Morgunblaðið - 29.01.1995, Side 1
80 SÍÐUR B/C
24. TBL. 83. ÁRG.
SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Þjófarnir
kvörtuðu
í lögreglu
London. The Daily Telegraph.
BRESKUR húseigandi hefur
verið beðinn um það af lög-
reglunni að draga úr þjófa-
vömum við húseign sína eftir
að kvartanir bárust frá inn-
brotsþjófum.
Þegar brotist hafði verið
inn hjá honum sjö sinnum
með stuttu millibili ákvað
maðurinn að grípa til rót-
tækra aðgerða og lét setja
upp rafmagnsvíra fyrir innan
tveggja metra háan vegg er
umlykur hús hans í bænum
Kirkby Woodhouse í Notting-
hamshire..
Nýja þjófavömin reyndist
vonum framar því tveir þjófar
er stokkið höfðu yfir vegginn
í síðustu viku flúðu eftir að
hafa gengið á vírana.
Voru í lífshættu
Þjófarnir reiddust mjög
þessu uppátæki húseigand-
ans og hringdu í lögreglu og
kvörtuðu. „Við krefjumst
þess að það verði gripið til
aðgerða gegn þessum bijál-
æðingi. Þetta hefði getað
drepið okkur,“ sögðu þjófarn-
ir er ekki sögðu rétt til nafns.
í kjölfarið heimsótti lög-
regla manninn og bað hann
um að veija hús sitt með
öðmm hætti. Hvorki lögregla
né bæjaryfirvöld geta bannað
manninum að setja upp raf-
magnsvíra en honum var bent
á að hann gæti átt yfir höfði
sér skaðabótamál í framtíð-
inni frá óboðnum gestum.
Dóttir Dengs Xiaopings dregur úr lýsingum á ástandi föður síns
Óvissa
um heilsu Dengs
Peklng. Reuter.
LI PENG, forsætisráðherra Kína, og Jiang Zem-
in, formaður Kommúnistaflokksins, heimsóttu í
gær Deng Xiaoping, valdamesta leiðtoga Kína,
til að færa honum heillaóskir en Kínveijar halda
nú upp á áramót. Mikil óvissa ríkir um heilsu
hins níræða leiðtoga og herma heimildir að hann
hafi tvívegis verið lagður inn á sjúkrahús á und-
anförnum vikum vegna hjartakvilla.
Kínverska fréttastofan Xinhua greindi frá
heimsókn Lis og Jiangs á heimili Dengs en
minntist ekki á heilsuástand hans. Sagði frétta-
stofan að Deng hefði látið í ljós ánægju með
„þær miklu framfarir“, sem átt hefðu sér stað
í landinu undir stjórn kommúnistaflokksins og
þær umbætur sem Jiang Zemin hefði stuðlað
að. Ekki var þó ljóst hvort Deng hefði gefið
út yfirlýsinguna sjálfur.
Gengur með aðstoð
Deng Rong, ein dætra Dengs Xiaopings, sagði
í viðtali við blaðið Weekend Australian, að heilsa
föður síns væri ekki eins slæm og haldið hefur
verið fram í fréttum að undanfömu. Vísaði hún
því á bug að Deng gæti hvorki staðið né gengið
lengur og að heilsu hans hrakaði daglega líkt
og haft var eftir henni í viðtali í New York Ti-
mes á dögunum.
Hið rétta væri að hann væri ekki eins heilsu-
hraustur og áður. Hún hefði einungis verið að
reyna að koma því til skila að Deng yrði eldri
með hveijum degi.
„Hann gengur ekki eins mikið og hann gerði
til skamms tíma. Samt sem áður gengur hann
um með aðstoð annarra. Hann neitar að nota
hjólastól," sagði Deng Ron, sem jafnframt er
ævisöguritari föður síns. Hún sagði að vissulega
kæmi að því að Deng myndi yfirgefa þennan
heim en þangað til styddi hann núverandi stjórn
Kína.
Blaðið New York Times stendur hins vegar
við fyrri frásögn sína og segir engan vafa leika
á því að rétt hafi verið haft eftir Deng Rong.
Neyðarástandi lýst
yfir í Ekvador
Quito. Reuter.
RÍKISSTJÓRN Ekvadors hefur lýst
yfir neyðarástandi í landinu eftir
að til átaka kom við landamærin
að Perú á föstudag.
' Ekvador og Perú hafa átt í lang-
vinnum landamæradeilum og hafa
herir ríkjanna verið í viðbragðs-
stöðu vikum saman. Síðast kom til
átaka 1981.
Sixto Duran Ballen, forseti
Ekvadors, ávarpaði þjóð sína í sjón-
varpi og hvatti fólk til að sýna still-
ingu. Með því að lýsa yfir neyðar-
ástandi öðlast hann aukin völd en
hann greindi ekki frá því til hvaða
aðgerða hann hygðist grípa. Varn-
armálaráðuneyti landsins sagði að
enginn hefði fallið í átökunum.
Stjórn Perú hefur boðað herútkall
og sent sveitir frá höfuðborginni
Lima til landamæraborgarinnar
Tumbes en þar áttu átökin sér stað.
RÍN flæddi yfir varnargarða í
borginni Köln í Þýskalandi að-
faranótt laugardagsins eftir
miklar rigningar og er gamli
miðbærinn nú undir vatni. Sig-
þór Einarsson, fréttaritari
Morgunblaðsins í Þýskalandi,
segir að vatnsborðið hafi lækkað
verulega þegar leið á daginn.
Einnig hafi ástandið batnað
verulega í suðurhluta Þýska-
lands. Hins vegar sé spáð áfram-
haldandi rigningu og því óttist
menn að flóðin muni færast í
aukana á ný og að Köln og fleiri
borgir verðir undir vatni fram-
eftir næstu viku. Fjöldi fólks
hafði safnast saman í Köln í
nótt og segir Sigþór að ákaft
Stórflóð
í Köln
hafi verið klappað er Rín flæddi
yfir varnargarðana. Mikið hafi
einnig verið að gera um nóttina
í þeim knæpum sem voru á
þurru en í mörgum búðum og
knæpum í miðborg Kölnar hafi
vatnsdýpt numið allt að tveimur
metrum. „Á mörgum stöðum
stendur einungis efsti hluti um-
ferðarskilta uppúr,“ sagði Sig-
þór. Einna mest eru flóðin í
Reuter
kringum borgina Koblenz en
talið er að um fimmtungur af
skipulögðu svæði borgarinnar
sé undir vatni. Að sögn Sigþórs
hafa margir orðið fyrir veru-
legu tjóni vegna flóðanna þar
sem fólk sé yfirleitt ekki tryggt
fyrir tjónum af þessu tagi og
hyóti lítinn sem engan opinber-
an stuðning. Margir hafi rétt
verið búnir að ljúka við að
greiða fyrir þær skemmdir, sem
urðu í flóðunum í desember
1993. Mikið er nú rætt um það
í Þýskalandi hvernig koma megi
í veg fyrir flóð í framtíðinni og
meðal annars hefur komið til
tals að reisa stíflur og varnar-
garða við árnar Saar og Mosel.
Eldhugi/14
VIÐSKU’rijaVINNUUF
Á SUNNUDEGI
20
Þurfum að
endurmeta
reksturinn