Morgunblaðið - 28.12.1994, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.12.1994, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1994 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Komst til byggða með lamb- ið fyrir jól Mývatnssveit. Morgunblað- Á ÞORLÁKSDAG fór Hermann Rristjánsson austur í Búrfells- hraun að leita að kindum. Grun- ur lék á að þær gætu leynst þar. Enga kind fann hann þar þann dag en sá slóð sem hann taldi eftir lamb. Víða var snjó- laust og því tafsamt að fylgja slóðinni. Hann kom því heim enda farið að skyggja. Á aðfangadag lagði hann aftur af stað og ók á bíl að Búrfellshrauni og gekk síðan inn í hraunið. Eftir nokkra leit fann hann eitt lamb. Nokkuð vel gekk að handsama það. Hann varð að bera lambið einn kílómetra í bílinn. Allt gekk þó vel og náði hann til byggða rétt áður en jólahátíðin gekk í garð. Lambið left furðuvel út og virðist ekki hafa skort til- fínnanlega haga í vetur. Kertaskreyt- ing í ljósum logum ELDUR kom upp í kertaskreyt- ingu í húsi við Norðurgötu 51 á Akureyri í fyrrakvöld. Hús- ráðendur höfðu slökkt eldinn þegar slökkvilið kom á staðinn. Mikill reykur var í íbúðinni. Þetta var eina útkall slökkvi- liðsins um jólin, en hins vegar voru miklar annir við sjúkra- flutninga um hátíðina. Alls var farið í 14 ferðir eftir sjúkling- um, lengst til Blönduóss á Þor- láksmessudag, þá var farið til Sauðárkróks á aðfangadag og einnig í Fnjóskadal og í fyrra- kvöld var farið eftir sjúklingi fram 5 Eyjafjörð. Sextán inn- brot upplýst RANNSÓKNARLÖGREGLAN á Akureyri hefur upplýst 16 innbrot og þjófnaði sem framin hafa verið á Akureyri á haust- mánuðum. Daníel Snorrason, lögreglu- fulltrúi Rannsóknarlögreglunn- ar á Akureyri, sagði að innbrot- in hefðu verið framin nú í haust og væru allt frá smámálum þar sem Iitlu hefðu verið stolið og upp í stærri mál, m.a. hefði vönduðum hljómflutningstækj- um og áfengi verið stolið af Hótel Hörpu, tvívegis hefði ver- ið brotist inn í Kaffi Karólínu og áfengi stolið, töluverðir pen- ingar hefðu horfið eftir innbrot í Gullnámuna og þá hefði áfengi og peningum verið stolið í inn- broti á veitingastaðinn Torgið. Samtals var um 16 innbrot að ræða og tengdust þeim 15 aðilar á einn eða annan hátt, allt unglingspiltar um 16 ára aldur. Málin voru öll upplýst nú um jólin. Jólatrés- skemmtun HIN árlega jólatrésskemmtun Iþróttafélagins Þórs verður í félagsheimilinu Hamri við Skarðshlíð í dag, kl. 17. Jóla- sveinar koma í heimsókn og börnin fá gott í poka, þá verður boðið upp á kaffi, kakó og kök- ur. Ókeypis er fyrir börn yngri en 4 ára en það kostar 300 krónur fyrir þá sem eldri eru. —— Morgunblaðið/Rúnar Þór Flugelda- j sala komin í fullan gang FLUGELDASALA hófst í gær en þrír aðilar selja flugelda á Akureyri fyrir þessi áramót, Hjálparsveit skáta, Iþróttafélag- ( ið Þór og Páll Erland. Skátarnir | eru með fjóra útsölustaði, í Lundi við Yiðjulund, að Oseyri 2, við Hagkaup og í söluskúr við Draupnisgötu. Þórsarar selja sína Hugclda í félagsheimili sínu Hamri og Páll í söluskúr við gatnamót Þingvallastrætis og Mýrarvegar. Til margra ára voru hjálpar- sveitarmenn þeir einu sem seldu flugelda á Akureyri en síðan bættust íþróttafélögin við fyrir örfáum árum. KA-menn eru nú hættir að selja flugelda. Sam- keppnin hefur harðnað á þessum markaði og segja skátar að í kjölfarið hafi flugeldar lækkað í verði frá því sem var fyrir síð- ustu áramót. Þórsarar eru fullir gremju yfir óvæntri samkeppni einkaað- ila í flugeldasölunni og telja markaðinn ekki þola fleiri sölu- menn. Nýir eigendur taka við rekstri Viking Brugg eftir áramót KEA og Valbær hafa keypt verksmiðjuna KAUPFÉLAG Eyfírðinga og Valbær hf., eignarhaldsfélag erfingja Valdí- mars Baldvinssonar heildsala á Akureyri, hafa keypt