Morgunblaðið - 16.03.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1995 39
FRÉTTIR
Ný nuddstofa í Garðabæ
NUDD- og trimmformstofan Höndin hefur verið opnuð að Kirkju-
lundi 19, Garðabæ. Eigandi er Guðmunda S. Óskarsdóttir, sem fram
að þessu starfaði hjá Garðasól.
í Höndinni má fá alhliða nudd, sogæðanudd, Cellolite nudd og raf-
nudti. Stofan er opin frá klukkan 10 til 20 virka daga. Guðmunda
S. Óskarsdóttir á nuddstofu sinni
Fyrirlestur
um stöðu
smáríkja í
Evrópu-
sambandinu
DR. MEINHARD Hilf, prófessor
við Hamborgarháskóla flytur
fyrirlestra hér á landi dagana
17. og 18. mars nk. er nefnast:
„The Role of
Small States in
the EC (U) e.g.
Luxemburg".
Fyrirlestramir
eru haldnir hjá
Útflutningsráði
17. mars og
Félagi ungra
jafnaðarmanna
Kópavogi 18.
mars nk.
Dr. Mein-
hard Hilf er forstöðumaður Evr-
ópusambandsréttardeildar
Hamborgarháskóla og hefur að
baki yfir tuttugu ára reynslu
og þekkingu á Evrópusamband-
inu (ESB).
Fyrirlestra sína hjá Útflutn-
ingsráð og Félagi ungra jafn-
aðarmanna Kópavogi flytur Hilf
á ensku. Fyrirlestur hans mun,
eins og nafnið bendir til, Qalla
um stöðu smáríkja í ESB og þá
frá sjónarhorni og reynslu Lúx-
emborgarríkis. Hann mun einn-
ig svara almennum spurningum
um ESB, einkum varðandi að-
ildarumsóknir og þróun sam-
bandsins í austur.
Dr. Hilf heldur opinn fyrir-
lestur á Sólon Islandus laugar-
daginn 18. mars kl. 15. Þar mun
hann ásamt fleirum ræða stöðu
smáríkja í Evrópu.
Dr. Hilf sækir ísland heim í
boði Halldórs E. Sigurbjörns-
sonar, þjóðréttarfræðings, með
stuðningi ýmissa aðila.
Umræðukvöld
í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði
NÆSTU þijú fimmtudagskvöld
mun Fríkirkjusöfnuðurinn í
Hafnarfirði hafa umræðukvöld í
safnaðarheimili kirkjunnar á
Austurgötu 24. Samverustund-
irnar hefjast kl. 20.30 og verður
fjölbreytt dagskrá, þar sem góð-
ir gestir koma í heimsókn og
flytja fyrirlestra og svara fyrir-
spurnum fundargesta.
Fimmtudagskvöldið 16. mars
mun sr. Bragi Skúlason, sjúkra-
húsprestur, koma í heimsókn og
fjalla um sorg og sorgarvið-
brögð. Með hvaða hætti getum
við stutt þá sem um sárt eiga
að binda? Hvernig getur trúin
hjálpað okkur í gegnum dimmar
stundir lífsins? Reynt verður að
svara slíkum spurningum.
Fyrirlesturinn er öllum opinn
og verður boðið upp á kaffiveit-
ingar.
Fyrirlestur
um austur-
þýskan
sósíalisma
BRESKI stjórnmálafræðing-
urinn Dr. David Childs mun
flytja opinberan fyrirlestur í boði
félagsvísindadeildar Háskóla ís-
lands sem nefnist: „The Rise and
Fall of East German Socialism".
Childs er fæddur í Mið-Eng-
landi 1933. Hann lauk B.Sc,-
prófí í hagfræði í Lundúnahá-
skóla 1956 og doktorsprófi í
stjórnmálafræði í sama skóla
1962. Einnig stundaði hann
framhaldsnám í Hamborgar-
háskóla.
Childs hefur ritað margar
bækur, þ.á m. þrjár um Austur-
Þýskaland; GDR Moscow’s Ger-
man Ally, East Germany, East
Germany to the 1990’s. Af öðr-
um bókum hans má nefna Ger-
many since 1918, Mars and the
Marxist og Britain since 1945,
A Political History sem nýlega
kom út í þriðju útgáfu
(Routledge-forlagið).
Eftir Childs liggur einnig mik-
ill fjöldi ritgerða í safnritum og
fræðitímaritum og hann var um
árabil ritstjóri PASGAS (Politics
and Society in Germany, Austria
og Switzerland). Childs hefur
einnig skrifað ijölda greina í
bresk og þýsk dagblöð og frétta-
tímarit, einkum The Times og
Independent í Lundúnum.
Fyrirlesturinn verður föstu-
daginn 17. mars kl. 17 í Há-
skóla íslands, Odda, stofu 101
og er öllum opinn.
Kynningardag-
ar Miðbæjar í
Hafnarfirði
í KJÖLFARIÐ af nýútkomnu
fréttabréfí Miðbæjar í Hafnar-
firði verður ýmislegt um að vera
bæði á föstudag og laugardag
17. og 18. mars.
