Morgunblaðið - 16.02.1995, Page 1
80 SÍÐUR B/C/D
39. TBL. 83. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Willy
Claes
víttur
Brussel. Reuter.
WILLY Claes, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins (NATO),
hefur sætt harðri gagnrýni nokk-
urra NATO-ríkja vegna ummæla
hans þess efnis að Vesturlöndum
stafaði jafn mikil ógn af íslömskum
bókstafstrúarmönnum og kommún-
ismanum á sínum tíma.
Heimildarmenn í Brussel segja
að sendiherrar Frakklands, Spánar,
Grikklands og Bretlands hafí látið
í ljós óánægju með ummælin á fundi
í Brussel í síðustu viku. Þeir hefðu
látið í ljós áhyggjur af því að Claes
kynni að hafa skaðað áform NATO
um að hefja viðræður við Norður-
Afríkuríki um öryggismál þessa
heimshluta, hann hefði búið til
„múslimagrýlu".
Ógn af múslimum
Claes lét svo um mælt í viðtali
við þýska dagblaðið Siiddeutsche
Zeitung að íslamskir bókstafstrúar-
menn væru að minnsta kosti jafn
mikil ógn og kommúnistaríkin á
sínum tíma. Hann hefur síðan mild-
að tóninn í viðtölum við bresk og
belgísk dagblöð, sleppt samanburð-
inum við kommúnismann en áréttað
að bandalaginu stafaði mikil ógn
af herskáum múslimum.
Reuter
Upp úr sauð í Dublin
EFASEMDIR komu fram í gær-
kvöldi um að Englendingar gætu
sinnt hlutverki gestgjafa loka-
keppni Evrópumeistaramótsins í
knattspyrnu á næsta ári vegna
skrílsláta enskra knattspyrnu-
bullna á landsleik íra og Englend-
inga í Dublin í gærkvöldi. Meðal
þeirra sem hvöttu til þess að enska
knattspyrnusambandið afsalaði
sér mótinu var Alan Mullery fyrr-
verandi landsliðsfyrirliði. Dómari
flautaði leikinn af eftir 27 mínútur
er enskir stúkugestir létu drasli
rigna yfir írska áhorfendur. Hópi
nýnasista var kennt um ólætin.
Upp úr sauð er írar skoruðu mark
eftir 20 mínútna leik. Til mikilla
átaka kom. Á stóru myndinni láta
þrír Englendingar höggin dynja á
írskum áhorfanda. Á efri mynd-
inni fleygir ein builan bekkjarbaki
út yfir leikvanginn úr efri stúku.
Má sjá nýnasistamerki á enskum
fána. Á minnstu myndinni er gert
að sárum írsks knattspyrnugests.
Atvikið á sér stað á sama tíma og
sambúð írskra og breskra yfir-
valda hefur batnað. Við upphaf
leiksins var enski þjóðsöngurinn
t.a.m. leikinn í Dublin í fyrsta sinn
í aldarfjórðung.
■ Martröð í Dublin/Dl
Samið um vopna-
hlé í Tsjetsjníju
Moskvu. Reuter.
HERSVEITIR Rússa og Tsjetsjena
sömdu í gær um vopnahlé sem á að
gilda í tvo sólarhringa.
Yfírmenn herja Rússa og Tsjetsj-
ena komu saman í Ingúshetíu, ná-
grannahéraði Tsjetsjníju, og tilkynntu
að vopnahlé, sem næði til allra vopna,
tæki gildi kl. 21 í gær að íslenskum
tíma. Frekari viðræður hæfust síðan
að nýju á morgun, föstudag.
Fréttastofan Interfax sagði að
einnig hefði náðst samkomulag um
að hersveitirnar myndu skiptast á
látnum og særðum hermönnum.
Borís Jeltsín, forseti Rússlands,
flytur í dag stefnuræðu sína á rúss-
neska þinginu og búist er við að
hann reyni að gera hlut sinn í mistök-
um rússneska hersins í Tsjetsjníju
sem minnstan.
■ Erum ekki að reyna/18
Bönnum
á Serbíu
aflétt?
Sarjyevo. Reuter.
STORVELDIN eru reiðubúin að
bjóða Júgóslavíu, þ.e. sambands-
ríki Serbíu og Svartfjallalands, að
aflétt verði viðskiptabanni á ríkið
gegn því að það taki upp stjóm-
málatengsl við Króatíu og Bosníu.
Heimildarmenn í París sögðu í gær
að tillaga þessa efnis yrði lögð
fyrir Slobodan Milosevic Serbíufor-
seta í vikunni.
