Morgunblaðið - 24.02.1995, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.02.1995, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Frímann Ólafsson ÞÆR ÁSDÍS, Amfríður og Margrét voru allar að vinna við að frysta loðnu hjá Hraðfrystihúsi Þórkötlustaða. Á þeim var ekki neinn bilbug að finna og ekki til umræðu að hverfa frá námi þrátt fyrir verkfall kennara. Skólanemar í stað aðkomufólks Grindavík. Morgunblaðið. Á ÞEIM fjórum þar stöðum sem loðna er flokkuð og fryst í Grinda- vík má ætla að rúmlega 100 skóla- nemar séu að störfum í verkfalli kennara. Þeir koma í stað að- komufólks sem kom á loðnuvertíð í fyrravetur til að vinna við flokk- un og frystingu. Þeir skólakrakkar sem fá vinnu eru að mestu framhaldsskólanem- ar en einnig fá nemendur í efsta bekk grunnskólans vinnu. Morg- unblaðið fór á nokkra staði í gærdag og heyrði hvaða áhrif verkfallið hefði á framtíðaráform nemenda í framhaldsskólum. Það var almennt að heyra að þeir litu á verkfallið sem ágætt frí frá skólastarfinu ef það yrði ekki nyög langt. Það var þó ekki að heyra að nemendur ætluðu sér að hverfa frá námi heldur ætluðu þeir að sjá til hvað úr yrði. Ein stúlkan sagði að ef það stæði leng- ur en fjórar vikur væri önnin ónýt en ætlaði ekki að hætta held- ur byija aftur á næstu önn. Einn pilturinn sagðist ætla að skella sér í prófín og gera sitt besta. Tryggvi Bjarnason verkstjóri þjá Hraðfrystihúsi Þórkötlustaða sagði að þegar þeir voru að vinna að undirbúningi loðnuvertíðar hefði þeim boríst fjöldi fyrir- spurna um vinnu frá utanbæjar- fólki. Þegar þeir sáu hins vegar fram á verkfall var ákveðið að ráða aðeins heimafólk og ekkert var auglýst eftir fólki nema í stað- arblöðum. Bæjarstjórn Keflavíkur Umdeild hækkun leikskólagjalda forgangshópa Keflavík. Morgunblaðid. „Þetta var ákveðinn áfangasigur hjá okkur og hefur orðið til þess að við höfum ákveðið að stofna fé- lag einstæðra foreldra hér í bæ,“ sagði Marta Eiríksdóttir talsmaður einstæðra mæðra eftir að bæjar- stjórn Keflavíkur hafði samþykkt að fresta hækkun á leikskólagjöld- um til bama einstæðra foreldra á þriðjudagskvöldið. Samþykkt var í bæjarráði 29. desember sl. hækkun á gjöldum forgangshópa og sagði Marta Ei- ríksdóttir að hækkunin væri á bilinu 58-62%. Þetta samsvaraði 6-8 þús- und króna hækkun á mánuði eða 70-90 þúsund krónum á ári. Ellert Eiríksson bæjarstjóri sagði að hér væri ekki um neina stefnu- breytingu að ræða af hálfu meiri- hlutaflokkanna um að gjaldtakan yrði sú sama hjá öllum án tillits til hjúskaparstöðu. En athugað yrði áður en hækkunin kæmi til fram- kvæmdar með hvaða hætti hægt yrði að koma til móts við efnalítil heimili. Talsverðar umræður urðu um þetta mál á bæjarstjórnarfundinum en allir flokkar stóðu að samþykkt hækkunarinnar í upphafi og kom fram hjá fulltrúum minnihlutans að þeir hefðu ekki áttað sig á um hversu mikla hækkun væri að ræða. Sáu þeir ástæðu til að viðurkenna mistökin og báðu þær einstæðu mæður sem sátu fundinn afsökunar á fyrri samþykktum. Gjaldtakan fyrir 8 tíma vistun barns með morg- unverði, hádegisverði og síðdegis- hressingu er nú 9.750 kr en verður eftir gjaldskrárbreytingu 16.400 kr. Greiðslur Tryggingastofnunar til sérfræðinga Kostnaður jókst um 20,6% milli ára GREIÐSLUR Tryggingastofnunar ríkisins til sérfræðilækna hækkuðu úr 925,5 í 1.116,6 milljónir kr. eða um 20,6% á milli áranna 1993 og 1994". Árið 1991 námu greiðslur Tryggingastofnunar 1.003,2 millj- ónum króna til sérfræðinga og 1.082,7 milljónum kr. 1992 eða 7,9% meira. 1993 Iækkuðu greiðsl- ur þessar um 17% og námu það ár 925,5 milljónum króna en það ár voru teknar upp hlutfallsgreiðsl- ur sjúklinga. 