Morgunblaðið - 05.04.1995, Blaðsíða 1
80. TBL. 83. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL1995
Verkföllin
í Færeyjum
Vaxandi
öngþveiti
Þórshöfn. Morgfunblaðið.
BRESTIR eru komnir í landstjóm-
ina í Færeyjum en einn stjórnar-
flokkanna, Verkamannafylkingin,
hefur lýst yfir stuðningi við kröfur
opinberra starfsmanna um 8,5%
launahækkun.
Talsmenn hinna stjómarflokk-
anna, Jafnaðarflokks, Sambands-
flokks og Sjálvstýriflokks, vildu
ekkert um þessa afstöðu Verka-
mannafýlkingarinnar segja í gær
en Óli Jacobsen, fulltrúi hennar í
landstjórninni, sagði, að stjómin
starfaði enn. Lagði hann áherslu
á, að aðeins væri verið að viður-
kenna, að opinberir starfsmenn
ættu rétt á hækkuninni samkvæmt
fyrri samningum.
Það gerir svo málið ekki einfald-
ara fyrir landstjórnina að eitt jafn-
aðarfélagið er sama sinnis og
Verkamannafylkingin.
Alger upplausn?
Ákvörðun Verkamannafylking-
arinnar gæti endað með stjórnar-
slitum og þá væri upplausnin al-
gjör, samfélagið lamað vegna
verkfalla og stjórnlaust að auki.
Leiðtogar á fundi
Reuter
JOHN Major, forsætisráðherra
Bretlands, gekk á fund Bills Clint-
ons, forseta Bandaríkjanna, i
Hvíta húsinu í Washington í gær.
Reyndu þeir að jafna ágreining-
inn, sem verið hefur með ríkis-
stjórnunum, og létu vel af árangr-
inum. Til þess var þó tekið hvað
Major fékk miklu innilegri viðtök-
ur hjá Newt Gingrich, einum
helsta leiðtoga repúblikana, en
þjá Clinton forseta.
Spánarstjórn hafnar drögum að samkomulagi við Kanada
Gera kröfu um lielni-
ing grálúðukvótans
Madrid, Brussel. Reuter.
SPÁNSKA stjórnin hafnaði í gær
formlega drögum að samkomulagi
í grálúðustríðinu við Kanada og
kvaðst mundu koma í veg fyrir
samkomulag nema Evrópusam-
bandið, ESB, fengi helming grá-
lúðukvótans. Búist var við, að við-
ræðum yrði haldið áfram í gær og
fram á nótt.
Javier Elorza, sendiherra Spánar
hjá Evrópusambandinu, sagði að
samkomulagsdrögin væru pólitísk
lausn en ekki byggð á eðlilegu
mati og því væri ekki hægt að fall-
ast á þau. Grálúðukvóti NAFO,
Norðvestur-Atlantshafsfiskveiði-
nefndarinnar, er 27.000 tonn á
þessu ári og áttu Kanadamenn að
fá 16.000 tonn í sinn hlut en ESB-
ríki 4.000 tonn. Samkvæmt drögun-
um koma 8.000 tonn í hlut ESB
eða Spánveija en það finnst þeim
of lítið.
Hafa í hótunum við Breta
Elorza sagði í gær, að Spánveijar
krefðust að minnsta kosti helmings
NAFO-kvótans eða 13.500 tonna
og myndu ekki standa að samkomu-
lagi um annað.
Stefnt var að áframhaldandi við-
ræðum í gær en Spánveijar geta
ekki beitt neitunarvaldi gegn drög-
unum því að í þessu máli ræður
aukinn meirihluti. Felipe Gonzalez,
forsætisráðherra Spánar, gagn-
rýndi Breta harðlega í gær fyrir
stuðning þeirra við Kanadamenn
og sagði, að næst þegar þeir þyrftu
á stuðningi að halda innan ESB
myndu þeir minnast þessa.
Portúgalsstjórn hafði ekki tjáð
sig um drögin í gær en samtök
togaraeigenda hvöttu hana til að
hafna þeim eins og Spánarstjóm.
Samkvæmisdans ólympíuíþrótt?
London. Daily Telcgraph. '
SAMKVÆMISDANSAR og brimbrettasiglingar eru
hugsanlega á leið inn á Ólympíuleika ásamt 15 öðr-
um nýjum íþróttagreinum, sem Alþjóðaólympíunefnd-
in (IOC) hefur tekið upp á arma sína og bíða þess
að komast á dagskrá leikanna.
Nýju greinarnar komast ekki á dagskrá leikanna
í Atlanta á næsta ári þar sem IOC tók sér tveggja
ára umþóttunartíma til þess að kanna stöðu grein-
anna með tilliti til þess hvort þær gætu uppfyllt
skilyrði til þess að verða fullgildar ólympíugreinar.
Af þessum sökum verður í fyrsta lagi hægt að
bjóða upp í dans á aldamótaleikunum í Sydney í
Ástralíu.
