Morgunblaðið - 16.12.1994, Side 44
44 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Undaðar
moldir flaka
FYRIR tæpum mán-
uði var ég beðinn að
taka þátt í fundi
skammt frá þeim stað
sem mætast árnar
Mosel og Rín. Fundar-
efnið var efling ferða-
mannaþjónustu á þeim
stað Þýzkalands þar
sem náttúrufegurð er
rómuð ekki síst vegna
þess að á svæðinu eru
menjar um nýlega eld-
virkni með fögrum
ösku- og sprengigígum.
Tiil hliðar við áætlanir
um að auðvelda og örva
streymi ferðamanna til
Eifel er áformað að
koma á fót rannsóknar-
stöð, ems konar eldfjallastöð í lík-
ingu við Norræna eldfjallastöð á ís-
landi. Síðustu eldgos urðu fyrir um
það bil 9.000 árum og þess vegna
litlar líkur á að svæðið sé útkulnað.
Umræður á þessum fundi, sem
var sóttur af helstu ráðamönnum í
Reinland-Westphalen, snerust samt
fyrst og fremst um aðgerðir til að
laða að ferðamenn ekki síst vegna
þess að ástæða þykir til að skapa
fólki á svæðinu störf, sem gætu
komið í stað þeirra at-
vinnuhátta sem hafa
vegið þungt á umliðn-
um áratugum og öld-
um. Ibúar og eigendur
svæðisins hafa sem sé
lifað á því að moka
landinu upp á lestar-
vagna og selja það burt.
Einn af öðrum hafa
fagrir gjóskugígar
horfið og vikurinn not-
aður sem bygging-
arefni í léttsteypu eða
fyllingarefni. Enda þótt
flestir sem fundinn sátu
virtust sammála um að
ástæða væri til að hlífa
svæðinu við frekari
eyðileggingu fór ekki
hjá því að undir niðri var sterk undir-
alda þar sem miklir hagsmunir tók-
ust á við verndaröflin. Verndunar-
rökin voru af ýmsum toga, sum til-
finningalegs eðlis eins og gengur,
önnur beindu athyglinni að þeirri
einföldu staðreynd að gjóskan er
ekki endurnýjanleg auðlind og þar
kemur að ekkert verður eftir og
svæðið hefur misst þau sérkenni sem
gerir það áhugavert gestum. Fundin-
um lauk með því að ráðherrar, þing-
Guðmundur E.
Sigvaldason
Skrifborésstólar
Ný sending - mikid úrval
Teg. Rodi Teg. Megara Teg. Parma
kr. 2.980,-stgr. kr. 7.300,- stgr. kr. 11.300,-stgr.
□□□□□□
V/SA
HUSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66, HAFNARFIRÐI, SÍMI 654 100
menn og borgarstjórar á svæðinu
luku upp einum munni að allt skyldi
gert að afla íjár til gífurlegs átaks
við uppbyggingu ferðaþjónustu í
Eifel í stað þess að eyðileggja stór-
kostlegar náttúruminjar.
Ekki var ég fyrr kominn heim en
glymja í eyrum fréttir af framtaki
*islenskra athafnamanna að selja eld-
vörp fóstuijarðarinnar í sænska
vegi. Svo virðist sem frétt af þessu
frumkvæði hafi ýtt við allmörgum
aðilum, sem vilja nýta sér möguleika
til skjótfenginna og fyrirhafnarlítilla
tekna. Nú er fjölda stórvirkra vinnu-
véla beitt á íslensk eldvörp sem eitt
af öðru eru stórskemmd eða mokað
burtu að fullu. íbúar Eifelhéraðs í
Þýskalandi eiga sér þá afsökun að
vikurnám hefur verið stundað þar í
margar kynslóðir. Það hófst löngu
fyrr en nokkur vitund hafði vaknað
að óspillt náttúra er stærri og varan-
legri tekjulind en lestarvagnar
hlaðnir ódýrum vikri. íbúar Eifelhér-
Nú er fjölda stórvirkra
vinnuvéla beitt á íslensk
eldvörp, segir Guð-
mundur E. Sigvalda-
son, sem eitt af öðru
eru stórskemmd eða
mokað burtu að fullu.
aðs horfast nú í augu við þá stað-
reynd að aðferð þeirra við nýtingu
nátturunnar er fjandsamleg viðhorf-
um nútímans og þeir hljóta því að
hverfa til annarra aðferða við nýt-
ingu sömu náttúru. Islenskir at-
hafnamenn eiga sér enga afsökun.
Framtak þeirra miðast við skamm-
vinna tekjuöflun í fullri mótsögn við
nútímaviðhorf til auðlinda náttúr-
unnar.
Atvinnuleysi og byggðavandamál
kalla á nýjar hugmyndir til tekjuöfl-
unar. Um langt skeið hafa íslensk
stjórnvöld bent á ferðamannaþjón-
ustu sem vænlegasta leið til sköp-
unar nýrra starfa. Þróun og þroski
slíkrar atvinnu tekur langan tíma.
