Morgunblaðið - 03.01.1995, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.01.1995, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 500 bændum boðin hlutabréf í Afurðasölunni Borgarnesi hf. Bankaeftirlitið hyggst rannsaka framkvæmdina FORSTÖÐUMAÐUR Bankaeftir- lits Seðlabanka íslands, Þórður Ólafsson, segir að gerð verði fyrir- spurn af hálfu embættisins um sölu hlutabréfa í Afurðasölunni Borgarnesi hf. Greint var frá því í Morgunblaðinu síðastliðinn fimmtudag að 500 bændum sem skipta við Afurðasöluna hafi verið sent bréf þar sem þeim er boðið að kaupa hlut í fyrirtækinu. Einnig var tekið fram að haldið yrði eftir tiltekinni krónutölu af upphæð til hlutafjárkaupa, sem bændur eiga inni hjá fyrirtækinu vegna haust- slátrunar, nema gerð yrði við það athugasemd fyrir áramót. Afurðasalan Borgarnesi hf. hef- ur sjálf annast sölu hlutabréfanna og boðið bændum til kaups bré- fleiðis án þess að nákvæmar upp- lýsingar séu gefnar um fjárhags- og rekstrarstöðu fyrirtækisins. „Þetta kom til umræðu hjá banka- eftirlitinu og ef við höfum ástæðu til þess að ætla að um sé að ræða auglýsingu um almennt útboð, markaðsverðbréfa, hluta- eða skuldabréfa, sem ekki fer fram samkvæmt reglum um útboð, gríp- um við til þeirra aðgerða sem okk- ur ber lögum samkvæmt,“ segir Þórður Ólafsson. Yfirteknar skuldir 488 milljónir Afurðasalan Borgarnesi hf. var stofnuð fyrir ári og keypti fyrir- tækið eignir Kaupfélags Borgfirð- inga í Brákarey á 255,5 milljónir og auk þess birgðir í kjöti, vinnslu- vörum og fleiru á 232,5 milljónir. Yfirteknar skuldir voru 488 millj- ónir og var hlutafé því 50 milljón- ir, að því er fram kemur í dreifi- bréfi sem sent var bændum í Borg- arfirði 5. desember síðastliðinn. ívar Ragnarsson framkvæmda- stjóri Afurðasölunnar sagði í sam- tali við Morgunblaðið fyrir helgi að hlutafé fyrirtækisins teldist 65 milljónir um áramótin en markmið- ið er að auka hlutafé þess upp í 137 milljónir á fjórum árum, eins og segir í bréfinu þar sem bændum er boðið hlutafé til kaups í fyrir- tækinu. í reglum um almennt útboð sem vitnað er í og settar voru fyrir rúmu ári segir til dæmis að séu verðbréf boðin fleirum en 25 og heildarsöluverð þeirra fari yfir 5 milljónir verði framkvæmdin að gerast fyrir milligöngu verðbréfa- fyrirtælcis í samræmi við reglur Verðbréfaþings. Sjábu hlutina í víbara samhengi! - kjarni málsins! Bandalag háskólamanna-BHMR Hærri dagvinnu- laun leiða til fjölgunar starfa Fasteignamiðlun Sigurður Óskarsson lögg.fasteigna- og skipasali Suðurlandsbraut 16,108 Reykjavik SÍMI 880150 Seljendur athugið! Hef kaupanda að vandaðri 3ja herb. íbúð á póstsvæði 101,107 eða á Seltjarnarnesi. Verðhug- mynd 6-8,5 millj. Hef kaupanda að raðhúsi í Fossvogi, Hvassaleiti eða Bústaðahverfi. Hef kaupanda að sórhæð í Hlíðum eða Teigum. Hef kaupanda að 100-150 fm raðhúsi í Garðabæ eða Hafnarfirði. Verðhugmynd 8-11 millj. Hef kaupanda að iðnaðarhúsnæði 50-60 fm á svæði 101, 105 eða 108. Hringið og við skráum eignirnar samdægurs SÍMI 880150 MIÐSTJÓRN Bandalags háskóla- manna-BHMR hefur sent Alþingi og félagsmálaráðherra tillögur um endurbætur á stöðu og kjörum at- vinnulausra og um aðgerðir til