Morgunblaðið - 16.02.1995, Side 12

Morgunblaðið - 16.02.1995, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Samanburður á útgjöldum til fjárhagsaðstoðar í fjórum bæjarfélögum Lægst útgjöld á Akureyri ÚTGJÖLD vegna fjárhagsaðstoðar hafa vaxið ört á Akureyri, eða ríflega tvöfaldast á slðustu fjórum árum. Þau eru þó mun lægri á hvem íbúa en er í Kópavogi, Hafnarfirði og Reykjavík. Útgjöld á hvern íbúa á Akureyri voru 1.623 krónur árið 1994, eða 90% af því sem er í Kópa- vogi, um 60% af aðstoðinni í Hafnarfirði og ein- ungis um 30% af því sem er í Reykjavík. Fjöldi þeirra sem sækir um fjárhagsaðstoð sem hlutfall af íbúafjölda bæjanna var einnig lægstur á Akureyri, eða 1,85%, en var á samatíma 1,92% í Hafnarfirði, 1,97% í Kópavogi og 2,84% í Reykjavík. Upphæð meðaltals aðstoðar á hvern viðtak- enda fjárhagsaðstoðar var lægst á Akureyri, eða um 69 þúsund krónur, 79 þúsund krónur í Kópa- vogi, eða 14% hærri, 116 þúsund krónur í Hafnarfirði, sem er 68% hærri upphæð og 156 þúsund krónur í Reykajvík, eða 126% hærri upphæð að meðaltali en á Akureyri. Óformlega hjálparkerfið Þessar upplýsingar koma fram í skýrslu um úttekt á ijárhagsaðstoð á Akureyri. Höfundamir, Amar Ámason endurskoðandi og Bragi Guð- brandsson félagsfræðingur, segja skýringar á þessu margar. Þeir sem standa höllum fæti sækja á höfuðborgarsvæðið, einkum til Reykjavíkur, þar sem aðgangur að heilbrigðisþjónustu og félags- legri aðstoð er greiðari en á landsbyggðinni, þann- ig að einkenni borgarlífs með sín félagslegu vandamál séu til muna meiri en á Akureyri. Stofnanir og önnur þjónusta fyrir sjúka, ekki síst áfengissjúka og þá sem eiga við geðræn vandamál að stríða, sé þar að finna sem skýri sérstöðu Reykjavíkur hvað fjárhagsaðstoð varðar og að nokkru leyti nágrannabæjanna. Þá megi einnig ætla að íbúar Akureyrar hafi um margt meiri bjargir en höfuðborgarsvæðið og gera skýrsluhöfundar ráð fyrir að hið óformlega hjálp- arkerfi, fjölskylduböndin og náungahjálpin, séu áhrifameiri á Akureyri en í höfuðborginni. Morgunblaðið/Rúnar Þór Loðna í Krossanes eftir 5 mánaða hlé 10% atvinnulausra leita aðstoðar Hátíðarsýn- ingar LA FORSETI íslands frú Vigdís Finnbogadóttir verður gestur á tveimur sýningum hjá Leikfélagi Akureyrar um komandi helgi. Á laugardagskvöld á sýning- unni Óvæntri heimsókn eftir J. B. Priestley undir leikstjóm Hallmars Sigurðssonar og á sunnudag á leikritinu Á svörtum fjöðrum eftir Erling Sigurðar- son, sem frumsýnt var á aldaraf- mæli Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, en verkið er unnið upp úr ljóðum skáldsins. Mörg sönglög við ljóð Davíðs eru flutt í sýningunni. Sýningum fer að ljúka á báð- um þessum verkum, en Óvænt heimsókn var jólaleikrit félags- ins. Ráðinn lektor INGÓLFUR Ásgeir Jóhannes- son hefur verið ráðinn lektor í uppeldisgreinum við kennara- deild Háskólans á Akureyri. Ingólfur er fæddur 1954 á Akureyri en ólst upp í Mývatns- sveit. Hann lauk BA-prófi í sagnfræði og uppeldisfræði frá HI 1979, cand. mag.