Morgunblaðið - 16.03.1995, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1995 21
ERLENT
Sinn Fein opnar skrifstofu í Washington
Samskipti Bret-
lands o g Banda-
ríkjanna stirð
London, Washington. Reuter. The Daily Telegraph.
JOHNS Majors, forsætisráðherra
Bretlands, beið í gær það verkefni
að reyna að bæta samskiptin við
Bandaríkjamenn sem eru óvenju
stirð vegna óánægju bresku stjórn-
arinnar með þá ákvörðun Banda-
ríkjamanna að leyfa Sinn Fein,
stjómmálaarmi írska lýðveldishers-
ins, IRA, að opna skrifstofu í Wash-
ington. Major sneri í gær heim úr
heimsókn sinni til Mið-Austurlanda
en Bill Clinton Bandaríkjaforseti
hefur undanfama daga gert ítrek-
aðar tilraunir til að ná í hann án
árangurs.
Bretar hafa látið óánægju sína i
ljós með þá ákvörðun Clintons að
heimila samtökunum að heíja fjár-
öflunarstarfsemi í Bandaríkjunum
og taka leiðtoganum, Gerry Adams,
opnum örmum með móttöku fyrir
hann í Hvíta húsinu sl. föstudag.
Sendi Major Clinton bréf þar sem
hann lýsti yfir vanþóknun sinni yfir
þeim heiðri sem Sinn Fein væri
sýndur áður en IRA hefði samþykkt
að láta vopn sín og sprengiefni af
hendi. Sagði Major fyrr í vikunni
að Sinn Fein tengdist enn beint
skipulögðum hryðjuverkasamtök-
um.
Afstaða Bandaríkjamanna er
hins vegar sú að þeir telja að Ad-
ams sé einn fær um að koma í veg
fyrir að IRA grípi til vopna að nýju.
Hafa ekki náð saman
A meðan ferð Majors í Mið-Aust-
urlöndum stóð svaraði hann ekki
skilaboðum frá Clinton og sagði
talsmaður forsætisráðuneytisins að
Major myndi ekki ræða við forset-
ann fyrr en hann sneri heim.
Þrátt fyrir að bæði bresk og
bandarísk stjómvöld hafi reynt að
gera lítið úr ósætti Majors og Clint-
ons, telja stjórnarerindrekar það
staðfestingu á reiði Majors vegna
málsins. Eru samskipti þjóðanna
nú sögð stirð en afar óvenjulegt er
að svo langur tími líði án þess að
breskur forsætisráðherra svari ekki
simtali Banaríkjaforseta.
Ósætti Majors og Clintons hefur
undirstrikað hversu fátt þeir eiga
sameiginlegt. Annar er íhaldsmaður
sem reiðir sig á stuðning manna
sem hafa efasemdir um ágæta
friðarumleitanna á Norður-írlandi,
hinn er demókrati sem óttast að
styggja valdamikla menn af írskum
ættum. Þá hefur verið bent á að
leiðtogarnir hafí.ekki náð saman,
til þess séu þeir of ólíkir.
Adams prýðir veggi
Skrifstofa Sinn Fein var opnuð
á þriðjudag en hún er í hverfi þar
sem mörg sendiráð er að finna.
Tveir menn starfa á skrifstofunni
sem er í skýjakljúf og eru þrjú her-
bergi hennar skreytt myndum af
Adams en hann er í Washington til
viðræðna við bandaríska ráðamenn.
Verður aðalverkefni þeirra að beita
áhrifum sínum á bandaríska þing-
menn og að fræða almenning í
Bandaíkjunum um Norður-írland.
Feðgar vegnir
í mafíustríðinu
Palermo. Reuter.
FEÐGAR úr mafíuflölskyldu á Sik-
iley voru skotnir til bana úr laun-
sátri á þriðjudagskvöld og þar með
hafa ellefu manns verið drepnir í
mafíustríðinu á tæpum þrem vikum.
Lögreglan sagði að Giuseppe Di
Peri, 46 ára, og sonur hans Salvat-
ore, 23 ára, hefðu verið drepnir þeg-
ar þeir óku að heimili sínu í bænum
Villabate, skammt frá Palermo. Til-
ræðismennirnir hófu mikla skothríð
á bifreiðina og sluppu. Kona Gius-
eppe Di Peri ók bílnum með lík feðg-
anna á sjúkrahús í tilraun til að
bjarga lífi þeirra.
Giuseppe Di Peri var sonur Gio-
vanni Di Peri, mafíuforingja sem var
drepinn árið 1981 þegar fjölskyldan
hafði myndað bandalag með ætt-
flokkum undir stjórn Salvatore
„Toto“ Riina, „foringja mafíuforingj-
anna“, sem er nú í fangelsi.
Rannsóknarlögreglan á Sikiley tel-
ur hugsanlegt að tilræðismennirnir
hafi viljað hefna morðs á Marcello
Grado, 23 ára, sem var skotinn til
bana í Palermo 2. mars. Grado og
Di Peri íjölskyldurnar hafa eldað
grátt silfur í mörg ár.
Kosninga-
baráttan
hafin í Lima
KOSNINGABARÁTTAN er nú
að fara í fullan gang í Perú en
kosið verður til þings þar í landi
þann 9. apríl. Meðal þeirra sem
bjóða sig fram er Susy Diaz, sem
hingað til hefur starfað við það
að dansa á næturklúbbum. Listi
hennar ber númerið þrettán og
minnti hún vegfarendur á það á
kosningafundi í höfuðborginni
Lima.
Reuter
w MAGNARI \
2x60W 1
240W P.M.P.O
Matrix Surround
Extra bassi
ofi.
ÚTVARP
30 stöðva minni FM/MW
Klukka
„Smart Program" minni
KASSETTUTÆKI
Auto Reverse, Dolby B
High Speed Dubbing ofl.
GEISLASPILARI
1 bita og
l 8x oversampling
20 laga minni ofl. /
og bolur fyi
hverri stæ
Heimilistæki hf
SÆTÚN8 SlMI 569 1500
Umboðsmenn um land allt
RAÐCREIDSLUR