Morgunblaðið - 16.12.1994, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 31
LISTIR
Skuggabaldur
KVIKMYNÐIR
Bí ó h ö 1 li n
SKUGGI „Shadow" ★ ★
Loikstjóri: Russell Mulchay. Aðal-
hlutverk: Alec Baldwin, Penelope
Ann Miller, John Lone, Ian McKel-
len, Tim Curry. Universal. 1994.
LA.MONT Cranston eða Skuggi
ku hafa verið æðivinsæl útvarps-
hetja í Bandaríkjunum á ljórða
áratugnum og í leit sinni að hasar-
blaðahetju í ætt við Batman hafa
kvikmyndagerðarmenn grafið
hann upp og gert úr honum íburð-
armikla en æði óspennandi og
skringilega hasarblaðamynd með
Alec Baldwin í titilhlutverkinu.
Skuggi er nokkuð ábúðamikil
mynd en einhvern veginn fullkom-
lega íjarstæðukennd, jafnvel mið-
að sé við þá tegund sem hún til-
heyrir.
Líkt og þættirnir er hún látin
gerast í New York á fjórða ára-
tugnum þar sem óvinurinn er síð-
asti afkomandi Gengis Khan
(John Lone) og þungbrynjaðir
liðsmenn hans. Lamont er sá eini
sem getur komið í veg fyrir að
mongólanum takist að sprengja
fyrstu atómsprenguna en Lamont
á sjálfur að baki ákaflega vafa-
sama fortíð meðal mongóla - var
kallaður slátrarinn frá Llasa -
og nýja skvísan hans (Penelope
Ann Miller) kemst að hinu sanna
því hún getur lesið hugsanir hans!
Pabbi hennar (Ian McKellen)
smíðar kjarnorkusprengjur á und-
an öllum öðrum og liðsmenn
Skugga nota svo víðáttuflókinn
sendibúnað til að koma skilaboð-
um á milli að greinilegt er að
enginn hefur sagt þeim frá s!man-
um ennþá.
Handritið vinnur ekki mjög vel
úr þessum furðumálum og Ástral-
inn Russell Mulchay leikstýrir án
þess að skapa nokkra spennu af
viti og Baldwin, sem leikur eigin-
lega þtjá persónuleika (Lamont,
Skugga og mongólaforingja í fort-
íðinni) á fullt í fangi með sig.
Hinn skelfilegi hlátur sem fylgir
hetjubrögðum hans er sjálfsagt
eitthvað úr útvarpinu og vekur
helst furðu. Tim Curry breytir
myndinni í farsa í hvert sinn sem
hann birtist og Lone er viðlíka
ógnvekjandi og góðglaður frændi
á furðufataballi.
Myndin býr yfir ágætum brell-
um og útlitið er alltaf skemmti-
legt. Einstaka sinnum vottar fyrir
húmor en kvikmyndagerðarmenn-
irnir hafa ekki haft erindi sem
erfiði. Skuggi reynist aðeins
skugginn af almennilegri hasar-
blaðamynd.
E.s. Sambíómenn hafa end-
urnýjað aðalsal Bíóhallarinnar á
glæsilegan hátt með upphækkun
og nýjum þægilegum stólum.
Harvardróninn
KVIKMYNDIR
Sagabíö
EINN AFKRöKKUNUM
„With Honors“ ★
Leikstjóri: Alek Keshishian. Aðal-
hlutverk: Joe Pesci, Brendan Fras-
er, Moira Kelly, Patrick Dempsey,
Josh Hamilton og Gore Vidal.
Warner Bros. 1994.
í NÝJUSTU mynd sinni leikur
Joe Pesci róna sem vingast við
úrvalsnemanda og félaga hans í
Harvard-háskóla og kennir hon-
um sitthvað um lífið utan háskóla-
svæðisins. Mikill vinskapur tekst
með þessum tveimur ólíku mönn-
um og sár leiðindi skapast með
áhorfandanum eftir því sem hann
verður innilegri. Einn af krökkun-
um er fyrsta mynd Alek Keshishi-
ans (heimildarmynd Madonnu,
„Truth or Dare“) og gengur
lengra í væmni og smekkleysu en
maður minnist úr bandarískum
bíómyndum hin seinni ár og er
þá mikið sagt.
Innantómar og klisjukenndar
uppstillingar Keshishians eru með
eindæmum og kristallast í atriði
þar sem háskólavinirnir lesa hver
á eftir öðrum úr ljóðum Walt
Whitmans yfir sjúkrabeði Pesci,
en fljótlega kemur í Ijós að hann
er mikið veikur. Þegar við bætist
vita hæfileikalaus leikari eins og
Brendan Fraser, sem gert er að
bera myndina uppi ásamt Pesci,
verður útkoman helber vonbrigði.
Brendan getur ekki sett upp sorg-
arsvip án þess að vera hlægileg-
ur, sem er skiljanlega bagalegt
fyrir mynd af þessu tagi. Niður-
staðan af öllu saman er sú að í
hvert sinn sem myndin á að vera
sorgleg verður hún afkáraleg og
væmin.
Háskólalífið er í þessum fijáls-
lynda og þreytandi unggæðings-
anda bandarískra háskólamynda.
