Morgunblaðið - 03.01.1995, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.01.1995, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ ÁRAMÓT * Nýársávarp forseta Islands, frú Vigdísar Finnbogadóttur Af mannauði vex allur annar auður GÓÐIR íslendingar, góðan dag og gleðilegt nýtt ár. VIÐ ARAMÓT þökkum við landsmenn hver öðrum samferð á liðnu ári og óskum þess af alhug að farsæld megi fylgja okkur á hinu nýja. Þessu sinni er ofarlega í huga að á nýliðnu ári var efnt til hátíðar sem íengi verður í minn- um höfð í tilefni af hálfrar aldar afmæli Lýðveldisins Islands. Enda þótt svo óheppilega hafi tekist til að ekki komust allir þeir til Þing- valla sautjánda júní sem þar vildu vera; er verðugra að minnast þess sem vel tókst. Það var ógleyman- legt að líta yfir vellina þennan dag, sjá þá þéttskipaða fólki, sem naut þess fölskvalaust að vera saman í vorþeynum. Það yljaði og var örvandi í senn að vita af öllum þessum einstaklingum, og öðrum um allt landið, sem þennan dag vissu svo gjörla að þeir áttu sam- stöðu í lífínu; að þeir nutu hlýju hver af öðrum á vegferð sinni og í vonum sínum, að þeir voru sam- einaðir í virðingu fyrir dýrustu eign okkar allra: landinu og að vera sjálfstæð þjóð með eigin rödd og rétt í samfélagi þjóðanna. Hér sem svo oft endranær skynjuðu menn að við eigum hvert annað að á íslandi með þeim hætti sem fáar þjóðir aðrar þekkja. Það megum við þakka fámenni þjóðar- innar sem styrkir okkur í vitund um það hver við erum. En um leið og við íhugum sam- stöðu okkar og þjóðemi hljótum við líka að gera okkur grein fyrir hinu, að aldrei fyrr höfum við verið jafnáþreifanlega tengd öðr- um þjóðum, jafnaugljós hluti hins alþjóðlega samfélags. Hér birtist okkur ein af mörgum þversögnum okkar tíma, sem heimskunnur framtíðarfræðingur, John Nais- bitt, fjallar um af skarpskyggni í nýútkominni bók, sem nefnist „Alþjóðaþversögnin“. Þar bendir hann reyndar á Islendinga sem fróðlegt dæmi um þjóð er veiji og verndi tungu sína og hefur greinilega hrifíst af því sem hann var fræddur um hér á landi fyrir ekki allöngu. Ein af staðhæfing- um þessa fræðings um nútímann og framtíðina er svohljóðandi: „Hagstjóm heimsins verður sí- fellt alþjóðlegri og smám saman mun og margt annað fara í sömu átt. En jafnframt verður hið átt- hagabundna enn mikilvægara — og er þar komið að enn einni þver- sögn sem er mikilvægur þáttur í alþjóðaþversögn- inni: Því alþjóð- legri sem við verðum, þeim mun átthaga- bundnari verður hegðun okkar.“ Þetta þykir okkur sem trúum á góða framtíð íslands og íslend- inga góð tíðindi. Jafnframt er ljóst að alþjóðavæð- ingin leggur okk- ur miklar kvaðir á herðar. Við verðum meðal annars að kosta kapps um að gera komandi kyn- slóðir mæltar á sem allra flestar tungur, þar með talið málfæri stærðfræðinnar, og veita þeim þannig greiðari aðgang að fjöl- þættu erlendu samstarfi. Mikil- vægt er hveija stund að gæta þess að ensk tunga — sem reynist svo áleitin — verði þó ekki alltof áhrifamikil í íslenskri hugsun og tjáningu. í því Ijósi sýnist brýnt að fyrsta erlenda málið sem kennt er í íslenskum skólum sé einhver önnur tunga, svo sem