Morgunblaðið - 16.03.1995, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C/D
63. TBL. 83. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Varðskip finna troll með óleyfilega möskvastærð þar sem Estai var að veiðum
ítölsku fjárlögin
Vígreifir Króatar
KRÓATÍSKIR hermenn æfa bardagatækni við Velebit-fjall í Króatíu.
Þrátt fyrir að Fraiyo Tudjman, forseti Króatíu, hafi endumýjað heim-
ild Sameinuðu þjóðanna til friðargæslu halda sveitir Serba og Kró-
ata áfram að búa sig undir bardaga af fullu kappi.
Kanadamenn sleppa
spænska togaranum
Reynt að finna lausn á deilunni á fundi NAFO í næstu viku
St. John's, Ósló, Madrid, Brussel. Morgunblaðið, Reuter.
YFIRVÖLD í Kanada leyfðu spænska togaranum Estai, sem færður
var til hafnar í St. John’s í síðustu viku, að fara þaðan í gær. Að
sögn Emmu Boninos, sem fer með sjávarútvegsmál í framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins, ESB, fékk áhöfnin að halda aflanum en
Brian Tobin, sjávarútvegsráðherra Kanada, segir, að 500 þúsund
Kanadadala trygging hafi verið sett og að 130 tonn af afla skipsins
hafi verið gerð upptæk sem sönnunargögn, þar til réttað verði í
málinu eftir mánuð. Þá hafi spænsk skip hætt grálúðuveiðum eins
og krafist hafi verið. Kanadísk varðskip fundu í gær troll á svæð-
inu, þar sem togarinn var tekinn, sem greinilega hafði verið skorið
frá nýlega, þar sem lifandi fiskur var í því. Trollið hafði 115 mm
möskva en leyfileg lágmarksstærð á svæðinu er 130 mm.
Á blaða-
mannafundi, sem
Bonino efndi til í
gær, sagði hún,
að Estai gæti
lagt úr höfn
strax og áhöfnin
væri tilbúin og
fengi að fara með
þann afla, sem
væri um borð.
Minntist hún
ekki á að trygging hefði verið sett
en Tobin fullyrti að það hefði verið
gert. „Eitt skilyrðið var, að veiðum
á Miklabanka yrði hætt og við því
hefur verið orðið,“ sagði hann.
Bonino sagði, að nú gætu hafist
óformlegar undirbúningsviðræður
vegna fundar NAFO, Norðvestur-
Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar, í
næstu viku en þar verður reynt að
finna einhveija lausn á málinu.
Douglas Hurd, utanrikisráðherra
Bretlands, fagnaði í gær þessum
tíðindum og sagði, að deila af þessu
tagi yrði ekki leyst nema með samn-
ingum.
Haft er eftir heimildum hjá ESB,
að Spánveijar hafí boðist til að
fækka í flota sínum við Kanada
yrði Estai sleppt og samningavið-
ræður teknar upp.
André Quellet, utanríkisráðherra
Kanada, sagði í gær að Kanada-
stjórn væri reiðubúin að ræða
breytta skiptingu á grálúðukvóta
NAFO til að koma til móts við kröf-
ur ESB.
Dini hótar
að segja
af sér
Róm. Reuter.
LAMBERTO Dini, forsætisráðherra
Ítalíu, sagði í gær, að yrðu aukafjár-
lög stjórnarinnar felld, myndi það
valda óviðráðanlegri kreppu í fjár-
málum ríkisins. Kvaðst hann myndu
segja af sér embætti ef þannig
færi en búist var við atkvæða-
greiðslu um fjárlögin seint í gær-
kvöld eða í dag.
Dini skoraði í gær á ítölsku
stjórnmálaflokkana að styðja fjár-
lagafrumvarp stjórnarinnar og
sagði, að fjármálamarkaðirnir biðu
eftir merki um, að ítalir gætu tek-
ist á við eigin vanda. Beindi hann
máli sínu sérstaklega til Frelsisfylk-
ingarinnar, kosningabandalags
Silvios Berlusconis, en hann segir,
að þingmenn þess muni greiða at-
kvæði gegn frumvarpinu.
Aukafjárlögin eiga að tryggja,
að fjárlagahallinn fari ekki úr bönd-
unum og er megininnihald þeirra
auknir skattar.
Hugsanlegt er talið, að 15 af 38
þingmönnum kommúnistaflokksins,
sem er brot úr gamla kommúnista-
flokknum á Ítalíu, komi Dini til
hjálpar og styðji hann þvert ofan í
fyrirskipanir flokksforystunnar.
-----------♦ ♦ ♦----
Noregur
Yísindaveið-
arákópum
Ósló. Reuter.
NORSKA stjórnin ákvað í gær að
leyfa veiðar á kópum að nýju en
þær voru bannaðar árið 1989 vegna
harðra mótmæla á alþjóðavett-
vangi.
Norðmenn segjast ætla að við-
halda banni á veiðum í viðskipta-
skyni en leyfa að veiða allt að 2.600
kópa vegna vísindarannsókna.
