Morgunblaðið - 16.02.1995, Side 46

Morgunblaðið - 16.02.1995, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ 46 FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1995 ▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼ Forysta ESAB er trygging fyrir gæðum og góðri þjónustu. Allt tll rafsuðu HÉÐINN VERSLUN SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260 , Aiití dorgveiðina á einum stað □ ísborar □ Hitabrúsar □ Ullarnærfötin □ Dorgstangir □ Veiðipokar □ Hanskar/lúffur □ Ausur □ Vasaljós □ Húfur/hettur □ Önglar □ Áttavitar □ Sokkar □ Hnífar □ Sjónaukar □ Legghlífar □ Dálkar □ Kuldagallar □ Skór o.fl. Verslun athafnamannsins frá 1916 Grandagarðí 2, Reykjavík, sími 28855, grænt númer 99-6288. ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Svar til Guðmundínu KRISTÍN frá Keflavík hafði samband við Velvakandi varðandi fyrirspurn Guðmundínu Vilhjálmsdóttur í biað- inu sl. þriðjudag vegna gamals slagara sem hún sagðist hafa lært í æsku. Kristín kunni tvö fyrstu erindin og koma þau héma: Dansinn höfum við danskinum frá danskurinn gaf oss stjómarskrá. Margt hefur danskurinn vel oss veitt en viljum þó kannast við lítið eitt. Meðan ég enn er frá á fæti þá fer ég á ball því ég elska rall. Heila nótt ég hoppað gæti Húrra nú ætti að vera ball. Viðlag: Gæti ég krækt í danskan dáta o.s.frv. Kristín vildi einnig koma með athugasemd varðandi auglýsingar sem kvikmyndahúsin birta í Ríkissjónvarp- inu þar sem fram koma alls kyns ofbeldisatriði og kyn- lífsmyndir. Finnst henni ekki sniðugt að birta þetta á þessum tíma í sjónvarpinu þegar böm á vissum aldri eru að horfa á. Enn um vísurnar GUÐRÚN hringdi og sagði seinna erindið í vísunni hennar Guðmundínu ranga og sagði hana vera eftirfar- andi: Ólafía er að vara oss við að vingast við piltana að dönskum sið. Það dregur á eftir sér dilka smá, þegar dálítill tími er liðinn frá. Er Flórídafélagið enn starfandi? MARGRÉT hafði samband við Velvakanda og vildi koma með þá fyrirspum hvort Flórídafélagið væri enn við lýði, en það félag gaf út fréttablað og var með samninga við bílaleig- ur o.fl. Hún vildi einnig vita hvort starfandi væm önnur samskonar féiög. Gæludýr Kettlingur í óskilum LÍTILL u.þ.b. 4 mánaða svartur kettlingur, senni- lega læða, kom á heimili á Ásvallagötu. Uppl. í sími 12270. Tapað/fundið Ensk bók tapaðist ENSKA kennslubókin „Leaming to be Eamest“ tapaðist í símaklefa í Kringlunni í byijun janúar. Skilvís fmnandi vinsam- lega hafi samband í síma 884461. Gleraugu fundust SJÓNGLERAUGU í ljós- og drapplitaðri umgerð fundust sl. mánudag á horni Amtmannsstígs og Ingólfsstrætis og getur eigandinn haft samband í síma 610549. Lyklar fundust LYKLAR fundust í Grjóta- götu sl. sunnudag. Uppl. í síma 622992. Jakki og peysa tekin í misgripum BRÚNN leðuijakki og jakkapeysa vom tekin í misgripum í fatahenginu á Ingólfscafé sl. föstdag- kvöld. í jakkanum vora skilríki og lyklar. Vinsam- legast hafi samband í síma 75824. Lyklar töpuðust TVEIR lyklar í svartri þunnri leðurbuddu með rennulás töpuðust rétt fyr- ir jól í Vesturbænum þ.e. frá Meistaravöllum að Vesturgötu. Finnandi vin- samlegast hafi samband í síma 624300 e. hádegi. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson ÞESSI staða kom upp í opna flokknum á Hoogovens skák- jnótinu í Hollandi í febrúar. Stigahái stórmeistarinn Predrag Nikolic (2.645) frá Bosníu hafði * hvítt og átti leik, en 25 , ára gamli nýbakaði rússneski stórmeistar- * inn Mikael Brodskí (2.535) var með svart. Sjá stöðumynd 3 Svartur er tveimur peð- um yfir, en liðið stendur 1 illa af sér: 40. Hxa7! og ^ Brodskí gafst upp því ' hann tapar liði. Fram- haldið gæti orðið 40. - Dxa7, 41. Bxe6+! - Rf7, 42. Hxc8 - Hxc8, 43. Bxc8 og hvítur hefur unnið mann. Skákkeppni stofnana og fyrirtækja, B-riðill, hefst í kvöld í félagsheimili TR, Faxafeni 12. Nýjar sveitir í keppninni byija í B-riðli. Teflt er í fjögurra manna sveitum og þurfa a.m.k. þrír úr