mál ein- hverrar bræðraþjóðar okkar á Norðurlöndum, sem ætíð verður mikilvægt að halda sem nánustu tengslum við. En um leið verðum við líka að leggja ofuráherslu á að styrkja og efla móðurtunguna, þennan stórkostlega lykil að sér- kennum okkar, minningum okkar og arfí, jafnt sem þekkingu í sam- tíð og framtíð. Hún er einn megin- þráðanna sem spunnir eru í þann vef sem gerir okkur að þjóð. ísland, farsælda frón og hag- sælda hrímhvíta móðir kvað Jón- as. Það er vert að taka eftir því, að í þessari lýðhvöt sinni skilur skáldið að farsæld og hagsæld eru tvö sjálfstæð hugtök. Það sýnist mikil tíska á okkar tíð að tala um hagsældina og þá helst í einföld- um reikningsdæmum. Allt þarf, ef vel á að vera, að skila sjáanleg- um hagnaði, stuðla að aukn- um hagvexti. En við mættum einnig leiða hug- ann að því, að sönn farsæld rís ekki sjálfkrafa upp af slíkri hag- sæld. Til að hvort tvegga megi vera til og dafna þarf öðru fremur að sinna mannver- unni sjálfri, ekki síst þeim sem eru að búa sig undir lífíð, og huga sem best til framtíðar að þeirri virku og lifandi menntun sem eflir hvern einstakling til þroska, þeirri þekk- ingu sem gerir hveijum og einum kleift að leysa farsællega sér- hveija þraut, hvort heldur við framleiðslu varnings eða í menn- ingarlífi. Við eigum góðar auðlindir; að sjálfsögðu verður aldrei um of brýnt fyrir mönnum að gæta þeirra sem best. En alltof oft virð- ast menn tala um þessar náttúr- legu auðlindir sem upphaf og endi alls. Þó þarf ekki að skyggnast um lengi á heimskringlunni til að sjá, að ekki er alltaf samhengi milli auðlindaeignar af því tagi og velmegunar. Þjóðir sem fáar auðlindir eiga, eins og Danir eða Hollendingar, hafa náð langt í hagsæld og farsæld án þess að geta gengið í hefðbundna auð- lindasjóði og sótt sér í hnefa. Og innst inni vitum við líka öll að notkun okkar á arðbærum nátt- úruauðlindum er löngu komin að ystu mörkum, ef ekki út fyrir þau. í raun eiga þær tvær þjóðir sem hér voru nefndar, eins og allar aðrar þjóðir, eina auðlind sem aldrei þrýtur heldur beinlínis eflist og styrkist sé henni sinnt af ein- arðri ræktarsemi. Þessi upp- spretta er mannauðurinn. Rækt- arsemi við þann auð er mikilvæg- ari en allt annað, því af þeim auði vex allur annar auður. Hug- vit og þekking eru þættir sem verða þyngri á metunum með hveiju árinu sem líður, og ræktun hugvits og þekkingar er um leið efling þeirrar auðlindar sem fólgin er í mannauðnum. Ekki skal held- ur litið fram hjá því, að með mikil- vægri þekkingu, sem er svo marg- þætt í nútímanum, fær verndun sérstæðrar þjóðmenningar okkar byr í segl, því þekkingin vill engu gleyma. En sjaldan fær þjóðfélagið að lifa einvörðungu við framtíðar- drauma, hversu raunhæfir og að- kallandi sem þeir virðast. Atvinnu- leysi hefur þegar orðið sá vandi í landi okkar sem ekki verður hjá komist að horfast í augu við. Öllum er okkur ljóst hvílík sóun það er á mannauðnum, — það lítillækkar einstaklinga, það sundrar þjóðinni. Og síst má það gleymast að öll berum við samábyrgð á því at- vinnuleysi sem við búum við á ís- landi. Samúð okkar og skilningur er ríkur og við hljótum að geta