Morgunblaðið - 28.12.1994, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rafmagnslaust var í tvo sólarhringa í Mýrahreppi um jólin
Morgunblaðið/Sigurður Blöndal
LÍNI Hannes Sigurðsson, rafvirki, leggur lokahönd á tengingu spennisins á Framness-
odda sem brann yfir, áður en hann var gangsettur um hádegisbil á annan í jólum.
Hátíð í myrkri og kulda
Hitastigið
innandyra
10 gráður
Þingeyri. Morgunblaðið.
„ÞAÐ ER búið að vera ansi kalt og dimmt
hjá okkur um jólin, og lopapeysurnar komu
sér vel,“ sagði Torfi Bergsson, bóndi á Felli
í Mýrahreppi í Dýrafirði. „Góða veðrið hefur
bjargað okkur, lognið og stillurnar, enda
hefði verið inun kaldara ef hann hefði verið
með vindþræsingi."
Kertaljós og gashitarar voru ljós- og yl-
gjafar á 12 bæjum í Mýrahreppi auk þriggja
heimila á Núpsskólalóðinni í rafmagnsleys-
inu í Dýrafirði.
Flúðu í jólaboð
„Messuhaldi í Núpskirkju var frestað á
jóladag vegna rafmagnsleysisins þar sem
ekki var hægt að kynda kirkjuna, og árlegu
jólamessukaffi var einnig frestað af sömu
ástæðu,“ sagði Torfi. „Fjölskyldan „flúði“
eiginlega í jólaboð sem haldið var á bænum
Læk, en hann er eini bærinn í sveitinni sem
hefur eigið rafmagn frá heimasmíðaðri raf-
stöð. Þessu jólaboði var flýtt um einn dag
og var notalegt að vera þar í hlýju og vita
af kuldanum heima. En að koma heim í jökul-
kalt húsið um kvöldið var hins vegar nötur-
legt- Við fengum að vísu lánaðan gasofn frá
Þingeyri seint á jóladagskvöld, gátum kynt
svefnherbergin og því tekið mesta hrollinn
úr okkur áður en gengið var til náða, en
þá var hitastigið í húsinu komið niður í rétt
rúmar 10 gráður.“
Mýrhreppingar eyddu jólunum að mestu
leyti í spilamennsku við kertaljós, enda ann-
álaðir spilamenn.
RAFMAGN komst loks á í Mýrahreppi við Dýra-
íjörð um kl. 3 eftir miðnætti í fyrrinótt eftir að
rafmagnslaust hafði verið í hreppnum í um tvo
sólarhringa. Bilun varð í rafmagnssæstreng sem
liggur þvert yfir Dýrafjörð, yfir í Framnesodda
undan bænum Höfða.
Mýrhreppingar héldu því jólin hátíðleg í myrkri
og kulda við kertaljós. Óvíst er hvenær hafist verð-
ur handa um viðgerð á sæstrengnum en líklegt að
það verði ekki fyrr en í vor.
Rafmagnið fór af öllum Dýrafirði á jólanótt, en
komst aftur á á Þingeyri um kl. 9.30 á jóladags-
morgun. Að öllum líkindum hefur sæstrengurinn
farið í sundur að hluta til, eftir nudd við íshröngl
í fjöruborðinu. Ekki er vitað nákvæmlega hvar bilun-
in er á strengnum.
Gripið var til þess ráðs að fá spenni sendan frá
Isafirði og kom Fagranesið með hann til Þingeyrar
skömmu eftir miðnætti á jóladag. í birtingu á öðrum
degi jóla var síðan hafíst handa við tengja spenn-
inn, og komst rafmagn á aftur í hádeginu.
Þetta var skammgóður vermir, því spenrjirinn
brann yfir tæpum þremur tímum síðar, sökum bilun-
ar og álags. Líklega hafa allir rafmagnsofnar í sveit-
inni verið kyntir á fullu til að ná upp yl í húsin sem
voru orðin allköld, og kólnuðu enn eftir að spennir-
inn brást.
Kafbáturinn til bjargar
Strax voru gerðar ráðstafanir til að fá nýjan
spenni sendan frá Orkubúi Vestfjarða á Isafirði.
Vegagerðin brást skjótt við og voru Breiðadals- og
Gemlufallsheiðar ruddar vegna þessa um kvöldið.