Taki Milosevic boðinu verður
það reiðarslag fyrir þjóðbræður
Serba í Bosníu sem neita að sam-
þykkja friðartillögur fimmveld-
anna, Bandaríkjanna, Bretlands,
Frakklands, Rússlands og Þýska-
lands. Sama er að segja um Serba
í Króatíu sem berjast gegn stjórn-
inni í Zagreb.
Ákalla Milosevic
Báðir hópamir hafa að undan-
fömu hvatt Milosevic til að slaka
ekki til í þessum málum. Einnig
hafa þeir sárbænt þjóðbræður sína
í Belgrad um að aflétta viðskipta-
banni sem Milosevic setti á Bosníu-
Serba og Króatíu-Serba gegn því
að fá viðskiptaþvingunum Samein-
uðu þjóðanna aflétt að hluta.
------»-♦ ♦-----
Kím sást
hvergi
Tókýó. Daily Telegraph.
KIM Jong-il sást hvergi við mikil
hátíðahöld í Norður-Kóreu í gær í
tilefni 53 ára afmælis hans, sem er
í dag.
Þetta varð til þess að stjómmála-
skýrendur veltu því fýrir sér hvort
hann væri raunverulega við völd í
ríkinu rammlokaða. Enn hefur Kim
hvorki verið útnefndur forseti Norð-
ur-Kóreu né formaður kommúnista-
flokksins. Skýringin kann að vera
sú, að opinberri þjóðarsorg vegna
andláts föður hans Kims Il-sungs, í
fýrrasumar, hefur ekki verið aflétt.
Blóðnasir
frá Bush
Indian Wells. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
og forverar hans Gerald Ford
og George Bush tóku þátt til
gamans í Bob Hope-golfmótinu
í Kalifomíu í gær. Viðvanings-
bragur var á leik þeirra og
áhorfendur í stórhættu er þeir
slógu teigskot sín.
Voru þeir berskjaldaðir og
komust ekki í skjól fýrir högg-
um forsetanna sem fóru allt
annað en í rétta átt. Kúla
Bush hrökk af tré í andlit konu
sem hlaut fossandi blóðnasir.
Clinton reyndist skástur þeirra
og kom kúlunni í holuna á sjö
höggum eða þremur yfír pari.
Tímamótasátt um N-Irland
Belfast. Reuter.
BRESK og írsk stjórnvöld era að leggja síð-
ustu hönd á rammasamkomulag um Norður-
írland eftir margra mánaða viðræður. Búist
er við, að það verði kynnt á leiðtogafundi ríkj-
anna innan skamms en meginefni þess verður
líklega stóraukinn samgangur og samvinna
milli írsku ríkjanna.
Sir Patrick Mayhew, Norður-írlandsmála-
ráðherra í bresku stjórninni, og Dick Spring,
utanríkisráðherra írlands, skýrðu frá árangri
viðræðnanna í gær og létu að því liggja, að
boðað yrði til leiðtogafundar ríkjanna innan
skamms.
Mótmælendur uggandi
Mótmælendur á Norður-írlandi óttast, að
með samkomulaginu sé verið að færa lands-
hlutann undir írland en Spring skoraði á þá í
Búist við leiðtoga-
fundi Breta og Ira
innan skamms
gær að bíða með að fordæma það þar til það
hefði verið kynnt formlega.
Bresk og írsk stjórnvöld hafa marglýst yfir,
að engin breyting verði á Norður-írlandi nema
með samþykki allra aðila og í tilkynningu
þeirra nú sagði, að samkomulagið væri fyrst
og fremst hugsað sem viðræðugrundvöllur. Það
gerir þó ráð fyrir, að komið verði á fót sérstök-
um stofnunum til að auka efnahagsleg sam-
skipti írsku ríkjanna og ennfremur, að landa-
mærin milli þeirra verði í raun lögð niður.
Breska stjórnin hefur átt í könnunarviðræð-
um við Sinn Fein, pólitískan arm IRA, írska
lýðveldishersins, og nokkra hópa mótmælenda
en stefnt er að viðræðum allra flokka um fram-
tíð Norður-írlands. Helstu frammámenn í röð-
um mótmælenda hafa hins vegar hótað að
taka engan þátt í þeim.
Einstakt tækifæri
Fordæmdu þeir rammasamkomulagið, sem
enn hvílir mikil leynd yfir, og sögðust óttast
að það drægi verulega úr breskum yfirráðum,
sem er eitur í beinum 60% Norður-íra.
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, hvatti sam-
bandssinna í gær til þess að hundsa ekki fyrir-
hugaðar viðræður því þá kynnu Norður-írar
að missa af einstöku tækifæri til þess að binda
endi á 25 ára átök.