Morgunblaðið - 16.12.1994, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 16.12.1994, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 55 JÓHANNA GÍSLADÓTTIR + Jóhanna Gísla- dóttir fæddist í Reykjavík 18. apríl 1918. Hún andaðist á Höfn í Hornafirði 9. desember síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Gísli Krisljánsson, báta- smiður, í _ Garða- hverfi á Alftanesi 1972, og Styrgerð- ur Jóhannsdóttir, f. 1883 á Nefsholti og ólst upp á Litla- Armóti í Hraun- gerðishreppi. Jó- hanna átti tvo bræður; Vilhelm, sem lést á fimmta ári, og Har- ald kaupmann í Reykjavík, síð- ar í Grindavík. Eiginmaður Jó- hönnu var Lúðvík Vilhjálmsson, skipstjóri, f. á Akranesi 11. júlí 1899. Foreldrar hans voru Vil- hjálmur Guðmundsson organ- isti á Akranesi, f. 1865 á Litla- Sandi í Hvalfirði, og Jakobína Pálsdóttir, f. í Pálsbæ í Þing- EILÍFÐIN er hugtak, sem býr í okkur öllum og hefur þá merkingu að allt gott sé óumbreytanlegt. 011 leitum við að festu og öryggi, ekki sízt til þeirra, sem hafa styrk að gefa og eru reiðubúnir að vaka yfir velferð ástvina og samferðafólks. Þannig kom andlát Jóhönnu Gísla- dóttur öllum, sem til þekktu, mjög óvænt. Aldrei hafði henni orðið misdægurt og við sem næst stóðum trúðum að Jóhanna myndi fylgja til manns og þroska enn einni kyn- slóð. En lífið er gáta og stundaglas- ið tæmt. Jóhanna var Reykjavíkurstúlka, fæddist og ólst upp á Hverfisgötu 86 í reisulegu timburhúsi, sem fað- ir hennar hafði byggt. Heimili for- eldra hennar á fyrri hluta aldarinn- ar var annálað myndar- og rausnar- heimili alþýðufólks. Á uppvaxtarár- um Jóhönnu var fátækt mikil og reyndi mjög á mannkosti fólks til að sjá sér og sínum farborða. Hverf- isgatan var miðpunktur og sama- staður ættingja og vina, sem komu frá Hafnarfirði og Holturn. Á heim- ili foreldra hennar fluttist frænka hennar Jóhanna G. Hannesdóttir árið 1922 og var þar búsett í yfir fímmtíu ár. Hún andaðist í hárri holtunum. Eldri dóttir Jóhönnu og Lúðvíks er Gerður, f. 1942, giftist Júl- íusi Stefánssyni, út- gerðarmanni, þau skildu. Börn þeirra eru: Katrín, f. 1974, og tvíburarnir Lúð- vík og Stefán, f. 1976. Áður átti Gerður Styrgerði Hönnu, f. 1965. Hennar sambýlis- maður er Gunnar Gunnlaugsson, húsasmíðameistari, f. 1953, og eru þau búsett á Höfn í Homafirði. Þeirra börn era: Gerður, f. 1992, og Karen, f. 1994. Styrgerður átti írisi Jóhönnu Ólafsdóttur, f. 1984. Yngri dóttir Jóhönnu og Lúð- víks er Iðunn, f. 1947, gift Sig- urði B. Oddssyni, fjármála- stjóra, f. 1945. Útför Jóhönnu fer fram frá Fossvogskirkju í dag. elli, en vel em, 92 ára gömul í maí sl. Við þessar aðstæður lærðist Jó- hönnu hússtjórn að hætti þeirra tíma. Skólagangan var ekki löng en Jóhanna hafði hæfileika til að nema í lífsins skóla. Ung að árum sigldi hún til Kaupmannahafnar og dvaldi þar við störf á dönskum heimilum í nokkur ár. Þar lærði hún danska matargerð og tileinkaði sér snilli þeirrar listar, sem Danir eru þekktir fyrir. Svo kom að því að Jóhanna festi ráð sitt. Eins og margt ungt fólk á þriðja og fjórða áratugnum hélt hún í síldarsöltun til Siglufjarðar og þar kynntist Jóhanna tilvonandi eigin- manni sínum, Lúðvík Vilhjálmssyni, skipstjóra. Þau gengu í hjónaband 30. júlí 1943 og eignuðust tvær dætur, Gerði og Iðunni. Heimilis- bragur