1994 jukust greiðslur svo um 20,6% eða upp í 1.116,6 milljónir króna. Sighvatur Björgvinsson heil- brigðisráðherra afhenti blaða- mönnum þessar uppíýsingar í gær og sagði að hér væri á ferðinni sjálftaka sérfræðinga á launum, hlutfallsgreiðslur sjúklinga væru óbreyttar. Sérfræðingar njóti að þessu leyti sérstöðu, engin önnur stétt geti ákveðið sjálf hvað hún láti þann sem kaupi vinnuna borga. FRÉTTIR Verðtrygging skulda miðuð við neysluverðsvísitölu Afborgun meðalskuld- ar lækkar um 3.700 kr. Áættaðar breytingar nýrrar og núgildandi lánskjaravísitölu 1995-1996 Heimild: VSl 1995 1996 Samsetning lánskjaravísitölunnar Vægi í láns- kjaravísitölu Vægi launa í vísitölu Áhrif launa á lánskjaravísitölu Eldri samsetning: Framfærsluvísitala Byggingarvísitala 66,7% 33,3% 40% 40% 26,7% 13,3% Samtals: 100,0% 40,0% Samsetning 1989-1995: Framfærsluvísitala Byggingarvísitala Launavísitala 33,3% 33,3% 33,3% 40% 40% 100% 13,3% 13,3% 33,3% Samtals: 100,0% 60,0% Vísitala neysluverðs: Framfærsluvísitala 100% * * Heimild: ASl * Ágreiningur er um vægi og áhrif launa Dæmi um breytta greiðslubyrði með breyttri lánskjaravísitölu: Fjölskylda skuldar 3,1 millj. Jafngreiðslulán til 15 ára, verðtr. + 5% vextir. Fjölskyldutekjur 2,8 millj. Raunlaunaaukn. 1995-96: 2,5% eða 70.000 kr. Hækkun lánskj.vísitölu umfram vísitölu neysluverðs á tímabilinu: 1,25% Árleg afborgun m.v. lánskjaravísitölu: 302.700 kr. Árleg afborgun m.v. vísitölu neysluverðs: 299.000 kr Lækkun greiðslubyrði meðalfjölsk. Heimiid: seðiabankinn á ári v. vísitölubreytinga: 3.700 kr. Framvegis verður verð- trygging fjárskuldbind- inga, sem nú miðast við lánskjaravísitölu, miðuð við vísitölu neysluverðs, skv. nýju stjómarfrum- varpi. Neysluverðsvísi- talan kemur í stað fram- færsluvísitölunnar. VÐSKIPTARÁÐHERRA hef- ur lagt fram tvö lagafrum- vörp á Alþingi vegna þeirrar breytingar sem ákveðin hefur verið á samsetningu lánskjaravísitölunnar í kjölfar yfirlýsingar ríkistjórnarinn- ar til aðila almenna vinnumarkaðar- ins. Sett verða ný lög um framfærslu- vísitöluna til að skjóta betri stoðum undir gerð hennar, útreikning og notkun sem almennan verðmæli og til verðtryggingar á fjármagnsmark- aði. Jafnframt verður nafni fram- færsluvísitölunnar breytt og hún framvegis nefnd vísitala neyslu- verðs. Verðmælir fyrir heimilisútgjöld í greinargerð frumvarpsins segir að vísitalan hafi um langt skeið ekki verið mælistika á framfærslukostn- að heldur almennur kvarði fyrir breytingar neysluverðlags. Áhersla er lögð á það í frumvarpinu að tryggt sé að niðurstöður neýslukannana Hagstofunnar og vísitölugrunnurinn samrýmist því hlutverki vísitölunnar að vera almennur verðmælir fyrir heimilisútgjöld. Rósmundur Guðnason, forstöðu- maður vísitöludeildar Hagstofu ís- lands, segir að ekki séu gerðar breyt- ingar á útreikningi framfærsluvísi- tölunnar með þessari lagasetningu en með henni sé lagalegur grunnur hennar tryggður. Hagstofunni er falið að bera ábyrgð á vísitölunni en kauplags- nefnd, sem skipuð hefur verið full- trúum Hæstaréttar, ASÍ og VSÍ, verður Hagstofunni eingöngu til ráð- gjafar. Kveðið er á um að neyslukannan- ir skuli gerðar ekki sjaldnar en á fimm ára fresti og nái til allra út- gjalda. Á yfirstandandi ári vinnur Hagstofan að umfangsmestu neyslu- könnun sem ráðist hefur verið í og nær hún til 3.000 heimila. Þá kveður frumvarpið á um að við útreikning vísitölunnar skuli safna verðupplýsingum af öllu land- inu en til þessa hefur Hagstofan eingöngu miðað við verðlag á höf- uðborgarsvæðinu. Samhliða þessu hefur viðskipta- ráðherra lagt ‘ fram frumvarp um breytingu á vaxtalögum um