Morgunblaðið - 16.12.1994, Page 33

Morgunblaðið - 16.12.1994, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 33 AÐSENDAR GREINAR Þetta er mitt föðurland, mín móðurjörð EFTIR AÐ hafa les- ið grein í laugardags- blaði Morgunblaðsins, hinn 10. desember síð- astliðinn, eftir Sús- önnu Svavarsdóttur, gat ég ekki orða bund- ist. Hvað er að kven- fólki? Súsanna ásakar: „snillingana“ sem sáu um gerð þáttarins List og lýðveldi - bók- menntir, um að ijalla einungis um það hvaða rithöfundur far fyrst- ur, hver mest seldur, hver bestur: „Lýsing- arorð í karlkyni, efsta stigi.“ Ef þetta er vandamál karla og þeirra heims, þá er vandamál kvenna einmitt karlkyns nafnorðið sökudólgur. Við konur erum alltaf að leita að einhverjum til að hengja, einhverjum sem við getum fest upp á vegg og kastað grjóti f. Eg er ekki að mótmæla skoðun- um Súsönnu um það að gengið hafi verið framhjá konum við gerð þessa menningarþáttar, heldur var það undirtónninn í greininni. Þetta augljósa hatur sem þar kemur fram. Hvernig það er karlmönnum að kenna að konur eru eins aftar- lega á merinni og raun ber vitni. Já, við erum aftarlega á þessari bykkju sem allir vilja sitja sem fremstir á og við færumst ekki fetinu framar fýrr en hér á landi hefur átt sér stað hugarfarsbreyt- ing meðal kvenna. Hvernig er hægt að ætlast til þess að vera teknar alvarlega þeg- ar í framboði í hinum ýmsu kosn- ingum eru konur sem segja: Kjós- ið mig því ég er kona. Hvað er svona merkilegt við það að vera kona? Ekkert merkilegra en það að vera karlmaður. Það sem gerir fólk merkilegt er það sjálft og þeir hæfileikar og kostir sem það hefur til að bera. Ég neita því að vera partur af hóp sem álítur sig minnihlutahóp sem þarf sérstaka meðhöndlun og sérréttindi. Hvað er gaman við það að fá starf eða stöðu bara vegna þess eins að þú pissar sitjandi? Eru konur komnar út á þá braut að þiggja ölmusu? Vandamál kvenna eru ekki karl- ar. Vandamál kvenna eru konur. Konur sem ekki hafa trú hver á annarri og eru í stöð- ugri samkeppni um að vera betri en sú við hliðina á þeim. Okkur verður ekk- ert úr verki ef við erum endalaust að leita að sökudólgi. Það sem þjóðin þarf eru hæfir einstakling- ar. Fólk sem leggur metnað í það sem það er að gera hvort sem það er að stýra þessu landi eða ala upp börn þess. Ekki einstakl- ingar sem fengu „séns“ vegna þess að það var skortur á ákveðnu kyni í ákveðnar stöður. Konur, við höfum allt sem þarf til að vera hvað það sem við vilj- um. Ef við höfum trú hver á ann- arri og hættum að velta okkur upp Ég neita því að vera partur af hóp sem álítur sig minnihlutahóp, segir Guðbjörg Glóð Loga- dóttir. Hún hafnar því að þurfa sérstaka með- höndlun og sérréttindi. úr því hver skoðun karlmanna á okkur er og hver sé þeirra hlutur í því að halda okkur niðri. Gleym- um ekki að þó að saga þeirra á vinnumarkaðinum sé lengri, þá erum við fleiri en þeir og alveg jafn hæfar. Hættum þessu væli, öllum leið- ast væluskjóður og súkkulaðiklein- ur (nafnorð í kvenkyni). Ein spurning til Súsönnu í lok- in. Hvernig dettur þér í hug að tala niðrandi um helstu atvinnu- grein íslendinga, sjávarútveginn? Hvað er að því að flaka fisk? Á hverju ætlar þessi ofdekraða þjóð að lifa þegar enginn vill lengur vinna. í fiski? Ekki lifum við á blaðaskrifum þínum Súsanna. Höfundur er nemi við Sjávarútveg-sdeild Háskólans á Akureyri. Guðbjörg Glóð Logadóttir JOLAAFSLÁTTUR OPK) OLL KVOLD HL KL. 23 GLÆSIBÆ • LAUGALÆK • BORGARKHINGLU • ENGIHJALLA • MIÐBÆ Hafnaifirtli B óðum nú sérstakan 10% jólaafslátt af ö lu jólahangikjöti, reyktu svínakjöti og Hamborgarhryggjum. Nokkur verðdæmi: Hangilæri 698.00 -10% = 628.00 Hangiframpartur 498.00 -10% = 448.00 Ótrúlegt verð, aðeins góð vara frá viðurkenndum framleiðendum: ALI! GOÐI Hólsfjalla- ec hangikjöt do Sambands- hangikjöt BÚRFELL SS KEA K.B. Borgarnesi CD

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.