„Nýi“ spennirinn, sem reýndar er tæplega 60 ára
gamall og gengur undir nafninu „kafbáturinn" sak-
ir útlits síns, kom loks á áfangastað um miðnætti
og rafmagni var hleypt á þremur tímum síðar.
Að sögn bænda í hreppnum gekk lífið sinn vana-
gang þrátt fyrir rafmagnsleysið. Kúabúskapur er á
tveimur bæjum og lítil rafstöð á öðrum þeirra og
ein slík fengin að láni á hinum bænum, þannig að
mjaltir gengu eðlilega.
Fjármálaráð-
herra á Alþingi
Sjúkraliðar
gefa ekki
skýr svör
FJÁRMÁLARÁÐHERRA sagði á
Alþingi í gær að enn hefðu ekki
borist skýr svör frá sjúkraliðum
um tilboð sem samninganefnd rík-
isins lagði fram snemma í þessum
mánuði og hvatti þingmenn til að
krefjast slíkra svara.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra sagði að tilboðið hefði verið
gefið 9. desember, í samráði við
borgarstjórann í Reykjavík, og þar
hafi verið miðað við að gerður
yrði skammtímasamningur til ára-
móta þar sem sjúkraliðar nytu
sömu launahækkana og aðrar heil-
brigðisstéttir hefðu fengið undan-
farin tvö ár. Síðan hæfust nýjar
viðræður á sama grundvelli og við
aðra launþega.
Þingmenn fái svör
Friðrik sagði að sjúkraliðar
hefðu verið þrásinnis spurðir að
því hvort þessu tilboði væri tekið
eða hafnað en skýr svör hefðu
ekki borist enn. „Vandinn er að
við höfum ekki fengið höfnun,
heldur hefur verið reynt að halda
áfram viðræðum á grundvelli til-
boðsins," sagði Friðrik og hvatti
síðan þingmenn til að fá skýr svör
frá forustumönnum sjúkraliðafé-
lagsins í stað þess að krefjast sí-
fellt aðgerða af hálfu ríkisvaldsins.
Stöðvarstjóri Pósts og síma
um neyðarbjölluútkall í pósthúsi
Misskilningur frá
upphafi til enda
STÖÐVARSTJÓRI pósthússins við
Rauðarárstíg segir að um misskiln-
ing frá upphafi til enda hafi verið
að ræða þegar lögreglumenn komu
í pósthúsið eftir að viðvörunarkerfi
tengt lögreglustöðinni fór í gang á
miðvikudag.
„Það gerist næstum því daglega,
að lögreglumenn komi hingað ein-
kennisklæddir að póstleggja fyrir
sjálfa sig eða embættið," sagði Anna
Bjarnadóttir, stöðvarstjóri. „Fólkið
hérna hafði ekki hugmynd um að
viðvörunarkerfið hefði farið í gang
og lögreglan hafði ekkert samband
við forsvarsmenn hér heldur fóru
báðir lögreglumennirnir inn að borði
þar sem engin afgreiðsla er og köll-
uðu halló, halló, í þrígang, að mér
er sagt. Hefðu þeir farið beint til
gjaldkera eða að dyrum stöðvar-
stjóra hefðu þeir strax getað náð
sambandi við einhvern. Lögreglu-
maðurinn sagði svo víst: Er eitthvað
að hér? en menn heyrðu ekki betur
en hann segði: „er engin afgreiðsla
hér“, eins og margir gera sem fara
að þessu borði. Þess vegna var hon-
um bent á röðina," sagði Anna, sem
ekki sagðist hafa verið á staðnum
þegar þetta atvik kom upp.
„Mér skilst svo að þessu hafi lok-
ið þannig að lögreglan hafi á leið-
inni út sagt eitthvað á þá leið að
þeir væru komnir vegna þess að
aðvörunarkerfið hefði farið í gang.
Þá var strax hringt á viðgerðar-
mann.“
Það víkja allir fyrír lögreglu
„Þeir voru ekki ánægðir með að
fá ekki afgreiðslu sem vonlegt er
en ef þeir hefðu komið beint til gjald-
kera þannig að það hefði heyrst
hvað hann var að segja en ekki stað-
ið og kallað þá hefði verið tekið
öðruvísi á móti þeim. Það víkja allir
til hliðar ef lögregla í búningi kemur
og biður um að fá að komast til að
tala við gjaldkera. Þannig að þetta
var allt saman misskilningur."
