Morgunblaðið - 24.02.1995, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Tónsmiðja í Gerðubergi
FYRSTU tónleikar Tónsmiðju
Guðna Franzsonar, klarinettuleik-
ara í Gerðubergi, voru haldnir 19.
febrúar sl. Á tónleikunum blés
Guðni, sem kom fram í gervi tón-
smiðsins Hermesar, í ýmis hljóðfæri
og lék Þorsteinn Gauti Sigurðsson
á píanó. Þátttaka tónleikagesta, sem
voru á aldrinum þriggja til tíu ára,
reyndist i meira lagi miðað við það
sem gérist og gengur meðal gesta
á tónleikum í Gerðubergi og ætla
Guðni og Þorsteinn Gauti að endur-
taka dagskrána í sömu uppfærslu
sunnudaginn 26. febrúar kl. 15.
í kynningu segir: „í deiglunni er
að gera klassískt tónleikahald fyrir
böm að föstum lið í starfsemi Menn-
ingarmiðstöðvarinnar og hefur
Guðni umsjón með fyrstu tónleika-
röðinni. Tónsmiðjan hefur að mark-
miði að glæða áhuga bama á tón-
list, virkja þau til að greina tóna
og veita áhrifum þeirra eftirtekt.
Hlutverk tónsmiðsins Hermesar í
dagskránni er táknrænt og er hug-
myndin að honum fengin að láni
hjá Forngrikkjum. Í grískum goð-
sögnum segir frá því þegar guðinn
Hermes smíðar sitt fyrsta hljóðfæri
úr skjaldbökuskel og sauðagörnum
og uppgötvar að tónarnir búa yfir
töfmm sem gera honum kleift að
hrífa með sér og breyta hugará-
standi þeirra sem verða þess aðnjót-
andi að heyra hann spila. Tónsmið-
urinn fetar á leikrænan hátt í fót-
spor nafna síns ásamt Þorsteini
Gauta Sigurðssyni, píanóleikara,
næstkomandi sunnudag."
Miðaverð er kr. 500 og em allir
velkomnir meðan húsrúm leyfír.
Á TÓNLEIKUNUM í Gerðubergi um síðustu helgi.
VIKAM S4.
Barnakór
Grensáskirkju
-----:------- 1
k •4Bt- Skussavaldur
W wt-éd? W:1.4skJCS'! oo 1 Þjóðleikhúsinu 26. febrúar kl. 20.00 sýnir Þjóðleikhús Sama, Beaivvás Sámi Teáhter, leikritið Skuggavald eftir Inger M. Olsen í leikstjórn Hauks J. Gunnarssonar. Aðeins þessi eina sýning.
Sric Sricson og kammerkór hans
Handhafi tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs í ár, Eric Ericson, verður ásamt kammerkór sínum með tónleika í Langholtskírkju 26. febrúar ki. 17.00. Makhnomtshina
I leikhúsinu Frú Emilia verður í kvöld kl. 20:00 sýnt leikritið Makhno- vitshina í uppsetningu Ylioppilasteateri frá Finnlandi. Síðasta sýning.
mSSSSmm^" finmitwismi til póstmódernisma
Norræn höggmyndasýning með verkum eftir Bror Hjorth, Mauno
Hartman, Gunnar Torvund og Sigurjón Ólafsson verður opnuð í
Listasafni Sigurjóns í dag og í Hafnarborg á morgun, laugardag.
Olle (Éœrtling_____________________________________
Sýning með verkum þessa þekkta sænska myndlistarmanns opnar
í Listasafni Islands 26. febrúar.
t „Þótt hundrað bursar,.. “____________________________
Haukur J. Gunnarsson leikhússtjóri ræðir um vinnu sína með Sömum í
Noregi. Samískir listamenn flytja nokkur atriði úr sýningunni „Þótt hundrað
þursar..." sem sýnd verður á Akureyri. Þjóðleikhúskj. 27. feb. kl. 20:30.
, Jiátídardagskrá______________________________________
Þjóðleikhúsið 28. feb. kl. 19:00. Afhending.tónlistar- og
bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
t Jón JCeifs: Sögusinfónían________________________
Sinfóníuhljómsveit íslands í Hallgrímskirkju 2. mars kl. 20:00.
JClingjandi mnátta______________________________
Tónleikar á Sólon Islandus í kvöld kl. 21.00
fem og unglingar________________________________
Karlinn í tunnunni - Eldfjörug trúðasýning, full af gríni og gamni
Akureyri 27. og 28. febrúar, Möguleikhúsið í Reykjavík 1. til 4. mars.
Eins og tungl í fyllingu - Nýstárlegur látbragðsleikur um þróunarsögu
mannsins.
Möguleikhúsið í Reykjavík 28. febrúar og 1. mars, ísafirði 2. og 3. mars.
Kvikmyndasýning í Norræna húsinu - Lína langsokkur, sunnudaginn
26. febrúar, kl. 14:00.
Jiönnunardagar 1995_____________________________
Sýningar og fyrirlestrar um hönnun og arkitektúr verða víðsvegar um
borgina 23. febrúar til 5. mars.
(Éókmenntir_______________________
Stóra, litla land - ísland séð með augum norrænna frænda
okkar. Norræna húsinu 27. febrúar kl. 20:30
Jyrirlestrar og málþing___________________________
Fjöldi fyrirlestra verða í Norræna húsinu dagana 24. febrúartil 2. mars.
Meðal fyrirlesara er Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur.
Nánari upplýsingar veitir Norræna húsið.
Bollukaffi |
og söng-
skemmtun
BARNAKÓR Grensáskirkju stend-
ur fyrir bollukaffí og söngskemmt-
un í Grensáskirkju sunnudaginn 26. 1
febrúar kl. 15.30.
Þar syngur kórinn ásamt gestum
og rennur ágóðinn til starfsemi
kórsins. Foreldrafélagið býður upp
á veitingar á meðan á söngnum
stendur.
Stjómandi er Margrét J. Pálma-
dóttir.
-----»-♦ ♦---
Landslag
Hlífars Más
HLIFAR Már
Snæbjömsson
myndlistarmað-
ur opnar sýn-
ingu í sýning-
arsal Listhúss-
ins í Laugardal
laugardaginn
25. febrúar kl.
15.
Þar sýnir
hann landslags-
Hlífar Már
stemmningar unnar í olíu. Myndirn-
ar em aliar frá síðasta ári.
Hlífar er fæddur 1954 og nam
við Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1981-85. Hann hefur dvalist
erlendis undanfarin ár.
Sýningin stendur til sunnudags
11. mars.
i
----» ♦ ♦
Gríma Eik í
Gallerí Umbru
NÚ STENDUR yfír sýning Grímu
Eikar á öskjum í Gallerí Úmbm við
Amtmannsstíg. Öskjumar em í
mismunandi stærðum, allar unnar
í pappa, hannaðar og málaðar af ,
listakonunni.
Þetta er fyrsta einkasýning
Grímu Eikar, en hún útskrifaðist
úr textíldeild Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands 1990. Sýningin er
opin þriðjudaga til laugardaga frá
kl. 13-18 og sunnudaga frá kl.
14-18. Henni lýkur miðvikudaginn
8. mars.
nn í framtíðina með Novell NetWare 4.1
Mest selda netstýrikerfið
í heiminum í dag.
NetWare frá Novell.
Tæknival
Skeifunni 17 - Sími 568-1665 - Fax 568-0664