Morgunblaðið - 16.03.1995, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rannsóknaleiðangur fyrir norðan- og austanverðu landinu
Sjór ekki kaldari 130 ár
Gæti haft áhrif á uppvaxtar
skilyrði þorskstofnsins
SJÓRINN fyrir norðan- og austan-
verðu landinu hefur ekki mælst
kaldari í 30 ár og gæti sjávarkuld-
inn haft áhrif á uppvaxtarskilyrði
þorskstofnsins. Þetta segir Svend-
Aage Malmberg haffræðingur,
sem var leiðangursstjóri um borð
í rannsóknaskipinu Bjarna Sæ-
mundssyni í árlegum rannsókna-
leiðangri þess um miðin umhverfis
landið frá 22. febrúar til 12. mars
sl.
Tengist viðvarandi
norðanátt
„Það er kalt í sjónum við land-
ið. Við höfum reynslu af því að
þetta hangir saman við veðurfar
og þótt það sé ekki fullsannað þá
er það líklegt að kaldur sjórinn
tengist viðvarandi norðanátt.
Einnig höfum við reynslu af því
að þessar niðurstöður eru nei-
kvæðar fyrir allt lífríki í sjónum,“
sagði Svend-Aage.
Hann segir að sjávarkuldinn
geti haft áhrif á uppvaxtarskilyrð-
in í sjónum. Farinn verður annar
leiðangur í vor en Svend-Aage
segir að alltaf séu horfur á því
að slíkt ástand haldist í einhvern
tíma.
Jafnkaldari
sjór en áður
„Það hefur líka gerst að þetta
hefur komið og faríð, hafísár og
hlýsjávarár skipst á og þriðji þátt-
urinn sem kallast svalsjávarár. Þá
höfum við hvorki hafís né hlýsjó
og þá kemur svalur sjór úr djúpun-
um fyrir norðan okkur. Þetta er
dálítið ólagskiptur sjór og óþægi-
legur fyrir sviflífverur."
Kaldara en árið 1983
Svend-Aage segir að á þessum
svæðum séu einmitt uppvaxtar-
slóðir þorsks. „í þau 30 ár sem
ég hef starfað við þetta hef ég
aldrei svona vítt og breitt mælt
eins kaldan sjó. Það er jafnkaldara
en ég hef séð áður. Við höfum þó
reynslu af því að þetta getur lag-
ast, sérstaklega á haustin þegar
vindar byija aftur að blása. 1983
var ekki ósvipað, en þó heldur
kaldara núna, en þá hlýnaði um
haustið og entist það fram til árs-
ins 1987. Það geta alltaf orðið
svona sviptingar."
Svend-Aage segir vart hægt að
tengja sjávarkuldann hér við land
góðri stöðu þorskárganga í Bar-
entshafi. Frá Nýfundnalandi um
íslandsmið til Barentshafs séu viss
ferli í sjó og lofti. Oft sé áberandi
gott ástand í Barentshafi þegar
verr árar við Nýfundnaland og
Vestur-Grænland.
„Við erum mitt á milli, búum
við lægðimar að sunnan annars
vegar og grænlensku hæðina hins
vegar og því er ekki eins glöggur
ferill á íslandsmiðum,“ sagði
Svend-Aage.
Bændasamtök Islands
Ari Teitsson
formaður
ARI Teitsson, ráðunautur hjá Bún-
aðarsambandi S-Þingeyinga, var í
gærkvöldi^ kosinn formaður Bænda-
samtaka íslands, en það nafn hefur
verið valið nýjum sameinuðum sam-
tökum bænda. Ari hlaut 22 atkvæði
af 39 í kosningu milli hans og Hauks
Halldórssonar, fyrrum formanns
Stéttarsambands bænda, en hann
hlaut 16 atkvæði í kosningunni. Einn
atkvæðaseðill var auður.
í fyrri umferð formannskosning-
anna, sem var óhlutbundin, hlaut
Ari 18 atkvæði, Haukur 12 atkvæði
og Jón Helgason, fyrrum formaður
Búnaðarfélag's íslands, hlaut 9 at-
kvæði.
Á þessum fyrsta ársfundi hinna
nýju bændasamtaka var í gærkvöldi
kosið á milli þess að kalla samtökin
Bændasamtök íslands eða Búnað-
arfélag íslands, og auk þess var kos-
ið um hvort kalla skyldi ársfund sam-
takanna Búnaðarþing eða aðalfund.
