Morgunblaðið - 16.12.1994, Síða 49

Morgunblaðið - 16.12.1994, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 49 MINNINGAR HOLMFRIÐ UR THORARENSEN Nú legg ég augun aftur, 6, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ virzt mig af þér taka. Mér yflr láttu vaka Þinn engil, svo ég sofí rótt. (Þýð. S. Egilsson) NÚ þegar aðventan hefur gengið í garð og jólaljósin kvikna eitt af öðru hefur tengdamóðir mín, Hólmfríður Thorarensen, loks fengið hvíldina eftir sex ára mjög erfitt veikindastríð. Hvílík lausn hlýtur það að vera. Hún andaðist á sama degi og tíma og Gunnar tengdafaðir and- aðist á fyrir 11 árum. Geta þetta verið tilviljanir einar? Við sem eftir lifum viljum trúa að þetta sé staðfesting á því að hann hafi ætíð vakað yfir sjúkrabeði henn- ar, hafi tekið á móti henni með opinn faðminn og að þau fái nú að halda jólahátíðina saman. En þau voru óvanalega samrýnd hjón. Minningarnar streyma fram. Fyrst þegar ég kom norður árið 1972 og kynntist tengdafor- eldrum mínum tóku þau á móti mér eins og ég væri þeirra eigin sonur. Hlýjan og gestrisnin voru höfð í fyrirrúmi. í hugann kemur þegar undirritaður varð fyrir vinnuslysi 1978. Þá fannst þeim 'sjálfsagt að bjóða fjölskyldunni norður í heilan mánuð, styrkja hana og styðja. Svona lagað gleymist aldrei. Það hefur varia fram hjá nein- um er við þau ræddi að þar voru hjón gædd gífurlegum áhuga á mönnum og málefnum. Þau voru bæði hafsjór af fróðleik og miðl- uðu öðrum óspart af þeim visku- brunni. Svo mikill var ættfræðiá- huginn að þau höfðu rakið ættir sínar allt aftur til landnáms- manna. Ætíð var spurt hverra manna þessi eða hinn var og allt var rakið og fléttað saman. Þetta var hreint ótrúlegt. Bæði voru þau hjón stálminnug. Er Gunnar féll frá bjó Hólm- fríður enn um sinn í húsinu þeirra í Hafnarstræti 6, en hún varð aldrei söm og áður. Hólmfríður var í raun stórbrot- inn persónuleiki. Hún hafði mikið að gefa öðrum og annarri eins óeigingirni og velvild hef ég sjald- an kynnst. Það var því ekki að undra að aðrir löðuðust að henni og voru það jafnt háir sem lágir. Henni virtist líða best þegar hús- ið var fullt af fólki. Hún var hávaxin, dökkhærð, teinrétt í baki og bar höfuðið hátt. Hún hafði alltaf sínar ákvéðnu skoðanir á hlutunum. Ekkert vafðist fyrir henni. Allt virtist vera henni svo auðvelt. Það hefur þurft mikinn kjark og dugnað að koma upp níu börn- um. En þau hjónin voru þekktar dugnaðarmanneskjur sem ekki létu deigan síga. Minningin er sterk frá því við Hólmfríður sátum við eldhúsborð- ið á heimili hennar, hlöðnu af ilm- andi bakkelsi og ijúkandi kaffi. Við ræddum landsins gagn og nauðsynjar og ýmis önnur málefni eins og bækur og bókband, en bækur voru einmitt hennar yndi. Eitt sinn er hún var í heimsókn hér syðra kom hún með undirrit- uðum á bókbandsnámskeið í Kópavoginn og hafði mikla ánægju af. Þar mátti sjá góðar bækur bundnar í skinnband, m.a. Njáiu. Þá eru einnig ógleymanlegar ferðirnar á bókamarkaði og forn- bókasölur í leit góðra bóka handa ættingjunum. Blómarækt bæði úti og inni ásamt hvers kyns annarri ræktun var í miklu uppáhaldi hjá henni. Með virðingu og söknuði í huga kveð ég Hólmfríði tengdamóður mína og þakka allar ánægju- stundirnar er ég og fjölskylda mín höfum átt í návist hennar. Óska ég henni alls hins besta á nýjum slóðum. Blessuð sé minning hennar. Jens Karel Þorsteinsson. Eitt blab fyrir alla! - kjarni málsins! Purity Herbs snyrtivörurnar eru framleiddar úr tífrænum efnum, þar sem íslenskar jurtir skipa háan sess. Þær eru tíndar fjarri umferð og mengun. Allar hafa þær sína sérstöku eigin- leika. Til að tryggja sem bestan árangur eru einungis notaðar bestu fáanlegu jurtir á hverjum tíma. Gæta þarf mikillar ná- kvæmni og kunnáttu til að fá rétta jurtablöndu í hverja teg- und krems því við samblöndun þeirra vinna þær hver með ann- arri. Grunnkremin eru sérstak- iega gerð fyrir Purity Herbs. Þau hafa sýrustigið P.H. 6.0. Þau eru laus við aukaefni og hafa staðist ofnæmisprófanir. Aðeins eru notuð náttúruleg rotvarnar-, ilm-, litar-, og bindiefni. í^uríty^érbs w/esM'/\ /tfsHvstj/sxís?t/es'J,\'/<i Ýmis umhverfisáhrif kalla í síauknum mæli á náttúrulegar og lieilsusamlegar húðvemdar- vörur. Purity Herbs snyrtivörurnar henta allri fjölskyldunni, jafhvel bömin geta notað þessar snyrtivörur með góðum árangri. Framleiðslan er umhverfisvæn. Að framleiðslu lokinni er jurt- unum skilað aftur til náttúr- unnar með því að setja þær í safnkassa. Þannig fara þær aftur í hringrás náttúrunnar. Við fáum kraftinn úr þeim aðeins að láni. Éh eilsuhúsið Kynning í Heilsuhúsinu í Kringlunni laugardaginn 17. desemberkl. 14:00- 18:00 Hólmfríður Thorarensen fæddist í Víðigerði í Eyjafirði 12. apríl 1918. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ákureyri 4. des- ember síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Hannes Krisljáns- son, bóndi í Víði- gerði, f. 28. apríl 1887, d. 7. ágúst 1970, og Laufey Jóhannesdóttir húsfreyja, f. 8. apríl 1893, d. 26. ágúst 1985. Systkini henn- ar eru Kristín, f. 20. júní 1921, Haraldur, f. 11. ágúst 1926, og Kristján, f. 16. apríl 1928. Eiginmaður Hólmfríðar var Gunnar Thorarensen, umboðs- maður Olíuverslun- ar íslands á Akur- eyri, f. 10. febrúar 1904, d. 4. desem- ber 1983. Börn þeirra eru: Anna, f. 30. júlí 1942, Þórður, f. 27. apríl 1944, Hannes, f. 10. maí 1945, Gunnar, f. 20. júní 1947, Láufey, f. 28. febr- úar 1949, Ólafur, f. 16. desember 1950, Þóra, f. 16. nóvember 1952, Kristín Ingveldur, f. 2. ágúst 1956 og Jóhann, f. 10. september 1958. Allt er þetta fjölskyldufólk. Barna- börnin eru samtals 20 og barnabarnabörnin þijú. Útför Hólmfríðar fer fram frá Akur- eyrarkirkju í dag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.