Morgunblaðið - 05.04.1995, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1995 15
Morgunblaðio/Agust Blondal
WEST End-hópurinn sigraði í einum hópleiknum og tóku þeir
við verðlaunum frá Þrótti og nutu veitinga frá Pizza 67.
Mikil þátttaka í
getraunum
Neskaupstað - Mjög mikil þátt-
taka hefur veriðí Neskaupstað í
vetur í íslenskum getraunum og
hefur Þróttur oft verið meðal
þeirra íþróttafélaga á landinu
sem mestar tekjur hafa í viku
hverri af þátttöku í getraununum
þrátt fyrir að félagið teljist ekki
fjölmennt á landsvísu.
Mikill áhugi skapast í kring um
þessar getraunir og er m.a. um
40 hópar sem taka þátt i hópleik
Þróttar og Pizza 67 og er meting-
ur mikill á mill hópanna. Knatt-
spyrnudeild Þróttar nýtur ágóð-
ans af getraununum og á það
m.a. sinn þátt i að á síðasta ári
skilaði rekstur deildarinnar um
300 þúsund króna afgangi á móti
2,5 milljóna kr. tapi árið áður og
ef fer sem horfir stefnir allt í
mun betri af komu á þessu ári.
Sagt frá Jónasi frá Hriflu og
samskiptum við Þingeyinga
Húsavík - Guðjón Friðriksson sagn-
fræðingur hélt fyrirlestur í Safna-
húsinu á Húsavík sunnudaginn 2.
apríl sl. og fjallaði um Jónas Jóns-
son frá Hriflu og samskipti hans
við Þingeyinga og þá sérstaklega
með í huga uppgjör vegna kosninga
1946 og 1949.
Áheyrendur gerðu róðan róm að
erindi Guðjóns enda er hann gagn-
kunnugur ferli Jónasar eftir ára-
langar rannsóknir og útgáfu 3.
binda verks um æfi hans og störf.
Þess má að lokum geta að hinn
1. maí nk. eru 110 ár liðin frá fæð-
ingu Jónasar, þessa áhrifaríka og
umdeilda stjórnmálamanns.
Sendibíll innréttað-
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
MJÓLKURHÚSINU er haganlega komið fyrir í sendibílnum.
Mjólkurbú Flóamanna
ur sem mjólkurhús
Selfossi - Færanlegt mjólkurhús
hefur verið tekið í notkun hjá Mjólk-
urbúi Flóamanna. Mjolkurframleið-
endur geta fengið mjólkurhúsið Ián-
að endurgjaldslaust í ákveðinn
dagafjölda á meðan þeir eru að
gera endurbætur á mjólkurhúsum
sínum heima fyrir. Þetta auðveldar
framleiðendum að gera endurbætur
á mjólkurhúsunum, flísaleggja,
mála, breyta og lagfæra.
Mjólkurhúsið er í sendibíl sem
innréttaður hefur verið sem full-
komin endaeining mjaltakerfis með
fjórum mjaltatækjum, sjálfvirkri
þvottavél, vatnshitakút, sogdælu,
vöskum, 800 lítra mjólkurtanki
ásamt ýmsum aukahlutum. Þjón-
ustumenn MBF taka við beiðnum
frá framleiðendum um afnot af
SENDIBÍLLINN sem inn-
réttaður hefur verið sem
mjólkurhús.
mjólkurhúsinu, koma með það og
tengja við röralagnir í fjósum þann-
ig að mjólkurhúsið á staðnum er
að öllu leyti tekið úr notkun á með-
an endurbætur standa yfir.
LANDIÐ
Mikil umræða um skólamál á 40. fjórðungsþingi Vestfirðinga
Málefni framhaldsskól-
ans tekin til skoðunar
ísafirði - Fjórðungsþingi Vest-
firðinga, hinu 40. í röðinni, lauk
í Stjómsýsluhúsinu á ísafirði á
laugardaginn.