bruggverksmiðju Viking Brugg af Delta hf. Skrifað var undir kaupsamninga í gær en nýir eigendur munu taka við rekstrinum eftir áramót. Stofnað verður nýtt hlutafélag um rekstur bjórverksmiðjunnar og er gert ráð fyrir að hlutafé þess verði á bilinu 40 og 50 milljónir króna og mun það skiptast jafnt á milli Kaupfélags Eyfírðinga og Valbæjar hf. Baldvin Valdimarsson, einn eig- verksmiðjuna mjög fullkomna, enda Valbæjar, sagði kaupverð verksmiðjunnar trúnaðarmál á þessu stigi en verðið hefði verið sanngjarnt fyrir báða aðila. Nýtt hlutafélag þessara aðila verður stofnað á næstu dögum eða fyrir áramót og mun stjórn þess ráða framkvæmdastjóra. Áætlað er að nýja hlutafélagið fái verksmiðjuna afhenta 2. janúar næstkomandi. Rúmlega 20 manns starfa í brugg- verksmiðjunni og munu nýir rekstr- araðilar taka við starfssamningum þeirra. Ferskasta varan „Við erum að eðlisfari bjartsýnir menn og ef skilyrði eru frá löggjaf- ans hálfu á þann veg að jafnræði ríki milli fyrirtækja í innflutningi og framleiðslu þá óttumst við ekki samkeppnina jafnvel þó vemdartoll- ar falli niður á næsta ári,“ sagði Baldvin, en í kjölfarið þyrftu inn- flytjendur að sjá sjálfir um innflutn- ing óg geymslu vörunnar sem Áfengisverslunin hefði séð um áður. Baldvin sagði íslendinga smám saman að læra hvers konar vara bjór væri, hann væri bestur fersk- astur, um hann giltu sömu lögmál og mjólk, nýjasta varan væri best. „Að því leytinu standa innlendu framleiðendurnir betur að vígi í samkeppninni, þeir eru með fersk- ustu vöruna en það skiptir mestu máli varðandi gæðin,“ sagði Bald- vin. Fullkomnasta verksmiðja landsins Bruggverksmiðja Viking Brugg hefur verið með um 34% af heildar- markaði á Islandi. Baldvin sagði mjog raunar þá fullkomnustu hér á landi en tækin væru að stofni til ný. „Þetta verður hörð samkeppni, það hefur löngum verið hörð samkeppni á drykkjarvörumarkaðnum og við vitum að það verður áfram. Það eina sem við förum fram á eru eðli- leg samkeppnisskilyrði." „Það sem vakir fyrir okkur með kaupum á verksmiðjunni er að við teljum að um arðbæra fjárfestingu sé að ræða,“ sagði Magnús Gauti Gautason kaupfélagsstjóri KEA. „Við álítum þetta gott fyrirtæki með töluverða möguleika sem við viljum gera ennþá betra." Morgunblaðið/Rúnar Þór NÝTT hlutafélag í eigu KEA og Valbæjar tekur við rekstri bruggverksmiðju Viking Brugg strax eftir áramót. Gleymdu að láta vita af ferðum sínum FELAGAR í Hjálparsveit skáta á Akureyri voru kallaðir út til að leita að fólki sem farið hafði frá bæ í Ljósavatnshreppi í fyrra- kvöld, annan jóladag. Leiðinda- veður var og færð tekin að spill- ast. Gestgjafar fóru að undrast um fólkið og höfðu samband við lögreglu sem aftur kallaði til hjálparsveitarmenn. Fólkið hafði komist klakklaust yfir Víkur- skarðið en gleymt að láta vita af ferðum sínum og því var farið að óttast um það að sögn varðstjóra lögreglunnar á Akureyri. Hátíðin var friðsæl að sögn varðstjórans en nokkur minni- háttar óhöpp urðu í umferð- inni. Þrír bílar lentu í árekstri á Drottningarbraut við Aðal- stræti á aðfangadag, fólk slapp án meiðsla en bílarnir skemmd- ust eitthvað. Skarstáhöfði Á jóladagskvöld missti ökumað- ur stjórn á bíl sínum á Hlíðar- braut við Merkigil og ók á ljósa- staur. Ökumaður skarst á höfði og var fluttui' á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins. Tveir minniháttar árekstrar urðu annan dag jóla en þá um kvöldið gerði leiðindaveður og færð spilltist. Lögreglumenn fóru í nokkrar ferðir til aðstoðar öku- mönnum sem sátu fastir -fsköflum í bifreiðum sínum. Eitt umferðar- óhapp varð síðan í gær á Hörgár- braut. Nokkur ölvun var í bænum að kvöldi annars jóladags og fengu þrír gistingu í fangageymslum lögreglunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.