Morgunblaðið - 16.02.1995, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 16.02.1995, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ KENNARASAMNINGAR Kennarar héldu fjölmennan baráttufund í Bíóborginni í gærkvöldi Kröfum tekið með léttúð og stráksskap Hvert sæti var skipað á baráttufundi kenn- ara í Bíóborginni í gærkvöldi, rúmum sólar- hring áður en boðað verkfall kennara átti að koma til framkvæmda. Fjölmargir þurftu að standa í anddyri og hlýða á boðskap formanna kennarafélaganna. Mikil samstaða var meðal fundar- manna sem lýsti sér meðal annars í því að eftir ræður formannanna kvað við langvinnt lófatak og þeir voru hylltir með því að fundarmenn stóðu á fætur. Fjölmargar stuðningsyfir- lýsingar bárust fundinum frá stéttar- félögum víða um landið. Eiríkur Jónsson formaður Kenna- rasambands íslands las upp ályktun fundarins þar sem sagði m.a. að kennarar krefðust þess að ríkið gengi til samninga við kennarasamtökin í stað þess að afgreiða kröfur þeirra með léttúð og strákslegum yfirlýs- ingum. „Það er á valdi ríkisstjómar- innar að koma í veg fýrir að skóla- starf í landinu leggist af. Fundurinn krefst þess að staðið verði við marg- gefnar yfírlýsingar og fyrirheit ráða- manna um að bæta kjör kennara." Eiríkur Jónsson formaður Kenna- rasambands Íslands sagði að árangur í kjarabaráttu undanfarinna ára væri í flestum tilfellum slakur. Athyglis- vert væri að í hvert sinn sem umræð- ur hefðu farið af stað um kjarabætur til láglaunafólks hefðu ríkisstjóm og vinnuveitendur tekið höndum saman og rekið gegndarlausan áróður gegn öllum slíkum hugmyndum. „Það er umhugsunarefni að þeir einstakling- ar sem harðastan áróður reka gegn almennu launafólki skuli vera þeir sem sjálfír hafa laun sem eru hundr- uðum þúsunda króna hærri á mán- uði en laun venjulegs launafólks," sagði Eiríkur. Gálgahúmor fjármálaráðherra Hann sagði að kennarar sættu sig ekki við það lengur að vera annars flokks þjóðfélagsþegnar. Kennarar krefðust þess að ráðamenn létu af þeim leikaraskap sem þeir hafí ástundað á síðustu misserum. Sá sið- ur ráðamanna að slá um sig með orðskrúði á tyllidögum en standa síð- an ekki við gefín fyrirheit væri óþol- andi. „Það hlýtur að vera krafa allr- ar þjóðarinnar að mark sé takandi á yfírlýsingum ráðherra, líka þeim sem gefnar eru um mikilvægi skólastarfs og nauðsyn þess að bæta starfskjör þeirra sem í skólunum starfa,“ sagði Eiríkur. Hann sagði að ráðamenn hefðu haldið því fram að breytingar á vinnutíma kennara myndu leiða af sér verulegar launahækkanir. Kenn- arar hefðu fengið það staðfest að um sjónhverfingar hefði verið að ræða, aldrei hefði staðið til að standa við yfírlýsingar af þessu tagi. „Skila- boð mín til stjómvalda eru skýr. Hættið þessum sandkassaleik. Kenn- arar láta ekki glepjast af svona brögðum, við látum ekki plata okk- ur,“ sagði Eiríkur. „Sjoppunni“ lokað Hann sagði það eina af meginkröf- um kennarafélaganna að hækka grunnlaun og lækka kennsluskyldu. Báðum kröfunum hefði verið hafnað og samninganefnd ríkisins bent kennurum á að greiða grunnlauns- hækkanir sínar sjálfír með því að taka „peninga úr yfirvinnuvasanum og flytja þá yfir í dagvinnuvasann". „Þetta er í góðu samræmi við hugmyndir forsætisráðherra sem taldi að kennarar gætu sjálfír séð um að bæta kjör sín með því að deila verkfallssjóðum félaganna út til ein- staklinganna. Yfírlýsingar af þessu tagi og smekklaus gálgahúmor fíjár- KENNARAR troðfylltu sal Bíóborgarinnar. Fundarmenn stóðu upp og hylltu Eirík Jóns- son, formann KÍ, og Elnu K. Jónsdóttur, formann