Morgunblaðið - 16.02.1995, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1995 27
AÐSENDAR GREINAR
Athugasemd við Morgunblaðsviðtal
Á BLS. 2 í Morgunblaðinu 11.
febrúar sl. birtist viðtal við Sigurð
lækni Bjömsson, formann Sérfræð-
ingafélags íslands, vegna nýrrar
reglugerðar um tilvísanir lækna.
Að mínu mati koma fram í viðtal-
inu hinar furðulegustu staðhæfing-
ar ásamt með þess konar hræðslu-
áróðri, að ekki verður hjá því kom-
ist, af illri nauðsyn, að koma á
framfæri nokkrum alvarlegum at-
hugasemdum og leiðréttingum.
Efnislega má m.a. draga eftir-
farandi úr viðtalinu við SB:
* Að reglugerðin takmarki lækn-
ingaleyfi stórs hluta íslenskra
lækna.
* Að reglugerðin svipti stóran
hluta þjóðarinnar tryggingarétti
sínum.
* Að reglugerðin kippi grund-
vellinum undan eina sjálfstæða
rekstrinum í heilbrigðiskerfinu.
* Að reglugerðin sé byggð á hug-
myndafræði fárra manna, sem vilja
ekkert annað en ríkisrekstur.
* Að reglugerðin bjóði upp á tvö-
falt heilbrigðiskerfi. Annað fyrir
ríka, sem geti pantað t.d. mjaðma-
aðgerð með dags fyrirvara, og borg-
að brúsann úr eigin vasa. Og svo
hitt kerfið, fyrir minni-
máttar, sem verði að
halda áfram að bíða
eftir niðurgreiddu að-
gerðinni í 2 til 3 ár.
Það er hreinlega
með ólfkindum að
maður skuli sjá annað
eins í viðtali við virtan
forystumann úr
læknastétt. Þetta við-
tal færir mér endan-
lega heim sanninn um
það, að sérfræðingar
reyni með öllum ráðum
að klæða kjarabaráttu
sína hvítum sloppi til
að komast hjá því, að
ræða hinn raunverulega kjarna
málsins, þ.e. markaðsaðganginn og
tekjumar. Skoðum málið betur.
* Það er auðvitað fásinna að halda
því fram, að tilvísanakerfi takmarki
lækningaleyfi. Sérfræðingar í
heimilislækningum megi ekki opna
stofu hvar og hvenær sem er, eins
og sérgreinalæknar. Það er auðvit-
að ekki heldur takmörkun á lækn-
ingaleyfí. Lækningaleyfíð er annað
og óskylt.
* Tilvísanakerfi sviptir engan
tryggingaréttinum. Að
þurfa tilvísun á rönt-
gen- og aðra rann-
sóknarþjónustu gerir
það ekki heldur.
* Tilvísanakerfi kippir
ekki heilbrigðum
grundvelli undan sjálf-
stæðum rekstri lækna.
Það styrkir hann. Og
sérfræðiþjónusta
lækna utan spítala er
langt frá því að vera
eini sjálfstæði rekstur-
inn. Nefna má Lækna-
vaktina sf., heimil-
islækna á eigin stofum
og rannsóknarstofur
ýmiss konar.
* Tilvísanareglugerðin byggist
ekki á hugmyndafræði fárra, sem
vilja ekkert annað en ríkisrekstur.
í tilvísanakerfinu er einungis að
finna nauðsynlegt stýrikerfí á verk-
takastörf sérfræðilækna, þar sem
verkkaupi vill hafa eitthvað faglegt
um það að segja, fyrir hvað hann
á að borga. Þörfin á fjölda verk-
taka er óþekkt. Því er eftirspurn-
inni stjórnað.
* Tilvísanareglugerðin hefur auð-
vitað ekkert að gera með biðtíma
eftir mjaðmaaðgerðum. Ég veit
ekki betur en að allar mjaðmaað-
gerðir fari fram á sjúkrahúsum hér
á landi. Því miður er biðlistinn þar
alltof langur og biðin löng. En að
leyfa sér að halda því fram, að tilvís-
anareglugerðin opni leið fyrir hina
efnuðu til að kaupa sér forgang í
mjaðmaaðgerðir á kostnað hinna,
sem minna mega sín, hlýtur að
flokkast undir það ómerkilegasta,
sem fram hefur komið í hræðslu-
áróðrinum gegn stýrikerfi tilvísana.
