Morgunblaðið - 03.01.1995, Blaðsíða 65
þegar foreldrar koma,
n við unglingana sínai
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1995 65
MORGUNBLAÐIÐ
UNGLINGAR
I mitmingunni er
æskan æðislegnr tími
!R
|ÚNAR Júlíusson er einn
af elstu og reyndustu
poppurum á landinu.
Hann var á árum áður bæði þekkt-
ur sem fótboltakappi og tónlistar-
maður, og eins og svo margir aðrir
þurfti hann að
velja á milli.
Hann segir okk-
ur frá því
| hvernig það var
4 að vera unglingur í Keflavík.
® Ef við erum að tala um tímann
| frá fermingu og fram að bílprófi
þá er auðvelt fyrir mig að segja
hvað ég var að gera, ég var í fót-
bolta og í tónlist, það voru aðal-
áhugamálin mín. Það má segja að
íþróttirnar hafi komið fyrst, það er
að segja fótboltinn, en svo var ég
í þessu jöfnum höndum. Ég náði
þeim árangri í fótboltanum að verða
Islandsmeistari nokkrum sinnum,
nieðal annars sem unglingur. Ég
held að ég fari rétt með það þegar
ég segi að fjórði flokkur ÍBK hafi
verið fyrstu íslandsmeistararnir
sem Keflvíkingar eignuðust í knatt-
spyrnu. Við vorum saman í liðinu
ég og Gunni Þórðar og vorum á
toppnum þar saman. Þegar ég var
um tvítugt þurfti ég að velja á milli
þess að vera í fótboltanum eða í
Hljómum og svo var ég að byggja
y líka og ég gat hreinlega ekki verið
STJÖRNU! R G
s m-\ms ÍCAR
í öllu. Ég varð að fóma einhveiju
og það var boltinn sem fór, ég lagði
skóna semsagt á hilluna mjög ung-
ur, á þeim aldri þegar allir eru að
byija. Ef ég hefði fengið einhver
atvinnumannatilboð er aldrei að vita
hvað hefði
gerst, en ég
fékk engin svo
ég þurfti ekki
að pæla í því.
Ég var líka ágætur í skóla, í A-
bekk allan tímann hjá Guðlaugu á
Framnesi, svo ég hefði getað geng-
ið menntaveginn líka hefði ég
kosið það.
Fyrsta
uppákoman í
músíkinni var
þegar ég var 14-15
ára. Ég kom
fram sem söngvari
og söng Prest-
ley lag,
„That’s
all
rigth
mama“.
Mamma var nefnilega alltaf
á móti því að ég færi í músík-
ina, hún vildi að ég gengi
menntaveginn. Hún var allan
tímann á móti því og var alltaf
Hugsar ekki
um annað en
körfubolta
Nafn: Rannveig Krist-
ín Randversdóttir.
Heima: Njarðvík.
Aldur: 14 ára.
Skóli: Grunnskóli
Njarðvíkur.
Finnst þér að skól-
inn geti verið betri
en hann er?
Ég veit það ekki, mér
finnst hann góður eins
og hann er, matarað-
staðan í skólanum
héma hefur skánað
mikið, núna getum við
keypt okkur samlokur
og kleinuhringi í skól-
anum.
Hveiju vilt þú
breyta í þjóðfélaginu?
Atvinnuleysinu, losa okkur við
það, sumir eru að missa allt sitt
út af því.
Er til unglingavandamál?
Já, eitthvað. Drykkja, reykingar
°g svoleiðis flokkast sjálfsagt
undir unglingavandamál.
Er til foreldravandamá
Já,
frar
eins og þeir séu börn
Hvernig er fyr-
irmyndarungli
ngur?
Er hann ekki bara
eins og foreldram-
’r vilja að hann sé,
kemur heim á réttum tíma,
reykir ekki drekkur ekki, læra
heima og eru til fyrirmyndar. -
Hvernig eru fyrirmyndarfor-
eldrar?
Hvað á ég að segja ... þeir sem
eru ekki of góðir og ekki heldur
of strangir og lilusta á börnin sín
og taka mark á þeim. Það eru
fyrirmyndarforeldrar og góðir
vinir manns.