HÍK, með langvinnu lófataki. Morgunblaðið/Ámi Sæberg málaráðherra í fjölmiðlum upp á síð- kastið eru þeim síst til sóma og alls ekki til þess fallnar að fínna lausn á þessari kjaradeilu. Það er eins og þessir menn geri sér ekki grein fyrir því að kennurum er alvara. Það er eins og þeir haldi að verkfallsboðun kennara sé eitthvert grín. En til að taka af öll tvímæli er eins gott að viðsemjendur okkar viti að okkur er alvara, við stöndum saman öll sem eitt. Við höfum kjark, við höfum þor og vilja og sterkar taugar og með þeim vopnum ætlum við að betjast fyrir réttlætinu," sagði Eiríkur. Hrund Hjaltadóttir grunnskóla- kennari sagði að almenningur gleypti það hrátt þegar samninganefnd ríkis- ins léti líta svo út að tilboð um að kaupa meiri vinnu af kennurum fæli í sér 500 milljóna kr. kjarabætur til þeirra. Hún gerði að umtalsefni að Stjómvöld stæðu ekki við gefín fyrir- heit og töluðu með hroka til kennara- stéttarinnar. Hún sagði að kjör kenn- ara hefðu breyst mikið á síðustu árum og störf þeirra nytu minni virð- ingar nú en áður. Gunnlaugur Ástgeirsson frá HIK og Sigrún Ágústsdóttir frá KÍ hafa verið útnefnd formenn verkfalls- stjóma. Gunnlaugur sagði að hann hefði setið við símann nokkra undan- fama daga og svarað fyrirspumum um framkvæmd verkfalls. Hann sagði að á grundvelli þessara fyrir- spuma væri sér ljóst að ekki væm allir vissir um hvað verkfallið hefði í för með sér. Verkfallið fæli í sér að skólastarf félli niður, ekkert yrði um að vera í skólunum, „sjoppunni er lokað," sagði Gunnlaugur. Elna Katrín Jónsdóttir, formaður Hins íslenska kennarafélags, sagði að langlundargeð kennara væri þrot- ið. Þeir krefðust endurmats á kennar- astarfinu en tími skýrsluritunar um umbætur í skólamálum væri liðinn og tími framkvæmda runninn upp. Hún sagði kennara og almenning langþreytta á skýrslum hvers menntamálaráðherrans á eftir öðram um umbætur sem aldrei koma til framkvæmda „vegna þess að fjárlög boða æðri sannleika um forgangsröð- un mála í þjóðfélaginu," sagði Elna Katrín. Svik við kennara Hún sagði að íslendingum ætti að vera það ljóst eftir nokkurra ára samdrátt í efnahagslífínu að það borgi sig að fjárfesta í menntun og eyða stærri hluta þjóðartekna til þess. Flestir viðurkenndu þetta en enginn fengist til að greiða kostnað- inn. „Ráðamenn hafa hingað til ekki sýnt það pólitíska hugrekki að berja í borðið og vísa skammsýnum stund- arhagsmunum og skyndigróðahugs- un út í hafsauga. Þeir hafa ekki treyst sér til að færa til Ijármuni í þjóðfélaginu og breyta forgangsröð- un má!a,“ sagði Elna. Hún vék að þjóðarsáttarsamning- um sem gerðir hafa verið og sagði að of langt mál væri að rekja þann blekkingarvef sem í kringum þá hefði verið ofínn. Á tíma þeirra hefði eng- in breyting orðið á hlutaskiptum í þjóðfélaginu til hins betra. „Þvert á móti hefur skattbyrði launafólks aukist, skuldir þess vaxið og tekju- munur einnig." Hún sagði að samninganefndir kennarafélaganna hefðu setið á þriðja tug samingafunda í þessari lotu. Skírskotun í launakröfur sam- bærilegra hópa og auknar kröfur til stéttarinnar vægju þungt í málinu. Kennarafélögin hefðu auk þess gert ríkinu tilboð um að breyta samsetn- ingu vinnutíma kennara með því að færa niður kennsluskyldu en auka um leið áherslu á önnur störf í skól- anum. Hún sagði að engir samningar hefðu verið gerðir við kennarafélögin um árabil sem varða kjör og laun kennara. Stjórnvöld hefðu þverskall- ast í mörg ár við að svara kalli tímans um endurskoðun á starfs- og launa- kjöram kennara en fjölmörg loforð um