Morgunblaðið - 16.02.1995, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1995 19
Reuter
Swissair hagnast
á „opnun himna“
íslendingum boðið til samninga
SAMKOMULAG náðist í gær milli
svissneskra og bandarískra flug-
málayfirvalda um fullt frelsi í flug-
umferð milli landanna tveggia.
Talsmenn flugfélagsins Swissair
sögðu að mikill ávinningur væri af
samkomulaginu.
„Samkomulagið opnar okkur leið
til hvaða áfangastaðar sem er í
Bandaríkjunum og veitir okkur
glæný tækifæri til markaðssetning-
ar,“ sagði talsmaður Swissair. Fyrst
um sinn hyggst félagið nota sam-
komulagið til að ná sem mestum
ávinningi af sérstöku samstarfí sínu
við Delta-flugfélagið um farþega-
flutninga.
Beðið með staðfestingu
Samkvæmt frétt Reutersirétta-
stofunnar, eru sérfræðingar í flug-
málum þeirrar skoðunar, að hagur
Swissair af samkomulaginu um
frelsi í flugumferð milli Bandaríkj-
anna og Sviss sé miklu meiri en
bandarískra félaga.
Til þess að öðlast gildi verða rík-
isstjórnir landanna tveggja að stað-
festa samkomulagið. Staðfesting
svissnesku stjórnarinnar er talið
vera formsatriði en heimildir herma,
að Bandaríkjastjórn muni bíða með
staðfestingu þar til lokið hefði verið
sams konar samningum við átta
önnur Evrópuríki, þar á meðal ís-
land. Talið er að þeir samningar
geti tekið nokkra mánuði.
í lok janúar tilkynnti Fredrico
Pena, samgönguráðherra Banda-
ríkjanna, að Bandaríkjastjórn hefði
sent níu Evrópuþjóðum, þ. á m.
Islendingum, tillögu að samningi
um „opna himna“ eða fijálsa flug-
umferð í lofthelgi þeirra.
Samningur af því tagi, sem nú
hefur verið gengið frá milli Banda-
ríkjanna og Sviss, myndi opna ís-
land fyrir bandarískum flugfélögum
og Bandaríkin fyrir íslenskum fé-
lögum.
Japanar veiða hrefnu
JAPANAR eru nú við hvalveið-
ar í grennd við Suðurskauts-
landið á fjórum skipum en
Grænfriðungar gera hvað þeir
geta til að trufla þær, hafa m.a.
beitt til þess þyrlum. Hér sjást
skipverjar á vinnsluskipinu
Misshin Maru gera að hrefnum
sem að sögn Reuters voru veidd-
ar á griðasvæði sem ákveðið var
að setja á laggirnar á fundi
Alþjóðahvalveiðiráðsins, IWC, í
Mexíkó 1994.
Oleksy reynir að mynda stjóm í Póilandi
Hyggst bjóða
Walesa birgínn
Varsjá. Reuter.
JOZEF Oleksy, sem reynir að mynda
nýja stjóm í Póllandi, kvaðst í gær
vilja ná samkomulagi við Lech Wa-
lesa forseta í deilu þeirra um þijú
mikilvæg ráðherraembætti. Hann
sagðist þó reiðubúinn að bjóða for-
setanum birginn ef nauðsyn krefði.
Deilan snýst um embætti utanrík-
is-, innanríkis- og varnarmálaráð-
herra og Walesa lítur svo á að hann
eigi að velja ráðherrana þar sem
hann fari með æðsta vald í öryggis-
málum. Hann hefur lagt fram tillögu
um menn í embættin en Oleksy hafn-
aði þeim
Walesa hvikar hvergi
Oleksy kvaðst vilja reyna að semja
við Walesa en sagði.að ef forsetinn
yrði óhagganlegur myndi hann
leggja fram eigin ráðherralista.
Walesa yrði að fallast á listann ef
þingið samþykkti hann.
Talsmaður Walesa sagði að ekk-
ert benti til þess að forsetinn myndi
gefa eftir í deilunni. „Oleksy er
reyndur stjómmálamaður og í hrein-
skilni sagt veit hann að samkomulag
er betra en stríð.“
Deilan um ráðherraembættin var
eitt af ágreiningsmálum Walesa og
Waldemars Pawlaks, fráfarandi for-
sætisráðherra, sem ákvað að segja
af sér í síðustu viku eftir að forset-
inn hafði hótað að ijúfa þing.
