Morgunblaðið - 24.02.1995, Page 36

Morgunblaðið - 24.02.1995, Page 36
36 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ MIIMIMIIMGAR GÍSLIÓLAFSON + Gísli Ólafson var fæddur 1. maí 1927. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu Fornu- strönd 16, Seltjarn- arnesi, hinn 17. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Jóhanna Ólaf- son, kennari, f. 22.5. 1896, d. 23.9. 1954, og Páll J. Ólafson, tannlækn- ir, f. 1.2. 1893, d. 12.11. 1933. Gísli átti tvær systur, Elínu Helgu, f. 2.3.1919, d. 1.7. 1989, og Láru Kristjönu, f. 20.2. 1924. Gísli var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Þuríður Einarsdóttir, f. 9.10. 1927, d. 12.6. 1962. Þau eignuðust fjög- ur börn: Maríu, f. 16.9. 1948, Pál, f. 24.12. 1951, Einar, f. 18.6. 1956, og Jóhann, f. 11.5. 1958. Eftirlifandi eiginkona Gísla er Ingveldur Þ. Viggósdóttir, f. 16.6. 1933. Börn þeirra eru: Erla, f. 23.6. 1966, og Gunnar, f. 13.2. 1969. Fyrir átti Ingveldur eitt barn, Ásgerði, f. 6.6. 1956, sem Gísli gekk í föðurstað. Gísli lauk verslunarprófi frá Verzlunar- skóla íslands 1945. Hann var skrifstofumaður og síðan fram- kvæmdastjóri þjá Carl D. Túl- íníus & Co hf. 1945-1953, skrif- stofustjóri Vátryggingafélags- ins hf. 1953-1956 og bókfærslu- kennari við Iðnskólann í Reylgavík 1948-1956. Forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar frá stofnun félagsins 1956-1991 og starfandi stjórnarformaður þess frá 1991 til dauðadags. DAUÐINN er viss og óviss í senn. 011 vitum við að hann kemur, en hvenær veit enginn. Þegar við Gísli kvöddumst daginn fyrir andlát hans, kvaddi hann mig með handabandi og óskaði mér góðrar ferðar, þar sem ég var á förum til útlanda morgun- inn eftir. Þó að ég vissi að Gísli gengi ekki heill til skógar, hvarflaði ekki að mér að þetta yrði okkar síð- asta kveðjustund í þessu lífí. Samstarf og kynni okkar Gísla hófust er hann réð mig til starfa hjá Tryggingamiðstöðinni sumarið 1960. Hann kom mér strax fyrir Þá var Gísli jafn- framt forstjóri Líf- tryggingamiðstöðv- arinnar hf. 1971- 1985 og fram- kvæmdastjóri Jökla hf. 1969-1985. Gísli sat í mörgum stjórnum og nefnd- um. í stjóm ÍSÍ 1953-1959, formað- ur stjórnar Sam- bands brunatryggj- enda á íslandi 1956- 1959, formaður stjórnar Sambands ísl. fiskiskipatrygg- inga frá 1969-1991, í stjórn Líf- tryggingamiðstöðvarinnar hf. 1971-1985, íslenskrar endur- tryggingar frá 1976-1978 og 1982-1993, Sameinaða líftrygg- ingafélagsins hf, frá 1985 til dauðadags, í stjórn Viðlaga- tryggingar íslands frá 1987 til dauðadags, í stjóm Sambands ísl. tryggingafélaga í 17 ár á tímabilinu 1960-1991, þar af 3 ár formaður, formaður stjórnar Björgunarfélagsins hf. 1964- 1976, í stjóra Lífeyrissjóðsins Skjaldar frá 1957-1992, í stjóm Sparisjóðs Vélstjóra 1963-1978, formaður bankaráðs Útvegs- banka íslands hf. 1987-1988, formaður stjóraar Féfangs hf. frá 1987-1993, formaður kjör- dæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Reylganeslgördæmi 1981-1988 og í framkvæmdastjóm VSÍ 1974-1987. Gísli var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 1988 fyrir störf sín að vátryggingamálum. Útför Gísla Olafsonar fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. sjónir sem sérstakur maður. Hvítt hárið, bjart yfírbragð, stærð hans og vaxtarlag gáfu strax til kynna að hér fór áberandi einstaklingur. Þegar ég síðan fór að kynnast Gísla, sá ég að hann var ekki eingöngu áberandi að ytra útliti. Hann var stórlundaður kappsmaður, sem vildi láta verkin tala, kröfuharður til annarra, en þó fyrst og fremst til sjálfs sín. Hann var höfðingi í sér og naut þess að vera gestgjafí. Raungóður var hann og ávallt var hægt að treysta honum í hveiju sem var. Samstarf okkar varaði í tæp t Ástkær sambýlismaður minn, faðir, fósturfaðir og sonur, tengdasonur og bróðir, HILMIR REYNISSON, Hæðargarði 15, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 