Morgunblaðið - 28.12.1994, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 28.12.1994, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1994 43 I þakið fyrir veturinn. Afa fannst ! alltaf að hann þyrfti að gera eitt- hvað þegar hann kom þangað. Síðustu helgina sem afi lifði var ég hjá honum. Hann vildi gera allt fyrir mig, hann pantaði pizzu og eldaði fyrir mig hrygg. Við fórum saman í göngutúr og töluðum mik- ið saman. Ég er þakklát fyrir að hafa feng- ið að éyða síðustu helginni sem 1 hann lifði með honum. Ég mun I aldrei gleyma honum. Elsku afi, ég i sakna þín mikið og bið guð að geyma þig og ömmu. Eva Ósk Svendsen. Þegar Bjöm Jónsson er kvaddur viljum við þakka honum áratuga trygga samfylgd og vináttu með fáeinum orðum. Bæði þekktum við Björn frá unga aldri. Með tímanum varð úr kunn- ingsskapur og vinátta sem aldrei 1 brá skugga yfír. Ræktarsemi hans i í okkar garð var slík, að okkur fínnst ekkert orð svo gott að hann verðskuldi það ekki. Seint og snemma og óumbeðið var hann reiðubúinn að rétta okkur hjálpar- hönd. Slíkan öðling og sómamann er gott að hafa fengið að þekkja. Fyrir það og ótal ánægjulegar sam- verustundir í gegnum tíðina viljum i við nú þakka. Ættingjum Bjöms sendum við innilegar samúðarkveðjur. • Sigurborg Jakobsdóttir og Halldór Gíslason. „Mínir vinir fara fjöld“ kvað Bólu-Hjálmar aldraður og má mað- ur manni segja - eftir því sem hver eldist stríkkar straumur sam- ferðamanna sem kveðja. Nú er það Bjöm Jónsson múrarameistari, ' fyrrum sveitungi og góður vinur 1 minn og míns fólks. Kona hans, I Jóhanna Svendsen, var frændkona mín og náin vinátta með fjölskyld- um okkar í nokkra ættliði. Björn Jónsson fæddist fyrir aust- an, á Setbergi í Fellum, 19. septem- ber 1920. Foreldrar hans vom hjón- in Katrín Jónsdóttir og Jón Friðrik Guðmundsson bóndi þar. Björn var næstyngstur tólf systkina. Fimm I ára gamall fór hann í fóstur til Elínar móðursystur sinnar á ísafírði ^ og manns hennar, Þórðar Jónssonar \ múrarameistara. Björn ólst upp á Isafírði og lærði þar múraraiðn. En leiðir hans lágu austur á ný - lífíð fer stundum krókaleiðir. Árið 1937 fluttust að austan vestur á fírði hjónin Engelhart Svendsen vélameistari í Neskaup- stað og Þórunn Einarsdóttir frá Hoíi í Mjóafirði ásamt Jóhönnu j dóttur sinni. Hún var fædd á Hofí k 9. janúar 1921. Þau dvöldust vestra næstu árin - og þar kynntust Bjöm I og Jóhanna. Öll saman fluttu þau austur á ný 1943 og settust að á Hofí, æskuslóðum Þórannar. Næstu árin vann Björn að iðn sinni, bæði heima fyrir á Mjóafírði og í nálæg- um byggðarlögum. Þegar á milli varð sýslaði hann við sameiginlegan búskap fjölskyldunnar á Hofí og vann raunar fleiri störf er kölluðu ^ að í sveitinni. Bæði voru þau Bjöm | og Jóhanna félagslynd og þess nut- um við sveitungarnir á meðan þau f áttu heima í Mjóafirði. Björn starf- aði líka að sveitarmálum, átti sæti í hreppsnefnd og lét ekki sitt eftir liggja þegar um var að ræða mál sem til heilla horfðu fyrir byggðar- lagið. Búseta í Mjóafirði hentaði illa dugandi iðnaðarmanni eins og sakir stóðu. Björn og Jóhanna færðu sig | um set, settust að f Kópavogi, | byggðu að Löngubrekku 29 og áttu ^ þar heima sfðan. - Á þennan veg " lágu leiðir þeirra hjóna, í fáum orð- um sagt. En þótt búfesta á Hofi yrði ekki lengri en svo að vel losaði áratuginn bundust þau tryggðum við staðinn og vitjuðu árlega frænda og vina á Mjóafirði þegar kringum- stæður leyfðu langferðir. Björn Jónsson var mikill myndar- k maður í sjón og raun. Fremur hár 9 vexti, beinvaxinn og svaraði sér |i vel. Ágætur fagmaður og ham- | hleypa í verki. Hann var og einn " þeirra sem í engu mátti vamm sitt. vita, traustur bæði og hlýr. Gott MINNINGAR var að vera í návist hans, svo á þokkafullu heimili þeirra hjóna í Kópavogi sem annars staðar þar sem fundum bar saman. Bjöm og Jóhanna gengu f hjóna- band 28. desember 1946. Synir þeirra eru tveir. Engelhart er fædd- ur 21. ágúst 1947, kvæntur Helgu Haraldsdóttur. Hann er vélameist- ari og rekur vélaverkstæði í Mos- fellsbæ. Þór fæddist 1. mars 1961, kvæntur Ásu Halldórsdóttur tölvu- fræðingur og búa í Reykjavík. Bjöm missti konu sína 1992 en Jóhanna lést á Landakotsspítala 6. mars það ár. Hún hafði verið heilsu- veil undanfarin misseri og þó haldið reisn sinni. Svo var því einnig hátt- að um Bjöm uns hann var skyndi- lega kvaddur af þessum heimi 16. dag þessa mánaðar. Eftir fráfall Jóhönnu hélt Bjöm heimili með fóstursystur hennar, Sigrúnu Svendson, sem raunar hafði alla tíð átt samleið með fóstur- foreldrum sínum og síðan Birni og Jóhönnu. Við umskiptin