Morgunblaðið - 28.12.1994, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 28.12.1994, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1994 47 OLIÞOR ONNUSON + Óli Þór Önnuson fæddist 3. 1 mars 1993. Hann lést á Barnaspítala Hringsins 20. des- ember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hveragerðis- kirkju í gær. í dauðans faðm nú fallið er og fölt og kalt þar sefur það barn, ó, Guð, sem gafstu mér og glatt um stund mig hefur. Ó, faðir, lít í líkn til mín og lát þú blessuð orðin þín mér létta sviðann sára, er sárra fær mér tára. (H. Hálfd.) ELSKU litli Óli Þór frændi minn er dáinn. Hann var búinn að vera mjög veikur allt sitt stutta líf og þurfti að líða margt vegna veikinda sinna. Hann gaf okkur mikið og okkur þótti svo vænt um að fá hann í heimsókn. Ég man sérstaklega eftir því þegar hann var hjá okkur með mömmu sinni í fyrra, milli jóla og MINNINGAR nýárs. Þá var ég vön að taka hann öðru hveiju og spila fyrir hann á píanóið. Það fannst honum sérstak- lega gaman og leið alltaf vel þegar hann heyrði tónlist spilaða. Mér er það mjög minnisstætt hvað hann hló mikið og skemmti sér þegar ég spilaði fyrir hann á trompet. Brosið hans hlýja mun seint gleymast og það var hans einlæga tjáning. Það sýndi okkur hvað hann skynjaði margt þó hann gæti ekki tjáð sig á annan hátt. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, Mér yfír láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Elsku Anna Birna og fjölskylda, Guð gefi ykkur styrk í sorg ykkar. Unna Björg, Vík. Óli Þór lifði ekki að verða tveggja ára en við vorum svo lánsamar að fá að kynnast honum þennan stutta tíma. Urðum við einnig þeirrar gæfu aðnjótandi að sjá hversu náin og falleg tengsl voru milli Óla og móður hans, Onnu Birnu, enda oft- ast nefnd í sömu andránni. Elsku Óli Þór við þökkum þér fyrir dýrmætar samverustundir og vonum að góður Guð geymi þig. Elsku Anna Birna, megi Guð styrkja þig og fjölskyldu þína á erfiðri stundu. Sofðu, sofðu, góði, sefa grátinn þinn. Vef ég ljúflingsljóði litla drenginn minn. Syngur yfir sundi sár og þungur niður. Þei, þei, þei, í blundi þér er búinn friður. (Guðm. Guðmundsson) Jóna, Ásta, Brynhildur, Ella, Eygló, Gróa, Guð- björg, Kristín Björk og Margrét. RADA UGL YSINGAR Símahappdrætti Dregið var í Símahappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 1994 þann 24. desem- ber sl. Vinningar komu á eftirtalin númer: 1. Vinningur bifreið Nissan Terrano II SLX, nr. 96-42152. 2. Vinningur bifreið Nissan Primera Sedan sjálfsk., nr. 91-40912. 3. Vinningur bifreið Nissan Primera Sedan sjálfsk., nr. 985-20853. 4. Vinningur bifreið Nissan Micra LX, nr. 91-689544. 5. Vinningur bifreið Nissan Micra LX, nr. 91-889211. 6. Vinningur bifreið Nissan Micra LX, nr. 91-77366. 7. Vinningur bifreið Nissan Micra LX, nr. 91-685300. 8. Vinningur bifreið Nissan Micra LX, nr. 985-33938. 9. Vinningur bifreið Nissan Micra LX, nr. 985-44866. 10. Vinningur bifreið Nissan Micra LX, nr. 91-650138. 11. Vinningur bifreið Nissan Micra LX, nr. 93-72183. 12. Vinningur bifreið Nissan Micra LX, nr. 93-56708. 13. Vinningur bifreið Nissan Micra LX, nr. 985-42167. Styrktarfélagið þakkar landsmönnum veittan stuðning. Sumardvöl í Portúgal Til leigu er hús í norður Portúgal í þrjá mán- uði næsta sumar. Áhugasamir sendi nafn og símanúmer á af- greiðslu Mbl., merkt: „Suðræn sveitasæla - 7702“, fyrir áramót. KENNSLA FJÖIBRAUTASKÚUNN BREIDHOLTI Frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti Upphaf vorannar 1995 4. og 5. janúar, miðvikudagur og fimmtudagur: Innritun í kvöldskóla kl. 16.30-19.30. 5. janúar, fimmtudagur: Töfluafhending og nýnemakynning kl. 9.00. Töflur eldri nemenda afhentar kl. 10.00-12.00. 7. janúar, laugardagur: Innritun í kvöldskóla kl. 10.30-13.30. 