27. febrúar kl. 13.30. Jóhanna Gunnarsdóttir, Ingibjörg Aldís Hilmisdóttir, Guðrún Marfa Magnúsdóttir, Reynir Sigurðsson, Ingunn Sigurðardóttir, Ingibjörg Daníelsdóttir, Jón Sigurðsson, Gunnar Hámundarson, Guðrún Jóhannsdóttir og systkin. t Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GESTS HJÖRLEIFSSONAR fyrrverandi söngstjóra, Skíðabraut 6, Dalvík, fer fram frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 25. febrúar kl. 13.30. Guðrún A. Kristinsdóttir, Kristinn E. Gestsson, Ásdfs Gísladóttir, Lórelei Gestsdóttir, Stefán Steinsson, Þóra Gestsdóttir, Hans Haraldsson, Álfhildur Gestsdóttir, Gunnar Arason, Sigurbjörg Gestsdóttir, Geir A. Guðsteinsson, Kári B. Gestsson, Brynja Grétarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. 35 ár og var alla tíð afar náið. Hann miðlaði stöðugt til mín af víðtækri þekkingu sinni og þroskaði mig til átaka í lífsbaráttunni. Smátt og smátt þróaðist samstarf okkar í vináttu sem aldrei bar skugga á. Á miðjum sjötta áratugnum kom fram sú skoðun innan stjómar Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna, að rétt væri að stofna tryggingafélag til að sinna tryggingaþörf frysti- húsa innan vébanda hennar. Á árinu 1956 var hugmynd þessari komið í framkvæmd. Ólafur Þórðarson frá Laugabóli, stjórnarmaður SH og forstjóri Jökla hf., hafði spurnir af því að tæplega þrítugur maður Gísli Ólafson, skrifstofustjóri Vátrygg- ingafélagsins hf., hefði getið sér gott orð fyrir dugnað og fæmi í vátryggingum. Lagði hann til að reynt yrði að ráða hann til hins nýja félags og varð það úr. Gísli tók til starfa 1. desember 1956, fyrst til undirbúnings að stofnun Tryggingamiðstöðvarinnar hf. og síðan sem forstjóri frá byrjun 1. janúar 1957. Engin spuming er, að vel tókst til með að fá þennan unga áhlaupamann til að ýta þessu nýja félagi úr vör. Strax í upphafí einbeitti félagið sér að tryggingum fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi og inn- an 10 ára var félagið orðið eitt af stærstu tryggingafélögum landsins á því sviði. Undir ömggri stjórn Gísla jukust viðskiptin stöðugt og þegar hann hætti sem forstjóri þess 1991, var það eitt af stærstu og öflugustu félögum landsins. Eins og títt er með menn, sem sýna ótvíræða forustuhæfileika, hlóðust á Gísla mörg stjórnar- og nefndarstörf sem of langt mál yrði að rekja hér, en þó vil ég aðeins minnast örfárra. Gísli vann að und- irbúningi að stofnun Sambands ís- lenskra tryggingafélaga árið 1960 og sat í fyrstu stjóm þess. Þá var hann einn aðalhvatamaður stofnun- ar Björgunarfélagsins hf. árið 1964 og formaður stjórnar þess fyrstu tólf árin. Formaður stjómar Fé- fangs hf. var hann frá stofnun árið 1987 til ársins 1993. í lok sjöunda áratugarins urðu miklir erfiðleikar í rekstri Jökla hf. Var þá leitað til Gísla um að taka við rekstri þess fyrirtækis, jafn- framt starfí sínu sem forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar. Tók Gísli við framkvæmdastjórastöðu Jökla árið 1969 og gegndi því starfi í 16 ár. Tókst honum á skömmum tíma að snúa rekstri félagsins til betri vegar og býr félagið enn að verkum Gísla, m.a. var núverandi skip félagsins ms. Hofsjökull keypt á þeim tíma. Þá vil ég sérstaklega minnast starfa Gísla að stofnun Samsteypu íslenskra fiskiskipatrygginga árið 1968. Aðdragandi þess var sá, að fram að þeim tíma höfðu íslensku tryggingafélögin tryggt fískiskip yfir 100 tonn að stærð, meira sem umboðsmenn erlendra endurtryggj- enda, heldur en sjálfstæð trygg- ingafélög. Eigin áhætta íslensku félaganna var lítil sem engin og allar iðgjalds- og skilmálaákvarðan- ir teknar af erlendum endurtryggj- endum. Vegna vaxandi óánægju íslenskra vátryggingamanna með ákvarðanir erlendu endurtryggj- endanna, var farið að kanna hvort ekki væri hægt að flytja ákvörðun- arvald iðgjalda og skilmála inn í landið og að því vildi Gísli stefna með