Samþykkt var með 27 atkvæðum
gegn 12 að nefna samtökin Bænda-
samtök íslands, og með 28 atkvæð-
um gegn 11 var samþykkt að kalla
ársfundinn framvegis Búnaðarþing.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
ARI Teitsson, nýkjörinn formaður Bændasamtaka íslands, tekur við árnaðaróskum frá Hauki
Halldórssyni, til hægri á myndinni, eftir að úrslitin í formannskjörinu lágu fyrir í gærkvöldi.
Flokkur
frá Istaki
í Rostock
VINNUFLOKKUR frá ístaki
hf. hefur undanfamar vikur
unnið við byggingu sorp-
hreinsistöðvar í Rostock í
Þýskalandi. Vinnunni er nú að
ljúka og er helmingur mann-
skaparins kominn heim og
hinn helmingurinn kemur í lok
vikunnar.
Að sögn Lofts Árnasonar
yfirverkfræðings hjá ístaki eru
þrír verktakar að byggja
skolphreinsistöðina, þar á
meðal Phil & sön, samstarfs-
fyrirtæki Istaks í Danmörku.
Danska fyrirtækið er með
verkefni um allan heim og leit-
ar oft eftir starfsmönnum frá
ístaki í tímabundin verkefni,
„þeir vita hvar þeir geta feng-
ið góða menn,“ segir Loftur.
Ut fór þrettán manna vinnu-
flokkur, tveir verktakar, einn
verkstjóri og tíu trésmiðir og
hafa þeir unnið við að steypa
upp hluta af sorphreinsistöð-
inni og eru að Ijúka verkinu
um þessar mundir, að sögn
Lofts.
Flugleiðir réðu
12 flugmenn
FLUGLEIÐIR hafa ráðið tólf
nýja flugmenn til starfa en
auglýst var eftir flugmönnum
fyrir skömmu, í fyrsta skipti
í þijú ár.
Umsóknir bárust frá 167
flugmönnum. Skilyrðin, sem
gerð voru til umsækjenda,
voru þau að vera 21 árs, hafa
lokið stúdentsprófi og hafa
atvinnuflugmannsskírteini
með blindflugsréttindum. Um-
sækjendur þurftu síðan að
gangast undir almennt flug-
þekkingarpróf, enskupróf, sál-
fræðipróf, blindflugspróf og
viðtal við ráðningarnefnd.
Niðurstaðan var sú að tólf
voru ráðnir. Af þeim hófu
fimm störf 6. mars sl., þrír
hefja störf 21. ágúst og fjórir
1. október nk. Þeir byija allir
á námskeiði og flugið sjálft
hefst með því að fljúga Fokker
50-vélum í innanlandsflugi.
Unnið er að útboðslýsingu fyrir útboð blóðmeina- og meinefnarannsókna á Stór-Reykjavíkursvæðinu
Árlegnr kostnaður
rannsókna 500 millj.
STEFNT er að því að útboðslýsing-
ar vegna blóðmeina- og meinefna-
rannsókna á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu verði tilbúnar um næstu
mánaðamót. Guðjón Magnússon,
skrifstofustjóri í heilbrigðisráðu-
neytinu, segir að við fjárlagagerð
árið 1995 hafí verið gert ráð fyrir
að rannsóknir yrðu boðnar út. Krist-
ján Guðjónsson, deildarstjóri í
Tryggingastofnun ríkisins, segir að
útboðið gæti aðeins í fáum tilfellum
haft breytingu í för með sér fyrir
sjúklinga og kostnaðarhlutfall
breytist ekki. Guðmundur I. Eyj-
ólfsson, í Samtökum sjálfstætt
starfandi rannsóknarlækna, telur
öruggt að hugsanleg þátttaka rann-
sóknarstofa spítalanna í útboðinu
verði kærð til Samkeppnisráðs.
Samanlagður kostnaður vegna
rannsóknanna, þ.e. annarra en
vegna inniliggjandi sjúklinga á
sjúkrahúsum, hefur verið um 500
milljónir á ári.
Guðjón sagði að tilgangurinn
með útboðinu væri að leita eftir því
að ný tækni lækkaði kostnað við
rannsóknir. „Okkur finnst að ný
tækni hafi ekki valdið eðlilegri
lækkun á kostnaði við rannsóknir.