JC Hafnarfjörður verður með
kynningu á starfsemi sinni og í
tilefni ferminga og hækkandi
sólar hafa allar verslanir í Mið-
bænum tekið upp nýjar vörur.
Ymsar kynningar verða um helg-
ina og ber fyrst að nefna ítalsk-
an heimalagaðan ís sem seldur
er í fyrsta sinn nú um helgina í
Hafnarfírði, snyrtivöruverslunin
Dísella verður með snyrtivöru-
kynningu á nýjum vörum, versl-
un 10-11 verður með kynningu
á Kims snakki og Merrild kaffí
um helgina.
Annar og þriðji flokkur Hauka
í handknattleik ætla að bjóða
upp á bón og þvott í bílkjallaran-
um í fjáröflunarskyni fyrir
keppnis- og æfíngaferð sína út
fyrir landsteinana. Einnig mun
Kristján klippari sýna tilþrif við
að klippa valinn viðskiptavin á
ganginum fyrir framan Hár-
snyrtistofuna Carter.
Tóbaksfrír
söluturn
SAMTÖKIN Hrein jörð, náttúru-
verndarsamtök, opna í dag sölut-
urn á Hverfisgötu 82 á horninu
við Vitastíg. Þar verða seldar
allar vörur, sem fást í venjuleg-
um söluturnum, nema tóbak.
Söluturninn heitir Homer og
einn eigendanna, Sigfús Sverris-
son, kvað samtökin eins konar
náttúruverndarsamtök, sem bera
indverska nafnið Dexoud, sem
hann segir að þýði „hrein jörð“.
58 skólar
heimsóttir
ÁRIÐ 1994 heimsóttu erindrek-
ar Áfengisvarnaráðs, Hörður
Zóphaníasson og Jón K. Guð-
bergsson, 58 skóla víðs vegar á
landinu m.a. nánast alla grunn-
skóla á Norðausturlandi. Þeir
héldu fræðslufundi með nem-
endum og víða einnig með kenn-
urum og foreldrum.
I samvinnu við Fræðsluleik-
húsið var efnt til sýninga á leik-
ritinu Gúmmíendur synda víst í
fjölmörgum skólum, á vinnu-
stöðum, í félagsmiðstöðvum og
á fundum ýmissa félaga, m.a. í
öllum grunnskólum Reykjavík-
ur. Jafnan fóru fram umræður
um efni leikritsins að sýningum
loknum. Alls var leikritið sýnt
rúmlega 200 sinnum.
Auk þeirra skóla, sem heim-
sóttir voru, fengu nemendur úr
32 skólum frá grunnskólastigi
til háskólastigs aðstoð hjá
Áfengisvarnaráði við að afla sér
margs konar upplýsinga um
vímuefnamál. Þá fengu 65 aðrar
stofnanir og félög ýmiss konar
aðstoð auk fjölmargra einstakl-
inga. Öll þjónusta Áfengisvarn-
aráðs er ókeypis.
Dr. Mein-
hard Hilf
írskir dagar á
Kaffi Reykjavík
ÍRSKIR dagar hefjast í dag, fímmtu-
daginn 16. mars, á Kaffi Reykjavík
og standa til 22. mars. Víðsvegar um
heim er haldið upp á dag heilags
Patreks, sem er 17. mars, en þann
dags mun Kaffi Reykjavík standa
fyrir hátíðahöldum í Áðalstræti.
Boðið verður upp á íjölbreytta dag-
skrá, m.a. troða Paparnir og Hálft í
hvoru uppi. Á Kaffi Reykjavík verður
boðið upp á lukkukökur (Fortune
Cookies), en í þeim leynast glæsilegir
vinningar frá Ferðabæ. Sem dæmi
um vinninga má nefna páskaferð fyr-
ir tvo til Irlands, en innifalið er flug
og gisting í fjórar nætur með morgun-
verði, kvöldverð fyrir tvo á Kaffí
Reykjavík og létt öl að hætti íra.
Matseðill hússins verður með írsku
sniði, ljúffengur mjöður á boðstólnum,
írsk tónlist leikinn og húsið skreytt í
írsku fánalitunum.
Ókeypis lögfræðiaðstoð
á hverju fimmtudagskvöldi milli
kl. 19.30 og 22.00 í síma 11012.
ORATOR, félag laganema.
, Sunddeild
Armanns
Hin sívinsælu sundnámskeið
eru að hefjast.
Ungbarnasund Fyrir íullordna
Framhald ungbarnasunds Fyrir vatnshrædda
2-3 ára, 4-6 ára
Innritun virka daga frá kl. 16.30 og um helgar frá kl. 13.00.
í síma 76618 (Stella)
Framsókn '95
Halldór Asgrímsson
verður í morqunútvarpi Bylqjunnar í daq kl. 8
morgunútvarpi Byígjunnar í dag kl. 8:00 og síðan á vinnustaðafundum
í Reykiavík. Milli kl. 1 8 og 1 9 verður hann í þættinum Landsíminn á Bylgjunni.
Föstudaginn 17. mars verður hann á vinnustaSafundum í Kópavogi og á
herrakvöldi knattspyrnudeildar IBK í Keflavík.
B Framsóknarflokkurinn