-prófí í sagnfræði 1983 og doktorsprófi frá kennaramenntunardeild Wisconsin-háskóla 1991. Rann- sóknir hans hafa verið á sviði skólasögu og menntastefnu. I Háskólanum á Akureyri mun Ingólfur einkum kenna námskrár- og námsefnisgerð, kennslufræði og skólaþróun, en einnig aðrar greinar eftir þörf- um og taka þátt í mótun og uppbyggingu kennaradeildar. Hann hefur störf við skólann 1. ágúst. Þjóðvaki um ÚA-mál Harmar útibú í stað höfuð- stöðva Á FUNDI kjördæmisráðs Þjóð- vaka í Norðurlandskjördæmi eystra sem haldinn var um helg- ina var samþykkt ályktun þar sem furðu er lýst yfir því af- nagi sem fram hefur komið á Alþingi vegna flutnings emb- ættis veiðistjóra til Akureyrar. Þá harmaði fundurinn að Eyjafjarðarsvæðið sem er eina mótvægi við höfuðborgarsvæð- ið skuli þurfa að búa við útibú varðandi þróun og sölu fiskaf- urða, þegar höfuðstöðvar voru í boði. „Þjóðvaki telur að kjark og framsýni þurfi I málefnum landsbyggðarinnar. Ný tæki- færi til atvinnu og uppbygging- ar skapast ekki meðan ráða- menn ríghalda í óbreytt ástand," segir í ályktun fundar- ins. STARFSMENN Krossanesverk- smiðjunnar voru kátir í gær, en þá kom Sigurður RE með um 1.250 tonn af loðnu sem landað var hjá verksmiðjunni. Þetta er fyrsta loðnan sem berst að landi á Krossanesi í fímm mánuði en fyrir utan smáslatta síðla haust var loðnu síðasta landað hjá verksmiðjunni í septemberbyrj- un. Jóhann Pétur Andersen, framkvæmdastjóri Krossanes- verksmiðjunnar, sagði menn ánægða með að fá loðnu til vinnslu á ný, en síðustu mánuði hefur verið unnið að viðhaldi í verksmiðjunni og eins var sett- ur upp hrognatökubúnaður þar. Stór og falleg loðna „Mér sýnist þetta vera ágætis loðna, hún er stór og falleg,“ sagði Jóhann Pétur um loðnu- farminn sem allur fer í bræðslu en um tvo og hálfan sólarhring tekur að vinna það magn sem Sigurður RE kom með í gær. Um framhaldið sagði fram- kvæmdastjórinn erfítt að segja, engin skip væru á leiðinni „það er ekkert öruggt í þessum efn- um,“ sagði hann og bætti við að veiði væri treg þessa stundina. TÆPLEGA 10% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá sækja um fjár- hagsaðstoð hjá Félagsmálastofnun Akureyrar að því er fram kemur í úttekt á fjárhagsaðstoð bæjarins sem Arnar Ámason endurskoðandi og Bragi Guðbrandsson félagsfræðing- ur gerðu fyrir bæjarráð. Fram kemur að vaxandi ásókn í fjárhagsaðstoð megi einkum skýra með auknu atvinnuleysi. Til að varpa skýrara ljósi á stöðu skjólstæðinga- hóps Félagsmálastofnunar var leitað eftir ítarlegum upplýsingum frá um- sækjendum um fjárhagsaðstoð frá 16. nóv. til 15. des. 1994. Helmingur með bótarétt Ríflega helmingur þeirra sem leit- aði eftir aðstoð hafði verið atvinnu- laus í meira en ár og nærri 80% höfðu verið atvinnulausir í meira en hálft ár. Aðeins helmingur atvinnu- lausra höfðu bótarétt, en meirihlut- inn hafði börn á framfæri. Tæplega 90% þeirra sem sóttu um