að draga úr atvinnuleysi. Sérstök áhersla er lögð á að at- vinnuleysi sé bæði afleiðing hag- sveiflna og hagstjórnar og að hækk- un almennra taxtalauna fyrir dag- vinnu gegni lykilhlutverki og leiði nánast sjálfkrafa til endurmats á bótaíjárhæðum til atvinnulausra. Hærri dagvinnulaun dragi úr til- hneigingu vinnuveitenda til að kaupa yfirvinnu og leiði þannig til fjölgunar starfa. Bandalagið leggur einnig áhersiu á að aukið tillit verði tekið til fjár- festinga einstaklinga í fagþekk- ingu, þannig að hún glatist ekki í tímabundnu atvinnuleysi heldur verði fremur efld til að takast á við atvinnutækifæri síðar þegar rofar til. Réttur til bóta verði rýmkaður Miðstjórnin leggur m.a. til að réttur til atvinnuleysisbóta verði rýmkaður, réttur atvinnulausra til að hafna vinnu í óskyldri faggrein verði aukinn, skerðingarákvæði vegna fyrri launatekna verði rýmk- uð eða felld niður og biðtími eftir bótarétti verði afnuminn. Einnig er lagt til að Alþingi beiti skattalögum á virkan hátt til að skapa fleiri atvinnutækifæri. „Skil- virkasta leiðin í þessum efnum er að beita fjármagns- og launasköttum. Til viðbótar má hugsa sér verulega aukinn persónuafslátt ásamt stig- hækkandi tekjuskatti i sama skyni,“ segir í tillögum bandalagsins. Morgunblaðið/Árni Sæberg ÞORSTEINN Yngvi Bjarnason, formaður Leoklúbbsins Perlu, og Björk Guðmundsdóttir söngkona halda á viðurkenningar- skildi Lions-hreyfingarinnar á milli sin. Björk sæmd æðstu viðurkenn- ingu Lions- klúbbsins Perlu LIONSKLÚBBURINN Perlan, sem skipaður er ungu fólki í Lionshreyfingunni, heiðraði söngkonuna Björk Guðmunds- dóttur nýlega sem Melvin Jones félaga. Um æðstu viðurkenn- ingu Lions-hreyfingarinnar er að ræða. Arna María Geirsdóttir, blaðafulltrúi klúbbsins, segir að valið byggist á frábærri frammistöðu Bjarkar og hún sé glæsilegur fulltrúi íslands á erlendum vettvangi. „Að gera einhvern að Melvin Jones fé- laga er æðsta viðurkenning Li- ons-hreyfingarinnar. Þeir sem hljóta þann heiður hafa látið gott af sér leiða fyrir samfélag- ið. Aðeins fjórir aðilar utan Lionshreyfingarinnar hafa hlotið þennan heiður, þar á meðal forseti íslands, frú Vig- dís Finnbogadóttir,“ segir Arna. Forseti ASÍ um GATT Landbúnað- urinn fái sinn aðlög- unartíma BENEDIKT Davíðsson, forseti Alþýðusambands íslands, segir að launþegahreyfíngin leggi áherzlu á að við lagasetningu um innflutning landbúnaðarvara í framhaldi af fullgildingu GATT- samkomulagsins fái landbúnað- urinn sinn aðlögunartíma. Hins vegar beri að nýta þann tíma til að takast á við samkeppni. Benedikt segir að vissulega gæti kjarabót verið í því fólgin að tollar yrðu fljótlega lækkaðir á innfiuttum landbúnaðarvör- um. „Við viljum líta á málið í heild. Það eru vissar hættur fólgnar í því að mjög snögg breyting leiði til kerfisbreyting- ar hér innanlands, sem drægi úr kaupgetunni og allt færi í rúst í fyrirtækjum í landinu. Hann segir skynsamlegast að fara eftir hinum almennu regl- um GATT-samkomulagsins um aðlögunartíma, sem væru settar vegna þess að í mörgum öðrum löndum væri talin þörf á löngum aðlögunartíma. 