hjá Jóhönnu og Lúðvík á Laugateig 20 var í þeim anda að þar ríkti höfðingslund, sem ættingj- ar og vinir nutu í ríku mæli. Eftir að Lúðvík hætti sjósókn, starfaði hann við Síldarleitina á Siglufirði á sumrin en á veturna annaðist Lúð- vík umsjónarstörf við Miðbæjar- barnaskólann. Þar kynntist undir- ritaður, þá á barnsaldri, hans ljúfu lund. Síðar er ég kom í heimsókn MIIMNINGAR á Laugateiginn til Lilju barnfóstru minnar, er leigði hjá þeim hjónum, minnist ég hvað heimilisbragur var allur í föstum skorðum. Dæturnar voru afar huggulegar og svo voru þær alltaf aðlæra, en það var topp- urinn á þessum árum. Ég gæti vel trúað að ég hafi sagt henni ömmu minni, Oddrúnu í Bankastræti 7, frá þessu og hún hvatt mig til að kynnast svona góðum stúlkum. Sú varð raunin löngu síðar, en þá var Lúðvík látinn fyrir aldur fram og þær mæðgur fluttar í nýtt um- hverfi í Hraunbænum þar sem Jó- hanna eignaðist nýja og trausta vini. Svo var kominn nýr einstakl- ingur á heimilið. Styrgerður dóttir Gerðar. Síðan var það megin hlut- verkið að hlúa að uppeldi og þroska þessarar stúlku, sem veitti henni mikla gleði og lífsfyllingu. Árin líða og fyrr en varði, árið 1984, var enn önnur kynslóð komin á heimilið, íris Jóhanna, dóttir Styr- gerðar. Þær héldu síðan heimili saman til ársins 1991, er Styrgerð- ur hóf sambúð með Gunnari Gunn- laugssyni, húsasmíðameistara, á Hornafirði. Svo fór að amma Jó- hanna var fleiri stundir austur á Höfn en í Hraunbænum enda var hún mikill aufúsugestur í þeirri kjamaijölskyldu, sem stækkaði ört, og svo var matargerð og búsýsla hjartansmál hjá Gunnari og Jó- hönnu þannig að alltaf var nóg að spjalla. Jóhanna var falleg kona og við nánari kynni fundu vinir að fegurð- in kom einnig innanfrá. Hún hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum, sem mótuðust af ríkri réttlætiskennd. Trúmennska var henni í blóð borin, sem er svo ein- kennandi fyrir hennar kynslóð, sem ólst upp á fyrstu áratugum aldar- innar og lagði grundvöll þeirrar velferðar, er fólk býr við í dag. Og svo er það í okkar höndum hvernig við varðveitum þennan arf. Jóhanna bar gæfu til að vera einstaklega heilsuhraust alla ævi- daga. Hún var á undan sinni samt- íð hvað hollt mataræði varðar og fengu ættingjar og vinir oft holl ráð í þeim efnum. Senn fer jólahátíðin í hönd með sínum eilífðarboðskap ljóss og frið- ar. Minningar frá liðnum jólum leita á þakklátan 'huga fyrir allt Ijósið, sem Jóhanna tengdamóðir bar með sér. Við, vinir og ættingjar, þökkum að leiðarlokum og biðjum Guð að geyma þessa elskulegu konu, sem lifði með reisn og dó með sæmd. Sigurður B. Oddsson. BJÖRN BRAGI BJÖRNSSON + Björa Bragi Björasson fæddist í Reykjavík 18. júlí 1962. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 2. desember síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 10. desember. KÆRI vinur. Hér sit ég ein um nótt í útland- inu og mér er þungt um hjartað. Vegna flarlægðarinnar get ég ekki fylgt þér til grafar, svo í stað þess langar mig til að skrifa þér nokkur fátækleg kveðjuorð til fylgdar yfir mörk dauðans, yfír til landsins nýja sem þú nú munt nema. Ég finn sterkt til einsemdar hér í útlandinu, vildi svo gjarnan geta verið heima og grátið og syrgt með okkar sam- eiginlegu vinum, nálægt því lífi sem þú lifðir af svo