er gott að minnast Björns Jónssonar, sem við Mjófírð- ingar kennum jafnan við Hof. Með honum er góður maður genginn. Þakklæti slunginn hlýhugur sam- ferðamanna fylgir slíkum þegar leiðir skiljast samkvæmt lögmáli sem allir lúta. Við Margrét og okkar fólk vott- um Engelhart og Þór, fjölskyidum þeirra og Sigrúnu samúð okkar og sendum þeim innilegar kveðjur. Vilhjálmur Hjálmarsson. + Elskulegur eiginmaður minn, afi, bróðir og mágur, HAUKUR SIGURÐSSON verkstjóri, Sléttahrauni 17, Hafnarfirði, lést á gjörgœsludeild Landspítalans 25. desember. Sigrún Ólafsdóttir, Valberg Birgisson, Sigrún Birgisdóttir, Óskar Birgisson, Hólmfríður Sigurðardóttir, Magnús S. Ríkharðsson, Reynir Albertsson, Bryndís Karlsdóttir. Ástkær móðir okkar, GUÐMUNDA J. BÆRINGSDÓTTIR, Austurgötu 36, Hafnarfirði, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sólvangi 26. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Börn hinnar látnu. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, VÍGFÚSÍNA GUÐLAUGSDÓTTIR (LILLA), Vesturbergi 70, lést í Landspítalanum að morgni 26. desember. Pétur HamarThorarensen, Aníta Patterson, Greg Patterson, Sigurður Hamar Pétursson, Hrund Guðmundsdóttir, Pjetur Hamar, Nikkita Hamar og Hiynur. Elsku eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA ELÍSABET OLGEIRSDÓTTIR, Vogatungu 83, Kópavogi, lést í Landspítalanum 26. desember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 30. desember kl. 10.30. Gfsli Guðmundsson, Olgeir Svavar Gíslason, Lilja Gísladóttir, Kristinn Gfslason, Gunnar Már Gíslason, Fjóla Gísladóttir, Guðmundur Gíslason, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem sýndu mér samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, KRISTBJÖRNS DANÍELSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjör- gæslu Landspítalans fyrir einstaka umönnun. Ingibjörg Jakobsdóttir. + Elskuleg dóttir okkar, systir, mágkona og frænka, GUÐNÝ ÓLAFSDÓTTIR, Skólagerði 37, Kópavogi, lést 26. desember. Ásta Jónsdóttir, Ólafur Guðjónsson, Jónína Vilborg Olafsdóttir, Karl Olsen og börn, Oddur Ólafsson, Elsa Sigtryggsdóttir og dætur. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, dr. SIGURÐUR PÉTURSSON gerlafræðingur, verður jarðsunginn frá Garðakirkju fimmtudaginn 29. desember kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir. Hulda Sigurðardóttir, Svavar Sigurðsson, Pétur Sigurðsson, Torunn Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN BJÖRN JÓNASSON frá Álfgeirsvöllum, sem lést á dvalarheimilinu Hlíð fimmtudaginn 15. desember, verð- ur jarðsunginn frá Akureyrarkirkju í dag, miðvikudaginn 28. desem- ber, kl. 13.30. Þeir, sem vilja minnast hans, láti dvalarheimiliö Hlíð njóta þess. Ingileíf Guðmundsdóttir, Sigrún Jóhannsdóttir, Ævar Karl Ólafsson, Jónas Jóhannsson, Guðrún Þorsteinsdóttir, Guðmundur S. Jóhannsson, Ingibjörg Þórarinsdóttir, Kristín Jóhannsdóttir, Jón Jóhannsson, Páll Reynisson, Áslaug Ásgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Minningarathöfn um ástkæran eiginmann minn, föður okkar, tengdaföður og afa, THEÓDÓR SIGURJÓN NORÐKVIST, sem lést af slysförum þann 18. desember sl., fer fram í Dómkirkj- unni í Reykjavík föstudaginn 30. desember kl. 15.00. Jarðarförin fer fram frá ísafirði og verður auglýst síðar. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á björgunarsvéitina Stráka á Siglufirði. Ingibjörg Marinósdóttir Norðkvist, Margrét Norðkvist Theódórsdóttir, Sigurður Óli Sigurðsson, Ása Norðkvist Theódórsdóttir, Pálmi Gunnarsson, Jón Sigurður Norðkvist, Theódór Norðkvist yngri og elskuleg barnabörn hins látna. + Útför ÍSAKS ARNAR HRINGSSONAR, Lyngbrekku 21, Kópavogi, fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudag- inn 29. desember kl. 10.30. Blóm vinsamlega. afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið. Bryndís Brynjúlfsdóttir Sigrún Gylfadóttir, Anna Brynja Isaksdóttir, Pétur Þór Halldórsson, Áslaug Hringsdóttir, Þorleikur Karlsson. + Útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, STEINUNNAR JÓNSDÓTTUR, Asparfelli 10, sem lést þann 19. desember sl., fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 29. desember kl. 10.30. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Landssamtök hjartasjúklinga. Bragi Agnarsson Viggó E. Bragason, Brynjar Ö. Bragason, Heiðar Þ. Bragason, Hilmar J. Bragason, íris H. Bragadóttir, Agnes Bragadóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Hulda Lilliendahl, Jóhanna Kjartansdóttir, Jóna Maja Jónsdóttir, GunnarBernburg,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.