Morgunblaðið - 28.12.1994, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1994 21
Stjórnarkreppan á Ítalíu
Di Pietro for-
sætisráðherra?
Umberto
Bossi
Róm. Reuter.
OSCAR Luigi Scalf-
aro, forseti Ítalíu,
reyndi í gær að finna
lausn á stjórnarkrepp-
unni í landinu og ítölsk
dagblöð voru með
vangaveltur um að
Antonio Di Pietro,
fyrrverandi rannsókn-
ardómari, yrði hugs-
anlega forsætisráð-
herra breiðrar sam-
steypustjórnar.
Silvio Berlusconi,
fráfarandi forsætis-
ráðherra, reyndi að
knýja fram nýjar
kosningar og varaði
við valdatöku „komm-
únista“ þegar hann
lýsti andstöðu sinni við hugmyndir
um myndun breiðrar samsteypu-
stjórnar. Umberto Bossi, leiðtogi
Norðursambandsins, og Rocco Butt-
iglione, formaður Þjóðarflokksins,
lítils miðflokks, vilja mynda stjórn
með Lýðræðisflokki vinstrimanna,
kommúnistaflokknum fyrrverandi,
til að hægt verði að ljúka stjórnlaga-
breytingum áður en ítalir gangi að
kjörborði að nýju.
Berlusconi telur þessa hugmynd
mikið áhyggjuefni. „Við erum vissir
um eitt: við samþykkjum aldrei að
Bossi og Buttiglione láti Ítalíu í
hendur kommúnista," sagði hann.
Scalfaro ekki hlynntur
kosningum
Berlusconi vill að boðað verði til
kosninga í lok mars en hermt er að
Scalfaro sé lítt hrifinn af þeirri hug-
Carlo
Scognamiglio
mynd. Forsetinn veltir því nú fyrir
sér hvern hann eigi að skipa forsæt-
isráðherra 54. stjórnar Italíu eftir
heimsstyijöldina síðari. Scalfaro
ræddi í gær við Carlo Scognamiglio,
forseta efri deildar þingsins, og Irene
Pivetti, forseta neðri deildarinnar,
en þau hafa bæði verið nefnd sem
hugsanlegir leiðtogar breiðrar sam-
steypustjórnar. Scognamiglio er í
flokki Berlusconis, Afram Ítalía, en
Pivetti er í Norðursambandinu.
Francesco Cossiga, fyrrverandi
forseti, er einnig sagður koma til
greina og ítölsk dagblöð voru í gær
með vangaveltur um að Antonio Di
Pietro yrði hugsanlega næsti forsæt-
isráðherra. Di Pietro stjórnaði rann-
sókn spillingarmálanna sem tröllrið-
ið hafa ítölskum stjórnmálum og
nýtur nú mikilla vinsælda meðal al-
mennings, en sagði af sér sem rann-
sóknardómari fyrr í mánuðinum.
Bandarískur flugmaður enn í haldi í Norður-Kóreu
Vilja neyða Banda-
ríkin til samninga
EGLA bréfabtndi
KJÖLFESTA
ÍGÓÐU
N-Kórea vill
friðarsamning í
stað vopnahlés-
samnings
Seoul. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Norður-Kóreu
virðast ætla að notfæra sér hand-
töku bandarísks þyrluflugmanns til
að knýja Bandaríkjastjórn til eftir-
gjafar og samninga. Er það mat
stjórnmálaskýrenda, sem segja, að
stjórnin í Pyongyang vilji gera sér-
stakan friðarsamning við Bandarík-
in í stað vopnahléssamningsins, sem
nú gildir. Birtar hafa verið ljós-
myndir, sem teknar voru af flug-
manninum rétt eftir að þyrlan hans
brotlenti innan landamæra Norður-
Kóreu.
Norður-Kóreustjórn heldur því
fram, að þyrlan hafi verið í njósna-
leiðangri þegar hún var skotin niður
sjö km innan n-kóresku landamær-
anna en Bandaríkjastjórn segir, að
hún hafi villst af leið. Voru flug-
mennirnir tveir og lést annar þeirra,
David Hilemon, þegar þyrlan kom
niður. Hefur lík hans verið afhent
bandarískum hernaðaryfirvöldum.
Beinar viðræður
Bandaríkjastjórn hefur samþykkt
að senda sérstakan fulltrúa sinn til
Pyongyang í dag til viðræðna um
lausn flugmannsins, Bobbys Halls,
DAVID Hall, bandaríski flugmaður-
inn, sem nú er í haldi í Norður-
Kóreu. Norður-Kóreumenn birtu
þessa mynd í gær en hún var tekin
rétt eftir að þyrla hans hafði hrapað
eða verið skotin niður innan n-kór-
esku landamæranna.
Kóreustríðinu lauk. Það
stóð í þijú ár, 1950 til ’53.
Norður-Kóreumenn sögðu
sig úr nefndinni 1991 þeg-
ar Suður-Kóreumaður var
skipaður formaður hennar
og vilja nú gera friðar-
samning við Bandaríkin
þar sem Suður-Kórea komi
hvergi nærri.
Bandaríkjastjórn hefur
varað stjórnina í Pyongy-
ang við og segir, að verði
Hall ekki látinn laus fljót-
lega muni það skaða ný-
gerðan samning ríkjanna
um kjarnorkumál. Flestum
ber hins vegar saman um,
að Bandaríkjastjórn sé í
miklum vanda. Láti hún
undan Norður-Kóreu verði
litið á hana sem veikgeðja
en geri hún það ekki muni
örlög flugmannsins valda
kurr í Bandaríkjunum. Auk
þess verði hún að taka til-
lit til hagsmuna Suður-
Kóreu i málinu.
Olíusendingu frestað
og segja fréttaskýrendur, að það
sé sigur fyrir Norður-Kóreustjórn.
Hún vilji ræða beint við Bandaríkja-
menn en ekki í gegnum vopnahlés-
nefndina eins og verið hefur frá því
Bandaríski fulltrúadeild-
arþingmaðurinn Lee Ham-
ilton sagði í gær, að hugs-
anlega yrði fyrirhugaðri
olíusendingu til Norður-Kóreu
frestað vegna þessa máls en sam-
kvæmt samningum ætla Banda-
ríkjamenn að senda þangað 50.000
tonn fyrir 21. janúar.
SKIPULAGI
Við sendum þér bækling óskir þú þess
með myndum af fjölbreyttu úrvali okkar af
þessum vinsælu bréfabindum okkar. Síðan
getur þú pantað það sem hentar fyrirtæki þínu
og færð sendinguna.
Hafðu samband við sölumenn okkar
í síma 68 84 76 eða 68 84 59.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Símar: 628450 688420 688459
Fax 28819
Ein á Suð-
urpólinn
LIV Arnesen varð fyrst kvenna
til að komast á Suðurpólinn ein
síns liðs en þangað náði hún
klukkan átta sl. laugardagskvöld
eftir 1.200 km göngu á 50 dög-
um. Liv er norsk, liðlega fertug
að aldri. Wanda Widerö, talsmað-
ur Arnesen, sagði, að ferðin hefði
gengið vel en Arnesen dró á eft-
ir sér 50 kg þungan sleða og
bakpokinn hennar vó 15 kg.
Verður hún flutt til baka með
flugvél, sem kemur til banda-
rískrar rannsóknarstöðvar á
Suðurskautinu 5. janúar. Banda-
ríkjamennirnir í stöðinni buðu
Arnesen til sín eftir komuna á
skautið en hún lagði upp í
gönguna Iöngu 5. nóvember sl.