Morgunblaðið - 16.12.1994, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 16.12.1994, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 53 an þátt í lífi fjölskyldunnar sem eitt okkar. Við minnumst Rósu sem einkar geðfelldrar og glaðlegrar frænku. Hún gaf okkur systkinun- um lífsgleði með sínu hlýlega við- móti og hjartagæsku, hún gaf okk- ur minningu um persónu sem á eftir að lifa með okkur alla tíð. F.h. fjölskyldunnar í Skálagerði Sigurþór Charles Guðmundsson. Sólin, þessi stóra gula á himnin- um, sendir geisla sína til jarðar, og gefur jörðinni líf, Iíf sem kviknar á hverri sekúndu og er dýrmætara en allir heimsins gimsteinar. En á hverri sekúndu koma líka englar Guðs í sínum hvítu silkináttfötum og angórasokkum og vefja örmum sínum um okkur mannfólkið þegar okkar tími er kominn. Tími til að fljúga um himinhvolf- ið með englunum, og hitta skapar- ann og alla þá ástvini sem þegar hafa lagt upp í þessa sérstöku ferð. Ferð sem oft er léttir fyrir lúinn líkama sem þráir að svífa um hið óendanlega, dansa tangó við engl- ana og kyssa tunglið létt á kinnina. En niðri á jörðinni stend ég með titring í hjarta og tár á vanga og horfi til himins. Horfi til þín Rósa mín, þar sem þú situr í fangi tungls- ins og spáir í bolla fyrir stjörnum alheimsins. Ég reyni að sætta mig við þá ákvörðun sem skaparinn hefur tekið. En minningin um þig Rósa mín mun ávallt lýsa upp hjarta mitt og þér mun ég aldrei gleyma því þú varst og verður ógleymanleg per- sóna í lífi mínu. Þín, Sigríður Elín. Það var þessi fallegi garður og í garðinum var heilmikið af blómum í öllum regnbogans litum, en það var aðeins eitt blóm sem bar af öllum hinum, það var rauða fallega rósin hún Rósa. Hún ilmaði yndis- lega og það geislaði svo af henni að öll landsins flóra vildi kynnast henni sem því miður aðeins örfáum blómum gafst kostur á. En dag einn komst arfi í beðið hennar Rósu sem garðyrkjumenn- irnir náðu ekki að reyta og nú er elskulega rósin okkar dáin. Öll hin blómin í garðinum voru döpur, en aldrei munum við gleyma rósinni sem hugsaði meira um hagsmuni annarra en sína eigin, sem ávallt var hress og kát og kom hinum blómunum til að vaxa og dafna og gaf þeim svo ómetanlega mikið. Það að hún Rósa hafi yfirgefið þennan skrúðgarð (sem ekki var eins fallegur fyrir vikið) er erfitt að sætta sig við, en nú vitum við að henni líður vel með öllum heims- ins blómum. Þinn, Sæþór Öm. Kveðja frá Hótel Sögu Þórey S. Þórarinsdóttir, Rósa, eins og hún var alltaf kölluð, var starfsmaður Hótels Sögu um 17 ára skeið. Hún var duglegur starfsmað- ur, ósérhlífm og sérstaklega trú Skilafrest- ur vegna minningar greina Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunn- inn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. MINNINGAR fyrirtækinu. Rósa var einhleyp og held ég að vinnustaðurinn hafi ver- ið henni eins og annað heimili og samstarfsfólkið eins og önnur fjöl- skylda. Rósa átti í löngum og erfið- um veikindum, en hún bar sig alltaf vel og stundaði vinnu sína af sömu kostgæfni eins og alltaf. Samstarfsfólk hennar minntist hennar með söknuði sem röggsamr- ar og vinnufúsrar konu. Eitt af störfum hennar var að taka á móti og þjálfa nýtt starfsfólk og voru þess vegna margir sem kynntust henni. Hennar er einnig minnst sem konu sem hafði sínar ákveðnu skoð- anir á almennum málefnum líðandi stundar, en einnig hafði hún ákveðnar skoðanir og jákvæðar ábendingar varðandi málefni hót- elsins. Gestir okkar minnast Rósu sem þjónustulundaðrar og elsku- legrar konu sem var ávallt reiðubú- in til aukaviðvika ef með þurfti. Fjölskylda mín og ég minnumst hennar sérstaklega vegna hlýs hug- ar í okkar garð - hún fylgdist með uppvexti sona okkar og síðar þegar þeir hófu sumarstörf á hótelinu vék hún að þeim hlýjum orðum eða sið- aði þá til eftir því sem henni þótti þurfa. Fyrir hönd samstarfsfólks á Hót- el Sögu sendi ég ættingjum Rósu innilegar samúðarkveðjur. Jónas Hvannberg. Ég kynntist Þóreyju Sigurrós Þórarinsdóttur, eða Rósu, eins og hún var kölluð, þegar hún hóf störf sem herbergisþerna á Hótel Sögu árið 1977. Þegar ég varð þar yfir- þerna árið 1980, varð hún aðstoðar- yfirþerna. Frá þeim tíma var Rósa mín stoð og stytta, ávallt tilbúin til að létta undir með mér og öðrum, hverju sem á gekk. Það var ekkert sem hún var ekki tilbúin til að gera fyrir hótelið sem var henni mjög kært. Rósa var vel greind kona og sérlega vönduð og orðvör svo af bar. Hún fór aldrei með fleipur, sem kom sér mjög vel á svo stórum vinnustað sem Hótel Saga er, enda var hún dáð af öllu sínu samstarfs- fólki. Lífið var ekki alltaf auðvelt fyrir Rósu, en þegar hinn illvígi sjúkdómur, krabbamein, fór að herja á hana fyrir þremur árum síðan kom berlega í ljós hversu ósér- hlífin og dugleg hún var. Hún stundaði vinnu sína eins lengi og raunar lengur en kraftar leyfðu, og alltaf bar hún sig vel og átti hlý og jákvæð orð fyrir samstarfsfólk sitt. Það var þroskandi lífsreynsla að heimsækja hana á þessum erfiða tíma, hvort sem það var á sjúkra- hús eða heima. ítósa var svo lánsöm að fá að vera heima á Eiríksgötunni síðustu dagana, undir verndarvæng ástríkra systradætra sem reyndust henni sem hennar eigin dætur. Þeg- ar ég heimsótti hana þegar hún átti skammt eftir, sló hún á létta strengi og leit þakklátum augum á frænkurnar þijár sem umvöfðu hana kærleika og umhyggju. Þeirri stund gleymi ég ekki og er þakklát fyrir að hafa fengið að upplifa hana. Elsku Rósa mín, að leiðarlokum vil ég þakka þér dásamleg kynni og ómetanlega tryggð. Öllum ætt- ingjum sendi ég innilegar samúðar- kveðjur. Guð blessi minningu Rósu. Ragnhildur ísaksdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.