miklum ákafa. En svo fór að leiðir okkar skildu fyrir rúmum tveimur árum, þó mörg væru símtölin á milli Kaup- mannahafnar og Svíþjóðar á tíma- bili. En örlögin bjuggu svo um hnút- ana að við áttum ekki eftir að sjást aftur þrátt fyrir að litlu munaði í tvígang. Einhvern tíma heyrði ég gamla konu segja að hennar tvær mikil- vægustu leiðarstjörnur í lífinu hefðu verið ástríðan og sannleikurinn. Þú áttir mikið til af báðum þessum eiginleikum - ástríðunni sem gaf þér baráttuvilja og lífsgleði, og sannleikanum sem gaf þér raunsæi og réttlætiskennd og hélt þér á jörð- inni. Þegar ég kynntist þér fyrst vor- um við bæði uppfull af hinum lífs- þyrsta æsingi og hrokafulla ódauð- leika æskunnar, lífið var háð hér og nú og ákefðin yfir því að vera til í algleymingi. Þetta voru glaðir dagar og sjaldan hef ég skemmt mér jafn vel og hlegið jafn mikið og þá, í félagsskap þínum og vina þinna. En núna fimmtán árum seinna hefur mikið vatn runnið til sjávar og mörg okkar sem lifðum hvað heitast þá, sitjum eflaust með eftirþankans þunga nið í hjartanu, eilítið brennd, eilítið varkárari og hræddari en þá, þegar lífið öskraði af spennu og taumlausri gleði. En þú áttir líka þínar þungu hlið- ar þar sem efinn og treginn bjó, þar sem nístandi raunsæið tók völd- in. Við áttum margar sárar og fal- legar stundir saman þar sem við veltum fyrir okkur breyskleika mannanna og miskunnarleysi lífs- ins. Þú gafst mér hlutdeild í þér öllum og varst svo örlátur á sjálfan þig að mér fannst ég rík að eiga þig að vini. Langri og harðri baráttu við grimman sjúkdóm er lokið, sjúkdóm sem þú lifðir með svo lengi og barð- ist við af ótrúlegri þrautseigju. Þeg- ar ég hugsa um líf þitt heyri ég hjartaskerandi rödd Neil Youngs syngja: „It’s better to burn out than fade away.“ Þannig sé ég lífshlaup þitt fyrir hugskotssjónum, logi þinn var stór og skær, brann hratt og af miklum krafti. Þú barðist til hinsta dags af sama stórhug og þú sýndir í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur í þínu stutta lífi. Megi al- mættið fylgja þér um ókomna stigu. Ég votta öllum aðstandendum Bjössa mína dýpstu samúð og vil sérstaklega þakka Peter Locke sem studdi hann af öllum sínum mætti síðustu vikurnar þar til yfir lauk. Megi algóður Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Þóra Snorradóttir. t Ástkær dóttir okkar, systir og mágkona, ÁSDÍS ÓLÖF INGVADÓTTIR, Lerkilundi 10, Akureyri, andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 13. desember. Jarðsett verður frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 22. desember kl. 13.30. ÁsgerAur Snorradóttir, Ingvi Þórðarson, Laufey Gísladóttir, Sigfús Ingvason, Fanney Ingvadóttir, Þórey Ingvadóttir. KA TRÍN FALSDÓTTIR -I- Katrín Falsdóttir fæddist á * Akureyri 24. september 1954. Hún lést á Landspítalan- um 3. desember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Akureyrarkirkju 12. desem- ber. LÁTIN er ágæt vinkona og sam- starfskona í blóma lífs síns, eftir tiltölulega stutt en erfið veikindi. Það er aðeins um einn og hálfur mánuður síðan nokkrar vinkonur Katrínar héldu upp á fertugsaf- mælið hennar með henni. Samstarf okkar Katrínar hófst fyrir um fimm árum á hjúkrunar- heimilinu Skjóli í Reykjavík. Katrín var nokkuð sérstæð kona sem nokkrir áttu erfitt með að