hverri sveit að starfa hjá því fyrirtæki eða stofnun sem þeir tefla fyrir. Fjórði keppandinn þarf ekkert að tengjast viðkomandi liði og er þetta löngu tímabær ný- breytni í reglum keppninnar. Heígarskákmót TR hefst annað kvöld kl. 20. Farsi 'VEPfÁNAicA j 01095 FarajsCertocrWDW. by UnKwwi Pwss Syrrtcat* LJAIS&LASS jc^OCTUAfi-T On huemiQ v&t éq fv/ort hann er ebhi: StoUn* ? " Víkveiji skrifar... SKRIFARI dagsins sat samfellt í fimm klukkustundir í kvik- myndahúsi um helgina og horfði á Þijá liti; Bláan, Hvítan og Rauðan, en svo nefnist þríleikur pólska leik- stjórans Krzysztof Kieslowski. Titill myndanna er sóttur í frönsku fánalit- ina, sem tákna svo aftur á móti frelsi, jafnrétti og bræðralag. Það er skemmst frá því að segja að Víkveiji var yfir sig ánægður með þann sagnagaldur sem kvikmyndim- ar búa yfir. Fullkomið jafnræði er með öllum þáttum kvikmyndagerðar- innar, og þríleikurinn því svo að segja óaðfinnanlegur hvað varðar handrit, leikstjórn, leik, kvikmyndatöku, tón- list og annað það sem *býr að baki gerð kvikmyndar. Kieslowski fjallar um áðurnefnd hugtök á greindarlegan og oft óvænt- an hátt. Næmni hans og innsýn í mannlegt eðli er ejnstakt og hafi ein- hver verið í vafa um tilkall hans til að vera nefndur meistari evrópskrar kvikmyndagerðar samtímas, eftir Boðorðin og Tvöfalt líf Veróníku, hlýtur sá efí að vera horfínn. í fyrstu myndinni, Bláum, spyr hann meðal annars hvers virði frelsi einstaklingsins sé án minninga, sköp- unar, ábyrgðar en umfram allt ástar. í annarri myndinni, Hvítum, segir hann frá landa sínum, pólskum rak- ara sem er getulaus á erlendri gmnd og því ungri, franskri eiginkonu sinni til lítillar ánægju. Hún kastar honum á dyr og niðurlægir á margvíslegan hátt, en Pólveijinn einsetur sér að knýja fram jafnræði með þeim og vinna hjarta konu sinnar að nýju. Hann er enn ástfanginn og fer óvenjulegar leiðir til að ná marki sínu. xxx Ilokamyndinni, Rauðum, sýnir Ki- eslowski síendurteknar hliðstæður í lífi manna og veruleika, óháð tíma og stað. Áherslan er um margt á hið einstaka sem er um leið hið algilda í tilveru manneskjunnar. Forlaga- hyggjan er talsvert meiri en í fyrri myndunum, en þó veldur maðurinn fleiri atburðum en hann heldur sjálf- ur. Ung fyrirsæta sem er í símasam- bandi við afbrýðisaman unnusta, kynnist dómara á eftirlaunum. Hann er beiskur lífsafneitari sem telur ver- öldina vera einn samfelldan saka- mannabekk og meðhöndlar hana sem slíka. Með hægð endurnýjar hún trú hans á samúð, samkennd og sam- skipti manna á milli, um leið og hann sér eigin minningar endurtaka sig í nútímanum með nýjum persónum í hlutverkunum. Háskólabíó á þakkir skildar fyrir að færa íslendingum þennan hrífandi þríleik og raunar fleiri skartgripi kvikmyndagerðar utan megin- strauma afþreyingariðnaðarins. xxx VÍKVERJI er ekki ákafur útvarps- hlustandi og heyrir aðallega í sendingum útvarpsstöðva á ferð í bíl. Hann fagnaði þó tilkomu útvarps- stöðvar þeirrar sem Markús Öm Ant- onsson stýrir og helgar sig mestmegn- is sígildri tónlist, jazz og stórsveitar- sveiflu. Útvarpsstöð þessi steig fram á sjónarsviðið fyrir fáeinum mánuðum og sló annan tón og þægilegri en poppvélamar sem senda út á FM. Víkveija brá þó óþyrmilega í brún um klukkan níu á sunnudagskvöld þegar flutningi á tónverki eftir Bret- ann Samuel Barber lauk, og þulurinn afkynnti verkið og sagði frá flytjanda næsta verks. Þulurinn var nefnilega Bandaríkjamaður sem malaði á sínu móðurmáli og var ekki eitt orð íslensk- að eða endursagt á íslensku. Datt Víkveija helst í hug að stöðin léki segulbönd sem hún hefði fengið lánuð frá einhverri bandarískri útvarpsstöð, án þess svo mikið sem að bæta inn íslensku tali þegar kom að kynningum eða afkynningum tónlistar. Gaman væri að heyra skýringu á þessu fyrir- bæri, sem svo sannarlega er ljóður á ráði stöðvarinnar og tæplega í sam- ræmi við útvarpslög, eða hvað?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.