Framfarir og tekjuaukning hafa þó
verið með skjótari hætti í ferða-
mannaþjónustu en öðrum atvinnu-
greinum á íslandi. íslensk náttúra
er aflið, sem dregur ferðamenn til
landsins, og fátt í náttúru íslands
höfðar meira til ferðamanna en eld-
virknin. Þess mun skammt að bíða,
ef svo heldur fram sem horfir, að
fólkið sem byggir þetta land, fæli
væntanlega gesti burtu með ósið-
legri umgengni um landið, sem því
var trúað fyrir.
Höfundur er forstöðumadur
Norrænu eldfjallastöðvarinnar.
Þankar um upp-
eldi í Reykjavík
nútímans
LAUNAMISMUN-
UR er sláandi mikill í
Reykjavík og skatt-
greiðslur síður en svo
til þess gerðar að
skapa réttlátt efna-
hagslíf í borginni.
Samt verður fólk að
eignast allt sem býðst,
sama hve dýru verði
það er keypt. Freist-
ingamar eru á hveiju
horni og þegar fólk er
haldið langvarandi
vanlíðan er eins og það
haldi að hún hverfi við
að það eignast eitthvað
meira eða kaupa sér
eitthvað „deyfandi".
Þetta skynja börnin og ósjálfrátt
keppa þau við hvert annað hvað
varðar það sem þau halda að séu
lífsgæði. Þau fara einnig að reyna
að deyfa sína vanlíðan með tískuföt-
um, sælgæti og leikföngum - þegar
þau eldast- með áfengi og eiturlyíj-
um. Sé börnunum neitað um að
kaupa eitthvað á forsendum blank-
heita er viðkvæðið: „Iss, skrifaðu
bara ávísun eða borgaðu með
VISA!“
Fósturjörðin
Fóstuijörðin með „björk og lind
í hlíð“ er mörgum kostum búin:
Hér er að finna stórbrotna náttúru;
hreinasta vatn í heimi; lítið mengað
andrúmsloft ; gjöful fiskimið; og
eitt fárra landa í Evrópu sem ekki
leggur herskyldu á herðar barna
sinna: „Fyrirheitna landið" - enda
flest skilyrði að finna hér til þess
að skapa fyrirmyndar samfélag.
Samt geisar hér stríð: Afkomustríð
fjölskyldna og einstaklinga með ung
börn á framfæri; öryrkja sem sakir
heilsubrests eða fötlunar geta ekki
unnið sér inn tekjur fyrir lifibrauði;
og atvinnuleysingja er horfa von-
daufir fram á við eftir mánaða og
jafnvel áralangt atvinnuleysi, sem
í sumum tilfellum hefur svipt þá
íbúðum sínum eða jafnvel steypt í
gjaldþrot. Það er hægt að spyija
sig hvernig ástandið væri hjá börn-
unum ef launamisrétti væri úr sög-
unni; ef skattar miðuðust við efna-
hag; ef foreldrar ungra barna ættu
kost á sveigjanlegum vinnutíma og
þyrftu ekki að vinna meira en
50-60% vinnudag hvort
um sig; ef skuldlausu
og velstæðu fólki jrfir
sextugt stæði einungis
til boða hlutastörf á
launum en gæti nýtt
starfskrafta sína að
öðru leyti í þágu sam-
félagsins; ef áhrifa-
mestu menn landsins -
fréttamenn - hefðu
börnin í huga í frétta-
flutningi sínum og
sýndu af sér jákvæðni
og mannúðlegt lífsvið-
horf.
Reykjavík nútímans
Það verður að viður-
kennast að borgarbúar hafa villst
af leið heilbrigðs uppeldis inn á
vegleysur vandamála. Tilvist
„Barnaheilla", „Kvennaathvarfs-
ins“ og „Stígamóta" er sönnun þess
að núverandi lífsskilyrði í Reykjavík
virkar í mörgum tilfellum líkt og
andleg nauðgun á samband hjóna
Islensk börn, segir Páll
Björgvinsson, eiga
skilyrðislaust
að fá að kynnast fjöl-
breytileika lífsins.
og á samband foreldra við börn sín.
Sömuleiðis vitnar sívaxandi straum-
ur fólks til Félagsmálastofnunar um
það að tilvistarkreppa ríkir í höfuð-
borg landsins. Borgarsamfélagið er
glansmynd á yfirborðinu sé horft á
það með hagsmuni barnanna í
huga. Velmegunin er yfirborðs:
kennd og skert mannúð og hlýju. í
stað samveru, samtala, athygli, til-
finningatjáningar og faðmlaga eru
mörgum börnum gefnar dýrar gjaf-
ir eða þau hreinlega látin afskipta-
laus. Æskubókmenntirnar hafa að
miklu leyti vikið fyrir ofstopafullum
teiknimyndum á skjánum. Tölvu-
leikir eru teknir við af útileikjum
og spilakassar af bílaleikjum.
Eitt þjóðfélag
Eitt þjóðfélag og sömu mannrétt-
indi fyrir alla var það sem móðir
Páll Björgvinsson
LDNA JOLAl
Jólaskreytinguna fœrð þú hjá okkur
Einnig allt efni tiljólaskreytinga
Kerta- og hyasintuskreytingar, krossar
greinar, lugtir og kerti á leiði.
GRÓÐRASTÖÐIN
GARÐSHORN sð
við Fossvogskirkjugarð, sími 40500 D
OPIÐ ALLA DAGA KL. 10 - 22
Hfl'l
llíMSÍtÍr