ritgerðar-
innar, að eigin upprifjun af atburð-
um frátaldri. Þar á meðal hefðu
verið blaðaúrklippur, upplýsingar
úr bókum, sem komið hefðu út um
þau mál, sem fjallað væri um,
fundargerðir þingflokksfunda Sjálf-
stæðisflokksins og samtöl við ein-
staklinga, sem til hefðu þekkt. „Ég
held að það sé hvergi til heillegri
greinargerð um Geir Hallgrímsson
en þarna,“ sagði forsætisráðherra.
Aðspurður hvernig hefði gengið
að finna tíma, meðfram ------
annasömu starfi forsæt-
isráðherra, til að sinna
þessum ritstörfum, sagði
Davíð það hafa verið sinn
helzta höfuðverk. Verk-
inu hefði seinkað nokkuð vegna
þess að hann hefði í fyrsta lagi
vanmetið hversu mikil vinna það
væri, og aukinheldur hefði ævinlega
eitthvað komið upp, þegar hann
hefði haldið rólegan tíma framund-
an.
Skýrari mynd af Geir
Aðspurður hvort hann teldi grein
sína varpa nýju ljósi á stjórnmála-
feril Geirs Hallgrímssonar sagðist
Davíð vona að hún gæfi skýrari
Davíð Oddsson forsætisráðherra ritar grein
um Geir Hallgrímsson, fyrrverandi forsætis-
ráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, í
119. árgang Andvara, tímarits Þjóðvinafé-
lagsins, sem út kom í gær. Geir Hallgríms-
son hefði orðið 69 ára í dag, hefði hann lif-
að, en Geir lézt árið 1990.
Gerði ekki upp
á milli Davíðs
og Þorsteins
mynd af honum en stundum hefði
verið dregin upp í hita leiksins.
„Geir var afskaplega gætinn og
stundum" fannst fréttamönnum
hann óþarflega gætinn. Hann átti
ákaflega erfitt með að víkja illind-
um að nokkrum manni og var ná-
kvæmur með að það, sem hann
sagði í dag, passaði við það, sem
hann hefði sagt áður,“ sagði Davíð.
„Menn héldu kannski að hann væri
lokaðri og einhæfan manngerð en
hann var í raun. Ég vona að það
blasi við örlítið önnur mynd af hon-
um þarna, þótt sá eiginleiki hans
komi skýrt fram að hann var afar
vandvirkur og áfram um að ekki
mætti með neinni sanngirni saka
hann um ódrengskap eða vera ein-
hveijum um of vilhallur. Að sumu
léyti held ég að hann hafi goldið
þess í pólitík."
Davíð sagðist stundum hafa sagt
við Geir að komnar væru út við-
talsbækur eða ævisögur ýmissa
samtímamanna hans í stjórnmálum,
en hans eigin hlið á málunum væri
ekki komin fram. Menn, sem ekki
þekktu þennan tíma, myndu hugs-
anlega lesa þessar bækur síðar án
________ varúðar. „Ég held samt
að hann hafi aldrei ætlað
að skrifa endurminningar
sínar. Ég hetd að hann
hafi ekki haldið ýtarlegar
...""."" greinargerðir eða
dagbækur eins og ýmsir aðrir
stjórnmálamenn hafa gert,“ sagði
Davíð.
Hér á eftir fara tveir kaflar úr
ritgerð Davíðs.
Formannslgör 1983
„Sumarið 1983 leið að landsfundi
Sjálfstæðisflokksins, sem ákveðið
hafði verið, að haldinn skyldi 3.-6.