Samþykkt var að kjósa þriggja
manna nefnd sem móta á tillögur
um yfirtöku sveitarfélaga á mál-
efnum grunnskólans en í henni
eiga sæti Kristján Þór Júlíusson,
bæjarstjóri á Ísafírði, Anna Jens-
dóttir á Patreksfirði og Stefán
Gíslason á Hólmavík. Þá var sam-
þykkt að beina því til stjómar
fjórðungssambandsins að taka
málefni Framhaldsskóla Vest-
fjarða til skoðunar.
Hlutverk nefndarinnar er meðal
annars að kanna ástæður fyrir því
að nemendur sækja í nokkram
mæli burt í nám sem þó er í boði
upp á hér vestra auk þess sem
kanna á hvaða námsbrautir, sem
ekki er að hafa hér, er einkum
sótt í frá Vestfjörðum til annarra
landshluta, og hvernig mætti
koma á því námi og jafnvel öðrum
námsgreinum. Þá er nefndinni
gert á grundvelli niðurstöðu síðar-
nefndu könnunarinnar að gera til-
lögur um stofnun námsbrauta,
m.a. á framhaldsskóla- og há-
skólastigi. Niðurstöðum á nefndin
að skila eigi síðar en fyrir lok
marsmánaðar 1996.
Starfsemi sambandsins
verði skoðuð
Þá var samþykkt að skipa milli-
þinganefnd til að skoða starfsemi
og samþykktir sambandsins auk
þess sem ákveðið var að halda á
sömu braut. og verið hefur varð-
andi málefni atvinnuráðgjafa
Vestfjarða. Samþykkt var ályktun
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson
EIRÍKUR Finnur Greipsson, nýráðinn frainkvæmdastjóri fjórð-
ungssambandsins (t.h.), þakkar hér fráfarandi framkvæmda-
sljóra til 22 ára, Jóhanni T. Bjarnasyni, fyrir farsælt starf.
þar sem fagnað er því sem áunn-
ist hefur með lækkun gjaldskrár
fyrir langlínusímtöl og hét þingið
á stjórnvöld að ganga enn lengra
í þessu efni með það að markmiði
að sama gjaldskrá gildi að lokum
um allt land, án tillits til fjar-
lægða. Þá skorar þingið á stjórn-
völd að leyfa veiðar smáhvala án
tafar og þingið samþykkti að taka
undir áskoran bæjarstjórnar ísa-
fjarðar til ríkisstjórnar íslands um
að væntanleg rannsóknarstöð
snjóflóða á íslandi verði staðsett
á ísafirði.
Nýr framkvæmdastjóri
Stjórn fjórðungssambandsins er
öll endurkjörin til tveggja ára. Nýr
framkvæmdastjóri tók við fjórð-
ungssambandinu að þinginu loknu
en það er Eiríkur Finnur Greipsson
frá Flateyri. Hann tók við af Jó-
hanni T. Bjarnasyni sem gegnt
hefur stöðunni í rúmlega 22 ár.
„Fyrsti starfsdagurinn hefur
gengið mjög vel, ég hef fengið
mikið af hlýjum og góðum kveðj-
um, bæði hér úr húsinu sem og frá
öðram sem hafa hringt eða komið
í heimsókn. Eg er mjög ánægður
og vona bara að ég geti staðið
undir þeim væntingum sem til mín
era bomar, því það er auðvitað
erfitt að feta í fótspor jafn farsæls
framkvæmdastjóra og Jóhanns T.
Bjamasonar," sagði Eiríkur Finnur
Greipsson í samtali við blaðið.
SUZUKI SWIFT
Verulega góður kostur
Suzuki Swift er bíil, sem hefur reynst einstaklega vel við íslenskar aðstæður, eins og mikill
fjöldi ánægðra eigenda getur vitnað um.
Rekstrarkostnaður er sérstaklega lágur vegna lítillar bilanatíðni, og sparneytni er í algjörum
sérflokki, frá 4.0 lítrum á hundraðið. Endursöluverð á Suzuki Swift er einnig óvenju hátt.
Nú getum við boðið Suzuki Swift á ákaflega hagstæðu verði.
Verð: Suzuki Swift frá kr. 998.000
$ SUZUKI
SUZUKI BÍLAfí HF
Skeifan 17, sfmi 568 5100