aðstoð höfðu notið fjárhagsaðstoðar SIGFRÍÐUR Þorsteinsdóttir forseti bæjarstjórnar Akureyrar og formað- ur félagsmálaráðs sagðist ánægð með skýrslu um úttekt á fjárhagsað- stoð Akureyrarbæjar, en þar hefði verið staðfest að sterk fylgni sé milli aukningar atvinnuleysis og vaxandi fjárhagsaðstoðar. Nú sæju menn fram á bjartari tíma I atvinnumálum m.a. I kjölfar þátt- töku Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna í atvinnulífinu og mætti því ætla að útgjöldin færu lækkandi. Sigfríður benti á að útgjöidin væru lægst á hvem íbúa á Akureyri við samanburð íjögurra stærstu bæjar- félaga landsins, eða tæplega 1.700 krónur á meðan þau væru um 5.500 krónur á íbúa I Reykjavík. Félagsmálastofnunar áður, þar af 15% í meira en ár og þriðjungur í hálft til eitt ár. Tveir þriðju hlutar skjólstæðinga stofnunarinnar voru ýmist atvinnu- lausir, höfðu verið það á síðustu tveimur árum, áttu maka sem var atvinnulaus eða höfðu hlutastarf. Um 25% skjólstæðinganna voru ör- yrkjar eða sjúklingar en í þeim tilvik- um er fjárhagsaðstoðin viðbót við bætur frá Tryggingastofun ríkisins. 15% langtíma- atvinnulausra sækja um Þegar bornar voru saman atvinnu- leysistölur og fjöldi þeirra sem voru atvinnulausir og sóttu um ljárhags- aðstoð hjá stofnuninni kom í ljós að tæplega 10% þeirra sem voru á at- vinnuleysisskrá sóttu um fjárhagsað- stoð. I lok október á síðasta ári voru 121 á atvinnuleysisskrá sem verið höfðu lengur en eitt ár án atvinnu, en 18 þeirra sóttu um aðstoð. Því megi ætla að um 15% langtímaat- vinnulausra sæki um fjárhagsaðstoð. Neytendavæn Þá hefði verið ánægjulegt að sjá hversu fjárhagsaðstoð hefði verið hagstæð skjólstæðingum. „Þrátt fyr- ir að við séum „neytendavæn" hefur starfsfólk Félagsmálastofnunar sýnt mikla ráðdeild og aðhalds er gætt í hvívetna. Með það er ég mjög ánægð,“ sagði Sigfríður. Hún sagði að skýrslan yrði rædd í bæjarráði _og í félagsmálaráði á mánudag. Hún auðveldaði stjórnend- um bæjarins að átta sig á umfangi vandans og vinna að lausn hans. Benti hún á mikilvægi þess að slíkar kannanir yrðu gerðar í fleiri sveitar- félögum og taldi eðlilegt að félags- málaráðuneyti beitti sér fyrir því. Formaður félagsmálaráðs um fjárhagsaðstoð Sterk fylgni atvinnu- leysis og aðstoðar Fiarlægið alla lausa fitu af lærinu. Stingið smá göt í lærið en hafið götin eins lítil og unnt er og ekki djúp heldur rétt aðeins undir himnuna. Stingið hvltlauksflís og steinselju í hvert gat. Nuddið matarolíuna vel inn í lærið og kryddið það með rósmarín, salti og pipar. Lærið er nú geymt f stofuhita í 2 klst. en best er þó að geyma það í kæliskáp yfir nótt. Hitið ofninn í 175° C. Steikið lærið í u.þ.b. 11/2-2 klst., snúið því einu sinní eða tvisvar. Lambalæri 2-2 1/2 kg 4 hvftlauksrif, skorin eftir endilöngu f þunnar flísar 1 búnt söxuð steinselja 1 msk. matarolfa 2 tsk. rósmarín salt og hvitur pipar ■ ífor/(mr/k(m:u

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.