Oleksy sagði í gær að ráðherra-
listinn yrði lagður fyrir þingið eftir
tvær vikur og einn af forystumönn-
um stjórnarflokkanna sagði að hann
ætti að liggja fyrir í næstu viku.
Líflæknir Maós Tse
Tungs látinn í Chicago
Ritaði bók um undarlegheit formannsins
Chicago. Reutcr.
LI Zhisui, líflæknir Maós Tse Tungs,
formanns kínverska kommúnista-
flokksins um 22 ára skeið, lést í
Chicago á þriðjudag 75 ára að aldri.
í fyrra kom út bók um árin hans
með Maó þar sem hann segir meðal
annars frá óseðjandi kynlífsþörf
formannsins og öðrum undarlegheit-
um.
Zhisui sagði á fundi með frétta-
mönnum á síðasta ári, að Maó hefði
verið saurlífisseggur, sem hefði
miklu fremur haft kínverska sögu
að átrúnaði en marxismann. Hefði
hann átt sérsmíðað rúm, sem flutt
var með honum hvert sem hann fór,
og hann trúði því, að kynmök við
ungar stúlkur yrðu til að lengja líf-
ið. Þá átti hann enga vini, aðeins
óvini, sem honum fannst hann verða
að sigrast á með öllum tiltækum
ráðum.
Baðaði sig aldrei
Zhisui segir, að Maó hafi aldrei
baðað sig né burstað tennur og látið
þjónustufólk um að klæða sig. Hann
óttaðist mjög banatilræði og fór því
um landið í sérstakri lest og þess
var ávallt gætt að stöðva alla ná-
læga umferð áður en lestina bar að.
Áður höfðu þúsundir bænda verið
látnir flytja mikið af korni og öðrum
jarðargróða að brautarteinunum til
að svo liti út sem smjör drypi af
hveiju strái.
Verð stgr.
47,181,-.
◄ ^índesíf
Kæliskápur
GR 1400
Hæð: 85 cm
breidd: 51 cm
dýpt: 56 cm
kælir: 140 I.
0,9 kwt/24 tímum.
Verð kr. 29.350,-
4^índesíU
Kæliskápur
GR 2600
Hæð: 152 cm
breidd: 55 cm
dýpt: 60 cm
kælir: 187 l./frystir: 67 I.
1.25 kwst/24 tímum.
Verð kr.49.664,-
^lndeslf ►
Uppþvottavél
D 3020
7 kerfa vél, tekur
1 2 manna matarstell
6 falt vatnsöryggiskerfi
mjög hljóðlót og fullkomin.
Hæð: 85 cm
breidd: 60 cm
dýpt: 60 cm
Verð kr.47.263,-
Ck
^►índesíl-a
Þvottavél IW 860
Vindur 800 sn. 14 þvottakerfi.
Stiglaus hitastillir.
Orkunotkun 2,3 kwst.
Hæð 85 cm
breidd 60 cm
dýpt 60 cm
Verð kr. 52.527,-
^índesíl
a ♦Indesll’
Eldavél KN 6043
Undir og yfirhiti.Grill, geimsluskúffa.
Hæð: 85 cm
breidd: 60 cm
dýpt: 60 cm
Verð kr.54.251,-
▲ ♦índesll’
Þurrkari SD 510
Tromlan snýst í bóðar áttir,
tvö hitastig. Kaldur blástur
Klukkurofi.Barki fylgir
Verðkr. 37.517,-
B R Æ Ð U R N I R
=)] ORMSSONHF
Lágmúla 8, Sími 38820
Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi,
Kf. Borgfirölnga. Borgarnesi. Blómsturvellir. Hellissandi.
Guöni Hallgrímsson, Grundartiröi. Ásubúö.Búöardal
Vestfiröir: Rafbuö Jónasar Þór.Patreksfiröí.
Rafverk, Bolungarvík.Straumur.Ísafiröi.
Noröurland: Kf. Steingrimsfjaröar.Hólmavik.
Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blðnduósi.
Skagfiröingabúö.Sauöárkróki. KEA byggingavörur.
Lónsbakka, Akureyri;KEA, Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavik.
Urö, Raufarhðfn.
Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum.
Kf. Vopnfiröinga, Vopnafiröi. Stál, Seyöisfiröi.
Verslunin Vik, Neskaupsstaö.
Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi. KASK, Höfn
Suöurland: Kf. Rangaeinga. Hvolsvelli.
Mosfelt. Heilu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn.
Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes. Vestmannaeyjum.
Reykjanes: Stapafell. Keflavik. Rafborg. Grindavik. FIT, Hafnarfiröi ;