Sýnt er iliu heilli í eina kennslu-
stund svo heimskulega undir
stjórn bandaríska rithöfundarins
Gore Vidal - sem leikur aukahlut-
verk nóbelsverðlaunahafa! - að
maður skilur allt í einu af hveiju
amerískir háskólanemar eiga í
erfiðleikum með að benda á Kína
á landakorti.
Kvikmyndatökumaður er Sven
Nykvist sem tekst að gæða mynd-
ina ákveðnum virðuleikablæ há-
skólaumhverfísins. En fólk getur
aðeins ímyndað sér hvernig hæfi-
leikum hans er kastað á glæ í
undanrennu eins og þessari.
Arnaldur Indriðason.
Nú eru allar 20 gerðir Qimm
kæliskápanna á hagstæðu
tilboðsverði, til dæmis:
KF-263 m/lúxusinnréttingu
254 lítra kæliskápur
með 199 Itr. kæli og 55 Itr. frysti.
HxBxD = 146,5 x 55 x 60 cm.
(Verðlistaverð kr. 62.100,-)
Nú aðeins kr. 54.870,- stgr.
Afborgunarverð kr. 57.760,-
Öil Q#ZAAf tæki eru freonfrí.
VISA og EURO raðgreiðslur til allt að
18 mánaða, án útborgunar.
MUNALÁN með 25% útborgun og
eftirstöðvum kr. 3.000 á mánuði.
/?onix
HÁTÚNI6A REVKJAVÍK SÍMI (91)24420
JÓLAGJAFIR í SPÖRTU
Barnaúlpa l\lr. 4-14. Verð 4.990.
Úlpa fyrir miðju síð 100% vatns-
og vindheld, nr. 6 til 14. Verð 5.990.
„Nr.StilXXL.Verð 7.990.
Úlpa til hægri mittisúlpa 100% vatns-
og vindheld. Nr. 6 til 14. Verð 5.490.
Nr. S til XXL. Verð 7.490.
Snjóbuxur. Nr. 6 til 14. Verð 3.990.
-NR. XS til XXL. Verð 4.990.
Skíða- og kuldagallar
Teg. 720.100% vatns- og vindheldir.
Litirsjá mynd. Stærð 6 til 14.
Verð aðeins 6.990 (6.640 stgr.)
StærðirXS tilXXL.
Verð aðeins 9.990 (9.490 stgr.).
Skiða- og kuldagallar
Til vinstri teg. 804. Vatns- og vindheldir.
Litir: Sjá mynd og rautt. Nr. S til XXL.
Verð 12.900.
Til hægri teg. Micro, galli úr micro
fiber efni sem er einstaklega mjúkt
og létt efni sem andar. Litir: Sjá mynd
og rautt. Stærðir XS til XXL. Verð 17.900.
Fótboltabúningar
Brasilía Ítalía AC Milan
m/Romario m/Baggio
Nr. 116 til 179
Verð 3.990 settið m/sokkum.
M.Utd., Liverpool, Newcastle.
Nr. 128 til 176
Verð 2.990 settið m/sokkum.
Markmannsvörur Öll nr.
Buxur 2.990, treyjur 2.890.
Hanskar írá 1.890.
PumaGoretex gönguskór
á jólatilboði. Vatnsheldir, anda.
Nr. 34 til 39. Verð 6.860.
Nr. 40 til 47. Verð 7.990.
Körfuboltabúningar
Buxur og treyja sem snúa má við.
Stærðir 6 til 16.
Verð aðeins 2.890.
Chicago, Orlando, Phoenix.
Körfuboltavörur í úrvali.
T-bolir m/mynd. Verð frá 1490 .
Húfur 4 teg. 8 lið. Könnur, sokkar, töskur,
pennar, innikörfur, ruslafötur o.fl.
Skautar.
Hvítir og svartir, leður/vínill.
Nr. 29-34. Verð 4.620.
Nr. 35-42. Verð 5.390.
Nr. 43-45. Verð 5.800.
íþróttaskór.
Nike, Reebok, Puma,
Patrick, Lotto, Brooks,
Forza.
Töskur og bakpokar
í miklu úrvali.
SP0RTV0RUVERSLUNIN
SPARTA
Laugavegi 49-101 Reykjavik - siml 12024
5% staðgreiðsluafsláttur
Le caf íþróttagallar
Tvöfaldir gallar úr bómull og polyester
með bómullarfóðri,
barnastærðir verð frá 4.490.
Dömu- og herrastærðir verð 5.490.
Dömu- og herragallar úr hinu þægilega
mjúka og létta micro fiber efni.
Verðfrá 7.990.
Gallinn fyrir pabba og mömmu. .
Fóðraðar fleece peysur
Litlr í barnastærðum:
Blátt og vínrautt.
í fullorðinsstærðum: Blátt.
Stærðir 6 til 14. Vérð 5.990.
Stærðir M til XXL. Verð 6.990.
Bómullarfatnaður Champion
Renndar og heilar hettupeysur,
buxur. Litir: Grátt og grænt.
Ódýr bómuilarfatnaður frá Jerzees
Buxur 1.790, hettupeysur 1.990,
renndar hettupeysur 2.990.
Litir: Grátt og blátt.
Stærðir S til XXL.