slíkt verið svikin. „Geta furðu- margir áberandi stjórnmálamenn a íslandi státað sig af þeim vafasama heiðri að hafa svikið kennara í samn- ingum,“ sagði Elna Katrín. Afgreiðsla grunnskólafrumvarpsins gagnrýnd af stj órnarandstæðingum á Alþingi í gse r Menntamálaráðherra vill láta reyna á afgreiðslu frumvarpsins STJÓRNARANDSTÆÐINGAR hvöttu til þess á Alþingi í gær að frumvarp um grunnskóla yrði ekki afgreitt á þessu þingi vegna and- stöðu kennara og sveitarfélaga við málið. Menntamálaráðherra segist hins vegar ætla að láta reyna á hvort Alþingi sé ekki tilbúið til að afgreiða frumvarpið, sem hafi fengið langan og vandaðan undir- búning. Svavar Gestsson þingmaður Alþýðubandalagsins óskaði eftir utandagskrárumræðu um grunn- skólafrumvarpið, sem mennta- málanefnd Alþingis afgreiddi frá sér á þriðjudag. Svavar sagði að frumvarpið hefði verið afgreitt úr mennta- málanefnd í fullri andstöðu við stjómarandstöðuna vegna vinnu- bragða í nefndinni, í fullri and- stöðu við sveitarfélögin og í fullri andstöðu við kennarafélögin. Hann sakaði meirihluta mennta- málanefndar um að hafa vísvitandi stefnt kjaraviðræðum við kennara- félögin í uppnám með því að af- greiða frumvarpið á þriðjudag og því væri hætta á því að verkfall skylli á í skólum. „Það er bersýnilegt að þau vinnubrögð sem hér eru höfð uppi geta ekki haft neitt annað í för með sér en það að annaðhvort strandi grunnskólafrumvarpið hér, eða það verði tekið í gegn í átökum og það væri mjög alvarlegt mál,“ sagði Svavar og spurði mennta- málaráðherra meðal annars hvort hann væri tilbúinn að láta fresta meðferð frumvarpsins á þessu þingi og hefja viðræður við sveitar- félög og kennara um farsæla lausn málsins. Viðræður í gangi Ólafur G. Einarsson mennta- málaráðherra sagðist ekki vera tilbúinn að draga frumvarpið til baka, heldur láta reyna á hvort Alþingi sé tilbúið að afgreiða það á þessu þingi og ná samstöðu um málið. Ólafur G. sagðist telja að í raun væru í gangi þríhliða viðræður rík- is, sveitarfélaga og kennara um flutning skólans frá ríki til sveitar- félaga. Hann hefði skipað sérstaka nefnd þessara aðila til að fylgjast með þróun þessa máls. Svavar spurði um frumvarps- drög um réttindamál kennara, sem tengist grunnskólafrumvarpinu, og Ólafur G. sagði að þau væri til umíjöllunar í fjármálaráðuneyt- inu. Sigurður A. Þórðardóttir for- maður menntamálanefndar Al- þingis sagði að fá mál hefðu feng- ið jafn ýtarlega umfjöllun í þing- nefnd og grunnskólafrumvarpið. Fjallað hefði verið um málið á 15 fundum í yfir 20 klukkutíma sam- tals. „Málið stóð einfaldlega þann- ig að það var komið að afgreiðslu; það er ekki hægt að þæfa mál endalaust inni í nefnd og það hef- ur einnig legið fyrir að ætlunin var að afgreiða þetta mál á þessu þingi þannig að það ætti ekki að koma neinum á óvart,“ sagði Sig- ríður. Samstaða um flutning skólans Margir þingmenn tóku til máls í umræðunni, þar á meðal Valgerð- ur Sverrisdóttir þingmaður Fram- sóknarflokks, sem sagði að nokkuð góð samstaða væri hjá þjóðinni um að færa grunnskólann til sveit- arfélaganna en ekki væri sama , hvernig það væri gert. Og mennta- málaráðherra og formaður menntamálanefndar virtust hafa lagt sig fram við að láta málið mistakast. Sturla Böðvarsson þingmaður Sjálfstæðisflokks sagði það mjög mikilvæga yfirlýsingu fyrir stjórn- arliða að samstaða ríkti um flutning ^ grunnskólans. Og afstaða stjórnar- andstæðinga bæri þess merki að þeir gætu ekki unnt stjórnarflokk- | unum að ná þessu máli fram.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.