9. janúar, mánudagur: Kennarafundur kl. 9.00. Deildafundir. Kennsla hefst kl. 13.15 skv. stundaskrám. Skólameistari. Frá Menntaskólanum við Hamrahlíð Stöðupróf Stöðupróf verða haldin í skólanum eftirtalda daga: I ensku miðvikudaginn 4. janúar kl. 18.00. í málfræði, spænsku og þýsku fimmtudag- inn 5. janúar kl. 16.00. í frönsku, ítölsku og stærðfræði föstudag- inn 6. janúar kl. 10.00. í dönsku, norsku og sænsku föstudaginn 6. janúar kl. 16.00. Skráning í stöðupróf er á skrifstofu skólans í síma 685140. Prófgjald, 1.000 krónur á hvert próf, greiðist í upphafi prófs. Athygli skal vakin á því, að stöðupróf í erlend- um málum eru aðeins ætluð nemendum sem hafa dvalist nokkra hríð í landi, þar sem við- komandi mál er talað eða málið talað á heim- ili þeirra. Próf í málfræði er ætlað nýnemum í Mennta- skólanum í Hamrahlíð sem staðist hafa grunnskólapróf í íslensku með einkunn 8, 9 eða 10. Standist þeir stöðuprófið kemur það (án eininga) í stað kjarnaáfanga í málfræði, MÁL 102. Önnur stöðupróf eru öllum opin. Kennarafundur Boðað er til kennarafundar mánudaginn 9. janúar kl. 10.00. Öldungadeild Innritað verður í öldungadeild á haustönn 1992 á skrifstofu skólans: Fimmtudag 5. janúar kl. 9-19 Föstudag 6. janúar kl. 9-16 Laugardag 7. janúar kl.9-13 Mánudag 9. janúar kl. 9-19 Nýnemum er bent á að deildastjórar verða til viðtals fimmtudaginn 5. janúar frá kl. 16. Námsráðgjafar aðstoða við innritun alla dagana. Kennslugjald fyrir haustönnina, sem greiðist við innritun, er sem hér segir: Fyrireinn áfanga 9.000 krónur Fyrirtvo áfanga 12.000 krónur Fyrir þrjá áfanga 14.000 krónur og 1.000 krónur til viðbótar fyrir hvern áfanga, þó aldrei hærra gjald en 20.000 krónur. Kennsla í öldungadeild hefst skv. stundaskrá þriðjudaginn 10. janúar. Dagskóll Nýnemar eru boðaðir í skólann föstudaginn 6. janúar kl. 10 að hitta umsjónarkennara og fá stundaskrár. Aðrir nemendur eru boð- aðir í skólann mánudaginn 9. janúar kl. 13. Kennsla í dagskóla hefst þriðjudaginn 10. janúar og verður kennt skv. stundaskrá mánudags og þriðjudags. Rektor. í miðbæ Reykjavíkur Höfum til leigu skrifstofuhúsnæði í miðbæ Reykjavíkur. Um er að ræða tvö herbergi sem eru um 24 fm og húsnæði sem er um 100 fm og skiptist í 5 herbergi og sameiginlegt rými. Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 681915 á skrifstofutíma. Til leigu 3. og 4. hæð í þessu stórglæsilega nýja skrifstofuhúsnæði. Um er að ræða 190 fm á 3. hæð. Einnig á þakhæð 280 fm. Góð- ur frágangur úti sem inni. Næg bílastæði m.a. í bílskýli. Lyfta. Kjörið húsnæði t.d. fyrir lækna, teiknistofur, heildverslanir o.fl. Stutt í alla þjónustu t.d. banka og pósthús. Húsnæðið er til athendingar nú þegar. Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteigna- miðstöðvarinnar hf., Skipholti 50B, sími 622030 eða 985-21010, (09-0043). Ferðamálafræðingar Stofnfundur Félags háskólamenntaðra ferðamálafræðinga verður haldinn í kvöld, 28. desember, á Kaffi Reykjavík kl. 20.00. Fundurinn er opinn þeim, sem lokið hafa háskólaprófi frá viðurkenndum háskóla (BA/BS, MA/MS eða sambærilegu námi). Hörgshlíð 12 Bænastund í kvöld kl. 20.00. V Háaleitisbraut 58-60 Bænastund í kvöld kl. 20.30 í Kristniboðssalnum. Allir velkomnir. Hjálpræðis- herinn Kirkjustræti 2 Jólafagnaöur fyrir eldri borgara í dag kl. 15.00. Ingibjörg og Óskar Jónsson stjórna. Gestir Pétur Sigurgeirsson, biskup og sr. Frank M. Halldórsson. Hvítasunnukirkjan Fítadelfía Fjölskyldusamvera í kvöld kl. 20.00. Viö viljum hvetja sem flesta til aö mæta í jólaskapi og hafa meö sér eitthvað með kaff- inu. Nýársmót ’94-’95 í Menntaskólanum v/Sund 29. des.-1. janúar Dagskrá: 29. des. kl. 20.30. 30. des. kl. 20.30. 31. des. kl. 20.00 Hátiðarmatur. 1. jan. 01.00 Nýársvaka. 1. jan. 20.30 Lokasamkoma. Gestir: Richard Perinchief og Stig Petrone. Allir hjartanlega velkomnir! Allt ókeypis! Orð lifsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.