Morgunblaðið - 28.01.1995, Side 18
18 LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Klaufaskapur lækna
Lincoln að aldurtila
Boston. Morgunblaðið.
ABRAHAM Linc-
oln Bandaríkjafor-
seti hefði hæglega
getað náð sér eftir
morðtilræði Johns
Wilkes Booths ef
ekki hefði komið
til klunnaskapur
lækna, segir
grein, sem birtist í
marshefti tímarits-
ins American He-
ritage. Þar segir
að hægt hefði ver-
ið að bjarga þrem-
ur af fjórum for-
setum Bandaríkj-
anna, sem hafa
verið myrtir. Að-
eins John F.
Kennedy hafi hlot-
ið banvæn sár.
Kúlan úr byssu
Booths hitti ekki
af miklu afli og
sárið af hennar völdum var
„talsvert, en ekki banvænt",
skrifar Richard A. R. Fraser,
prófessor í skurðlækningum
við Cornell-háskóla í New
York. „Margir hafa lifað af
sár, sem veitt voru með meira
afli.“
Lincoln var skotinn í höfuð-
ið í leikhúsi klukkan hálfell-
efu 14. apríl 1865. Níu klukku-
stundum síðar var hann allur.
„Á meðan gerðu læknar
sennilega meira ógagn en
gagn,“ sagði Fraser. Einkum
bar skoðun á sárum forsetans
vangá vitni.
Hróplegt
þekkingarleysi
Að sögn Frasers sýndi
læknirinn, sem fyrstur kom
að Lincoln, algert skilnings-
Ieysi á læknavísindunum.
Hann byijaði á því að stinga
litla fingri inn í höfuðsár for-
setans. „Þegar hann dró fing-
urinn út streymdi
fram blóð,“ sagði í
læknaskýrslu.
Fraser er þeirrar
hyggju að læknir-
inn „hefði auðveld-
lega getað sprengt
æðar, sem kúlan
skaddaði ekki“.
Blæðingin beri
nýju sári vitni og
hafi aukið þrýsting
á heilann.
Ekki batnaði það
þegar Lincoln
komst undir hend-
ur fjölskyldulæknis
síns og annarra
lækna, sem voru
kvaddir til. Þeir
reyndu að finna
kúluna með postul-
ínspijóni og sagði
Fraser að „þeir
hefðu hæglega get-
að valdið meiri skaða. Nú
myndi kúlan vera látin eiga
sig, nema auðvelt væri að
komast að henni“.
Ekki hægt að bjarga
Kennedy
Fraser sagði að aðeins John
F. Kennedy hefði verið særð-
ur slíkum sárum að útilokað
hefði verið fyrir lækna að
bjarga lífi hans. Bæði James
Garfield og William McKinley
hefðu fengið lélega aðhlynn-
ingu eftir að vera skotnir og
það hefði „sennilega átt meiri
þátt í dauða þeirra, en sárin
sjálf“.
Að sögn Frasers dóu báðir
af sýkingu, Garfield eftir að
læknar hans stungu berum
fingrum sínum fjórtán sinn-
um í sár hans, en McKinley
eftir skurðaðgerð, sem óhæf-
ur læknir gerði í óupplýstu
og illa búnu sjúkrahúsi.
Abraham Lincoln
Reuter
Húsleit í íslömskum háskóla
ÍSRAELSKIR hermenn réðust í
gær inn í íslamskan háskóla i
Abu Dis á Vesturbakkanum,
handtóku stúdenta og gerðu hús-
leit í herbergjum nemenda. Er
þetta liður í aðgerðum gegn heit-
trúarmönnum, sem staðið hafa
fyrir sprengjuárásum í ísrael.
Var leitað að sprengiefnum og
vopnum. Ekki fékkst uppgefið
hversu margir hefðu verið hand-
teknir. Vaxandi þrýstingur hefur
verið á ísraelsk sljórnvöld að
grípa til aðgerða til að koma í
veg fyrir frekari hermdarverk.
Tuttugu létu lífið í sprengjutil-
ræði um síðustu helgi. Á mynd-
inni má sjá tvær palestínskar
stúlkur silja á pokum með eigum
sínum eftir húsleit ísraelska
hersins.
Karli er kennt um
Lundúnum. Reuter.
BRESKIR konungssinnar telja Karl
Bretaprins bera ábyrgð á sambúð-
arslitum hans og Díönu og þeim
vandræðum sem konungdæmið á
nú við að etja. Kemur þetta fram í
skoðanakönnun meðal lesenda tíma-
ritsins Majesty, sem birt var í gær.