Norska sjávarútvegsráðuneytið
sagði tvær vísindaáætlanir vera í
bígerð. Annarri væri ætlað að
kanna vöxt sela og hinni veiðiað-
ferðir. Opinberir eftirlitsmenn verða
um borð í öllum þeim skipum, sem
þátt taka í veiðunum.
Ekkert lát er á innbyrðis átökum múslima í Istanbúl
unni við ESB og
sagði talsmaður
samtakanna að
Kanadamenn
hefðu gert það
sem Norðmenn
hefðu átt að gera
í Smugunni.
Norsk stjórnvöld
hafa ekki tekið
opinbera afstöðu
í málinu og sagði
talsmaðurinn það til marks um að
þau væru allt of undirgefinn Evr-
ópusambandinu.
Stuðningur í Norður-Noregi
Norðmei.n og Kanadamenn
hefðu sameiginlega hagsmuni í
málinu og ættu að beijast fyrir því
að strandríkjum yrði leyft að stjórna
veiðum í „smugum" í landhelginni.
Það væri eina leiðin til að koma í
veg fyrir ofveiði.
Fylkisþingið í Troms í Norður-
Noregi lýsti einnig yfir stuðningi
við aðgerðir Kanada í gær og hvatti
norsku stjórnina til að sýna stuðn-
ing í verki. Voru jafnt stuðnings-
menn sem andstæðingar ESB-
aðildar einhuga um stuðningstillög-
una.
■ Trollið var klætt/9
■ Deila tengist íslandi/4
Ókyrrð víða
í Tyrklandi
Ólíkar dagbækur
Auk ásakana um að Estai hafi
stundað smáfiskadráp heldur
Kanadastjórn því fram að skipstjór-
inn hafi fært tvær fiskidagbækur
til að fela rányrkjuna. Brian Tobin
segir að dagbókarfærslunum beri
ekki saman og virðist önnur vera
ætluð fyrir alþjóðlegar fiskveiði-
nefndir en hin fyrir skipstjórann
sérstaklega.
Talsmaður framkvæmdastjórnar
ESB vísaði þessu á bug í gær og
sagði að taka togarans hefði verið
ólögleg og því væri ekki mark tak-
andi á því sem fram kæmi í kjölfar-
ið frá kanadískum yfirvöldum. Það
væri eðli málsins samkvæmt vafa-
samt.
Norges Fiskarlag lýsti í gær yfir
stuðningi við Kanada í fiskveiðideil-
Istanbúl. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti einn lét lífið
og 25 slösuðust í átökum sem urðu
í verkamannahverfinu Umraniye í
Istanbúl í gær, að sögn fréttastof-
unnar Anatolia. Um 1.500 mótmæl-
endum lenti saman við öryggissveit-
ir, sagt var að skotið hefði verið úr
mannþrönginni. Fólkið andmælti
aðferðum lögreglunnar í Istanbúl og
Ankara við að bæla niður átök milli
minnihlutahóps alavíta, hófsamra
múslima og bókstafstrúarmanna er
kostað hafa a.m.k. 15 manns lífið
undanfarna daga.
Mörg þúsund manns söfnuðust
saman í hverfi alavíta í Istanbúl í
gær til að grafa fallna trúbræður.
Alavítar segja að alls hafi 26 manns
fallið í óeirðunum sem hófust á
sunnudag er óþekktir menn skutu á
fólk á kaffihúsi í alavíta-hverfi. Göt-
um að hverfinu hafði verið lokað í
gær með virkjum og víða höfðu ver-
ið kveiktir varðeldar. Útgöngubann
að næturlagi sem borgaryfirvöld
settu virðist hafa verið virt. Bensín-
sprengju var varpað að bíl utan
hverfisins á þriðjudagskvöld og lét
kona lífið.
Talsmenn mótmælenda sögðu í
gær að samkomulag hefði náðst við
lögregluna um að lík hinna látnu
yrðu afhent ættingjum svo að jarð-
setja mætti fórnarlömbin. Yrðu vígin
fjarlægð þegar búið væri að jarð-
setja.
Krafist afsagnar ráðherra
Fregnir bárust af ókyrrð víða í
landinu á þriðjudagskvöld, varpað
var bensínsprengjum að fímm bönk-
um í borginni Izmir. Tansu Ciller
forsætisráðherra ræddi í síma við
fulltrúa alavíta í Istanbúl í gær en
alavítar eru nær þriðjungur af 60
milljónum íbúa Tyrklands og segjast
ekki njóta fullra mannréttinda. Hinir
eru flestir súnnítamúslimar en fæst-
ir þeirra eru þó bókstafstrúar. Full-
trúarnir tjáðu ráðherranum að lög-
reglan hefði á mánudag skotið á
mótmælendur, sem kröfðust þess að
yfirvöld vernduðu alavíta.
Dagblöð kröfðust þess að Nahit
Mentese, innanríkisráðherra lands-
ins, sem fer með lögreglumál, yrði
látinn víkja. Mentese vísar þessu á
bug og segir „erlend myrkraöfl"
bera sökina á óeirðunum. Hermenn
og herlögregla var látin taka við
öryggisgæslu í Istanbúl á mánudag'
af lögreglunni.