Ég vona að við þurfum ekki að
horfa upp á fleira í þessum dúr.
Um leið og ég þakka Morgun-
blaðinu yfirvegaða umfjöllun og
skynsamlega ályktun um stýrikerf
tilvísana í leiðara sínum, vil ég enr
einu sinni ítreka það, að umrætt
tilvísanakerfi er byggt á heimild i
lögum, sem ríkisstjórnin hefur
ákveðið að nýta og ráðherra fram-
kvæmt. Slíkt kerfi nýtur alþjóðlegr-
ar viðurkenningar og hefur fengið
grænt ljós bæði hjá landlækni og
Ríkisendurskoðun. Sjúklingar
þurfa ekkert að óttast.
Höfundur er læknir.
GunnarIngi
Gunnarsson
l lokksr.iðs- og formannaráðstefna
Sjáílslieðisllokksins 18. febrúar 1995
Flokksráð og formenn félaga og samtaka Sjálfstæ&isflokksins eru bo&aáir til fundar laugardaginn
18. febrúar kl. 09.00 í Félagsheimili Seltjarnarness við Suðurströnd.
(Inngangur norðanmegin við sundlaug og iþráttami&stö&).
Auk flokksráðsmanna og formanna félaga og samtaka Sjálfstæðisflokksins eru boðaðir á fundinn
frambjóðendur í aðalsætum við alþingiskosningarnar í apríl nk. og kosningastjórar kjördæmanna.
SÆNG
Termo twin de lux
Áður 10.900
Kl. 9.00
Kl. 9.30
Kl. 10.30
Kl. 10.45
Kl. 12.30
Kl. 14.00
Kl. 18.00
Kl. 20.00
Pagskrá:
Afhending gagna og skráning þátttakenda.
Fundarsetning.
Ræða formanns Sjálfstæðisflokksins, Davíðs Oddssonar,
forsætisráðherra.
Kaffihlé.
Kosningaundirbúningur.
Framsögu hafa: i.f;:V*T-/'
Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins,
Egill Jónsson, alþingismaður,
Erna Nielsen, formaður kjördæmisráðs Reykjaneskjördæmis,
Anna Blöndal, formaður kjördæmisráðs Norðurlandskjördæmis eystra.
Fyrirspurnir og umræður.
.Jt áw.Æi'
m ■■ .
■■ ■ ■
■ ■
. "'Jr.
wá
Sameiginlegur hádegisverður,
Umfjöllun um helstu verkefni ríkisstjórnarínnar og hugmyndir og
tillögur frá málefnanefndum Sjálfstæðisflokksins um
málefnagrundvöll flokksins I komandi alþingiskosningum.
Framsögu hafa:
Davíð Oddsson, forsætisráðherra,
Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra,
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs- og dómsmálaráðherra,
Halldór Blöndal, samgöngu- og landbúnaðarráðherra,
Ólafur G. Einarsson, menntamálaráðherra,
Ásta Möller, formaður heilbrigðisnefndar Sjálfstæðisflokksins,
Guðbjörg Sigurðardóttir, formaður upplýsinganefndar Sjálfstæðisflokksins.
Fundarslit.
Opið hús í Valhöll.
Mikilvægt er að sem allra flestir þeirra er rétt eiga til fundarsetu mæti og
taki þátt í undirbúningi flokksins fyrir alþingiskosningarnar.
Áríðandi er að þeir sem boðaðir eru á fundinn tilkynni þátttöku f
síma 682900 eða bréfasíma 682927.
Nú á 20% afslætti
Nú á 20% afslætti
HotaaaiOuii SUUW13 ReyfcjarviVurveoi 72 Núrðurtanga 3
£ feyfcfrv* Reyt<Mv* Hainaifrði AKureyn ^
l\IÝTT KORTATÍMABIL