íjórir af hveijum fimm lesendum
tímaritsins telja nauðsynlegt að
skera niður hjá hirðinni og fækka
höllum um eina eða tvær ef konung-
dæmið eigi að lifa fram á næstu
öld. Þá segjast 65% þeirra 2.000
lesenda, sem svöruðu spurningum
tímaritsins, telja að Karl beri
ábyrgð á hjónabandserfíðleikum
hans og Díönu. Hann var einnig sá
meðlimur konungsfjölskyldunnar
sem talinn var hafa valdið henni
mestum skaða.
Eftir sem áður töldu þó 61% að
hann ætti að taka við af Elísabetu
móður sinni jafnvel þó að hann
myndi skilja við Díönu. Hann gæti
þó ekki gifst Camillu Parker-Bow-
les að mati 55% lesenda ef hann
ætlaði sér að verða konungur.
Tveir þriðju þeirra, sem þátt tóku
í könnuninni, sögðust hafa gaman
af því að lesa fréttir af konungsfjöl-
skyldunni í blöðum og einnig virðist
sem vandamál undanfarinna ára
hafi ekki dregið úr vinsældum El-
ísabetar Bretadrottningar. Á eftir
henni í vinsældum kemur Díana
prinsessa og hún er einnig sögðu
vera í bestum tengslum við almenn-
ing.
Vitnaleiðslum í máli Giulio Andreottis frestað í þriðja skipti
Segist vera saklaust fórnarlamb
vinstrisinnaðra saksóknara
Róm. The Daily Telegraph, Reuter.
VITNALEIÐSLUR i máli Guilio
Andreottis, sem sjö sinnum var for-
sætisráðherra Ítalíu, hófust að nýju
í Palermo á Sikiley í gær, en hann
er sakaður um að hafa verið hátt-
settur félagi í mafíunni. Á dómstóll-
inn að taka afstöðu til þeirra ásak-
ana og ákveða hvort Andreotti verði
kærður. Saksóknarar telja að hann
hafi verið álíka háttsettur og mafíu-
foringinn Toto Riina. Vitnaleiðslun-
um var frestað hálfri klukkustund
eftir að þær hófust, að beiðni veij-
enda Andreottis, sem telja sig þurfa
meiri tíma til að fara yfir gögn.
Þeim verður framhaldið þann 17.
febrúar. Er þetta í þriðja skiptið sem
málinu er frestað af þessari ástæðu.
í viðtali við blaðið The Daily Telegraph vísar
Andreotti öllum ásökunum á bug og segir ákafa
vinstrisinnaða saksóknara hafa ákveðið að gera
sig að blóraböggli fyrir allt það er fór úrskeiðis
á þeim 50 árum sem kristilegir demókratar fóru
með völd á Ítalíu.
Riina og Andreotti
Rannsóknardómarar á Sikiley hafa rannsakað
mál Andreottis undanfarin tvö ár. í fyrstu héldu
þeir því fram að hann hefði haft tengsl við
mafíuna en nú er hann sakaður um að hafa
verið félagi í henni. Telja sönnunargögnin gegn
honum 88 þúsund blaðsíður.
Saksóknarar segja að Andreotti og Riina, sem
nú situr í fangelsi, hafi verið „eitt
og hið sama“. Rannsókn stendur
einnig yfir á morðinu á blaðamann-
inum Mino Pecorelli árið 1979, sem
hafði góð tengsl við ítölsku leyni-
þjónustuna. Er talið að Pecorelli
hafi ætlað að fletta ofan af Andre-
otti.
Odoardo Ascari, lögmaður
Andreottis, segir skjólstæðing sinn
vera saklausan. „Niðurstaða mín er
þessi: Þar sem enginn glæpur hefur
verið framinn, reyna þeir að finna
sökudólg, rétt eins og í réttarhöldum
Kafka ... Það er pólitík- á bak við
þetta allt saman,“ segir Ascari, sem
er með virtustu lögmönnum Ítalíu.
Að mati saksóknaranna var
Andreotti helsti verndari mafíunnar í Róm á
árunum 1978-1992. í staðinn fyrir að hafa áhrif
á réttarböld í málum mafíuforingja gerði mafían
honurn greiða á móti, m.a. myrti hún fyrir hann,
að sögn saksóknara.
„Mér finnst sem ég sé hálf vamarlaus í félags-
skap þessara heiðursmanna,“ sagði Andreotti í
viðtali við blaðið La Stampa. „Einn þeirra er
með tuttugu morð á samviskunni og annar tíu.
Samt hafa orð þeirra nægt til að gera mig að
mafíufélaga."