01Q7H LARUSÞ'VALDIMARSSON, framkvæmdastjori L I I wvL I v / V KRISTJAN KRISTJÁNSSON. loggiltur fasteignasali Nýjar eignir á söluskrá - einkasala: Ný endurbyggt - útsýni - gott verð Hljóðritanir með verkum Jóns Leifs Beðið eftir meiri Miðsvæðis við Digranesveg Kóp. mjög gott einb. alls 139,5 fm með 5 herb. íb. á hæð og í kj. Ræktuð lóð 988 fm, há tré. Mikið útsýni. Suðurendi - sérþvottahús - bílskúr Sólrík 4ra herb. mjög góð íb. á 2. hæð við Hraunbæ. Mikið útsýni. Ágæt sameign. Laus 1. febrúar. Skammt frá Menntask. við Hamrahlíð 4ra herb. neðri hæð 108 fm. Sérinng., sérhiti. Góður bílsk. um 30 fm. Skipti mögul. á góðri 3ja herb. íb. á 1. hæð í Hafnarfirði. Skammt frá Háskólanum Endurbyggt lítið einb. með 3ja herb. íb. á hæð og í risi. Laust 1. júlí nk. 40 ára húsnl. um kr. 2 miilj. Teikn. á skrifst. Á söluskrá óskast: Góð 2ja-3ja herb. íb. við Dalbraut fyrir aldraða. 2ja herb. íb. á 1. hæð í Laugarneshverfi. Einbýlish. eða raðh. á einni hæð í borginni eða nágrenni. 3ja-5 herb. íbúðir einkum í vesturborginni, ígamla bænum og í Hlíðum. Margskonar eignaskipti. Gott verð fyrir rétta eign. • • • Auglýsum að jafnaði á 10. eða 11. síðu Mbl. á þriðjudögum, miðvikudögum og oftast á laugardögum. ALMENNA FASTEIGMASAtAW LAUGAVEGt 18 SÍMAR 21150-21370 upplýsingum um málið OLAFUR G. Einarsson mennta- málaráðherra segist ekki geta svarað því hvort hann muni beita sér fyrir því að íslenska ríkið styrki kaup á fullkomnum leysibúnaði til að jiægt verði að hlusta á gamlar hljóðritanir með verkum eftir Jón Leifs fyrr en borist hafi ítarlegri upplýsingar um málið frá þýska Þjóðfræðisafninu. Hann telur hins vegar fullvíst að íslensk yfirvöld haldi uppi minningu tónskáldsins eins og vert sé. 80 til 100 milljóna króna kostnaður Hljóðritanirnar eru frá þriðja ára- tugnum og voru hluti af því her- fangi sem herafli Sovétríkjanna hafði á brott með sér frá Berlín í lok seinni heimsstyrjaldarinnar. Þær fundust við sameiningu þýsku ríkjanna og eru nú geymdar í þýska Þjóðfræðisafninu. Ekki þykir varlegt að hlusta á upptökumar án fullkomins leysibún- aðar og er hann talinn kosta á bilinu 80 til 100 milljónir. Ólafur G. Einars- son menntamálaráðherra sagði að frétt Morgunblaðsins á föstudag væm einu upplýsingamar sem hann hefði fengið um hljóðritanimar og hann gæti ekki svarað því hvort til greina kæmi að styrkja tækjakaupin íyrr en honum hefðu borist ítarlegri upplýsingar um málið. „Eg bíð eftir að heyra meira en aðeins frá Morgunblaðinu hvað hér er á ferðinni. Hingað hefur ekki borist erindi. Ég sé að starfsmaður Þjóðfræðisafnsins segist hafa sett sig í samband við íslendinga. En ég veit ekkert hverjir þeir eru. Ég efast ekki um að hér er um hið merkasta mál að ræða. En upp- hæðin er býsna há og meðan ég veit ekki hvernig menn hugsa sér að íjármagna svona mál treysti ég mér ekki til að segja af eða á um hvort ríkið komi þarna inni í,“ sagði Ólafur. Hann tók fram að hann mæti mikils að Þjóðverjar skyldu halda uppi minningu tónskáldsins með þeim hætti sem þeir hefði gert og íslensk stjórnvöld myndu eflaust halda uppi minning hans eins og vert væri. Líklegt er talið að hljóðritanirn- ar hafi að geyma lög við ljóð margra þekktustu skálda landsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.