stofnun Samsteypu íslenskra fískiskipatrygginga. Erlendu end- urtryggjendumir voru í fyrstu allt annað en sáttir við að afsala sér ákvarðanavaldi sínu. En vegna málafylgju Gísla, tókst þetta og má telja að þama hafí orðið algjör kaflaskipti í íslenskum sjótrygging- um. Gísli var formaður Samsteyp- unnar frá stofnun til 1991. Gísli naut mikils álits vátrygg- ingamanna hér á landi sem erlend- is. Eftirminnilegt er hversu erlendir vátryggingamenn, sem viðskipti áttu við Gísla, mátu hann mikils og lögðu sig fram um að hafa sem nánust tengsl við hann. Allir luku þeir lofsyrði á þekkingu hans í vá- tryggingum og höfðu á orði hversu stórkostlegur persónuleiki Gísli væri. Þó að Gísli, eins og fram hefur komið, hafí alla tíð verið störfum hlaðinn, þá átti hann nokkur áhuga- mál. Laxveiðin var honum afar hugleikin og naut hann sín hvergi betur en standandi úti í á með stöng í hendi. Á hveiju ári síðastliðin tutt- ugu og fímm ár, höfum við hjónin veitt með Ingu og Gísla og skemmti- legri veiðifélaga er ekki hægt að hugsa sér, engin lognmolla. I síð- ustu viku var gengið frá veiðiferð sumarsins og víst er að viðbrigðin verða mikil að hlusta ekki á Gísla skipa okkur fyrir verkum. Annað áhugamál Gísla var bridge. Hann var útsjónarsamur spilari og þótti því skemmtilegra sem spilin buðu upp á meiri áhættu. Gísli var á tíma- bili forseti Bridgesambands íslands. Gísli var tvíkváentur. Fyrri kona hans var Þuríður Einarsdóttir, en hún lést úr krabbameini aðeins 34 ára gömul. Mikið reyndi á innri styrk Gísla, er sorgin vegna fráfalls Þuríðar var sárust hjá honum og fjórum ungum börnum þeirra. Eftirlifandi eiginkona Gísla er Ingveldur Þ. Viggósdóttir. Það var mikil gæfa fyrir Gísla að kynnast og eignast Ingu fyrir konu. Það var ekki létt verk fyrir Ingu að taka við heimili með fjórum börnum, auk þess sem hún átti eina dóttur fyrir. Ég hef ávallt dáðst að því hversu vel Ingu fórst þetta allt úr hendi. Inga og Gísli eignuðust tvö böm saman. Barnabömin em nú orðin 15. Það fer ekki á milli mála að við andlát Gísla Ólafsonar er horfinn af sjónarsviðinu stórkostlegur mað- ur. Ég sem þessar línur rita á Gísla meir að þakka en nokkrum öðmm óskyldum manni. Samstarfsfólk hans í Tryggingamiðstöðinni mun sárt sakna nærvem hans og mun reyna af fremsta megni að halda á lofti merki þess fyrirtækis sem hann vann svo vel. Við Hilda munum sakna Gísla um ókomna tíð, en við munum reyna að varðveita vel allar þær góðu minningar sem við eigum um þennan stórbrotna vin. í mínum huga vom Inga og Gísli órofa heild, svo samrýnd vom þau. Nú nístir sorgin, en minningin um góðan dreng mun lifa og létta und- ir. Við Hilda sendum Ingu, bömum og bamabörnum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Gísla Ólaf- sonar. Gunnar Felixson. Elsku pabbi minn, að kveðja þig er erfíðara en orð fá lýst: Tárin hrynja niður kinnarnar. Úpp í hug- ann koma ótal minningar sem við höfum átt saman og þetta eru erfið- ar línur að setja á blað. Ég þekkti þig svo vel og mér þótti svo undur vænt um þig. Ég var aðeins sex ára er ég kynntist þér fyrst, sem stómm og þrekvöxnum manni með mikið grátt hár. Þú gekkst að eiga móður mína 7. september 1963, sameinuðumst við þá öll, þú og börnin þín fjögur og við, og þessi stóra fjölskylda flutti að Hávalla- götu 32, þar sem við bjuggum til ársins 1969 en þá fluttumst við á Seltjamarnes. Þú varst enginn venjulegur mað- ur, ég varð strax sátt við að fá þig inn í líf mitt. Samband okkar hefur alltaf verið náið, elsku pabbi minn, það verður skrítið að mæta aftur til vinnu og geta ekki lengur leitað til þín eða heyrt þig kalla á sig. Þessi 20 ár sem við höfum unnið saman, hafa verið fljót að líða. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er méttaka svokallaðra ASCIl-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld ( úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðalKnubil og hæfilega Knulengd — eða 3600-4000 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Það kom ekkert annað til greina hjá okkur Kidda þegar við myndum eignast okkar fyrsta barn en að skíra í höfuðið á þér ef það yrði drengur, enda varstu ekki búinn að fá neinn nafna. Það vildi svo skemmtilega til að Gísli nafni þinn fæddist á afmælisdaginn þinn 1. maí 1980. Þið áttuð eftir að eiga margar ánægjulegar stundir sam- an. Það verður erfítt hjá Gísla mín- um og bið ég Guð að styrkja hann í sorg sinni. Þegar ég útskrifaðist frá HÍ1990 bauðstu okkur Kidda í Straumfjarð- ará í laxveiði, en það var þitt helsta áhugamál í gegnum árin. Fyrst við silungsveiði í Þingvallavatni og síð- ar er þú fórst að fara í laxveiði. Þessi ferð er mér alveg ógleyman- leg. Við vorum saman með stöng og þú gerðir allt sem í þínu valdi stóð til þess að ég fengi minn maríu- lax. Síðasta daginn gekkstu með mér alla leið upp að Ármótum, efsta veiðistað árinnar. Þú sagðir mér að þangað upp eftir hefðir þú ekki farið sl. tíu ár. Þetta var erfið og löng ganga í fullum vqiðiskrúða, enda myndaði ég þig í bak og fyrir er við komumst á leiðarenda, til að sína hvað þú hefðir lagt á þig. Eft- ir þó nokkra stund fékk ég maríu- laxinn, sem var búinn að liggja lengi í fossinum. Það voru glaðir veiði- menn sem héldu heim á leið um kvöldið. Við Kiddi og bömin munum minnast allra heimsóknanna þinna í sumarbústaðinn okkar á Þingvöll- um. Þú taldir það ekki eftir þér að keyra frá Grafningi yfír að Miðfelli svona rétt til að líta í kaffísopa til okkar. Síðastliðið sumar var mjög ánægjulegt og fórstu þá oft með okkur í Ljósafosslaug ef veðrið leyfði ekki að við færum að veiða úti á vatni. Við fjölskyldan vorum svo stolt af þér er þú hættir að reykja fyrir tveimur árum, þú sem hafðir verið stórreykingamaður í yfir fjörutíu ár. Það að hætta að reykja var eins og allt annað sem þú ákvaðst í líf- inu, þú snerir ekki til baka. Allt sem þú sagðir eða ákvaðst stóð eins og stafur á bók. Þú gast verið harður í horn að taka, enda gaf starfíð oft tilefni til ákveðni, en réttlátari manni hef ég ekki kynnst. Þess bera líka vitni þau fjölmörgu trún- aðarstörf sem þér voru falin um ævina. Þú kenndir mér svo margt og ég mun geyma í hjarta mínu allar þær góðu minningar sem við áttum sam- an hvort heldur í starfi eða leik. Síðastliðið vor studdir þú mig í starfí formanns Sjálfstæðisfélags Seltiminga og leiddir mér fyrir sjón- ir að sigur Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjómarkosningunum þá ynn- ist ekki nema með kröftugu starfi allra. Það eru ekki nokkrir menn sem vinna kosningasigur heldur fjöldinn, eins og þú sagðir margoft. Árið 1991 breyttist hlutskipti þitt hjá Tryggingamiðstöðinni hf. er þú hættir sem forstjóri og tókst við starfí stjórnarformanns. Þú varst mjög sáttur við þessa breyt- ingu og ræddir hana við mig áður en hún varð. Þú sagðist ekki geta verið ánægðari með eftirmann þinn, Gunnar Felixson. Það hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með sam- starfí ykkar í gegnum árin, þið stóð- uð alltaf sem einn maður að þeim ákvörðunum sem teknar voru. Við Kiddi þökkum þér og mömmu yndislega helgi í London í október sl. Þetta var í fyrsta skipti sem ég var með ykkur í London, þó að ferð- irnar þínar þangað hafí verið marg- ar. Þú sýndir okkur helstu staði og bauðst okkur út að borða í Kína- hverfinu. Við vorum búin að ákveða að endurtaka þetta að ári, og gerum það vonandi með mömmu. Elsku pabbi minn, þú varst sá besti sem hægt var að hugsa sér, þú varst sterkur, traustur, hress og góður. Þú vildir allt fyrir alla gera. Þú varst góður drengur og öllum þótti vænt um þig, fólkið sem vann með þér dáði þig, bæði fyrir dugnað og hlýlegt viðmót. Kallið kom snöggt og óvænt, ég veit að fyrir mömmu mun minningin um yndis- legan eiginmann og góðan vin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.