tekið enn betur á til að vinna á því bug. Aldrei fyrr hefur tæknin sýnt okkur jafnmarga möguleika og um þessar mundir. Stundum er talað um þekkingarsprengingu sem orð- ið hafi á liðnum ártatugum. Nú blasir við okkur ný sprenging í þekkingarmiðluninni. A örskots- stundu komumst við í samband við upplýsingabanka um allan heim, getum leitað okkur fróðleiks frá fyrstu hendi, hvort sem við erum skólafólk á Kópaskeri eða í Króksfjarðarnesi eða starfsmenn í Reykjavík eða á Raufarhöfn. Allur heimurinn liggur fyrir fótum okkar. í þessum efnum þarf hvorki að há okkur einangrun né fá- menni. Það er ekki spurt um fjöld- ann sem myndar þjóð, heldur hveijir eru kostir þessarar þjóðar, hvar er hún stödd á þekkingar- vegi, hvað kann hún, hvað getur hún gert? Tæknin sem er að halda innreið sína er svo ævintýraleg að henni verður naumast lýst í orðum. Kannski segir það eitthvað ef ég nefni að geisladiskur fyrir tölvu, jafnstór hinum sem flytur okkur tónlist, getur geymt allt að 200.000 blaðsíður af texta, ef ekki er sett á hann annað efni. Það myndi líklega jafngilda því að ævistarf Halldórs Laxness kæmist tíu sinnum á einn disk. í útlöndum er þegar búið að gefa út mikið námsefni og fróð- leiksefni á slíkum geisladiskum, og er þar blandað saman texta, hljóði, kyrrum og lifandi myndum, ásamt línuritum og skýringarefni. Enn sem komið er eigum við eng- an íslenskan upplýsingadisk. Þar er verk að vinna, því varla unum við því að ungir íslendingar þurfi að leita sér allra nýjustu upplýs- inganna á erlendum málum þegar fram líða stundir. Erlendir forystumenn á ýmsum sviðum hafa á undanförnum mán- uðum fullyrt að það sem ráða muni úrslitum varðandi velgengi einstakra þjóða í harðnandi sam- keppni á komandi árum verði menntun þeirra og þekking. Mit- terrand, forseti Frakklands, skor- aði nú á haustdögum á alla stjórn- málaflokka landsins að setja menntamál í öndvegi þegar stefn- an yrði mörkuð fyrir næstu kosn- ingar. Hliðstæða áskorun ber ég nú fram gagnvart íslenskum stjórnmálamönnum og bið þá að bera menntunina sérstaklega fyrir bijósti, svo kunnátta okkar um haf og land, um vernd og nýtingu sjávar, um uppgræðslu lands og ræktun bústofna, og um marg- brotið völundarhús tækninnar, megi verða kunn um allan heim svo til verði vitnað. En vitanlega gildir enn sem fyrr að lítið stoðaði okkur að eignast allan heiminn ef við látum undir höfuð leggjast að rækta með okk- Frú Vigdís Finnbogadóttir forseti N 9. IAN. Gjaldskrá óbreytt frá liðnum vetri Systkinaafsláttur -fyrsta barnfullt gjald, annað barn hálft gjald, þriðja barn og þar yfir frítt. Aukaafsláttur efforeldrar eru einnig í dansnámi. • Afhending skírteina í Brautarholti 4, sunnudaginn 8. jan. frá kl. 16-19. • Reykjavík • Mosfellsbær • Innritun í síma 91 -20345 frá kl. 13 til 19 í Brautarholti 4. • Suðurnes: Keflavík, Garður, Grinda vík, Sandgerði. • Innritun í síma 92-67680 frá kl. 21.30 til 22.30. Samvkæmisdansar (suður-amerískir og standard) Gömlu dansarnir - Hip Hop - Disco - Tjútt og Rock’n roll Erlendir gestakennarar. Allir aldurshópar. MÁ BJÓDA ÞÉR í W I DAIUS?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.