Þáttur Lima
Rannsóknin hófst eftir að uppljóstrarar, sem
báru vitni við rannsókn á morðinu á stjórnmála-
manninum Salvo Lima, sökuðu Andreotti um
að hafa verið í tengslum við mafíuna. Lima var
borgarstjóri Palermo og náinn vinur Andreottis
um árabil. Var niðurstaða réttarhaldanna sú
að hann hefði séð um að bera skilaboð milli
Rómar og mafíunnar og verið myrtur eftir að
hann gat ekki lengur staðið við loforð sín gagn-
vart mafíunni. Uppljóstrarar sögðu að hann
hefði lofað því að lífstíðardómum í málum 19
mafíuforingja yrði hnekkt, en ekki getað staðið
við það.
í öðrum réttarhöldum báru sautján fyrrum
félagar í mafíunni vitni gegn Andreotti. Hann
heldur því þó ennþá fram að vinur hans Lima
hafi verið hafður fyrir rangri sök.
Fékk sér lúr
Einn uppljóstrari segist hafa orðið vitni að
fundi Andreottis og Riina á Sikiley árið 1987.
Sagði hann þá hafa faðmað og kysst hvorn
annan að mafíusið. Saksóknarar segja Andre-
otti hafa gefið lífvörðum sínum frí í fimm klukku-
stundir til að geta átt fund með Riina.
Sjálfur heldur hann því fram að hann hafi
veitt þeim frí vegna þess að hann ákvað að taka
sér lúr á hótelherberginu.
Andreotti segir rannsóknardómara hafa
stundað óheiðarleg vinnubrögð og ef þetta hefði
verið gert í máli einhvers annars manns hefði
hann staðið upp í öldungadeildinni og mótmælt
málsmeðferðinni. Hins vegar teldi hann ekki við
hæfi að hann gerði það í eigin máli.
Andreotti
Halli á
fjárlögum
bannaður
FULLTRÚADEILD Banda-
ríkjaþings samþykkti í fyrri-
nótt stjórnarskrárbreytingu
sem felur það í sér að ekki
verður lengur hægt að hafa
halla á fjárlögum. Tillagan var
samþykkt með 300 atkvæðum
gegn 132. Greiddu 72 þing-
menn demókrata henni at-
kvæði ásamt 228 repúblikun-
um.
Aukin þíða í
samskiptum
SAMKOMULAG hefur tekist
með bandarískum og ví-
etnömskum yfirvöldum um
bætur fyrir tugi bygginga í
Hanoi sem voru í eigu banda-
rískra yfirvalda. Samkomulag-
ið ryður úr vegi hindrunum
sem komið hafa í veg fyrir það
til þessa að ríkin tvö opnuðu
fulltrúaskrifstofur í hvoru
landi fyrir sig. Verða skrifstof-
urnar nokkurs konar sendiráð
að öllu leyti nema nafninu til.
Tapie tapar
enn
FRANSKI
stjórnmála-
maðurinn
Bernard
Tapie tapaði
í gær annarri
lotu í baráttu
sinni fyrir því
að geta hald-
ið áfram í
stjórnmálum.
Áfrýjunardómstóll í París
hafnaði þá beiðni Tapies um
að ógilda úrskurð viðskipta-
dómstóls um að hann væri
gjaldþrota og mætti þar af
leiðandi ekki gegna opinberum
embættum næstu fimm árin.
4% hagvöxtur
í Bandaríkj-
unum
HAGVÖXTUR varð meiri í
Bandaríkjunum á síðasta
fjórðungi ársins 1994 en hina
þijá fyrri. Nam vöxturinn 4,5%
á ársgrundvelli frá október til
áramóta og 4,0% allt árið.
Þessi mikli vöxtur hefur ýtt
undir verðbólgu og var því
búist við því að seðlabankinn
gripi til vaxtahækkana í þeim
tilgangi að halda aftur af hag-
vextinum.
Átök milli
Perú og
Ecuador
STJÓRNIN í Perú skýrði frá
því í gær að þyrla frá Ecuador
hefði ráðist á varðstöð við
landamæri ríkjanna nálægt
340 ferkílómetra frumskógar-
svæði sem ríkin hafa deilt um.
Talið er að á svæðinu sé mikið
af gulli. Fregnir frá Ecuador
hermdu að bardagar hefðu
blossað upp milli hermanna
ríkjanna í grennd við svæðið
en enginn hefði fallið. Emb-
ættismaður í Ecuador sagði
að stjórnarerindrekar hefðu
reynt að leysa landamæradeil-
una en án árangurs.
Tapie