verð- tryggingu sparifjár og lánsfjár. Verði frumvarpið samþykkt sem lög fyrir þinglok mun sú breyting taka gildi 1. apríl að Seðlabankinn hættir að reikna út og birta láns- kjaravísitölu og í stað hennar kemur vísitala neysluverðs sem Hagstofan reiknar út og birtir. Einnig er sér- stakt ákvæði í frumvarpinu um verð- tryggingu núverandi fjárskuldbind- inga eftir gildistöku laganna 1. apríl en eftir þann tíma munu mánaðar- legar verðbreytingar slíkra fjár- skuldbindinga ráðast af breytingum á vísitölu neysluverðs í stað lán- skjaravísitölu. Dregið úr vægi launa í verðtryggingum Þessar breytingar hafa þá þýð- ingu að draga mun úr vægi Iauna í verðtryggingu fjárskuldbindinga og lögðu forystumenn landssambanda ASÍ áherslu á þetta svo þær kaup- hækkanir sem samið var um komi ekki aftan að fólki í formi aukinnar greiðslubyrði. í janúar 1989 var grundvelli láns- kjaravísitölunnar breytt. Fram til þess tíma hafði grundvöllur vísi- tölunnar verið samsettur af fram- færsluvísitölu að 7» hlutum og bygg- ingarvísitölu að 'h hluta en með breytingunni 1989 var ákveðið að bæta launavísitölunni við þannig að hver þessara vísitalna hefði þriðj- ungsvægi í grundvelli lánskjaravísi- tölu. Breytingin var umdeild og hefur ASÍ bent á að vægi launa hafi auk- ist úr 40% í 60% sem gerði að verk- um að 1% launahækkun leiddi til þess að lánskjaravísitalan hækkaði að öllu jöfnu um 0,6% með þeirri afleiðingu að kaupmáttur launafólk skertist verulega vegna hækkunar á greiðslubyrði lána. Skiptar skoðanir hafa verið um vægi launa í framfærsluvísitölunni sem er óljóst þar sem framleiðniþró- un í fyrirtækjum kemur alltaf að einhveiju leyti í veg fyrir að launa- breytingar fari beint út í verðlag. ASI hefur miðað við að vægi launa í framfærsluvísitölu sé um 40%. Forystumenn vinnuveitenda hafa lagt áherslu á að fyrirtækin taki sjálf á sig kostnaðaraukann vegna launa- hækkana í nýgerðum kjarasamning- um og komi honum inn í reksturinn til að fyrirbyggja að hann kalli fram hækkanir vöruverðs. Samkvæmt upplýsingum Más Guðmundssonar, yfirmanns hag- fræðisviðs Seðlabankans, hefur láns- kjaravísitalan sem í gildi hefur verið frá 1989 hækkað 5% minna á undan- fömum fímm árum en hún hefði gert ef áfram hefði verið stuðst við eldri samsetningu vísitölunnar. Sé þróun lánskjaravísitölunnar hins vegar borin saman við þróun framfærsluvísitölunnar frá janúar 1989 til mars 1995 kemur í ljós að framfærsluvísitalan hefur hækkað talsvert meira á þessu tímabili en lánskjaravísitalan eða um 4%. Ástæðan er fyrst og fremst sú að á þessu tímabili hafa raunlaun lækkað. Markmið nýgerðra samninga er aftur á móti að snúa þessari þróun við. ASÍ og VSÍ spá því að nýja neysluvöruvísitalan muni hækka um 1-1 'h% minna á tímabilinu en nú- verandi lánskjaravísitala hefði gert. Skv. mati hagdeildar ASÍ mun vísi- tala neysluverðs hækka um 5,2% frá upphafi til loka samningstímans en núverandi lánskjaravísitala hefði hins vegar hækkað um 6,2% á sama tíma. VSÍ gerir ráð fyrir svipaðri þróun og ASI. Þannig spáir VSI að neyslu- verðsyísitalan muni hækka um 2,6% á þessu ári en núgildandi lánskjara- vísitala hefði hins vegar hækkað um 3% á milli ára. Á næsta ári mun neysluverðsvísitalan hækka um 2,5% en lánskjaravísitalan myndi hækka um 3,5% á sama tíma að mati VSÍ 3.700 kr. lægri afborganir meðalfjölskyldna Að sögn Más má gera ráð fyrir að afborganir af 3,1 milljónar kr. láni meðalfjölskyldu, miðað við for- sendur sem sjást í meðfylgjandi töflu, yrðu 3.700 hærri að raungildi ef lánskjaravísitala gilti áfram en miðað við spár um þróun neyslu- verðsvísitölu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.