Anna sagði að gjaldkerar hefðu
reglur til að vinna eftir ef eitthvað
kæmi upp á sem gæfi tilefni til að
ýta á viðvörunarhnapp. „Ef eitthvað
hefði verið að hefði að sjálfsögðu
verið brugðist rétt við, en af því að
þetta var bilun þá vissi enginn um
þetta. Það sést hvergi hjá okkur
þegar kerfið bilar.“
Stálu um fimmtiu
þúsund kínverjum
Keflavík. Morgunblaðið.
KÍNYERJUM og efnum til flugelda-
sýninga var stolið í innbroti í hús-
næði Björgunarsveitar Suðumesja
um jólin. Þar á meðal voru belti
með um 50.000 kínveijum. Rann-
sóknarlögreglan í Keflavík yfir-
heyrði menn í gær vegna málsins.
Farið var inn í hús björgunar-
sveitarinnar við Iðavelli, á tímabilinu
frá miðjum aðfangadegi til miðs
dags á annan í jólum. Á reiðgötu
fyrir ofan' húsið voru ummerki eftir
bíl og slóð eftir þjófana. Meðal þess
sem stolið var voru 60 rakettur, 100
kökur og 40 tívolíbombur. Að sögn
talsmanns björgunarsveitarinnar
eru þetta afar hættuleg og vand-
meðfarin efni.
HJÓNIN Björn Ragnarsson og Dóra Sigurbjörnsdóttir bera jólatréð út úr stórskemmdu
húsi sínu, en jólin urðu stutt hjá þeim að þessu sinni.
íbúðarhús á Höfn stórskemmt eftir bruna á aðfangadagskvöld
„Urðum frá að hverfa
vegna gífurlegs hita“
Höfn. Morgnnblaðið.
„ÉG REYNDI að fara inn í húsið
ásamt nágranna mínum með
slökkvitæki, en við urðum frá að
hverfa vegna gífurlegs hita. Raf-
magnstaflan er í forstofunni og við
gátum því slegið út rafmagni, að-
gætt glugga og lokað einum glugga
sem var opinn, þannig að súrefni
kæmist ekki inn,“ segir Björn Ragn-
arsson.
Jólin urðu stutt hjá Birni og eigin-
konu hans, Dóru Sigurbjörnsdóttur,
og þremur bömum þeirra að þessu
sinni, en eldur kom upp í íbúðarhúsi
þeirra á Höfn á aðfangadagskvöld.
Fjölskyldan kom að húsinu um
klukkan 21 að loknum jólamálsverði
hjá skyldmennum, opnaði útidyrnar
og varð umsvifalaust vör við reyk í
forstofunni og mikinn hita. Þau opn-
uðu ekki millidyr heldur sneru strax
frá og hringdu í slökkviliðið. Aðeins
einn gluggi var opinn í húsinu og
sökum súrefnisskorts náði eldurinn,
sem var í eða við stofusófa, sér ekki
á strik.
Á síðustu stundu
Slökkviliðið sýndi mjög snör við-
brögð og var aðeins örfáar mínútur
að komast á staðinn. Um hálftíma
tók að ráða niðurlögum eldsins. Að
sögn Steinþórs Hafsteinssonar,
slökkviliðsstjóra, hefðu þeir ekki
mátt vera fimm mínútum síðar á
ferðinni, því stofugluggi hússins var
við það að springa út vegna hitans
og „ekki að spyija að framhaldinu
í timburhúsi," sagði hann.
Björn og Dóra vilja koma á fram-
færi þakklæti til bæjarbúa fyrir
hjálpsemi eftir brunann. Bæði hús
og innbú voru vel tryggð, en ekki
er búið að meta tjónið að fuílu. Reyk-
og hitaskemmdir eru miklar um allt
hús, sérstaklega í stofu, eldhúsi og
gangi. Hitinn var það mikill að nagl-
ar gengu út úr veggjum, og er hús-
ið að mestu ónýtt að innan og alls
ekki íbúðarhæft fyrr en eftir mikla
viðgerð. Eldsupptök eru enn ókunn.