nóvember þetta ár. Geir Hallgríms-
son kallaði á okkur Þorstein Pálsson
á sinn fund í utanríkisráðuneytinu
síðla sumars. Þar sagði hann okkur,
að hann hygðist ekki gefa kost á
sér til formanns í Sjálfstæðisflokkn-
um á landsfundinum. Hann væri
reiðubúinn til þess að styðja annan
hvom okkar Þorsteins í formanns-
sætið. Hann vildi ekki gera upp á
milli okkar, en tók það hins vegar
fram, að sennilega væri ég líklegri
til þess að ná kjöri, þar eð ég væri
borgarstjóri í Reykjavík og nyti þess,
að-Sjálfstæðisflokkurinn hefði undir
forystu minni endurheimt meirihlut-
ann í Reykjavík. Geir sagði, að fyrir
sér vekti að við tveir gerðum það
upp okkar í milli, hvor gæfí kost á
sér í stöðuna. Ég kvaðst þurfa að
einbeita mér að starfi borgarstjóra
þar sem ég hefði ekki gegnt því
þýðingarmikla starfí nema rétt um
ár og ef ég hlypi úr því til að fara
í formennsku í flokknum og ríkis-
stjóm myndi mér sjálfum þykja sem
aldrei hefði reynt á hvort ég gæti
valdið borgarstjóraembættinu og
kjósendur myndu ekki telja þá fram-
komu traustvekjandi. Þorsteinn
Pálsson ákvað að gefa kost á sér
til formanns, og studdi Geir Hall-
grímsson hann, og gerði ég það af
ákafa líka. [...] ---------
Þörsteinn Pálsson
hafði lýst yfir því, er hann
var kjörinn formaður, að
hann myndi ekki sækjast
eftir ráðherrasæti í sam-
steypustjórn Framsóknarflokksins
og Sjálfstæðisflokksins. Kom sú
yfirlýsing mér og mörgum öðrum í
opna skjöldu. Var Geir Hallgríms-
son því áfram eins konar oddviti
sjálfstæðismannanna sex í ríkis-
stjórninni. En eftir því sem tíminn
leið tók mörgum að finnast óeðli-
legt, að formaður flokksins, Þor-
steinn Pálsson, sæti ekki í ríkis-
stjórn. Var það orðað við Matthías
Bjarnason, að hann stæði upp fyrir
Þorsteini, en hann var ófáanlegur
Hef vart
kynnst póli-
tískari manni
til þess. Hann sagðist áður hafa
boðist til þess ótilkvaddur og myndi
ekki gera það nú tilkvaddur. Leit-
aði Þorsteinn þá eftir því við hina
ráðherra flokksins, að þeir rýmdu
fyrir sér, en enginn þeirra vildi
gera það. Að lokum varð það úr,
að Geir Hallgrímsson þokaði úr
ráðherrasæti, þótt hann yndi sér
afar vel í utanríkisráðuneytinu. Var
það síðasta stóra fórn hans fyrir
flokkinn og einingu innan hans, en
því er ekki að leyna, að mörgum
vinum og stuðningsmönnum Geirs
fannst forystumönnum flokksins
hafa mátt farast betur við sinn fyrr-
verandi formann. Geir Hallgríms-
syni var veitt lausn úr embætti ut-
anríkisráðherra 24. janúar 1986,
en hann varð seðlabankastjóri frá
1. september 1986.“
Sjálfstæðisflokkurinn og
Morgunblaðið
„Ég kynntist Geir enn betur síð-
ustu árin, sem hann lifði, og verð
að segja það, að ég hef vart kynnst
pólitískari manni í besta skilningi
þess orðs, sem margur sér ekkert
gott við. Áttum við mörg samtöl
um heima og geima. Fannst mér
hann á þessum árum opnari og
ekki eins þvingaður af gætni og
varfærni og stundum fyrr. Hann
var þó til hinstu stundar umtals-
frómari en flestir menn, sem ég hef
kynnst. Þess vegna vógu ummæli
hans um einstaka samferðamenn
þyngra en ella, þótt aldrei brygðist
honum prúðmennskan. Ekki fór þó
á milli mála, að sumir þeir, sem
hann hafði treyst eða bundið vonir
við, höfðu komið honum óþægilega
á óvart. Geir -var lengi í forystu
Árvakurs, útgáfufélags Morgun-
blaðsins, og lét sér annt um velferð
þess. Hann mat mikils
samstarfsmenn sína þar,
þá Harald Sveinsson
framkvæmdastjóra, en
þeir höfðu þekkst náið frá
unglingsárum, og rit-
stjórana Matthías Johannessen og
Styrmi Gunnarsson. Fór þó ijarri
að honum félli að öllu leyti við þró-
un blaðsins síðustu árin og hafði
hann eins og fleiri áhyggjur af sumu
því, sem hafði áhrif á skrif og
fréttamat blaðsins. Geir var á hinn
bóginn mjög sáttur við að Sjálf-
stæðisflokkurinn, sem slíkur, hefði
ekki nein áhrif á gang mála hjá
blaðinu, þótt hann teldi að þessir
tveir aðilar ættu sjálfstæðisstefn-
una sem sameiginlega viðmiðun.“
Morgunblaðið/Sverrir
RÝNT í greinina um Geir Hallgrímsson í Andvara. Frá vinstri: Jóhannes Halldórsson, forseti Þjóðvinafélagsins, Gunnar
Stefánsson, ritstjóri Andvara, Davíð Oddsson forsætisráðherra og Heimir Þorleifsson, forseti Sögufélagsins.