Ekki hefur í samningum við sér-
fræðinga eða sjúkrahús tekist að
fá fram neina lækkun. Þegar svo
er komið sýnist mönnum eðlilegt
að athuga einfaldlega með útboði
hvað sé eðlilegt verð fyrir þjón-
ustuna. Að auki sýnist okkur líklegt
að ef einn og sami aðilinn getur
komið við meiri hagkvæmni í rekstri
með því að fá meira magn geti
hann boðið lægra verð,“ sagði Guð-
jón og hann tók fram að útboðið
næði aðeins til koma á heilsugæslu-
stöðvar, til heimilislækna, sérfræð-
inga á stofum eða á göngudeildir
spítala. Spítalar greiddu sjálfir
kostnað við rannsóknir vegna inni-
liggjandi sjúklinga.
Að hluta byggt
á erlendri reynslu
Guðjón sagði að verkefnið væri
unnið í samvinnu heilbrigðis- og
fjármálaráðuneytis, Trygginga-
stofnunar ríkisins og Ríkiskaupa.
Fulltrúar þeirra hafi kynnt sér sams
konar útboð í öðrum löndum og að
hluta væri byggt á því. Hann játti
því að útboðið gæti verið fyrsta
útboðið af mörgum á sviði rann-
sókna. Með sama hætti ætti t.d.
að vera tiltölulega auðvelt að bjóða
út röntgenrannsóknir og meina-
fræðirannsóknir, þ.e. rannsóknir á
alls kyns sýnum úr mannslíkaman-
um öðrum en blóðsýnum.
Ekki útilokaði Guðjón að niður-
stöður útboðsins gætu haft þær
afleiðingar að minna magn kæmi
til spítalanna og þeir þyrftu að end-
urskoða starfsemi sína. Hann sagði
að margar rannsóknastofur hefðu
aðstöðu til rannsóknanna og dæmin
sýndu að rannsóknastofur gætu
verið tilbúnar til að leggja út í fjár-
festingu til að taka verk að sér.
Ekki væri heldur hægt að útiloka
að erlendir aðilar gerðu tilboð í
rannsóknimar.
Yfirleitt ekki breyting
fyrir sjúklinga
Kristján Guðjónsson, deildar-
stjóri í Tryggingastofnun ríkisins,
sagði að stofnunin greiddi á hveiju
ári um 250 milljónir í kostnað vegna
blóðmeina- og meinefnarannsókna
eftir komur til sérfræðinga. Sjúk-
lingar greiddu misháa upphæð á
móti, 900 kr. eru t.d. fullt gjald og
300 kr. gjald fyrir ellilífeyrisþega,
en miðað við um 700 kr. meðal-
greiðslu næmi kostnaðurinn um 30
milljónum. Ofan á upphæðina bætt-
ist svo um 200 milljóna króna
kostnaður við rannsóknir á sjúkra-
húsum vegna sjúklinga sem ekki
væru vistaðir á þeim. Árlegur
kostnaður við rannsóknimar næmi
því, gróflega áætlað, um 500 millj-
ónum á ári.
Kristján tók fram að útboðið
hefði trúlega aðeins í fáum tilfellum
> för með sér breytingu fyrir sjúk-
linga því líklega yrði áfram tekið
við sýnum á flestum heilsugæslu-
stöðvum. Kostnaðarhlutfall yrði hið
sama og áður. Hann sagði að séð
yrði um að framkvæmd útboðsins
yrði eins og best yrði á kosið og
gera þyrfti ráð fyrir gæðaeftirliti í
framhaldi af því.
Guðmundur I. Eyjólfsson, for-
maður samninganefndar sérfræð-
inga við Tryggingastofnun og lækn-
ir í samtökum sjálfstætt starfandi
rannsóknarlækna, telur öruggt að
hugsanleg þátttaka rannsóknastofa
spítalanna í útboðinu verði kærð til
Samkeppnisráðs. Engu skipti að
sett verði á stofn svokölluð pappírs-
fyrirtæki og reksturinn ekki aðskil-
inn á annan hátt.
Hann nefndi þar að auki að fyrir
lægi samningur Læknafélags
Reykjavíkur og Tryggingastofnun-
ar um rannsóknirnar og honum
yrði að segja upp áður en útboðið
yrði að veruleika. Almennt væru
hugmyndir um útboð enn í lausu
lofti og ekki vel að þeim staðið,
sagði Guðmundur um leið og hann
minnti á að Svíar hefðu í einu til-
felli farið flatt á útboði af þessu
tagi. Einn lægstbjóðenda hefði búið
til syör og t.d. ekki framkvæmt
eyðnipróf.