Morgunblaðið - 24.02.1995, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
_________LISTIR_______
Myrkir músíkdagar
TONLIST
Gerðarsaf ni
TVÍLEIKAR
Einar Kristján Einarsson, gitar.
Gerður Gunnarsdóttir, fiðla, Geir
Rafnsson, ásl.hljóðf., Martial
Nardeau, flauta. Áskell Másson,
tónskáld, Þorkell Sigurbjömsson,
tónskáld, Láms H. Grímsson, tón-
skáld.
_ „PARTITA (Nokturne)", kallar
Áskell Másson verk sitt fyrir gítar
og slagverk, skrifað 1984 og frum-
flutt í Norræna húsinu 1985.
„Verkið er í einum þætti og hefur
að uppistöðu lítið lagrænt frum, auk
C- og Cis-dúr tónaraða", segir
Áskell um verk sitt í efnisskrá.
Satt og rétt er það að þessum uppi-
stöðum brá alltaf öðru hvoru fyrir.
Fyrir mér voru þó aðal-uppistöðurn-
ar sú hljómasinfónía, sem Áskell
náði út úr þessum tveim hljóðfær-
um. Reyndar er ekki rétt að tala
um tvö hljóðfæri, því ásláttarhljóð-
færin voru jú mörg sem Geir hafi
á sinni könnu. Áskell notar ýmsar
aðferðir til að nýta ásláttarhljóðfær-
in, m.a. fiðluboga til að stijúka með
víbrafóninn, nær við það fram tón-
um sem minna á þegar spilað er á
sög. Þetta er aðeins ein aðferðin,
sem Áskejl grípur til, en sérlega
vel kann Áskell að laða fram töfra
ásláttarhljóðfæranna, en það kunni
reyndar Geir einnig. Fallega hljóm-
andi verk og sérdeilis vel spilað af
þeim báðum, Geir og Einari.
Gerður Gunnarsdóttir virðist
mjög góður fiðlari, ef dæma má
eftir eina verkinu sem hún tók þátt
í á þessum tónleikum, en það var
í verki eftir Þorkel Sigurbjömsson,
sem hann kallar Vapp, frá árinu
1993. Vapp kallar hann verkið
vegna þess, eins og hann segir sjálf-
ur í efnisskrá, „mér fannst hreyf-
ingar tónanna minna mig dálítið á
vapp fugla“. Hvað sem þessari sam-
líkingu líður, er um að ræða traust
og vel uppbyggt verk, kannske dá-
lítið teygður lopinn á kafla, en er
áreiðanlega í takt við vapp sumra
fugla.
„Tis a Stairway not a Street“
eftir Láms Grímsson var síðast á
efnisskrá, fyrir gítar og flautu og
reyndar mætti bæta hér við, fyrir
þijú nótnapúlt og tvo aðstoðar-
menn. Hér bættist við Martial
Nardeau með flautuna sína og sýndi
nú, enn einu sinni, yfirburði á hljóð-
pípuna sína. Einar fékk og tæki-
færi til að sýna hæfni sína á gítar-
inn og saman sýndu þeir frábæran
samleik í mjög svo tæknifreku verki
Lámsar. Ekki verður því á móti
mælt að verkið er líflegt, þétt og
heimtar mikla leikni frá höndum
flytjenda. Maður hefur á tilfinning-
unni að verkið sé unnið, að ein-
hveiju leyti, út frá tölvuforskrift,
sem gerir það kannske hvorki betra
né verra, en verður dálítið miskunn-
arlaust, gefur lítil grið, áheyrandinn
fær lítinn tíma til að staldra við og
staðsetja sjálfan sig og verkið um
leið, snögglega er það búið, forritið
náði ekki lengra. Eigi að síður var
hugurinn límdur við flutninginn,
meðan á honum stóð, en hvar á
stalli væri tónsmíðin ef ekki stæðu
frábærir fiytjendur á bak við? Þetta
em spurningar sem seint verður
svarað svo allir verði ánægðir, en
hvenær verður Rómarsáttmálinn
undirskrifaður, sem færir flytjend-
unum einnig nokkra aura?
Ragnar Björnsson
\69
Vtð
, , * pr ótrú^e§;, af att
besst uu-
ÓtruVeSa
yiðref11
EITT VERÐ A OLLUM VORUM
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
KEITH John, konsertorganisti.
Hallgrímskirkja
Breskur konsert-
organisti leikur
LISTVINAFÉLAG Hallgríms-
kirkju stendur fyrir orgeltón-
leikum með enska konsertorgan-
istanum Keith John, sunnudag-
inn 26. febrúar kl. 20.30.
Leikin verða orgelverk eftir
J.S. Bach, R. Schumann og Oliv-
ier Messiaen. Keith John vinnur
nú að upptökum við Klaisorgel
Hallgrímskirkju á fjölbreyttri
efnisskrá fyrir útgáfufyrirtækið
Priory Records í Englandi. Á
efnisskrá orgeltónleikanna í
Hallgrímskirkju eru Prelúdía og
fúga í h-moll og Chaconna í d-
moll eftir J.S. Bach, síðarnefnda
verkið upprunalega fyrir fiðlu í
orgelumritun F. Busoni. Tveir
keðjusöngvar ópus 56 eftir R.
Schumann og Combat de la mort
et de la vie eftir Olivier Mess-
aien.
í kynningu segir: „Keith John
er fæddur í Gloucester í Eng-
landi og þar söng hann í drengja-
kór dómkirkjunnar. Hann fékk
styrk til náms í orgelleik við The
Royal College of Music í London,
þar sem kennarar hans voru
Ralph Downes og Bernard Rob-
erts. Mikill áhugi á franskri nú-
tímaorgeltónlist hvatti hann til
náms hjá Jean Guillon auk þess
sem hann fékk verðlaun sviss-
nesku Master Classes stofnunar-
innar.
Verkefnaval Johns er fjöl-
breytt, einkum er hann þekktur
fyrir umritanir sínar á þekktum
tónverkum og útgáfum þeirra á
geisladiskum. Má þar nefna
„vatnamúsík" Handels, Sirkus-
polkann og Hnotubijótinn, en
síðasttalda verkið hljóðritar
hann nú við orgel Hallgríms-
kirkju. Upptaka hans á eigin
umritun af Myndum á sýningu
eftir Moussorgski á hið þekkta
orgel í Tonhalle í Ziirich hefur
vakið mikla athygli og verið
nefnd ein besta umritun þessa
fræga verks. Nýlegur geisladisk-
ur hans fékk viðurkenningu
tímaritsins Gramophone sem
orgelupptaka ársins, en þar leik-
ur hann nýja orgeltónlist á orgel
dómkirkjunnar í Gloucester.“
Tekið skal fram að tónleikarn-
ir voru ráðgerðir klukkan 17.00,
en vegna kórtónleika Erics
Ericssons í Langholtskirkju á
þeim tíma ákvað Listvinafélagið
að færa sína tónleika til klukkan
20.30.
100
70
40
GB
Ókeypis lögfræðiþjónusta
í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00
ísíma 55 11012.
orator, félag laganema.