Hvað vilt þú ráðleggja þeim
sem umgangast unglinga?
Hlusta á unglingana það getur
komið margt gáfulegt upp úr
þeim, unglingar eru ekki öðruvísi
en annað fólk. Ekki dæma þá
eftir útlitinu.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir?
Spila körfubolta.
er það leiðin-
sem þú gerir?
heima.
Hvað ætlar þú að verða
þú verður stór?
ekki búin að plana
neitt, mig langar bara að
halda áfram að spila körfu-
bolta, það er það eina sem ég
hugsa um. Það er númer eitt,
tvö og þijú hjá mér.
Hver myndir þú vilja vera ef
þú værir ekki þú?
Einhver fræg körfuboltastjarna
eða poppstjarna.
Hver er munurinn á hnífapör-
um og stígvélum?
Maður getur gengið í stígvélunum
en ekki hnífapörunum.
að tala um að það væri ekki of
seint að fara að læra. Hún talaði
um það allt til dauðadags að fyrst
ég gæti lært þá ætti ég að gera
það, en ég sé ekki eftir þvi að hafa
valið tónlistina.
Ég man bara eftir æskunni í ein-
hveijum ljóma, maður hafi alltaf
nóg að gera og hafði gaman
af öllu og leiddist aldrei. Þetta
var auðvitað löngu fyrir sjón-
varp, þannig að maður
þurfti
að búa
sér til
ein-
hveija
viðveru,
hafa eitt-
hvað fyrir
stafni sjálfur
en ekki vera
mataður.
Kana-
sjón-
varp
var
komið, en það var
ekki til sjónvarpstæki á
mínu heimili, það voru ein-
staka tónlistarþættir sem mig
langaði að horfa á og ég fór
til frænda rníns til að sjá þá.
Það var æðislegt að vera ungl-
ingur í Keflavík, maður byijaði
strax að vinna tólf, þrettán ára til
að fá peninga, mamma sá svo um
að leggja fyrir, eins og sagt er.
Bróðir mömmu átti Keflavík hf.
frystihúsið og ég fékk vinnu hjá
honum á sumrin og í jólafríinu, svo
lék maður sér og var að byija að
vera músíkant og æfði fótbolta, svo
það var miklu meira en nóg að
gera.
Við vorum alltaf miklir vinir, ég,
Gunni Þórðar og Karl Hermanns-
son, vinskapurinn hófst í fótboltan-
um og svo færðist áhuginn út í
tónlistina. Við fórum eitthvað að
fikta við músíkina og Gunnar fór í
hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar
og var í henni í eitt, tvö ár en svo
ákvað hann að söðla um og stofna
hljómsveit með jafnöldrum. Ég fór
í bæinn og keypti mér bassa og
þrem vikum síðar vorum við byijað-
ir að spila. Þar með var ég kominn
í bassaleikarahlutverkið og það var
ekki aftur snúið. Hljómar urðu strax
mjög vinsæl hljómsveit og mikið
að gera, það má eiginlega segja að
við höfum farið beint á toppinn.
Ef unglingar ætla að drekka
áfengi eiga þeir að gera það vel og
hóflega, það er svo ljótt að sjá illa
drukkið fólk, sama á hvaða aldri
það er. Helst ekki að reykja og
hafa húmorinn í lagi. Elska föður
sinn og móður og þá verður lífið
dásamlegt.
mwtfki
7-vikna
fyrir karimenn
sem vilja komast
í topp form
■ Tækjaþjálfun
og tröppuþrek
3-5x í viku
■ Fitumælingar og
viktun
■ Vinningar í hverri
viku
3 heppnir og
samviskusamir fá 3ja
mán. kort í lokin.
■ Framhaldshópur
Láttu skrá þig á þetta
frábæra og
árangursríka
námskeið.
Burt með aukakílóin
fyrir fullt og allt!
AGUSTU OG HRAFNS
SKEIFAN 7 108 REYKJAVÍK S. 689868
c.