kynnast. Hins vegar tókst með okkur ágætur vinskapur frá fyrstu kynnum og stóð til dauðadags. Katrín var sérstaklega natin og alúðleg við gamla og sjúka vist- fólkið á hjúkrunarheimilinu. Hún bar virðingu fyrir gamla fólkinu og vildi allt fyrir það gera. Umönn- un sjúkra og aldraðra virtist henni í blóð borin. Katrín sagði að umönnun móður sinnar á banabeði hefði kennt sér mikið og hún reyndi að sinna öllum eins og um náinn ættingja væri að ræða. Umönnun og hjúkrun eldra fólks er bæði erfitt og krefjandi starf en aldrei lá Katrín á liði sínu til þess að gamla fólkinu liði sem best. Mjög margir vistmenn sofn- uðu vært á kvöldin eftir að hún hafði hagrætt koddum hér og þar í rúminu svo að vel færi um það. Katrín var vel lesin, m.a. um trúarbrögð og þjóðhætti í heimin- um. Oft gleymdum við samstarfs- fólk Katrínar okkur í matar- og kaffitímum þegar Katrín var að lýsa einhveiju skemmtilegu sem hún hafði lesið. Frásagnarhæfi- leiki hennar var mikill og stundum var eins og við upplifðum atburð- ina þarna á staðnum. Ég votta aðstandendum Katrín- ar mína dýpstu samúð og þakka henni fyrir trygga vináttu og ánægjulegt samstarf. Jóhanna Ólafsdóttir. Mig langar að minnast með nokkrum orðum Katrínar Fals- dóttur er andaðist 3. desember síðastliðinn. Okkar kynni hófust á Hjúkrunarheimilinu Skjóli, þar sem við störfuðum á sömu deild. Katrín var mjög sérstæður per- sónuleiki og áttu listamannshæfi- leikar hennar ekki hvað síst þátt í því. Hún hafði mikla sköpunar- þörf og hannaði svo margt sem okkur hinum hafði ekki dottið í hug að reyna. Eg minnist þess hve góð hún var við þá sem minna máttu sín. Næstum var það einstakt hversu vel Katrín gekk frá vistfólki fyrir svefninn á kvöldin og hve vistar- verur sem hún sá um báru merki um mikla snyrtimennsku og reglu- semi í hvívetna. Ég man hve hún hafði gaman af að koma og gleðj- ast í góðra vina hópi og hve hún lék þá á als oddi. En hún var ekki heldur allra og það vissum við sem hana þekktum. Katrín varð fertug 24. septem- ber síðastliðinn, og var hún þá komin heim af sjúkrahúsinu í nokkra daga. Það var mikil ánæg- justund hjá henni og okkur átta fyrrum vinnufélögum hennar. Við þessi gamli hópur komum allar saman og áttum við yndislega stund í gleði augnabliksins, þó við vissum allar hvert stefndi og ekki síst hún. Þetta var stund sem ég veit að engin okkar hefði viljað missa af og verður okkur ógleym- anleg. Hinn 3. október fór svo Katrín aftur á kvennadeild Land- spítalans og var þar uns yfir lauk. Katrín mín, ég vil fyrir hönd okkar Ásdísar, Sólborgar, Stein- unnar og Heiðu biðja góðan guð um að varðveita þig um alla eilífð og þakka þér fyrir góða og ánægjulega samfylgd. Kristín Stefánsdóttir. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR BJARNASON, Logafold 61, Reykjavik, lést í Landspítalanum 14. desember. Aðalheiður Ólafsdótt'r, Gunnar Sigurðsson, Bjarni Sigurðsson, Helga Arnþórsdóttir, Rakel Ýr og Rebekka Bjarnadætur, lan Graham, Hilda og Mark Graham. + Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, ÞÓRU ÞÓRÐARDÓTTUR, Árskógum 6, Reykjavík. Ingunn Þóra Baldvins, Birgir Ágústsson, Sigriður B. Martin, Jeffrey B. Martin, Elísabet Baldvins, Kristján Erlendsson, barnabörn og barnabarnabörn. /
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.