Ákvörðunin kemur á óvart þar sem háværar kröf-
ur hafa verið uppi í IOC um að fækka greinum á
Ólympíuleikum þar sem ásókn í þátttöku er nú orðin
mun meiri en framkvæmdaraðilar ráða við. Af þeim
sökum var neyðst til þess að setja þak á þátttöku í
leikunum.
Nefndin hefur á sama tíma reynt að varpa af sér
ímynd íhaldssemi og stöðnunar með því að taka vin-
sæla dægradvöl sem keppnisgreinar á Ólympíuleikum
en þannig komust strandblak og fjallahjólreiðar inn
á Atlanta-leikana.
„Það urðu átök um dansinn, en helstu andstæðing-
arnir hafa þó skipt um skoðun og viðurkenna nú
gildi hans sem líkamsmenntar og líkamlegrar þjálf-
unar. Stendur hann fyllilega jafnfætis ísdansi og
sundfimi," sagði Francois Carrard, foi-stjóri IOC.
80 SIÐUR B/C/D/E/F
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Sljórnarmyndunarviðræður í Finnlandi
Fimm flokka
stjórn könnuð
Rætt við alla
nema Miðflokkinn
Helsinki. Morgunblaðið.
PAAVO Lipponen, leiðtogi
finnskra jafnaðarmanna, lýsti yfir
í gær að hann hygðist leita sam-
starfs við flokk hægrimanna og
þijá minni flokka í stjórnarmynd-
unarviðræðum. Jafnaðarmenn eru
sigurvegarar nýafstaðinna þing-
kosninga og fengu fyrir skömmu
umboð til stjórnarmyndunar.
Lipponen tilkynnti blaðamönn-
um að hann hefði fengið umboð
til að mynda meirihlutastjórn með
hægrimönnum, Vinstrabandalag-
inu, Sænska þjóðarflokknum og
Græningjum. Spanna flokkarnir
nær allt finnska flokkalitrófið, frá
vinstri til hægri, og hafa 145 þing-
menn af 200.
Óvissa um
niðurstöðuna
Ekki þykir víst, að þessir flokk-
ar allir taki þátt í hugsanlegri
stjóm. Ráðherratalan er 18 og
ólíklegt þykir, að jafnaðarmenn
og hægrimenn vilji láta smáflokk-
unum eftir nema tvö ráðherraemb-
ætti hveijum. Jafnaðarmenn og
hægrimenn voru saman í stjóm á
ámnum 1987-’91 en á ámm áður
voru það venjulega jafnaðarmenn
og miðflokksmenn, sem störfuðu
saman.
Þéttbýli
gegn dreifbýli
Esko Aho, formaður Miðflokks-
ins, segir, að flokkspólitík ráði
því, að flokkurinn sé útilokaður
en Lipponen segir, að Miðflokkur-
inn vilji ekki skera jafn mikið nið-
ur og hinir flokkarnir. Ýmsir benda
á, að hér kristallist skipting Finna
í þéttbýli og dreifbýli en jafnaðar-
menn og hægrimenn sækja fylgi
sitt til bæjanna en Miðflokkurinn
í sveitirnar. Það hafi líka verið
þéttbýlið, sem tryggði sigur jafn-
aðarmanna í þing- og forsetakosn-
ingum og samþykkti aðildina að
Evrópusambandinu.
Reuter
Lincoln í
Gorkíj-garði
í Moskvu
RÚSSNESKUR öryggisvörð-
ur gætir hér stórrar styttu
af Abraham Lincoln, forseta
Bandaríkjauna, í Gorkíj-
skemmtigarðinum í Moskvu.
Er hún úr plasti og er hluti
af eftirmynd af Rushmore-
fjalli í Bandaríkjunum þar
sem andlitsmyndir fjögurra
Bandaríkjaforseta voru
höggnar út fyrr á öldinni. í
skemmtigarðinum verður
boðið upp á margt fleira, sem
ættað er úr Vesturheimi, til
dæmis „breikdans“ eins og sjá
má á skiltinu fyrir aftan stytt-
una.
Vilja taf-
arlausar
aðgerðir
Stokkhólmi. Reuter.
HÆGRIFLOKKURINN í Svíþjóð,
stærsti stjómarandstöðuflokkurinn,
hefur farið fram á viðræður við stjórn
jafnaðarmanna um ástandið í sænsk-
um efnahagsmálum.
Göran Persson fjármálaráðherra
hefur boðað niðurskurðartiliögur 25.
þ.m. en margir telja, að ekki megi
bíða með þær deginum lengur.
í bréfi, sem Carl Bildt, leiðtogi
Hægriflokksins, hefur sent Ingvari
Carlsson forsætisráðherra, leggur
hann til, að kannað verði með viðræð-
um hvort grundvöllur sé fyrir sam-
stöðu um víðtækar aðgerðir.
Talsmaður Midland Bank í Eng-
landi sagði í gær, að búast mætti
við, að lánstraust Svía yrði fært nið-
ur enn einu sinni.