Morgunblaðið - 24.02.1995, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1995 25
KVIKMYNPIR
Bíóborgin,
Bíóhöllin, og
Borgarbíó Akurcyri
AFHJÚPUN
(,,DISCLOSURE“) ★ ★★
Leikstjóri Barry Levinson. Handrit
byggt á skáldsögu eftir Michael
Crichton. Tónlist Ennio Morricone.
Aðalleikendur Michael Douglas,
Demi Moore, Donald Sutherland,
Caroline Godall, Dennis Miller, Maff-
ia. Bandarisk. Wamer Bros 1994.
MICHAEL Crichton, einn vin-
sælasti rithöfundur samtíðarinnar,
er í mikilli uppsveiflu um þessar
mundir sem rithöfundur og til allr-
ar guðslukku hættur að dunda sér
bak við tökuvélamar, en hann á
Valgerður
Hauksdóttir
Valgerður
sýnir á
Akureyri
VALGERÐUR Hauksdóttir opnar
sýningu á myndlistarverkum unn-
um í grafík og á pappír, í nýjum
sýningarsal gallerí AllraHanda á
Akureyri laugardaginn 25. febrúar.
Valgerður er fædd 1955. Frá
1984 hefur hún kennt við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands. Hún
var deildarstjóri grafíkdeildar frá
1987-1994 og starfar nú sem að-
stoðarskólastjóri og kennari við
grafíkskor.
Valgerður var formaður félags-
ins íslensk grafík frá 1987-1990
og hefur verið formaður verkstæð-
isnefndar félagsins frá 1988.
Sýning Valgerðar er sjötta
einkasýning hennar, en hún hefur
jafnframt tekið þátt í yfir 40 sam-
sýningum frá 1983 út um allan
heim.
Myndlistarverk Valgerðar í opin-
berri eigu er m.a. að fínna í Lista-
safni Islands, Norræna húsinu,
Kjarvalsstöðum, Listasafni ASÍ,
Menningarmiðstöð Hafnarborgar,
Alvar Alto Museum, Finnlandi,
Södertálje Konsthall, Svíþjóð, The
Art Museum of Grado and Catania,
Ítalíu, ásamt fjölda stofnana á ís-
landi, Evrópu og í Bandaríkjunum.
------♦ ♦ ♦----
Lína lang-
sokkur í Nor-
ræna húsinu
TVÆR myndir um Línu langsokk
verða sýndar i Norræna húsinu,
sunnudaginn 26. febrúar kl. 14.
í kynningu segir: „Lína, Tommi
og Anna fara í dagsferð með flug-
drekana sína og seinna bijótast
þjófar inn í Sjónarhól í leit að pen-
ingum. En þeir þekkja ekki hana
Línu og henni tekst að hræða þá
svo þeir hafa sig á brott með hraði.
Lína er alltaf svo sniðug og
skemmtileg."
Myndirnar eru tæplega ein
klukkustund að lengd og eru með
sænsku tali. Allir eru velkomnir og
aðgangur er ókeypis.
LISTIR
• •
Ollum brögðum beitt
að baki sem leikstjóri (Looker;
Runaway, Physical Evidence. Af-
hjúpun er byggð á samnefndri bók
hans sem fjallar um baktjaldam-
akk í hátæknitölvubúnaðarfyrir-
tæki þar sem einn yfirmannanna,
Tom Sanders (Michael Douglas),
á von á stöðuhækkun. Svo fer
ekki því ung og glæsileg kona,
Meredith Jones (Demi Moore),
hreppir hnossið. Hún er gömul
ástkona Sanders og vill taka upp
þráðinn á skrifstofu sinni strax
fýrsta kvöldið. En Sanders nær
að rífa sig af konunni í tíma, enda
orðinn hamingjusamur heimil-
isfaðir. Morguninn eftir er Jones
hinsvegar búin að koma því á
framfæri að Sanders hafi reynt
að nauðga henni en hún hyggist
ekkert gera í málinu. Sanders
bregst ókvæða við og kærir döm-
una fyrir kynferðislega áreitni.
Karlmenn hafa löngum tekið
slíkri áreitni og nauðgunum með
jafnaðargeði. Konur misboðið
þeim í skjóli þess að það hefur
ekki þótt mikill slægur í því að
kæra slíka framkomu. Sanders
karlinn brýtur hinsvegar blað í
þessari sögu allri og kærir. Þorir
þó ekki að láta konu sína vita fýrr
en um seinan, svo sterkt er helsi
vanans. Nauðgunin er þó aðeins
einn þáttur, veigamikill að vísu, í
margslungnu bakthaldamakki þar
sem kemuur við sögu framtíð fyr-
irtækisins, samruni og framleiðsla,
auk valdataflsins á toppnum. Þetta
er einkar vel gerð spennumynd
sem notar hátækni og þessi
óvenjulegu málaferli til að krydda
þráðinn. Crichton hefur þekkingu
á tækni og innviðum stórfyrir-
tækja og nýtist hún einkar vel svo
afleiðingin er lýtalaus skemmtun,
ekkert verðlaunaefni en hinsvegar
dæmigerð, óaðfinnanleg afþrey-
ing, þetta ódrepandi vörumerki
Hollywood á góðum degi. Topp
mannskapur hvar sem litið er og
sérstaklega gaman að sjá að Barry
Levinson er kominn aftur í fyrra
form eftir tvo hortitti í röð. Það
var ekki um annað að ræða hjá
honum en að duga eða drepast og
það gekk eftir. Moore er orðin
helsta kvenstjarnan í Vesturheimi
og Maffia er minnisstæð í hlut-
verki valkyijunnar, lögmanns
Sanders.
Morricone semur áhrifaríka tón-
list að venju. Afhjúpun er fáguð
Hollywoodfagmennska frá upp-
hafi til enda, mynd sem fólk hefur
gaman af og viðheldur áhuga þess
á bíómyndum, hvar sem er á
heimskringlunni.
Sæbjörn Valdimarsson.
Chrysler NEON er amerískur bíll eins og þeir gerast bestir - NEON sameinar kosti
sportbíls og fjölskyldubfls með óvenjulegum og glæsilegum hætti.
Ný hönnun
CHRYSLER NEON er sannkölluð bylting í hönnun.
Með nýju „cab-forward" hönnuninni fæst hámarksnýting
á farþegarými og meiri lengd og breidd milli hjóla gera
aksturseiginleika NEON einstaka. Komdu og reynsluaktu
tímamótabílnum CHRYSLER NEON!
,,BESTI framhjóladrifsbíll sem ég hef ekið“
Gunnlaugur Rögnvaldsson, ritstjóri bilablaðsins 3T.
Aðrar umsagnir sem CHRYSLER NEON hefur fengið:
„Hann hefur frábæra aksturseiginleika."
„ Þaö er ótrútega mikið rými í honum. "
„ Útlitið kemur á óvart."
Aukið öryggi
Öryggisloftpúði fyrir ökumann og farþega í framsæti
eru staðalbúnaður í NEON bílnum.
Verð: Frá kr. 1.895.000,-
Nýbýlavegur 2
Síml: 554 2600
Heimilisfang heimasíðu Jöfurs á Internetinu: http://w.w.w./centrum.is/jofur